Morgunblaðið - 10.04.1981, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
7
KógavogsböariJ
PÁSKAEGG
30°/i
o
álagningar-
afsláttur
VIKINGUR
Nr. 2 kr. 17.50.-
Nr. 6 kr. 46.50.-
Nr kr. 61.90.-
N? 'ÍÖ kr. 93.20.-
NOI
Nr. 2
Nr. 3
Nr. 4
Nr. 5
Nr. 6
kr. 11.50.
kr. 22.50.
kr. 40.50,
kr. 52.50.
kr. 94.50,
Gerið verðsamanburð!!!
Opiö á (östudögum til kl. 8 og nú er opiö til
hádegis á laugardögum.
Kvöld og helgarsala opin öll kvöld til kl. 23.30.
UHBUFEUL
Þverbrekku 8, Kópavogi.
Símar 42040 og 44140.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
*
Al'GLYSINGA-
SÍMINN KK:
22480
Kommúnistar grípa til allra þeirra ráöa, sem þeir hafa á valdi sínu, til aö
spilla fyrir smíöi hinnar nýju flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Lúalegust er
þó framkoma fjármálaráöherra Ragnars Arnalds. í skýrslu, sem gefin er
út á hans ábyrgö af fjárlaga- og hagsýslustofnun, er því haldiö fram, aö
rekstur flugstöövarinnar muni skila hagnaöi. Utan fjármálaráöuneytisins
heldur Ragnar Arnalds því fram, aö þessi niöurstaða starfsmanna hans sé
ekki á rökum reist.
Siðleysi f jár-
málaráðherra
Fjárlaga- ok hatísýslu-
stofnun, sem lýtur stjórn
fjármálaráðherra, hefur
samið skýrslu. er heitlr:
Rekstur nýrrar flug-
stöðvar á Keflavikur-
flugvelli og dagsett er i
mars 1981. t skýrslunni
segir svo undir fyrir-
sögninni Helstu niður-
stöður:
„Ilolstu niðurstöður
þessarar könnunar eru
að áætlaðar tekjur af
rekstri flugstöðvarinnar
geti staðið undir áætluð-
um kostnaði ... Á
grundvelli lágmarks-
tekna. þ.e. miðaö við
tekjur af leigugjöldum
eingöngu, er jákvæður
rekstrargrundvöllur
sem nemur um 216.000
US dollurum á ári. Ef
miðað er við hámarks-
tekjur, þ.e. tekjur af
flugvallargjaldi og
nettótekjur frihafnar,
þá verður rekstraraf-
ítangur 2.777.000 US
dollarar á ári."
Nú er af og frá, að
skýrsla um svo mikil-
va‘gt málefni sem þetta
sé útgefin af ráðuneyti
án þess að viðkomandi
ráðherra sé kimnugt um
efni hennar og niður-
stöður. Þess vegna eru
undarleg þau ummæli,
sem Ragnar Arnalds yf-
irmaður fjárlaga- og
hagsýslustofnunar lét
eftir sér hafa um rekstr-
aráætlun flugstöðvar-
innar hér i blaðinu á
miðvikudag. Ráðherr-
ann segir, að á þriðju-
dag hafi Timinn slegið
þvi upp, að það verði
rekstrarafgangur af
flugstöðinni. Siðan segir
Ragnar Arnalds: „Sú
rekstraráiitlun er nú
gerð með þeim óvenju-
lega hætti að það er ekki
reiknað með neinum
vaxtagreiðslum vegna
lána, sem tekin eru til
framkvæmda. Eg er ansi
hræddur um. að rekstr-
aráætlunin snérist nú
heldur betur á hvolf þeg-
ar búið er að taka tillit
til fjármagnskostnaðar-
ins."
