Morgunblaðið - 10.04.1981, Side 11

Morgunblaðið - 10.04.1981, Side 11
I MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981 11 Niegel Gifford. tilbúinn i slag- inn i einum klettavegsnum. „Ég þurfti auðvitað ekki að hugsa mig um tvisvar, því það hafði verið draumur minn að komast aftur til íslands, og reynd- ar er ég ákveðinn í að heimsækja landið aftur á næsta ári,“ sagði Niegel Gifford ennfremur. Þá spurði ég Gifford um helstu fjallgönguafrek hans í gegnum tíðina. — „Ég hef í raun alltaf verið með mikla fjallabakteríu og ég fór snemma að leita til fjalla. Ég byrjaði auðvitað heima í Bret- landi og þar hef ég klifið flestar helstu leiðir. Síðar meir fór hugur- inn að leita víðar og nærtækast var að halda í Alpana. Ég hef verið þar svo tugum skiptir og klifið mjög víða,“ sagði Gifford. Þá kom það fram hjá Gifford, að hann hefur gert mjög víðreist um heiminn síðustu 5—6 árin. hann kleif Mount Everest, hæsta fjall heims, árið 1976 og Nupste, eitt hæsta fjall heims í nágrenni Everest árið þar á undan. Þá kleif Gifford einn síns liðs hæsta fjall Norður-Ameríku, Mt. McKinley fyrir þremur árum og sagði Gif- Hef alltaf geng- ið með mikla fjallabakteríu - segir Niegel Gifford, hinn kunni fjalla- maður, í samtali við Mbl., en hann er hér á landi í boði íslenzka Alpaklúbbsins MIKINN hvalrekai hefur rekið á fjörur íslenskra fjallgöngu- manna, en það er hinn heims- kunni fjaligöngumaður Niegel Gifford. sem hingað er kominn i boði Islenzka Alpaklúbbsins. Hann mun i kvöld halda fyrirlest- ur og sýna litskyggnur úr ferðum sínum um Norður-Ameríku und- anfarin ár, þ.á m. frá „soloferð" sinni á Mt. McKinley, hæsta fjall álfunnar. Ég spjallaði stuttlega við Gif- ford í vikunni og spurði hann fyrst hver væri kveikjan að því að hann kæmi hingað til lands. — „Ég var hér á ferð í fyrra með enskum blaðamönnum, sem voru að kynna sér land og þjóð. Ég kynntist mörgum góðum mönnum, þar á meðal Helga vini mínum í Skáta- búðinni, sem ennfremur er einn frammámanna í íslenzka Alpa- klúbbnum. Hann hafði svo sam- band við mig fyrir nokkru og spurði hvort ég hefði ekki áhuga á að heimsækja Island öðru sinni og halda þá fyrirlestur fyrir íslenzka Alpaklúbbinn," sagði Niegel Gif- ford. Geðhjálp styð- ur aukna mennt- un fangavarða LAUGARDAGINN 7. mars 1981 boðaði félagið Geðhjálp og félags- samtökin Vernd til hringborðs- umræðna um málefni geðsjúkra afbrotamanna. Þangað var boðið 38 valinkunnum mönnum. í um- ræðunum komu m.a. fram áhyggjur fangavarða yfir því, hve litla fræðslu þau fengju um með- höndlun á slikum mönnum, sem þurfa mjög oft að sæta þeirri meðferð að gista fangageymslur og fangelsi, segir frétt frá stjórn Geðhjálpar. Fangavarðarstarfið er áreiðan- lega vanþakklátt starf að ýmsu leyti og oft hætt við því, að það sé ekki nægilega metið að verðleikum í augum almennings, segir í frétt- inni. En þetta starf er ekki síður nauðsynlegt en önnur störf í þjóð- félaginu og mjög mikið undir því komið, að það sé ó góðum og traustum höndum og starfsmenn- irnir hafi færi á að búa sig sem best til starfsins. Því fagnar Geðhjálp framkominni þingsályktunartillögu er varðar aukna menntun fanga- varða. Tillagan er flutt af Helga Seljan, Salóme Þorkelsdóttur, Jóni Helgasyni, Jóhönnu Sigurðardóttur og Friðrik Sóphussyni. ford að ferðin hefði tekið liðlega fimm daga. Undir venjulegum kringumstæðum eru fjallgöngu- menn á bilinu 10—20 daga að klífa fjalla, því mjög nauðsynlegt er að aðlagast þunna loftinu. — Varstu ekkert var við hina illræmdu fjallaveiki í þessari ferð? — „Ég slapp alveg við hana, nema hvað hún gerði lítilsháttar vart við sig á niðurleiðinni," sagði Gifford. Gifford sagði aðspurður, að hann myndi koma víða við í fyrirlestri sínum, en það helzta væru myndir frá McKinley-ferð hans og klifurferðum hans um helztu klettaklifursvæði Banda- ríkjanna, sem eru einhver þau þekktustu í heimi. Niegel Gifford, er útgefandi tímaritsins „Mountain Year“, auk þess sem hann skrifar greinar í mörg útivistarrit. — „Mestur tím- inn fer þó í fjallaferðir víða um heiminn," sagði Niegel Gifford, að síðustu. Fyrirlestur Giffords hjá ís- lenzka Alpaklúbbnum verður í ráðstefnusal Hótels Loftleiða og hefst klukkan 20.00 í kvöld. Stofnað félag stjórnenda framhaldsskóla FÉLAG stjórnenda fram- haldsskóla var stofnað hinn 6. april sl. Formaður var kjörinn Ingvar Ásmundsson skólastjóri en aðrir í stjórn eru Sveinn Ingvarsson konrektor og Krist- ján Thorlacíus áfangastjóri. Varamenn í stjórn voru kjörnir skólameistararnir Kristinn Kristmundsson og Tryggvi Gíslason. Rétt til að ganga í félagið hafa rektorar, skólameistarar og skólastjórar, konrektorar, og að- stoðarskólameistarar, aðstoðar- skólastjórar, áfangastjórar og yfirkennarar og aðrir sem eru fastráðnir til stjórnunarstarfa í framhaldsskólum. Hlutverk félagsins er: Að vinna að bættum kjörum félags- manna sinna og gæta hagsmuna þeirra, að vinna að umbótum í málefnum framhaldsskólanna og að efla kynni félagsmanna. ^ ^—— ' ----- Það er ósvikið „SL~rjör“ _________ ásólarkvöldunum, stuttog smellin skemmtiatriði, hnitmiðuð og vönduð ferða- kynning og síðan dúndrandi fjör á dansgólfinu, þar sem nægur tími gefst til þess að skemmta sér eins og hvern lystir. Sólarkvöldin - vönduð og vel heppnuð skemmtun við allra hæfi Kynnir Magnús Axelsson - Stjórnandi Sigurður Haraldsson Dansað til kl. 01 - Húsið opnað kl. 19 Boröapantanir í síma 20221 e. kl. 16 í dag /f'~7 Samvinnuferdir-Landsýn (y- AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SQ The GlobeStudy CentreFor English ÁMORGUN KYNNINGARFUNDUR um enskunám í Englandi veröur haldin í Ráðstefnusal Hótel Loftleiöa laugaraginn 11. apríl kl. 14. Skólastjóri GSCE, Mr. Steve Davis, mætir á fundinn. Sýndar verða litmyndir af starfsemi skólans. Fyrri nemendur velkomnir. Umboðsmaöur og farastjóri GSCE, Böðvar Friðriksson, símar 41630 og 41930.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.