Morgunblaðið - 10.04.1981, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. APRÍL 1981
31
w
>—
Þorbergur klifrar upp á axlirnar á Björgrvin Björjfvinssyni, en báðir
eru sterkir og hvoruKur gaí sig. Ljósm. Emilia.
Próttur tryggði
sér Evrópusæti
- er liöiö sigraöi HK í undan-
úrslitum bikarkeppninnar í gær
ÞRÓTTUR tryggði sér Evrópu-
sæti í handknattleik fyrir næsta
keppnistimabil, er liöið sigraði
HK frá Kópavogi í undanúrslit-
um bikarkeppninar. Liðið leikur
því til úrslita gegn Vikingi, sem
lagði Fram að velli i gærkvöldi.
Úrslit leiksins breyta engu um
það, hvort liðið hreppir sæti i
Evrópukeppni bikarhafa, Viking-
ur er þegar íslandsmeistari og
keppir í meistarakeppninni. Það
fór þvi aldrei svo, að Þróttur
kæmist ekki i Evrópukeppni.
Lokatölur leiksins urðu 15—11,
en staðan í hálfleik var 7—6 fyrir
Þrótt.
Eftir fríska byrjun, 4—0, hjá
Þrótti jafnaðist leikur þessi mjög
og var hann í járnum allan fyrri
hálfleik. En er Þróttur komst í
13—8 snemma í síðari hálfleik,
voru úrslitin ráðin. Þetta var
þófkenndur leikur og bæði liðin
sýndu slakan sóknarleik. Mark-
verðirnir, Einar Þorvarðarson hjá
HK og Sigurður Ragnarsson hjá
Þrótti, voru bestu menn vallarins.
Þeir vörðu m.a. tvö víti hvor.
Mörk Þróttar: Páll Ölafsson 8,
Ólafur H. Jónsson og Sigurður
Sveinsson 3 hvor og Jón Viðar
Jónsson eitt mark.
Mörk HK: Sigurður Sveinsson 5,
Hilmar Sigurgíslason 2, Ragnar
Ólafsson 2, Bergsveinn Þórarins-
son og Kristinn Ólafsson eitt
mark hvor. SS/—gg.
Páll ólafsson skoraði 8 mörk.
ísrael sigraði
ISRAEL sigraði Rúmeniu i vin-
áttulandsleik i knattspyrnu i Tel
Aviv í fyrrakvöld. Moshe Sinai og
Shlomo Mizrahi skoruðu mörk
liðsins, en Sandu mark Rúmeniu.
Ul-landsliðið valið
NORÐURLANDAMÓT unglinga
18 ára og yngri i handknattleik
verður haldið í Svibjóð 24 — 26
apríl næstkomandi. Island verð-
ur meöal þátttökuliða og hefur
islenska liðið verið valið. Það
skipa eftirtaldir leikmenn:
Hallur Magnússon Víkingi,
Gísli Felix Bjarnason KR og
Haraldur Ragnarsson FH mark-
verðir, Óskar Þorsteinsson Vík-
ingi, Einar Magnússon Víkingi,
Hermann Björnsson Fram, Hinrik
Ólafsson Fram, Björgvin Guð-
mundsson FH, Óttar Matthísen
FH, Guðmundur Albertsson KR,
Aðalsteinn Jónsson UBK, Ásgeir
Ásgeirsson Val, Geir Sveinsson
Val og Jakob Sigurðsson Val.
Þjálfarar liðsins eru Þorsteinn
Jóhannesson og Gústaf Björnsson.
-8K-
Stórgóðir taktar i
fyrri hálfleiknum
en yfirburðir Víkings síðan algerir
LEIÐIN var greið fyrir íslands-
meistara Vikings í úrslitaleikn-
um i bikarkeppninni i hand-
knattleik, en liðið gersigraði
Frarn i undanúrslitunum i gær-
kvöldi. Lokatölur leiksins urðu
27 — 19, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 13—8, einnig fyrir
Viking. Leikur þessi bauð upp á
góð tilþrif i fyrri hálfleik, en i
þeim siðari var einstefnan slik,
að skemmtanagildi leiksins sökk
eins og steinn.
