Morgunblaðið - 10.04.1981, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
Kristján Karls-
son fyrrv. banka-
stjóri - Minning
Fæddur 1. júní 1893.
Dáinn 2. april 1981.
Kristján var fæddur 1. júní 1893
á Akureyri og voru foreldrar hans
hjónin Karl Kristjánsson, verzl-
unarmaður og Guðný Jóhanns-
dóttir.
Árið 1907 gerðist hann starfs-
maður i útibúi íslandsbanka á
Akureyri, aðeins 14 ára gamall —
og starfaði þar í 21 ár, lengst sem
bókari og aðalfulltrúi útibúsins og
staðgengill útibússtjórans þegar
svo bar undir.
Þegar bankastjórnin ákvað, árið
1922, að hefja starfrækslu útibús á
Sigiufirði á sumrin, nokkru fyrir
og fram yfir síldveiðitímann, þá
var Kristjáni falið að stjórna því,
en reikningslega taldist það hluti
af Akureyrarútibúinu fyrstu árin.
Við þessi störf sín í þessum
tveimur athafnamiklu kaup-
stöðum og sem einnig náðu til
verulegs hluta viðskipta- og at-
hafnalífs á Norður- og Norðaust-
urlandi, aflaði Kristján sér stað-
góðrar þekkingar á rekstri
atvinnuveganna og dýrmætrar
reynslu bankamannsins í viðskipt-
um.
Þegar Kristján hafði starfað í
bankanum á Akureyri (og Siglu-
firði) í 21 ár, var hann, árið 1928,
kallaður til Reykjavíkur og
skipaður bankastjóri aðalbank-
ans, einn af þremur, en fyrir voru
þeir Eggert Claessen hæstarétt-
arlögmaður og Sigurður Eggertz
fyrrv. forsætisráðherra. Því starfi
gegndi hann þar til yfir þyrmdi og
bankinn varð að fella niður störf í
bili, í febrúar 1930, en hóf þau
aftur sama ár (í apríl) undir öðru
nafni — og annarri stjórn. Krist-
ján tók sér aðdraganda þessarra
atburða og einkum afstöðu stjórn-
valda mjög nærri.
Eftir þetta stundaði hann ýms
viðskiptastörf, fyrst við fisksölu-
samlög, sem hann ýtti undir að
stofnuð væru og voru fyrirrennar-
ar Sölusambands ísl. fiskframleið-
enda. Einnig var hann nokkur ár
framkvæmdastjóri Kol & Salt hf.
en síðustu árin rak hann umboðs-
verzlun fyrir innflutning trjávöru
og fleira.
Það var á unglingsárum Krist-
jáns, að Ungmennafélagshreyfing-
in festi rætur hér á landi og
breiddist út. Reyndar stóð vagga
hennar einmitt í fæðingarbæ
hans, Akureyri, en þar stofnuðu
forgöngumennirnir, Jóhannes Jós-
efsson glímukappi og Þórhallur
Bjarnason prentari, fyrsta félagið,
í janúar 1906.
Kristján hreifst af hugsjónum
félagsins, ræktun lýðs og lands, og
gerðist ötull félagsmaður þess, í
stjórn um langt skeið og formaður
um árabil.
í einkalífi sínu var Kristján
hamingjumaður.
Hann kvæntist 18. maí 1926
Vilhelmínu Vilhelmsdóttur frá
Siglufirði, dóttur hjónanna Vil-
helms Jónssonar, verslunarmanns
og Ólafar Barðadóttur.
Frú Vilhelmína var glæsileg
kona í sjón og raun. Mikill sam-
hugur og ástríki var með þeim
hjónunum, enda bæði heilsteypt
að allri skapgerð, á allan hátt
drenglunduð, trygglynd og miklir
vinir vina sinna.
Þau áttu og barnaláni að fagna.
Þau eignuðust þrjú börn, sem öll
eru búsett í Reykjavík: Ásta,
eiginmaður hennar er Þorkell
Magnússon útibússtjóri Lands-
bankans, Karl, loftskeytamaður,
kvæntur Heike Alpers og Axel,
hæstaréttarlögmaður og aðallög-
fræðingur Útvegsbankans, kvænt-
ur Þórunni Guðnadóttur.
Barnabörnin eru 11 og barna-
barnabörnin 4.
Kristján og Vilhelmína nutu
samvista í 50 ár, en hún andaðist
2. júní 1976.
Börn þeirra — og barnabörn —
hafa öll sem eitt annast um og
stutt föður sinn eftir því sem hann
hefur þurft hin síðari ár t.d. vitjað
hans á hverjum morgni. Hann
hefur eftir atvikum haft sæmilega
heilsu til hinstu stundar, en hann
varð bráðkvaddur á heimili sínu
að morgni 2. þ.m.
