Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 29

Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981 29 Heyrðum ekki eina óánægjurödd Björn Thors skrifar: „Vegna stóryrða „Rimini-fara“ og skamma í garð ferðaskrifstof- unnar Samvinnuferða, langar mig aðeins að skýra frá eigin reynslu, sem var allt önnur. Það skal þó tekið fram að ég skil þennan ferðalang, sem var svo óheppinn að lenda í fyrstu vorferðinni til Rimini. Það voraði seint á Ítalíu eins og annarsstaðar í Evrópu í fyrra, og undirbúningi undir mót- töku ferðamanna seinkaði því öll- um til ama, sem þangað fóru snemma. Jafnan reiðubúið til aðstoðar Við hjónin héldum með Sam- vinnuferðum til Rimini í ágúst. Höfum við áður ferðast með mörg- um ferðaskrifstofum, innlendum og erlendum, og jafnan látið í okkur heyra ef eitthvað hefur á bjátað. Þess gerðist ekki þörf í Rimini, þvi öll þjónusta og af- greiðsla ferðaskrifstofunnar var til fyrirmyndar. Starfsfólkið syðra var jafnan reiðubúið til aðstoðar og fyrirgreiðslu, enda úrvalslið. Sem dæmi vil ég aðeins nefna eitt atriði. Stjúpdóttir mín var um þessar mundir stödd á Filippseyj- um, og var okkur mikið í mun að fá fréttir af henni. Tímamunur er mikill, svo erfitt var að ná sam- bandi nema að næturlagi. Stóð þá ekki á fulltrúum Samvinnuferða að aðstoða okkur, halda skrifstofu opinni og starfsfólki á þönum langt fram á nótt. Um þetta leyti voru nokkrir. tugir Islendinga i Rimini, og var samgangur allnokkur, svo sem í sameiginlegum ferðum um Ítalíu. Ég get með ánægju staðhæft að þær þrjár vikur sem við dvöld- umst þarna syðra heyrðum við ekki eina óánægjurödd. Allir voru glaðir og ánægðir með ferðina." Barnavagnar og strætisvagnar Eiríkur Ásgeirsson skrifar: „Af tilefni opins bréfs „nokk- urra foreldra", sem nýlega birtist i dagblöðum um erfið- leika við flutning á barnavögn- um og kerrum með vögnum SVR þykir rétt að koma á framfæri leiðréttingum og skýringum. Fyrir þremur árum voru lagfæringar gerðar á vögnum SVR að þessu leyti. Færð voru stög við súlu í miðju afturdyra, eins langt aftur og unnt var, án þess að skerða aðgengni eða öryggi annarra farþega, sér- staklega þeirra, sem hreyfi- lamaðir eru. Fremra bilið í dyrunum var því breikkað, sem þessari færslu nam, og raunar nægjanlega mikið til þess að auðvelt sé um flutning á barna- kerrum og kerruvögnum. Um flutning á stórum barnavögn- um með strætisvögnum er ekki að ræða án þess að aðskilja rúm frá hjólagrind, líkt og gert er, þegar flutningar af þessu tagi eiga sér stað með fólksbíl- um. Eins og fram hefur komið, verður hér auðveldara um vik í nýju vögnunum, m.a. vegna staðsetningar útgöngudyra. Þessir vagnar eru nú teknir í notkun hver af öðrum — á 45 daga fresti. — Verða þeir orðnir 10 talsins um næstu áramót, eða um helmingur þess vagnafjölda, sem ákveðið hefur verið að kaupa. En sjón er sögu ríkari. Að- standendum umrædds opins bréfs er því boðið í heimsókn í bækistöðvar SVR á Kirkju- sandi til þess að kynna sér útfærslu og búnað hinna ýmsu gerða yfirbygginga á gömlum og nýjum strætisvögnum." Þessir hringdu. . . Þorri sjón- varpsáhorf- enda bæði sár og reiður Jón á Akureyri hringdi og sagði: — Við erum hér tveir sárreiðir Jónar og vildum beina þeirri spurningu til þess aðila sem ræður tilhögun Helgistundar í sjónvarpinu, hver tilgangur þess þáttar sé. Er hann sá að flytja lands- mönnum evangelískan kristinn boðskap eða er þátturinn vett- vangur vafasamra tískufyrir- bæra, svo að ekki sé meira sagt? Tilefni fyrirspurnarinnar er „helgistund" síðastliðinn sunnudag. Fullyrða má að al'.ur þorri sjónvarpsáhorfenda var bæði sár og reiður, þegar í stól þessarar stærstu kirkju þjóð- arinnar steig fulltrúi einhvers konar hugræktarhóps (Inn- hverf íhugun?) og flutti þar boðskap sinn. Sá boðskapur átti sannarlega ekkert skylt við kristna trú og mætti miklu fremur búast við að í umrædd- um þætti væri varað við slíkum „sértrúarsöfnuði" sem hér var á ferðinni. Eða mega sjón- varpsnotendur e.t.v. eiga von á því, að samtökum marx-lenín- ista verði falið að sjá um helgistundina í maí? En í fullri alvöru er þess eindregið farið á leit, að sunnudagsþættirnir í apríl verði ekki nefndir helgi- stund í dagskránni. Með hlið- sjón af þættinum síðastliðinn sunnudag verðskulda þeir eng- an veginn svo virðulegt heiti. Þökk fyrir gott boð Dóra Guðrún, kennari í Öskjuhlíðarskóla hringdi og sagði: — Mig langar aðeins til að koma á framfæri þakklæti krakkanna í Öskjuhlíðarskóla fyrir höfðinglegt boð veitinga- staðarins Tomma-hamborgara við Grensásveg. Forráðamenn hans buðu öllum Öskjuhlíð- arskólanum að koma í heim- sókn í sín vistlegu húsakynni og veittu rausnarlega í mat og drykk. Krakkarnir höfðu af- skaplega gaman af ferðinni og voru þakklát fyrir þetta góða boð. 03^ SIG6A V/öGA fi \iLVERAW Bjóðum stoltir PENTAX MX, MV, ME, ME Super og loksins PENTAX LX. Greiðslukjör Landsins mesta úrval myndavörum af Ijós- ma ör.ri /Wtíft Verslið hjá fag- manninum LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F. LAUGAVEGI178 REYKJAVIK SIMI 8581 1 4i Odýrt í HOTSL hadeginu Alla daga vikunnar bjóðum við hádegisverð á aðeins 56 kr. Ódýrt en gott. Ný sending Angora alpahúfur Hattabúð Reykjavíkur FURA Kynningarverð á furubaðinnréttingum í stuttan tíma. kajmar innréttingar hf. SKEIFAN «. REYKJAVIK SÍMI 82011.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.