Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 10

Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981 Hafnfírsk menningarvaka 4.—11. apríl: Sýning Eiríks Árna MYNDLISTARSÝNING Eiríks Árna SigtryífKsonar að Reykjavík- urvegi 66 er einn þátturinn í Hafnfirsku menningarvðkunni er nú stendur yfir. Hófst sýningin þ. 4. apríl en stendur til 12. april — einum degi lengur en menningar- vakan. Á sýningunni eru 58 olíu- málverk og 10 vatnslitamyndir. Er sýningin opin frá kl. 17—22 virka daga en frá kl. 14—22 um helgar. „Ég lærði í Ásmundarsal, hjá Valtý Péturssyni og Hring Jóhann- essyni," sagði Eiríkur Árni í samtali við Morgunblaðið, „lærði meðferð olíulita hjá Valtý en módelteikningu hjá Hring. Svo lauk ég líka teikni- kennslunámskeiði í Myndlistarskól- anum 1962 og hef kennt meira og minna síðan. Þá hef ég verið hjá einkakennurum í Svíþjóð — en þar hef ég dvalið talsvert undanfarin ár. Ég er reyndar tónmenntakennari að mennt og stjórnaði m.a. Karlakórn- um Þresti í fimm ár — en það er nú önnur saga. Þeir hringdu í mig til Sviþjóðar og fóru fram á að ég héldi sýningu hér á menningarvökunni. Þessar myndir sem ég sýni hér eru flestar í svokölluðum „avant garde-stíl“ — ég hef alltaf verið hrifinn af þessari myndgerð sem byggir á fantasíunni — að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn. Það má segja að þetta séu mínar eigin hugmyndir um lífið og tilveruna í nútímanum — það er bæði gaman og alvara i þessu. Ég sýndi fyrst sem unglingsræfill á Mokkakaffi 1961 en síðan ekki aftur fyrr en í Keflavík 1971. Alls hef ég haldið átta einkasýningar og einu sinni tekið þátt í haustsýningu FÍM. Ég er mjög ánægður með fram- gang þessarar sýningar — aðsókn hefur verið góð og síður en svo vera að draga úr henni,“ sagði Eiríkur Árni að lokum. Eiríkur Árni við eitt verkanna á sýningunni. [,jósm. Emilta. ALLTER ÞÁ ÞRENNT ER Varanleg vegagerÓ VerÓtrygging \bn umvinning Nú er hafin sala verðtryggöra happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs í 1. flokki 1981, vegna fram- kvæmda við Norðurveg og Aust- urveg. Þeir sem kaupa slík bréf stuðla að varanlegri vegagerð. - Þeir verðtryggja fé sitt, þar sem bréfin verða endurgreidd að aðeins fimm árum liðnum með fullum verðbót- um — og þeir gerast þátttakendur í happdrætti þegar dregið verður um alls 933 vinninga, að fjárhæð 750 þúsund krónur. Allir vinningar eru nú dregnir út í einu lagi hinn 1. júní n. k. og eru vinningar sem hér segir: 1 vinningur á kr. 150.000 = kr. 150.000 2 aukavinningar á kr. 20.000 = kr. 40.000 10 vinningar á kr. 10.000 = kr. 100.000 920 vinningar á kr. 500 = kr. 460.000 933 vinningar samtals kr. 750.000 Bréfin eru skattfrjáls og undan- þegin framtalsskyldu — þau kosta 100 krónur og fást í bönkum og sparisjóðum um allt land. Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja frammi hjá söluaðilum. VEKÐTRYGGT f HAPPDRÆTTTSLÁN ‘ RÍKISSJÖÐS SKUIDABRÉF 1981-l.FL. ErniTUNDRAÐ KRONUR * Vitítölu mAnaóariega skv. heimikí i 39. gr iaga nr. 13 frí 10 april 1979. Skulöabréf [xrtta fymist i tiuárum fra gjakidaga og veráur ekki innleyst aðþeim tímaliánum. Falli hapfxiraettísvinniny- ur i skuidabréi þetta, skal hans vítjað innan fjögurta ára frá útdrætti. elia veráur bann eign tfitlssjoðs, Siá nánar bins vegar greirtd kjor og skiiméta ■ A>'A"d.( > V Æht í V/isO' SEÐLABANKI ISLANDS Fermingar Ferming og altarisganga i Stór- ólfshvolskirkju, pálmasunnudag 12. april kl. 10.30 f.h. Prestur: Séra Stefán Lárusson. Guðmundur J. Sigurgeirsson, Hvolsvegi 30, Hvolsvelli. Hilmar Stefánsson, Stóragerði 2A, Hvolsvelli. Hrafn Arnason, Hvolsvegi 21, Hvólsvelli. Kristinn Sigursteinsson, Túngötu 5, Hvolsvelli. Snorri Sævarsson, Nýbýlavegi 36 Hvolsvelli. Sæmundur Bjarnason, Þinghóli, Hvolhreppi. Ferming og altarisganga í Stór- ólfshvolskirkju, pálmasunnudag 12. april kl. 14. Prestur: Séra Stefán Lárusson. Guðni Sv. Theodórsson, Litlagerði 9, Hvolsvelli. Ómar J. Árnason, Götu, Hvolhreppi. Elín R. Sigurðardóttir, Litlagerði 17, Hvolsvelli. Margrét B. Guðnadóttir, Vallarbraut 12, Hvolsvelli. Unnur Óskarsdóttir, Norðurgarði 6, Hvolsvelli. Þórunn Óskarsdóttir, Norðurgarði 6, Hvolsvelli. Ferming í Hábæjarkirkju, Þykkvabæ, sunnudaginn 12. april klukkan 10.30. Prestur séra Auður Eir Vilhjálms- dóttir. Fermd verða: María Pálsdóttir, Hávarðarkoti. Magnús S. Ágústsson, Brekku. Óskar Garðarsson, Húnakoti. Steindór Gunnarsson, Vatnskoti. Sævar Óli Ólafsson, Háfi. Ferming i Árbæjarkirkju, Hoita- hreppi, sunnudaginn 12. april klukkan 2. Prestur séra Auður Eir Vilhjálms- dóttir. Fermd verða: Kolbrún Björnsdóttir, Snjallsteinshöfða, Landmanna- hreppi. Ketill Gíslason, Meiri-Tungu, Hoitahreppi. Konráð K. Sigurðsson, Lækjarbraut 5, Rauðalæk. Kökubasar í Hlíðaskóla FORELDRAFÉLAG Hlíða- skóla i Reykjavík efnir árlega til kökuhasars laugardaginn fyrir pálmasunnudag. Verður kökubasarinn í ár kí. 2 næst- komandi laugardag i skólan- um, þar sem verða á boðstól- um kökur og annað góðmeti. í þetta sinn er basarinn til ágóða fyrir litasjónvarpstæki, sem Foreldrafélagið ætlar að gefa skólanum, og tengist myndsegulbandstæki, sem það hefur þegar gefið. En með því móti má taka upp ákveðna þætti í skólanum og sýna í sambandi við kennslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.