Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
23
Hjónaminning:
Kristján Eyfjörð Guðmundsson
og Jóhanna Steindórsdóttir
Kristján Eyíjörð
Fæddur 26. júni 1904.
Dáinn 3. apríl 1981.
Jóhanna
Fædd 12. ágúst 1907.
Dáin 15. nóv. 1980.
Löngum hefur þótt fagurt við
Breiðafjörðinn um Jónsmessuleyt-
ið. Miðnaetursólin merlar hafið í
djúpri kyrrð sumarnæturinnar.
Um það leyti árs fæddist í Ólafs-
vík sveinn sá sem hér verður farið
nokkrum fátæklegum kveðjuorð-
um um, Kristján Eyfjörð Guð-
mundsson. Foreldrar hans voru
hjónin Guðmundur Guðmundsson
og Ágústína Matthíasdóttir og á
eftir Kristjáni fæddust þeim börn-
in Ásgerður og Halldór. Á meðan
fjölskyldan var öll lífs og samein-
uð, bjó hún lengst af að Vindási í
Grundarfirði og í fimm ár eftir að
Guðmundur féll frá bjó Ágústína
þar áfram með börnin. Árið 1920
flytur hún svo með þau að Kvía-
bryggju. Þá vöndust börn því ung
að taka til hendinni til gagns, og
þá ekki síður þegar faðirinn var
burtkallaður frá þeim í ómegð. En
sveinninn ungi — og þó elztur
sinna alsystkina — horfði fránum
sjónum út á djúpið. Þaðan átti
hann eftir að draga mikla björg í
bú og vera jafnvígur á tilhögun
alla, hvort sem var í ljúfu leiði eða
barningi upp að brimlendingu.
Einhvern tíma hefur leiðin legið
til Stykkishólms, því að þaðan var
sú er fór Kristjáni til fylgdar
gegnum lífið.
I upphafi var minnst á fegurð
Breiðafjarðar. Jóhanna hafði alla
tíð næmt fegurðarskyn og var sem
hún samgleddist jafnan syngjandi
spörfugli, já, og jafnvel blómi sem
hafði mátt til að breiða úr sér upp
úr kaldri klettasprungu.
Foreldrar Jóhönnu voru þau
Steinþór Magnússon frá Elliðaey
og Diljá Magnúsdóttir, ættuð frá
Lykkju á Kjalarnesi.
Jóhanna og Kristján giftust
1928 og bjuggu um eins árs skeið í
Stykkishólmi, þar sem þeim fædd-
ist fyrsta barnið: Klara. Þaðan
flytja þau að Kvíabryggju í Eyr-
arsveit og þar fæddist þeirra
annað barn, Guðmundur Skúli. Til
Hafnarfjarðar fara þau síðan 1931
og bjuggu þar eftir það, lengst af
við Merkurgötu. Þar urðu þau
fyrir þeirri sorg að missa unga-
barn, Halldór Eyfjörð, en hin eru
á lífi, bæði þau áðurnefndu og þau
sem síðar fæddust, Rakel og Stein-
þór Diljar.
Kristján var fyrst og fremst
sjómaðurinn. Hann sigldi sem
vélstjóri öll stríðsárin og hér er
merking orðsins að sigla að sjálf-
sögðu sú, að fara sjóveg til út-
landa. Þá leyndist lífshætta víðs-
vegar og mun þá margri sjó-
mannskonunni hafa liðið heit bæn
frá hjarta, um að hver slík för
fengi farsæian endi, að heimilis-
faðirinn kæmi heill heim úr hverri
vá og voða.
Árið 1952 missti Kristján heils-
una að því marki að hann fór ekki
á sjó að ráði eftir það. Þó var langt
frá því að hann settist í helgan
stein, heldur stundaði ýmis störf í
landi og kom sér þá vel fjölhæfni
hans. Já, Kristján stóð fyrir sínu,
hvort sem var í vélarrúmi eða á
dekki, eða að blanda geði við
þjóðkunna menn á fundum síldar-
útvegsnefndar, þar sem hann átti
sæti í allmörg ár. Hann vann að
hagsmunum sjómanna og á hon-
um mæddu oft einna mest hátíða-
höld sjómannadagsins í Hafnar-
firði.
Svo margt sem kallaði að hjá
þeim hjónum um mesta annaskeið
ævinnar, mun ekki hafa verið
mikill tími aflögu að leita inn á
svið ljóðagyðjunnar. Bæðu munu
þau þó hafa ort eitthvað á yngri
árum, en flíkuðu því lítt. En árið
1958 gekk Kristján í Kvæða-
mannafélag Hafnarfjarðar og
kona hans árið 1961. Er þar
skemmst af að segja, að alla tíð
síðan, meðan þeim entist heilsa og
líf, voru þau meðal virkustu félaga
þar í sveit á þessum vettvangi og
kváðu iðulega við raust frumsamið
efni. Ekki voru þau heldur lengi að
varpa fram vísu í sumarferðalög-
um félagsins. Þetta voru því já-
kvæðar gagnvirkanir, þau efldu
félagið og vera þeirra þar virtist
greiða götu þeirra í túni Braga,
svo að eftir þessi hjón, sem að ekki
vildu vamm sitt vita, liggja nú
ljóð, þar sem víða er farið á
slíkum kostum að unun er að lesa,
eða á að hlýða.
Við biðjum Guð að styrkja
afkomendur og ástvini þessara
hjóna í sorg þeirra og á þessum
eina félagsfundi sem eftir er fyrir
sumarhléið, skulum við kveða
snjallar breiðfirzkar formanna-
vísur.
Farið í friði, vinir og félagar.
Magnús Jónsson
+
Þakka auðsýnda samúö viö andlát og útför foreldra minna,
LILJU GUORUNAR JAKOBSDÓTTUR
Ofl
ARNA SIGURÐSSONAR,
Bólstaöarhlíö 33.
Jakob Siguröur Árnaaon.
t
Hjartkær dóttir mín, systir og mágkona,
MARGRÉT KARLSDÓTTIR,
Granaskjóli 27,
lést í Landspítalanum 8. apríl.
Kristjana Baldvinsdóttir,
Sigríður Karlsdóttir, Júlí Sæberg,
Kristjana Sæberg, Karl Sæberg,
Grétar Karlsson, Elísabet Björnsdóttir,
Haraldur Karlsson, Ingibjörg Arnadóttir,
Hreiöar Karlsson, Elín Gestsdóttir.
EKKIBARA ÓDÝRARI
HELDUR ISKA RETRI
GREIÐSLUKJÖR Á
litsjónvarpstœkjum
ITT Litsjónvarpstæki eru þekkt fyrir gæði og góða endingu. Ekkert hefur breyst,
nema að nú geturðu fengið eitt af bestu litsjónvörpunum frá Vestur-Þýska-
landi, á sérstöku gjafverði, og á sérstökum greiðslukjörum sem allir ráða við.
Komdu í heimsókn á Bræðraborgarstíg 1, og kynntu þér hvort tveggja.