Morgunblaðið - 05.03.1981, Side 44

Morgunblaðið - 05.03.1981, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1981 COSPER I>að er þó gleðileKt aó unxi maóurinn skuli hafa áhuKa á einhverju öðru en peninKunum mínum! I’að er vissara að hrinKja á sjúkrabíl! HÖGNI HREKKVlSI Verða bækur í þjóðarbókhlöðunni? Jónas Ólaísson skrifar: „Nú þegar Þjóðarbókhlaðan fyrirhugaða er að rísa af grunni er rétt að velta fyrir sér spurn- ingunni hér að ofan. Hún er reyndar nokkuð færð í stílinn því víst er að margar bækur verða í Þjóðarbókhlöðunni. En hversu margar? Tilefni spurningarinnar er þetta: Svo er að skilja að með nýrri tækni geti bókasöfn látið duga að geyma eitt eintak af hverri bók. Lánþegi notar eins konar síma til að biðja um bókina og fær mynd hennar fram á skjá heima hjá sér. Ekki er einu sinni víst að eintakið á safninu verði alvörubók úr pappír, en það er aukaatriði. Afleiðingar þessarar nýju tækni snerta ýmsa. aði breytast, en þeim fækkar ekki endilega. Höfundur bókar þarf kannski einungis vélritara og myndlistarmann til þess að búa til eina eintakið sem gert er af bókinni. Þannig hljóta miklu fleiri að geta gefið út sínar bækur en nú. Greiðslur til höfunda og ann- arra sem vinna að bókum breyt- ast. í stað ágóða af sölu bóka í stykkjatali koma leigugjöld fyrir aðgang að efni. Útgáfufyrirtæki haida sjálfsagt áfram að auglýsa einstök verk og sjá kannski um innheimtu leigugjalda meðan þau eru ný. Löggjafinn fær einnig að hugsa ráð sitt um vernd höfund- arréttar og fleira við þessar breyttu aðstæður. Uppfinningamenn verða svo að útvega hentugan skjá sem ekki er alltof mikið af snúrum aftan í og er til dæmis liprari að bylta sér með uppi í rúmi heldur en stóra sjónvarpið í stofunni. Fleiri atriði má vafalaust telja, en hér verður látið staðar numið og aðrir sem áhuga hafa á málinu eru beðnir að bæta um. í lokin er þó rétt að benda á, að það sem hér hefur verið sagt um bækur gildir einnig að nokkru leyti um kvikmyndir og hljómplötur sem almenningsbókasöfn hafa víða bætt á verkefnaskrána í seinni tíð.“ Skipuleggjendur bókasafna þurfa að gera ráð fyrir útbúnaði til mikilla boðsendinga um línur innan húss og út úr húsi. Kannski má minnka geymslurými undir bækur og bæta í staðinn vinnu- aðstöðu gesta. Afgreiðsla verður með öðru móti þegar hætt er að bera bækur í stykkjatali milli húsa. Fjöldaframleiðsla bóka snar- minnkar. Ekki þarf lengur að eyða hálfum skógi í framleiðslu eins reyfara því að textinn getur skilað sér jafngóður á skjá, þyngdarlaus eins og besta sjón- varpsmynd. Verkefni í prentiðn- Ennum grænan sjó Hafsteinn Blandon skrifar 28. febrúar: „Gísli Jóhannsson ritar pistil í Velvakanda 27.2. og hyggst hrekja skoðanir undirritaðs varðandi hent- ug stjórntæki fyrir hitakerfi. I grein þessari svífur Gísli segl- um þöndum út á grænan sjó óljósra fullyrðinga, sem sumar hverjar eru beinlínis á misskilningi byggðar, og því nauðsynlegt að leiðrétta. Áhrif breytileifs mismunarþrýstings Gísli talar um sveiflukennda starfsemi sjálfvirkra ofnhitastilla og stillir upp dæmi um 100% aukningu á vatnsrennsli ef mis- munarþrýstingur eykst úr 1 metra á 4 metra vatnssúlu. Þetta er að sjálfsögðu fjarstæða ef um er að ræða hitakerfi með sjálfvirkum ofnlokum og virðist Gísli eitthvað hafa misskilið hvern- ig slíkir lokar vinna. Til að bæta úr þessu vil ég benda honum á að lesa fróðlega grein í Danfoss Journalen nr. 4 1979, en í því riti er á blaðsíðu 8 gerð grein fyrir niðurstöðum