Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
flfafgtlttlllflfetíÞ
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakið.
Söguleg úrslit
í efri deild
Atkvæðagreiðslan í efri deild Alþingis á miðvikudaginn um heimild
til lántöku vegna byggingar nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflug-
velli endurspeglar alvarlega upplausn innan stuðningsmannaliðs
ríkisstjórnarinnar. Utanríkisráðherra lendir bæði í andstöðu við
samráðherra og eigin flokksbræður.
Framsóknarþingmenn í efri deild aðrir en utanríkisráðherra greiddu
atkvæði á þann veg, að afstaða þeirra brýtur í bága við ályktun
miðstjórnar flokks þeirra, sem samþykkt var um síðustu helgi. Telja
þeir framsóknarmenn, sem greiddu atkvæði með sjónarmiðum kommún-
ista en á móti Ólafi Jóhannessyni, að afstaða þeirra sé í samræmi við
vilja meirihluta hins almenna flokksmanns? Eða er flugstöðvarmálið
liður í togstreitu innan Framsóknarflokksins, þar sem þingflokkurinn er
annarrar skoðunar en miðstjórnin? Eða vilja framsóknarþingmenn sýna
Ólafi Jóhannessyni lítilsvirðingu af öðrum ástæðum en þeim, sem liggja
fyrir í flugstöðvarmálinu — er verið að svipta hann tignarheitinu
„ókrýndur foringi" flokksins, sem Steingrími Hermannssyni hefur
ávallt verið í nöp við? Eftir atkvæðagreiðsluna í efri deild vakna þessar
spurningar og raunar margar fleiri um ástandið innan Framsóknar-
flokksins undir formennsku Steingríms Hermannssonar. Vitað er, að
þingflokksformaður framsóknarmanna, Páll Pétursson, telur til póli-
tisks fóstbræðralags við afturhaldsöflin í Alþýðubandalaginu. Hann og
fleiri skoðanabræður hans harma það vafalaust ekki, að Tómas
Arnason, viðskiptaráðherra, skyldi ekki vera á fundi í efri deild, þegar
hin sögulega atkvæðagreiðsla fór fram. Raunar er það enn til að
staðfesta pólitíska lausung viðskiptaráðherra, að í orði telur hann
eðlilegt að afla þegar á þessu ári fjár til flugstöðvarinnar, en þegar á
reynir ákveður hann að dveljast utan þings í stað þess að fylgja skoðun
sinni fram til sigurs. Er Tómas Árnason með hringlandahætti sínum
persónugervingur þess vinguls, sem Framsóknarflokkurinn er í
íslenskum stjórnmálum?
í ríkisstjórnum allra fullvalda og sjálfstæðra ríkja er litið þannig á,
að utanríkisráðherra gangi næst forsætisráðherra að völdum og
virðingu, — þessir tveir ráðherrar myndi ásamt fjármálaráðherra
möndulinn í sérhverri ríkisstjórn. Um utanríkisráðherrann, störf hans
og stefnu, þarf að ríkja eining. Að öðrum kosti getur hann ekki gegnt
skyldum sínum út á við. Erlendir viðmælendur utanríkisráðherra þurfa
að geta sannfærst um myndugleika hans og trausta stöðu heima fyrir.
Milli forsætisráðherra og utanríkisráðherra þarf að ríkja trúnaður og
eðlilegir stjórnarhættir krefjast þess, að þessir tveir menn veiti hvor
öðrum gagnkvæman stuðning. Innan núverandi ríkisstjórnar er slíkur
trúnaður ails ekki fyrir hendi. í tveimur lykilmálum hefur dr. Gunnar
Thoroddsen tekið afstöðu á móti Ólafi Jóhannessyni en með
kommúnistum, þ.e. í Helguvikurmálinu svonefnda og nú í flugstöðvar-
málinu. Ágreiningurinn milli þeirra tveggja manna, sem hafa mestum
skyldum að gegna fyrir þjóðina út á við, er orðinn svo augljós, að hann
hlýtur að hafa neikvæð áhrif fyrir land og þjóð meðal stjórnvalda og
ráðamanna þeirra ríkja, sem hafa mest samskipti við Island. Á þeim
óvissu tímum, sem í alþjóðamálum eru, getur þessi þverbrestur innan
ríkisstjórnarinnar haft hinar alvarlegustu afleiðingar, þegar mest á
reynir. Viðbrögð forsætisráðherra dr. Gunnars Thoroddsen við
spurningu blaðamanns Morgunblaðsins um þetta efni sýna, að
ráðherrann gerir sér grein fyrir þeirri erfiðu stöðu, sem myndast hefur
að þessu ieyti innan ríkisstjórnarinnar og út á við gagnvart öðrum
þjóðum. Ráðherrann er viðskotaillur vegna þess að hann er gjörsamlega
ráðalaus í sjálfheldunni.
Sé litið á atkvæðagreiðsluna í efri deild á miðvikudaginn í ljósi
þeirrar stöðu, sem skapaðist innan Sjálfstæðisflokksins við myndun
núverandi stjórnar, er umhugsunarvert, að samstarfið milli Geirs
Hallgrímssonar og Ólafs Jóhannessonar er miklu nánara en milli dr.
