Morgunblaðið - 10.04.1981, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
Veltir leggur niður réttingaverkstæðið:
Segja verður upp
átta starf smönnum
VOLVO-umboðið Veltir hf. hefur
ákveðið að leggja niður réttingar-
og bilasprautuverkstæði sitt, sem
það hefur rekið undanfarin ár.
Ásgeir Gunnarsson forstjóri Veltis
tjáði Mbl., að starfsmönnum verk-
stæðisins. átta að tólu, hefði verið
sagt upp og myndi starfseminni
hætt í lok júni.
Ástæða lokunar verkstæðisins er
sú, að forráðamenn Veltis telja ekki
lengur rekstrargrundvöll fyrir slíku
verkstæði, að leyfðir taxtar standi
vart undir nauðsynlegum rekstr-
arkostnaði. Þá væri einnig óhag-
stæðara að reka slíkt sérverkstæði,
útibú, sem væri ekki í beinum
tengslum við aðra starfsemi fyrir-
tækisins. Ásgeir Gunnarsson sagði,
að undanfarið hefði reksturinn ver-
ið í nákvæmri athugun og hefðu
starfsmenn þess fylgst náið með
henni. Hefði nýlega verið tekin
þessi ákvörðun og starfsmönnum og
viðkomandi verkalýðsfélögum og
yfirvöldum verið gert viðvart.
Ásgeir Gunnarsson sagði, að
fyrirtækið myndi veita starfs-
mönnum aðstoð við útvegun á
annarri vinnu, nokkrir hefðu þegar
kannað aðra möguleika og a.m.k.
einn væri kominn á eftirlaunaaldur.
Ásgeir sagði, að á næstu vikum yrði
athugað hvernig háttað yrði þjón-
ustu Veltis við réttingar, smáverk
yrðu e.t.v. tekin inn á almenna
verkstæðið og hugsanlega yrði sam-
ið við annað verkstæði um stærri
verkefni.
Arndís Björnsdóttir
Fyrsta konan
í framkv^emda-
stjórn KÍ
Á fulitrúaráðsfundi Kaup-
mannasamtaka ísiands, sem hald-
inn var i gær, var Arndis Björns-
dóttir kjörin aðalmaður i fram-
kvæmdastjórn samtakanna, ásamt
þeim Ásgeiri S. Ásgeirssyni og
Berði Péturssyni, sem voru endur-
kjörnir.
Fyrir í framkvæmdastjórninni
eru formaður og varaformaður
Kaupmannasamtakanna, þeir
Gunnar Snorrason og Þorvaldur
Guðmundsson. Varamenn í stjórn-
ina voru kjörnir þeir Birkir Skarp-
héðinsson, Gísli Blöndal og Ólafur
Björnsson.
Arndís Björnsdóttir er fyrsta
konan, sem kjörin er í fram-
kvæmdastjórn Kaupmannasam-
taka íslands. Arndís rekur verzlun-
ina Rosenthal í Reykjavík.
Iðnaðarráðherra setur
stjórn yfir Orkustofnun
IÐNAÐARRÁÐHERRA, Hjör-
leifur Guttormsson, hefur skipað
3ja manna stjórn yfir Orkustofn-
un og sitja i henni borgarstjóri,
Egill Skúli Ingibergsson, verk-
fræðingur, formaður, Krist-
mundur Halldórsson. deildar-
stjóri, og Sveinbjörn Björnsson,
eðlisfræðingur.
í tilkynningu iðnaðarráðherra
segir, að starfshópur hafi skilað
áfangaskýrslu um endurbætur á
skipulagi og stjórnsýslu á Orku-
stofnun í desember sl. og hafi
iðnaðarráðherra fallizt á tillögur
meirihluta hans. Einnig hefur
verið ákveðið, að framvegis skipt-
ist Orkustofnun í stjórnsýsludeild,
vatnsorkudeild, jarðhitadeild og
orkubúskapardeild.
Wyi*»
Skrifborðsstolar
margar gerðir
Skóla-
og skída-
pokar
Lampar
hentugir
skólafólki
Myndlistarvörur
í miklu úrvali
Skjalatöskur
Töfl
og taf
menn
letUKI
Skrif-
möppur
Bsekur
Jarðlíkön
Gjafavöruúrval
Nú, sem endranær býöur Penninn upp á mikið úrval af gjafavörum: Pennasett,
jarölíkön, töfl og töskur — og í verslun okkar í Hallarmúla fást skrifborðsstólar,
lampar, myndlistarvörur auk úrvals íslenskra og erlendra bóka.
Gjafavöruúrvalið er í Pennanum
Hallarmúla 2 Hafnarstræti 18 Laugavegi 84
Hafnfirsk
menningarvaka
Það er jafnan mikið ánægju-
efni er efnt er til menningar-
daga utan höfuðborgarinnar og
höfum við hér í blaðinu reynt
að rækta þá viðleitni svo sem
tök hafa verið á. En þetta vill
verða skammgóður vermir, því
að þrátt fyrir að uppákomurnar
gefi miklar vonir, vilja þær
lognast útaf í stað þess að
verða árviss viðburður. Ég
minnist sérstaklega glæsilegr-
ar Vorvöku á Akureyri fyrir
nokkrum árum, en þrátt fyrir
góðar undirtektir hefur hún
ekki verið endurvakin og
myndlistin býr þar við dapur-
legri kjör en hún verðskuldar.