Kynni okkar hjónanna við þessi
merku sæmdarhjón hófust að
nokkru áður en þau (og við) fluttu
til Reykjavíkur — og nú kveðjum
við Kristján og hugsum jafnframt
til Mínu heitinnar, með hjartan-
legu þakklæti fyrir margar sam-
verustundir og staðfasta vináttu
þeirra og tryggð.
Börnum þeirra, tengdabörnum
og fjölskyldum þeirra, sendum við
og börn okkar innilegar samúð-
arkveðjur.
Elías Halldórsson
Kristján Karlsson var fæddur á
Akureyri 1. júní 1893, sonur hjón-
anna Guðnýjar Jóhannsdóttur og
Karls Kristjánssonar, verslun-
armanns. Hann lést að heimili
sínu, Stigahlíð 4 hér í borg, hinn 2.
þ.m. og var því tæpra 88 ára að
aldri. Að Kristjáni stóðu traustir
eyfirskir og þingeyskir stofnar.
Kristján var aðeins ársgamall,
þegar faðir hans féll frá, langt um
aldur fram. Það kom því í hlut
Guðnýjar einnar að ala upp syni
þeirra. hjóna, þá Kristján og Jak-
ob, sem var átta árum eldri. Með
elju og dugnaði kom Guðný sonum
sínum vel til manns og gaf þeim
það vegarnesti, sem þeir bjuggu að
alla ævi. Föðurbróðir þeirra
bræðra var Magnús Kristjánsson,
kaupmaður á Akureyri, síðar fjár-
málaráðherra í stjórn Tryggva
Þórhallssonar, sem mynduð var
28. ágúst 1927. Reyndist hann
hinni ungu ekkju og sonum henn-
ar haukur í horni, en ekki var
mulið undir unglinga í þá daga og
snemma urðu þeir að sjá sér
farborða. Báðir voru þeir bræður
miklir atgerfismenn og farnaðist
vel. Guðný andaðist í góðri elli á
heimili Jakobs sonar síns. Mjög
kært var með þeim bræðrum og
móður þeirra.
Hér verður æviferill Kristjáns
ekki rakinn, þar sem það hefur
verið gert af öðrum. Ekki verður
þó Kristjáns minnst án þess að
láta þess getið, að hann átti því
láni að fagna hinn 18. maí 1926 að
eignast að lífsförunaut Vilhelm-
ínu Vilhelmsdóttur Jónssonar
verslunarmanns, ættaðra frá
Siglufirði. Vilhelmína var mikil
myndarkona, vel gefin og frábær
húsmóðir. Hún lést fyrir fimm
árum. Þeim hjónum varð þriggja
barna auðið, sem létu sér mjög
annt um foreldra sína.
Kristján Karlsson tilheyrði
aldamótakynslóðinni, þeirri kyn-
slóð, sem var innblásin af hug-
sjónaeldi ungmennafélagshreyf-
ingarinnar. Hann var að eðlisfari
félagslyndur maður, ritfær og
einarður og kunni vel að koma
fyrir sig orði. Hann var vel
menntaður í lifsins skóla, þótt
ekki væri hann langskólagenginn,
gæddur góðum gáfum og lifandi
áhuga á þjóðfélagsmálum.
Sá er þessar línur ritar kynntist
Kristjáni fyrir um þrjátíu árum,
er hann tengdist honum fjöl-
skylduböndum, eignaðist vináttu
hans oag tryggð og naut gestrisni
hans og Vilhelmínu við ótal tæki-
færi. Kristján sagði vel frá og var
skemmtilegt að hlýða á hann rifja
upp liðinn tíma. En hann hafði
líka brennandi áhuga á nútíðinni
og því sem var að gerast og e.t.v.
er í þessu fólgin uppskriftin að því
að halda sér ungum. Kristján var
fremur lágur maður vexti, þéttur
á velli, en léttur á sér og beinn í
baki. Hann hélt andlegri og lík-
amlegri reisn fram í andlátið og
hvers skyldi maður frekar óska
sér?
Að leiðarlokum þakka ættingjar
og vinir Kristjáni Karlssyni fyrir
samfylgdina og órofa tryggð.
Jón Finnsson
Þegar ég, þann 2. þ.m., frétti að
þann morgun hefði vinur minn,
Kristján Karlsson, orðið bráð-
kvaddur á heimili sínu, komu
fram í hugann margar ljúfar
minningar frá liðnum tímum,
tengdar þeim hjónum Vilhelmínu
og Kristjáni og fjölskyldu þeirra.
Það var skömmu eftir 1930, að
Kristján tók við forstjórastörfum
hjá Kol og Salt í Reykjavík, þar
sem faðir minn vann. Með þeim og
fjölskyldum þeirra tókst fljótlega
vinátta, sem entist ævilangt.