Sem fyrr segir, var áhorfendum
boðið upp á stórgóð tilþrif á
köflum í fyrri hálfleik og var þá
gæðastimpill á báðum liðum,
Fram ekki síður en Víkingi. Vík-
ingarnir byrjuðu ívið betur, kom-
ust í 3—1, en eftir að Framarar
höfðu jafnað í 3—3, var jafnt á
öllum tölum upp í 6—6. Árni og
Þorbergur skoruðu tvö mörk í röð
fyrir Víking, 8—6, en Theodór
svaraði með giæsilegu marki, 8—
7. En síðustu sjö mínúturnar
skiptu sköpum í leiknum, Vík-
ingarnir nýttu sér þá veilur sem
farnar voru að birtast í Fram-
liðinu, þeir skoruðu fimm af sex
síðustu mörkum fyrri hálfleiksins
og staðan var því 13—8 í leikhléi.
í síðari hálfleik munaði lengst
af 4—6 mörkum. Víkingar léku um
tíma aðeins fjórir vegna brott-
rekstra, en Fram tókst ekki að
færa sér það i nyt. Það var af og
frá, að Víkingar hafi verið með
unninn leik í höndunum, þannig
munaði aðeins fjórum mörkum,
18—14, er 17 mínútur voru eftir og
fimm mörkum fimm mínútum
síðar. En allur leikur Framara fór
úr skorðum og Víkingarnir nýttu
sér það að sjálfsögðu og segja má,
að getumunur liðanna hafi skinið í
gegn í síðari hálfleik. Munurinn
jókst smám saman, loks stóð
27-19.
Víkings-liðið lék vel sem heild
að þessu sinni sem oftar, enginn
skar sig í raun úr. Þó var Kristján
Sigmundsson mjög góður, einkum
er á leikinn leið, Ólafur Jónsson
var góður framan af, en Páll sótti
sig er á leið. Steinar og Árni voru
jafnastir og Óskar Þorsteinsson
lék vel lokakaflann. Hjá Fram var
Atli mjög góður þrátt fyrir
stranga gæslu. Theodór átti mjög
góðan fyrri hálfleik en dalaði er á
leikinn leið, og Sigurður mark-
vörður Þórarinsson varði oft
ágætlega.
Mörk Fram: Hannes Leifsson 4,
2 víti, Atli Hilmarsson 4, Björgvin
Björgvinsson og Theodór Guð-
finnsson 3 hvor, Erlendur Davíðs-
son 2, Jón Árni Rúnarsson, Her-
mann Björnsson og Björn Eiríks-
son eitt hver.
Mörk Víkings: Þorbergur Aðal-
steinsson 6, Páll Björgvinsson 5,
Ólafur Jónsson 4, Árni Indriðason
4, 2 víti, Steinar Birgisson og
Guðmundur Guðmundsson 3 hvor
og Óskar Þorsteinsson 2 mörk.
—gg.
Virum sigraöi
DANSKA handknattleiksliðið
Virum sigraði Ilauka 24—22 i
íþróttahúsinu i Hafnarfirði i
gærkvöldi. Var leikurinn fjörug-
ur og oft ágætlega leikinn. í
hálfleik var staðan 13—8 fyrir
Virum. Var þetta fyrsti leikurinn
af fjórum sem danska liðið leikur
hér á landi, sá næsti er á
Akureyri á morgun og mætir
liðið þá KA. — gg.
Kynningarfundur
um málefni
þroskaheftra
Ár fatlaðra er tækifæri, sem ekki má láta ónotað til að vekja athygli á
málefnum fatlaðra. Junior Chamber í Reykjavík hefur ákveðið að efna til
fundar á Kjarvalsstöðum í Reykjavík, um málefni þroskaheftra,
föstudaginn 10. apríl nk. kl. 20.00.
Borgarstjórinn í Reykjavík, hr. Egill Skúli Ingibergsson hefur sýnt þessu
máli sérstakan velvilja, með því að eftirláta okkur Kjarvalsstaði til þessa
fundar.
DAGSKRÁ:
1. Fundur settur af Andrési B. Sigurðssyni, landsforseta J.C. ísland.
2. Ávarp: Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra.
3. Atvinnumál þroskaheftra: Egill Skúli Ingibergsson, borgarstjórinn í
Rvík.
4. Uppbygging þjónustustofnana: Eggert Jóhannesson.
5. Menntunarmál þroskaheftra: Magnús Magnússon, sérkennari.
6. Pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Ásgeir Gunnarsson.
Er það sérstök ósk okkar, að þér sjáið yður fært að vera gestur okkar á
þessum fundi.
jk>
Mroskahjálp J.C. DAGS-NEFNDIN