Blinda er því miður algengari
hjá þeim, sem hafa fulla og
heilbrigða sjón en hinum raun-
verulega blindu, — því að til
hvers er að hafa augu og nýta
þau ekki? Sjá ekkert og upplifa
ræða. Ein mynd þótti mér bera
af á sýningunni fyrir sterka
heild og var það myndin „Hert-
ir þorskhausar", koma hér
fram bestu eiginleikar Stefáns
sem málara og hér er hann
persónulegri en í flestum hinna
myndanna þar sem Andrew
Wyeth er jafnan nálægur. Aðr-
ar myndir er athygli mína
vöktu sérstaklega fyrir fáguð
vinnubrögð voru „Bjart veður"
(1), „Stampar í sól“ (2) og
„Rétt“ (10). Gunnlaugur Stefán
kemur fram sem ljóðrænn real-
isti en það er langt í það að
hann geti nefnst „súperrealisti"
líkt og sumir hafa gert í
fjölmiðlum. Þessa sýningu ættu
fæstir að láta fram hjá sér fara
auk þess sem það er fjarska
notalegt að koma í þetta hús.
í Iðnskólanum er viðamesta
sýningin, en þar sýnir Eiríkur
ekkert með sjóninni, misþyrma
skilningarvitinu. — I Hafnar-
firði stendur nú yfir „menning-
arvaka" og lýkur henni á laug-
ardag. Þar spilar fólk á hljóð-
færi, aðrir þenja raddböndin og
enn aðrir sýna myndverk og
verður lítillega fjallað um þann
þátt hér.
Svo við byrjum á æskunni, þá
halda fimm ungmenni sýningu
í húsakynnum Æskulýðsráðs
og eru það þau Gestur F.
Guðmundsson, (f. 1956) er nam
í málaradeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands (MHÍ),
Guðmundur ómar Svavarsson
(f. 1957) er sl. ár hefur stundað
nám hjá Bjarna Jónssyni, list-
málara. Jón Þór Gislason (f.
1957), hann stundar nám í MHÍ
og lýkur bar námi í vor. Krist-
bergur O. Pétursson (f. 1962),
hann stundar einnig nám í
MHÍ og er á öðru ári í grafík og
svo Svava Björg Einarsdóttir
(f. 1961), en hún er á fyrsta ári
í MHÍ.
Þetta er vafalítið allt hæfi-
leikafólk, og mætti ýmislegt
um það segja hér, en þar sem
sumir stunda ennþá nám við
MHÍ, er afar erfitt fyrir mig að
gera upp á milli þeirra vegna
þess að auðvelt væri að ásaka
mig fyrir hlutdrægni.
Eg vil nú samt fullyrða að
þau betur skóluðu bera af á
sýningunni og því meir sem þau
eru lengra á veg komin, — en
öll eru þau ennþá ómótuð og
langur og strangur gangur
framundan ef að úrskerandi
árangur á að nást. En það er
ómaksins vert að skoða sýning-
una og fylgjast frá upphafi með
þessum nýgræðlingi í Hafn-
firskri myndlist.
— í húsi Bjarna riddara
Sívertssen hanga uppi nokkrar
myndir eftir Gunnlaug Stefán
Gislason, — það er merkasti
viðburðurinn hvað myndlistina
áhrærir á þessari menningar-
vöku enda um sjóaðan og viður-
kenndan myndlistarmann að
Mlyndlisl
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
Árni Sigtryggsson 58 olíu-
myndir og 10 vatnslitamyndir.
Eiríkur hefur undanfarin ár
dvalið í Svíþjóð og að sögn
helgað sig myndlistinni og hélt
síðast einkasýningu í Hafnar-
firði árið 1978.
Hér er það myndvarpan sem
blómstrar í öllu sínu veldi
ásamt því að það glittir í sterk
áhrif frá Guðmundi Erró í nær
hverri einustu olíumynd. Eirík-
ur ofhleður myndir sínar að því
leyti, að hann veldur ennþá
ekki þeirri tækni, að samræma
ótal einingar í skipulega heild
líkt og t.d. Erró.
Myndir Eiríks eru margar
hverjar með erótísku ívafi, en
sú erótík er hvorki hnitmiðuð
né sannfærandi.
Augljóst er að hér er mynd-
varpan frekar þröskuldur á
vegi listamannsins en opin leið
til fyllri tjáningar. Myndir þær
sem Eiríkur hefur gert með
höndunum einum, sýna að hann
á langt í land til að meistra
myndræna tækni, þær eru frek-
ar klúðurslega unnar og máski
er hér fundin ástæðan til
ofnotkunar myndvörpunnar.
Eiríkur mætti að ósekju temja
sér þá ögun sem felst í því að
hnitmiða og þaulvinna hverja
hugmynd.
Að öllu samanlögðu er ávinn-
ingur að því að skoða þessar
sýningar og vonandi verður hér
um að ræða árvissan viðburð
um langa framtíð.