Kristján var fæddur á Akureyri
þann 1. júní 1893. Foreldrar hans
voru Karl Kristjánsson, verzlun-
armaður á Akureyri, og kona
hans, Guðný Jóhannsdóttir. Hann
ólst þar upp og dvaldi þar framan
af ævi og alla tíð bundu hann
traust bönd við Akureyri. Á æsku-
árum hans var ungmennafélags-
hreyfingin á uppleið og eins og
fleiri vormenn Islands tók Krist-
ján virkan þátt í starfi hennar,
var m.a. um skeið forseti Ung-
mennafélagasambands íslands.
Hann stundaði íþróttir, og tel ég
að hann hafi verið mjög góður
sundmaður. Faðir minn lærði
aldrei sund, en þó voru þeir
margir sunnudagsmorgnarnir,
sem hann fór með Kristjáni og
börnum hans í sundlaugarnar
gömlu eða upp að Álafossi og
fengum við systurnar þá oft að
fara með. Það voru skemmtilegir
tímar.
Er Kristján lét af störfum hjá
Kol og Salt fékkst hann við
útgerð. Hefur það sjálfsagt gengið
upp og ofan eins og títt var, en
alltaf var sama reisnin yfir þeim
hjónum, enda fjarri þeim að bera
áhyggjur sínar á torg. Hann var í
eðli sínu mjög lifandi maður,
minnugur og fylgdist vel með öllu.
Vinnusamur, og það svo, að hann
vann fram á síðasta dag. Það var
sannarlega gaman að spjalla við
hann, og gaf hann sér jafnt tíma
til að tala við okkur sem yngri
vorum eins og sína jafnaldra.
Hann sagði skemmtilega frá og
var hafsjór af fróðleik, hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum og hélt fast við þær.
I einkalífi sínu var Kristján
gæfumaður. Kona hans, Vilhelm-
ína Vilhelmsdóttir frá Siglufirði,
átti þar ríkan þátt. Yfir heimili
þeirra var mikill myndarbragur
og þar ríkti íslenzk gestrisni. Man
ég þar margar gleðistundir. Hús-
móðirin var ekki allra, en með
afbrigðum trygglynd og sannur
vinur vina sinna.
Nú eru þau bæði horfin af
sjónarsviðinu. Eftir er minning
um góða vini. Það er því með
þakklæti og virðingu í huga að ég
nú kveð Kristján minn. Börnum
hans, Ástu, Karli, Axel og fjöl-
skyldum þeirra sendi ég samúð-
arkveðjur. Blessuð sé minning
þessa mæta manns.
Kristján hafði mælt svo fyrir,
að útför hans yrði gerð í kyrrþey
og hefur hún farið fram.
Sigfríður Nieljohníusdóttir
+
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
FRIDRIK ÓSKAR SIGURDSSON,
Kleppsvegí 74,
veröur jarösunginn 15. apríl í Fossvogskirkju kl. 1.30.
Una Indriðadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Faðir okkar,
KRISTJÁN KARLSSON
fró Akureyri,
er látinn.
Að ósk hins látna hefur útförin fariö fram í kyrrþey.
Ásta, Karl, Axel.
Sonur minn og bróöir okkar,
ÓSKAR ÞÓR ÓSKARSSON,
lést á Borgarspítalanum miövikudaginn 8. apríl.
Óskar Árnason,
María Óskarsdóttir,
Gunnar Óskarsson.
+
Minningarathöfn um
LILJU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Skúlagötu 80,
veröur í Laugarneskirkju laugardaginn 11. apríl kl. 10.30.
Jarösett veröur í Haukadal sama dag kl. 15.00.
Vandamenn.
+
Móöir okkar,
GYÐA RANNVEIG ALEXANDERSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 1. apríl. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn,
JÓN B. BENEDIKTSSON,
Skipholti 26, Rvík,
andaöist í Borgarspítalanum miövikudaginn 8. apríl.
Sigríður Björnsdóttir.
+
Útför móöur minnar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR HALLBJÖRNSDÓTTUR
fró Einarslóni,
Þverholti 2, Keflavík,
fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 11. apríl kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Styrktarfélag
sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraös.
Guöbjörg Þorvaldsdóttir, Auðunn Guðmundsson,
Þóra Steina Þórðardóttir, Geir Sædal Einarsson,
Gunnar Sigurbjörn Auöunsson, Sigurlaug Anna Auöunsdóttir,
Þorvaldur Helgi Auðunsson, Sigríður Ásta Geirsdóttir.
+
Maöurinn minn, faöir, sonur og bróöir,
VALDIMAR PÁLSSON,
Hjallalundi 17 K,
Akureyri,
veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 11. apríl kl
13.30.
Helga Jónatansdóttir,
Ragnheiöur Valdimarsdóttir,
Póll Vigfússon,
Ragnheiöur Valdimarsdóttir,
örn Pólsson,
Baldur Pólsson.