Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
Nokkrir þeirra sem erindi flytja á trúarvöku Lifs og lands ásamt nokkrum stjórnarmönnum
samtakanna. F.v. Jón óttar Ragnarsson formaður, séra Gunnar Kristjánsson. Hannes Kristján Árnason
og Björn Björnsson. Aftari röð f.v.: Þóra Kristjánsdóttir, Árni Bergmann og Björg Einarsdóttir.
Ljósm. Rax
Landssamtökin Lif og land:
Borgarafundur um trú-
mál í Norræna húsinu
LANDSSAMTÖKIN Líf og land
efna til borgarafundar um
trúmál á morgun, laugardag.
Fer fundurinn fram i Norræna
húsinu og stendur frá kl. 9.00
til um 16.30. Verður þar m.a.
fjallað um helztu trúarbrögð
heims en þó einkum trúarbrögð
á íslandi og stöðu þjóðkirkjunn-
ar. Á blaðamannafundi sem
stjórn Lifs og lands boðaði til
kom fram aö þótt umhverfismál
væru aðaláhugamál samtak-
anna hefði að þessu sinni verið
ákveðið að fjalla um trúmál —
trúarbrögðin væru hluti af hinu
félagslega umverfi okkar, mót-
uðu umhverfið með margvís-
legum hætti og siðast en ekki
síst viðhorf okkar til umhverfis-
ins og hvers annars.
Borgarfundurinn verður með
ráðstefnusniði og hefst með
ávarpi Jóns Óttars Ragnarsson-
ar, formanns Lífs og lands, en
síðar verða flutt 29 erindi af
jafnmörgum ræðumönnum sem
öll fjalla um trúmál en frá
mismunandi sjónarhornum.
Fundurinn er tvískiptur og verð-
ur hádegisverðarhlé frá kl. 12 til
13. Fundarstjóri fyrir hádegi
verður séra Bernharður Guð-
mundsson en þá verða flutt þessi
erindi: Fornnorræn trúarbrögð;
Jón Hnefill Aðalsteinsson, Kaþ-
ólsk trú; Torfi Ólafsson, Gyð-
ingatrú; Þórir Kr. Þórðarson,
Múhameðstrú; Myako Þórðar-
son, Austræn trúarbrögð; Skúli
Magnússon, Kristinboð á ís-
landi; Jónas Gíslason, menning-
aráhrif kirkjunnar; Björn Þor-
steinsson, Helgidagahald kirkj-
unnar; Haraldur Ólafsson,
Sértrúarhópar; Kristján Rób-
ertsson, Trúarbragðafræðsla í
skólum; Sigurður Pálsson,
Kirkja og byggingalist; Hörður
Bjarnason, Kirkja og leiklist;
Eyvindur Erlendsson, Kirkja og
myndlist; Líney Skúladóttir,
Kirkja og tónlist; Jón Þórarins-
dóttir, Kirkja og ritlist; Ólafur
Halldórsson.
Fundarstjóri eftir hádegi
verður Sigurlaug Bjarnadóttir
en þá verða flutt þessi erindi:
Trú og list; Gunnar Kristjáns-
son, Trú og vísindi; Páll Skúla-
son, Trú og stjórnmál; Björn
Björnsson, Kirkjulist fyrri alda;
Þór Magnússon, Trú og mark-
aðsskipulag; Guðmundur Magn-
ússon, Trú og sósíalismi; Árni
Bergmann, Trú og íslenzk þjóð-
menning; Jón Sigurðsson, Kirkja
og Alþingi; Gunnlaugur Stef-
ánsson, Kirkja og heimsmálin;
Gunnlaugur Jónsson, Kirkja og
geðheilsa; Guðrún Jónsdóttir,
Kirkja og konan; Dalla Þórðar-
dóttir, Kirkja og ríki; Jón Ein-
arsson, Endurnýjun kirkjunnar;
Heimir Steinsson, Maður og trú;
Sigurður A. Magnússon.
Að loknum erindaflutningi
verða pallborðsumræður, frá kl.
15.45—16.30, þar sem ræðumenn
munu svara fyrirspurnum. öll
erindin sem flutt verða hafa
verið fjölrituð og verða þau
fáanleg á fundinum.
Fiskiðn — fagfélag fiskiðnaðarins:
Sænskir áhugaleikarar
sýna Tom Sawyer í
Reykjavík og á Húsavík
Á HÍISAVÍK verða haldnar tvær
sýningar á leikritinu „Ævintýri
Tom Sawyers“ eftir sögu Mark
Twain, og verða þær laugardag-
inn 11. april kl. 15.00 og kl. 17.00
i íþróttahúsi barnaskólans.
Auk sýninganna tveggja á
Húsavík verður ein sýning í
Reykjavík í Norræna húsinu
mánudaginn 13. apríl kl. 20.30.