Fjármálaráöherra
kveður hér fast að orði
um skýrslu starfsmanna
sinna og áætlun. Hvers
vegna beitti ráðherrann
ekki valdi sinu til að
koma i veg fyrir, að
ráðuneyti hans gæfi út
skýrslu með þeim van-
köntum, sem hann tiund-
ar hér að ofan? Svarið
við þessari spurningu er
einfalt og kemur fram i
skýrslunni sjálfri. Þar
segir svo á blaðsiðu 15:
„Tckið skal fram að ekki
er reiknað með fjár-
magnskostnaði af flug-
stöðvarbyggingunni
frekar en almennt af
opinberum mannvirkj-
um.“ Tviskinnungur Al-
þýðubandalagsins er alls
staðar hinn sami. Fjár-
málaráðherra segir eitt i
fjármálaráðuneytinu og
annað opinberlega. Hon-
um hefði verið nær að
láta semja umrædda
skýrslu að sinu höfði
heldur en ráðast á emb-
ættismenn sina i blöðum
fyrir að fylgja jteim regl-
um, sem viðteknar eru i
fjármálaráðuneytinu.
Afsökun
Þjóðviljans
Eins og lesendur
Staksteina muna var á
miðvikudaginn bent á
það í þessum dálki. að
Arni Bergmann telur
lýðræðinu aðeins hætta
búin frá hægri. Þessi
ábending var byggð á
ritstjórnargrein, sem
Árni birti i Þjóðviljan-
um um siðustu helgi.
Hann sá þar aðeins fyrir
sér óttalegt samsæri
hægri manna með stuðn-
ingi herforingja og auð-
vitað bandarisku leyni-
þjónustunnar. Þessi
samsæriskenning verður
að helsta boðskap
kommúnista um heim
allan, þegar fyrir dyrum
stendur valdbeiting af
hálfu Sovétrikjanna.
Hún var beinlinis notuð
sem átylla af Kremlverj-
um, þegar þeir réðust
inn í Afganistan um
jólin 1979. Væri einhver
Pólverji svo óheppinn,
að hann fengi Þjóðvilj-
ann i hendur og læsi
boðskap Árna Berg-
manns um þá sömu helgi
sem Brezhnev fór óvænt
til Prag, læsi hann auð-
vitað strax ógnvekjandi
boðskap milli linanna.
„Albaniu-röksemda-
færslum" kommúnista
eru nefnilega engin tak-
mörk sett og þegar mest
á riður gripa þeir til
likingamáls, sem er eins
og dulmál i augum
þeirra er utan hóps
hinna innvigðu standa.
Kúgaðar þegnar alræð-
isrikjanna i Austur-
Evrópu eru næmari
fyrir þessu máli en
nokkrir aðrir.
Það er furðulegt, hvað
kommúnistar bregðast
illa við. þegar öðrum en
hinum innvigðu dettur i
hug að lesa orð þeirra
mcð sama hugarfari og
þau eru rituð. Engum er
verr við þetta en Árna
Bergmann. Ilann bregst
alltaf við með þjósti
miklum og spinnur lang-
an vef vegna meinlausra
ábendinga eða athuga-
semda. Hann hefur
greinilega orðið illur
mjög. þegar hann las
Staksteina á þriðjudag-
inn. I Þjóðviljanum i
gær bregður hann sér i
þann ham, sem komm-
únistum er kærastur, að
þeir séu yfir aðra hafnir
vegna gáfna sinna og
menntunar. Árni segir
um það, sem i Stakstein-
um sagði: „Það er eng-
inn endir á heimsku-
þvaðri." Einkennilegt er
þó, að Árni sér ástæðu
til að biðjast afsökunar á
helgarboðskap sinum.
Ilann segir: „Eins og
hver maður getur sagt
sér sjálfur verður ekki i
einni forystugrein kom-
ið að öllum samanlögð-
um lifsháska lýðræðis —
það yrði meiri upptaln-
ingin!" Enginn hefur
farið þess á leit við Árna
Bergmann, að hann of-
geri sér við ritun for-
ystugrcina. Hitt er stað-
reynd, að sá vill ekki
hafa það. sem sannara
reynist, sem skrifar um
„lifsháska lýðræðis" án
þess að minnast einu
orði á blóðugar atlögur
kommúnista að þvi.
r h bátasýningin
Batur
og búnaóttr
Sýningahöllinni aó Bildshöfóa 11/4 — 20/4
opnum á morgun kl.4
Bátar - bátavélar - bátabúnaður - viðlegubúnaður -
sportfatnaður - tískusýningar - reiðhjól - bílar - o.fl. o.fl.
Stórkostleg fjölskylduhátíð um páskana
SNARFARI