Gunnars Thoroddsen og Ólafs Jóhannessonar. Þessi samstaða Geirs og
Ólafs kemur fram í hverju málinu á eftir öðru og í sjálfu sér myndast
með henni nauðsynlegt mótvægi við upplausnina og þverbrestina innan
ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum. Það er engin tilviljun sem ræður
samstöðu formanns utanríkismálanefndar Alþingis og utanríkisráð-
herra, heldur markviss viðleitni ráðherrans. Ólafur Jóhannesson gerir
sér grein fyrir því, að í ráðherrastörfum getur hann ekki komið neinu
góðu til leiðar, ef hann er undir það settur að eltast við duttlunga
kommúnista. Hann velur því þann skynsamlega kost að eiga samstarf
við þá menn, sem vilja halda þannig á málstað íslands, að ekki skapist
bil milli utanríkisstefnu þjóðarinnar og þeirra viðhorfa, sem ráða í
vinveittum nágrannaríkjum. Fáir hefðu að óreyndu búist við því, að seta
sjálfstæðismanna í núverandi ríkisstjórn væri svo dýru verði keypt, að
þeir teldu sér ekki einu sinni fært að framfylgja stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í utanríkismálum. Hvað sem stjórnarsinnar segja, munu
kommúnistar leggja úrslitin í efri deild á miðvikudag út sem sigur fyrir
þjóðhættuleg sjónarmið sín í uatnríkismálum.
Loftmynd þessa tók Tómas Helgason yfir Heklu i gærdag.
„Breytir engu um
okkar áætlanir44
- segir Páll Ólafsson, staðarverkfræð-
ingur við Hrauneyjafossvirkjun
„Næturvaktmaðurinn okkar
varð fyrst var við drunur og
læti rétt fyrir klukkan þrjú í
fyrrinótt, þegar hann var á
eftirlitsferð um svæðið,“ sagði
Páll Ólafsson, staðarverkfræð-
ingur við Hrauneyjafossvirkj-
un, í samtali við Mbi.
Páll sagði, að lítilsháttar
öskufall hefði verið í nótt eftir
að gosið byrjaði, en síðan hefði
það rénað þar til undir hádegis-
bilið, þegar einhver kippur kom
í gosið og vindátt snérist að
nýju.
„Annars hefur þetta verið
svo ósköp lítið, að það hefur
ekki gert neinn grikk. Starf-
semin hefur gengið sinn vana-
gang. Því á ég ekki von á að
þetta „gos“ komi til með að
breyta nokkru um okkar áætl-
anir,“ sagði Páll ennfremur.
Á leið blaðamanna Morgun-
blaðsins um sveitina í nágrenni
Heklu, kom það berlega í ljós,
að fólk kippti sér ekkert upp við
þessi umbrot, enda kannski
ekki von, þar sem mjög sjaldan
sást að einhverju marki til
fjallsins.
Nokkuð öskufall var i byggðum i nágrenni Heklu i gærdag, eins og
þessar myndir, sem teknar voru við Hrauneyjafossvirkjun bera
glöggt með sér. Ljósmyndir Mbl. Kristján.
Forsetinn og biskupinn 1 Þjóðlífsþætti
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir og biskupinn yfir ís-
landi, Sigurbjörn Einarsson
munu koma fram i Þjóðiifsþætti
sjónvarpsins á páskadag. Auk
þeirra munu nokkrir alþingis-
menn koma þar fram og fara með
visur og syngja.
Að sögn Valdimars Leifssonar,
dagskrárgerðarmanns munu for-
setinn og biskupinn ræða um
markverða atburði vetrarins og
um hvað páskarnir snúast og
hvaða áhrif þeir hafa á mannfólk-
ið.
ALþingismennirnir Karvél
Pálmason og Helgi Seljan munu
syngja fyrir áhorfendur og þeir
Halldór Blöndal og Páll Pétursson
fara með ýmis konar kveðskap.
Skipaútgerðin kannar mögu
leika á sölu Heklu og Esju
SKIPAÚTGERÐ rikisins kannar
nú mögulega sölu á strandferða-
skipum sínum Heklu og Esju og
hefur ákveðinn skipamiðlari verið
beðinn að kanna þá möguleika.
Enn hefur þó ekki verið farið
fram á söluheimild.
Að sögn Guðmundar Einarsson-
ar, forstjóra Skipaútgerðar ríkisins
er það ekki áhugamál að selja
skipin strax, heldur er verið að
kanna möguleika á sölu, með það í
huga að innan nokkurra ára muni
koma að því að selja þurfi bæði
skipin vegna aldurs. Hann sagði þó,
að ef hagstætt tilboð fengist, kæmi
fyllilega til greina að selja annað
skipið nú þegar. „Okkur þykir
hagstæðara að kanna þessa mögu-
leika nú, nokkru áður en kemur að
því að selja þurfi skipin og teljum
að með því séu möguleikar á
hagstæðari tilboðum. Nú stendur
til smíði nýs skips og við höfum
gert tillögur um smiði þriggja
skipa, en hvað verður úr því, veltur
Á ÞESSARI vertíð hafa borizt á
land á Stokkseyri 2.459 tonn af
fiski, en á sama tíma i fyrra höfðu
borizt hér á land 1.919 tonn,
þannig að afli nú er um 540
tonnum meiri en á sama tima i
fyrra.
á afgreiðslu lánsfjáráætlunar, en
það er ljóst, að innan skamms
verðum við að auka flutningsgetu
okkar," sagði Guðmundur.
Þrír aflahæstu bátarnir eru
Njörður með 595 tonn, Árni Magn-
ússon með 594 tonn og Fróði með
550 tonn.
Togarinn Bjarni Herjólfsson hef-
ur aðeins lagt á land hér 91 tonn
frá áramótum.
Fréttaritari
Stokkseyri:
540 tonnum meiri afli á
land kominn en í fyrra
Stokk.Koyri. 10. april.