Meðan á dvölinni á Húsavík stend-
ur mun leikurunum m.a. gefast
tækifæri á að skoða bóndabæ í
nágrenni Húsavíkur og í Reykja-
vík er ætlunin að fara í leikhús,
skoða Kjarvalsstaði, Leiklistar-
skóla íslands og heimsækja Jón
Guðmundsson og skoða leikbrúður
hans.
Þetta er hópur áhugaleikara frá
Svíþjóð, „Sodertálje Teaterama-
törer“, en þeir hafa í tilefni
norræna málaársins hlotið styrk
frá Norræna
áhugaleiklistarráðinu (Nordiska
amatörteaterrádet) til gestaleiks
á Húsavík. í leikflokknum eru 18
manns, og er um helmingur þeirra
börn og unglingar, en auk þess eru
með í förinni 2 menn sem munu
skrifa um ferðina og taka myndir,
auk þess sem þeir munu gera
menningardagskrá um ísland.
Frá æfingu Sodertalje Teateramatörer á leikritinu „Ævintýri Tom
Sawyers“.
Fyrirlestur í HI:
Efnahagskreppan og viðbrögð
verkalýðshreyfingarinar
Kynningarfundur um rekstr-
arráðgjöf og tölvuþjónustur
FISKIÐN, fagfélag fiskiðnaðar-
ins, gengst fyrir kynningu á
rekstrarráðgjöf og tölvuþjónustu
fyrir fiskiðnað i ráðstefnusal Hót-
els Loftleiða í dag og hefst hún kl.
9.15. Þessi kynning er sérstaklega
ætluð stjórnendum fiskvinnslufyr-
irtækja, en er þó öllum opin sem
áhuga hafa. Hefur Fiskiðn fengið
fyrirtækið Rekstrartækni sf. til að
leggja til megin hluta efnis á
kynningunni.
Verður m.a. fjallað um bónus í
frystingu, saltfisk og skreiðarverk-
un og ýmsar nýjungar tengdar því.
Einnig verður sérstaklega fjallað
um fræðslustarfsemi fyrir starfs
fólk fiskvinnslufyrirtækja.
Ýmsar nýjungar við tölvuþjón
ustu verða kynntar, s.s. tölvuunnií
gallaeftirlitskerfi í frystihúsum
framlegðar útreikninga fyrir fisk
veiðar og aflabókhaid fyrir veiði
skip og birgðabókhald fyrir frysti-
hús. Einnig verður flutt erindi unr
tölvunotkun í fiskiðnaöi í nútíð of
framtíð.
Að kynningunni lokinni verðí
pallborðsumræður um ráðgjafar-
og tölvuþjónustu og hlutverk þjón-
ustufyrirtækja. Kynningarfundin
um lýkur um kl. 17.10.
PRÓFESSOR Mandel við
Frjálsa háskólann í Br-ssel
flytur opinberan fyrirlestur á
vcgum félagsvísindadeildar
Iláskóla íslands, laugardag-
inn 11. apríl kl. 14.00 í stofu
101 í Lögbergi.
Fyrirlesturinn fjallar um
einanagsKreppuna og vionrogt
verkalýðshreyfingarinnar.
Prófessor Mandel er víð
kunnur fræðimaður, einkum i
sviði marxískrar hagfræði o$
hefur gefið út fjölda bóka oj
haldið fyrirlestra víða unr
heim, segir í frétt frá Háskóls
íslands.
Bergmálstónleikar á Suðurlandi
BERGMÁL, samhland bland-
aðra kóra á Suðurlandi, held-
ur tónlcika í Árnesi 10. apríl
nk. og í Njálsbúð 11. april.
Sambandið var stofnað sl.
haust og samanstendur af
fjórum kórum í héraðinu,
Árneskór, Flúðakór, Samkór
Rangæinga og Samkór Selfoss.
Kórarnir munu syngja 3—4
lög hver og síðan nokkur lög
sameiginlega, þar á meðal lag
eftir Sigurð Ágústsson frá
Birtingaholti, sem hann samdi
sérstaklega í tilefni þessara
tónleika.
Verk Vésteins Lúðvíkssonar sýnt á Seyðisfirði
LEIKFÉLAG Seyðisfjarðar er
nú að æfa af kappi verk
Vésteins Lúðvíkssonar „Stalín
er ekki hér“ undir stjórn G.
Margrétar Óskarsdóttur. Leik-
endur eru sex talsins en alls
starfa að uppsetningunni um
fjórtán manns.
ólafía Þórunn Stefánsdóttir og Guðmundur Rúnar Lúðvíksson í
hlutverkum sinum.
Ráðgert er að frumsýna leik-
ritið um eða eftir páskana.
Formaður Leikfélags Seyðis-
fjarðar er Emil Emilsson.
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstaaöisflokkaina veröa til
viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl. 14.00 til
10.00. Er þar tefcið á möti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö notfssra aár
viötalstfma þeasa.
Laugardaginn 11.
apríl veröa til viö-
tals Páll Gíslason
og Hilmar Guö-
laugsson.