Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 5

Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981 5 Foreldrasamtökin lýsa stuðningi við f óstrur FORELDRASAMTÖK barna á dag- heimilum og leikskólum i Reykjavik efndu til fundar meó blaðamönnum fyrir nokkru, ok kynntu þar hvernig ástatt er i dagvistarmálum i höfuð- borginni. Eins og kunnugt er hafa fóstrur í Reykjavik hótað verkfaili frá og með 1. mai næstkomandi gangi borgaryfirvöld ekki að kröf- um þeirra og við það mundu rúm- lega 3000 börn missa dagvistarpláss sin, og svo og svo margir foreldrar verða þá nauðbeygðir til að taka sér fri frá vinnu. Frá fundi forsvarsmanna Foreldrasamtakanna með blaðamönnum: Þórdis Gunnarsdóttir, Elin Edda Árnadóttir, Magnús M. Norðdahl, Hildur J. Agnarsdóttir og Nanna Heiðarsdóttir. Ljósm. Mbl. ÓI.K.M. í frétt Foreldrasamtakanna segir meðal annars svo: „Kominn er tími til þess að fólk geri sér grein fyrir því að dagheimili og leikskólar þjóna sí- auknu hlutverki í nútíma þjóðfélagi. Hlutverki sínu sem uppeldisstaður þjóna þau ekki nema þau hafi á hæfu og menntuðu starfsfólki að skipa. Foreldrasamtök barna á dagheimil- um og leikskólum í Reykjavík skora því á borgaryfirvöld að ganga þegar til samninga við fóstrur svo ekki komi til lokunar heimilanna 1. maí næst- komandi." Þá taka Foreldrasamtökin dæmi um afleiðingar þess, skelli á verkfall, og segir þar svo: „Ef einni deild dagheimilis verður lokað, þar sem eru 18 börn og ein fóstra, þá þýðir það að 25 foreldrar missa dagvistarpláss fyrir börn sín (miðað vð að 60% foreldra séu einstæðir). Átján for- eldrar þyrftu því að taka sér frí frá vinnu og vera heima með börnum sínum. Við þetta tapast 144 vinnu- stundir á dag í atvinnulífintr. Fyrir alla Reykjavík þýðir þetta 34.184 vinnustundir. Miðað við 25 kr. og 45 aura meðal verkamannakaup, þá ger- ir það 879.982 króna tap á dag. Viku lokun þýðir allt að fjórðungstap í launum hvers einstaklings á mánuði. Það getur gert útaf við fjárhag efnalítils fólks, en það nýtur helst dagvistarþjónustu borgarinnar. Til að kóróna ástandið getur komið til þess að foreldrum verði sagt upp á vinnu- stöðum sínum." Þá segir ennfremur í frétt For- eldrasamtakanna: „Það er eðlileg og sjálfsögð krafa að fóstrum verði tryggð sú starfsaðstaða og þau launa- kjör að þær fáist í þau störf sem nú vantar í og mun vanta í í náinni framtíð. Ör skipti eru á fóstrum á flestum dagvistarheimilum af sömu ástæðum og háir það öllu innra starfi heimilanna. Það ástand er óþolandi og til mikils tjóns fyrir börn okkar. Við krefjumst þess að tryggt sé að menntaðir starfskraftar fáist á dag- heimili og leikskóla." Foreldrasamtökum barna á dag- heimilum og leikskólum í Reykjavík voru stofnuð í maímánuði 1980. Þá voru í samtökunum fulltrúar 9 dag- heimila og leikskóla í borginni, en nú eru fulltrúar frá 28 heimilum í samtökunum, og geisluðu forsvars- menn Foreldrasamtakanna af ánægju á blaðamannafundinum vegna þess- arar fjölgunar. Foreldrasamtökin eiga frá ársbyrjun 1981 fulltrúa í stjórnarnefnd dagvistarstofnana í Reykjavík. í frétt samtakanna segir svo um helstu markmið þeirra: „Helstu markmið Foreldrasamtak- anna eru meðal annars, að taka virkan þátt í umræðum og ákvörðun- um um dagvistarmálefni, efla for- eldrasamstarf, auka dagvistarrými, auka skilning atvinnurekenda og ann- arra á sveigjanlegum vinnutíma, og stuðla að bættri starfsaðstöðu og launakjörum starfsfólks á dagheimil- um og leikskólum." Líttu við Þessir gámar voru fullir af nýjum glæsilegum sumarvörum sem allar eru komnar ^ í verzlanir v okkar. ^RKARNABÆR Laugavegi 66 — Glæsibæ — Austurstræti 22 Sími frá skiptiboröi 85055 Það borgar sig að líta við Það er ekki víst að sumarið sé komið en sundfötin eru komin í Austurstræti 22, 2. hæö. Sími 85055.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.