rannsókna, sem Danfoss-verk- smiðjurnar létu gera á áhrifum þeim, sem sveiflur í mismunar- þrýstingi hafa á nákvæmni hita- stýringar með sjálfvirkum ofnlok- um. Niðurstöður þeirra rannsókna eru þær að breytist mismunar- þrýstingur um 1 metra vatnssúlu þá megi reikna með hitastigsbreytingu um það bil 0,1°C og er það auðvelt reikningsdæmi að sýna fram á að vatnsrennsli muni ekki aukast um 100% við slíka smábreytingu. Lokaorð dönsku vísindamann- anna um þetta eru eftirfarandi: „Under normale forhold vil diff- erenstrykket í sádanne anlæg ligge mellen 0,05 og 0,3 bar (svarar til 0,5—3 metra vatnssúlu), hvorfor ændringer under drift ikke vil have nogen betydning for regulerings- nojagtigheden." Þessa setningu er velkomið að þýða fyrir Gísla yfir á ísienzka tungu ef þörf krefur. Hæfileg mörk mis- munarþrýstings Algeng gerð sjálfvirkra ofnloka er gefin upp fyrir hámarksmismun- Hafsteinn Blandon arþrýsting 6 metra vatnssúlu. Af fræðiritum má ráða að heppilegast sé að halda þrýstingnum á hilinu 0,5—3 metra vatnssúlu fyrir al- gengustu tegundir hitakerfa og kemur það vel heim við reynslu undirritaðs af slíkum kerfum. í Morgunblaðsgrein Gísla vitnar hann í örstutt samtal okkar í Iðnaðarmannahúsinu varðandi nákvæmni á stillingu þrýstiminnk- ara. Hér er um hugtakarugling að ræða því ekkert var rætt um nákvæmni þrýstiminnkarans. Ég gaf Gísla upplýsingar um stillisvið ákveðins þrýstiminnkap og einnar gerðar slaufuloka, og gat þéss að með því að nota þessi tvö tæki saman væri lágmarksstilling á mis- munarþrýstingi 5 metrar. Er ég svaraði Gísla láðist mér að vísu að geta þess að við algeng skilyrði á íslenzkum hitaveitukerfum, þar sem inntaksþrýstingur fer ekki yfir 10 bar, er auðvelt að stilla mismun- arþrýstinginn á 1—2 metra vatns- súlu með sömu tækjum, talan 5 metrar var miöuð við 16 bar inntaksþrýsting, en sá þrýstingur svarar til hámarksþrýstiþols um- rædds loka. Ég benti Gísla þó á það í sama samtali, að með því að nota slaufu- loka með hærra stillisviði, sem einnig er seldur á íslenzkum mark- aði, væri auðvelt að stilla á lágan mismunarþrýsting undir öllum kringumstæðum, en þessa lætur hann ógetið í grein sinni. Um kostnaðarsamanburð Til að menn átti sig á hverju verið er að sækjast eftir með því að nota stjórntæki af sem einfaldastri gerð fylgir hér kostnaðarsaman- burður á stjórntækjum fyrir meðal- stórt einbýlishús miðað við verðlag í febrúar 1981. A) þrýstijafnari u.þ.b. kr. 960.- tilheyr. slaufuloki u.þ.b.kr. 960.- Alls kr. 1920,- B) þrýstiminnkari u.þ.b. kr. 390- tilheyrandi þindarstýrður slaufuloki u.þ.b. kr. 360.- Alls kr. 750.- Sparnaðurinn á einni hústeng- ingu er tæpar tólf hundruð krónur, og geta menn leikið sér að því að reikna út hversu mikið sparist þegar tengja á hundruð eða jafnvel þúsundir húsa við nýjar hitaveitur, eins og nú á sér stað. Um reglugerð Á fyrirlestri Gísla í Iðnaðar- mannahúsinu kom fram staðhæfing um að í bígerð væri að setja inn í reglugerð Hitaveitu Reykjavíkur ákvæði um að þrýstijafnara skyldi krafist á öll hitakerfi í Reykjavík. Ekki treysti ég mér til að andmæla þessu þá, þar sem ég hafði enga hugmynd um fyrirætlanir Hitaveit- unnar í reglugerðarmálum. Hins vegar hef ég nú spurt yfirverkfræðing Hitaveitunnar um þetta, og tjáði hann mér að Hita- veitan leyfði notkun bæði þrýsti- jafnara og þrýstiminnkara á ein- föld hitakerfi og engar breytingar væru í bígerð þar að lútandi."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.