Morgunblaðið - 08.05.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981
5
Hótel Isaf jörður:
Sigurður Stefánsson
ráðinn hótelstjóri
IsafirAi, 7. mai.
SIGURÐUR Stcfánsson hefur
verið ráðinn hótelstjóri við Hótel
fsafjörð. Tekur hann við starfi
sinu eftir um það bil tvo mánuði.
Til þess tíma hefur Anna Á.
Innólfsdóttir viðskiptafræðingur
tekið að sér að veita rekstrinum
forstöðu.
Kristín Karlsdóttir á ísafirði
hefur tekið að sér að annast
bókanir gesta á hótelið og á heima-
vist menntaskólans, sem rekin
verður sem útibú frá hótelinu.
Sigurður Stefánsson er fæddur í
Reykjavík árið 1950. Hann
brautskráðist frá Verzlunarskóla
íslands vorið 1969. Síðan hefur
hann starfað hjá Happdrætti Há-
skóla íslands, Heildverzlun Sveins
Björnssonar í Reykjavík og hjá
Reykjalundi í Mosfellssveit, þar
sem hann var aðalbókari. Hann
ílutti til ísafjarðar um áramótin
1979 til 1980, og hefur starfað hjá
Endurskoðunarskrifstofu Guð-
mundar E. Kjartanssonar síðan. Þá
hefur hann verið ritstjóri Vestur-
lands frá haustinu 1980.
Reiknað er með að hótelið taki til
starfa 17. júní næstkomandi.
- Úlíar.
Einar Olgeirsson
hótelstjóri á Esju
EINAR Olgeirsson hefur verið
ráðinn hótelstjóri Ilótel Esju
og tekur hann til starfa á
næstunni, en Steindór Ólafsson
sem verið hefur hótelstjóri um
árahil hefur verið ráðinn til
starfa hjá Cargolux í Luxem-
borg.
Einar Olgeirsson starfaði í 10
ár á Hótel Esju, lengst sem
aðstoðarhótelstjóri, síðan var
hann 5 ár hótelstjóri á Hótel
Húsavík og sl. tvö ár hefur hann
verið starfsmannastjóri á Hótel
Sögu. í samtali við Mbl. sagði
Einar að sér þætti spennandi að
taka við Esju og mál legðust vel
í sig.
Leiðrétting
MORGUNBLAÐIÐ tók of djúpt í
árinni er það sagði í frétt blaðsins í
gær, að utanríkismálanefnd Al-
þingis hefði samþykkt drög að
samkomulagi við Norðmenn um
nýtingu hafsbotnsins milli Islands
og Jan Mayen. Hið rétta er, að í
Einar Olgeirsson
frétt, sem Morgunblaðið vísaði til,
er haft eftir Geir Hallgrímssyni, að
utanríkismálanefndin hefði rætt
málið og tekið sáttatillögunni vel,
en enn þá ætti eftir að ræða einstök
atriði.
Morgunblaðið biður nemendur
norska blaðamannaháskólans, sem
var blandað inn í þetta mál, afsök-
unar á þessum mistökum.
Iletjur
lialsi iis
Við óskum sjómönnum
til hamingju með mikla aflavertíð
Karnabær býður ykkur
15% afslátt af fötum, á 15 ára
afmælisári til 12. maí.