Morgunblaðið - 08.05.1981, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1981
9
Sæmdur
finnskri
orðu
FORSETI Finnlands hefur sæmt
SÍKurjón Guójónsson fv. prófast
riddarakrossi fyrsta sti({s finnsku
oróunnar. Hvítu Rósinni.
Sendiherra Finnlands, Lars
Lindeman, afhenti orðuna við at-
höfn í Norræna húsinu þann 11.
apríl sl.
Viö athöfnina nefndi hann sér-
staklega hina miklu þýðingu sem
Sigurjón Guðjónsson hefur haft
fyrir menningartengsl Finnlands
og íslands.
Sigurjón Guðjónsson hefur verið
mjög virkur félagi í Finnlandsvina-
félaginu Suomi í áratugi og í stjórn
þess um árabil.
1NNLEN-T
Föngulegur hópur nemenda í norska blaðamannaskólanum er
staddur hér á landi um þessar mundir ásamt kennurum, en einn
þeirra er Sigurjón Jóhannsson, blaðamaður, sem er lektor við
skólann. Er hann lengst til hægri á myndinni, en alls eru 40 manns í
norska hópnum. Myndin var tekin við norska sendiráðið í Reykjavík,
en undanfarna daga hafa Norðmennirnir kynnt sér ýmis málefni er
varða land Og þjóð. Ljósmynd Mbl. Emilía.
Verðandi norskir blaðamenn i heimsókn
Góður afli
Brettings frá
Vopnafirði
Vopnafirði. 7. maí.
GÓÐUR afli hefur verið hjá skut-
togaranum Brettingi hér eftir
áramótin. og nú var hann að
landa hér 165 tonnum eftir 5
sólarhringa veiðiferð. Siðasti túr
Brettings var einnig góður. en þá
kom skipið með tæplega 160 tonn
að landi. Alls hefur Brettingur
aflað um 1550 tonnum frá áramót-
um. sem er mun betra en á sama
tíma í fyrra er hann hafði iandað
um 1000 tonnum.
Afli tveggja báta er hér hafa
veitt á línu og net hefur hins vegar
verið iélegur. Það eru Ritan, sem
aflað hefur um 300 tonn frá
áramótum, og Þerna, sem veitt
hefur um 250 tonn. Er það minna
en á sama tíma í fyrra. Rita er nú
að búa sig undir trollveiðar.
Gráslepþuveiðar hafa gengið
fremur illa hér. Alls stunda sjö
bátar veiðarnar, og hefur aflahæsti
báturinn fengið um 78 tunnur.
Kalt er hér í veðri um þessar
mundir, og lítt tekið að vora. Héla
er á jörð, og skaflar enn ekki
horfnir að fullu, þar sem mikill
snjór var í vetur.
— Fréttaritari.
Lyklakippur
/
/
Póstsendum.
Verzlunin
Laugavegi29,
símar 24320 — 24321 —
24322.
Samvinnuskólinn Bifröst:
Pláss fyrir 39 nýja nem-
endur en 210 sóttu um
Samvinnuskólanum að Bifrost
var slitið 1. mai sl.. en það er
árlegur skólaslitadagur skólans.
í ra-ðu skólastjóra. Ilauks Ingi-
hergssonar. kom fram að alls
hefðu 210 manns sótt um skóla-
vist íyrir sl. ár, en aðeins var
unnt að taka inn 39 nemendur
vegna rúmleysis á heimavist.
I vetur stunduðu 77 nemendur
nám að Bifröst og þar af 38 i 2.
bekk og útskrifuðust þeir allir
með Samvinnuskólapróf. Hæstu
einkunn á lokaprófi í 2. bekk
hlaut Elvar Eyvindsson frá Skið-
hakka. Vestur-Landeyjum. Rang-
árvallasýslu. 8.83. Onnur varð
Geirfinna Óladóttir frá Klettstíu.
Norðurárdal. hlaut einkunnina
8.79 og þriðja varð Guðrún Guð-
mundsdóttir frá ísafirði með ein-
kunnina 8.75.
í 1. bekk náðu allir nemendur
tilskilinni framhaldseinkunn. Þar
varð hæst Svava Björg Kristjáns-
dóttur frá Ketilsstöðum á Tjörnesi
með einkunnina 9,21. Annar varð
Þórður Viðarsson frá Húsavík,
hlaut einkunnina 8,96 og þriðja
varð Kristrún Arnardóttur úr
Vestmannaeyjum með einkunnina
8,79.
Fyrir hönd 10 ára nemenda
flutti Björg Jónsdóttur skólanum
og nemendum hans árnaðaróskir
og kveðjur auk þess sem 10 ára
nemendur færðu skólanum
Skarðsbók að gjöf.
Þá flutti Hermann Þorsteinsson
ávarp fyrir hönd 40 ára nemenda
Samvinnuskólans og færði skólan-
um að gjöf auk árnaðaróska pen-
ingaupphæð sem renna má til
eflingar sjónvarpsstúdíói skólans.
Vigdís Pálsdóttir, formaður Nem-
endasambands Samvinnuskólans,
flutti kveðjur og veitti Þóru Þóris-
dóttur frá Drangsnesi „Félags-
málastyttuna" fyrir frábær störf
að félagsmálum við skólann. „Bók-
færslubikarinn" hlaut Rósa Njáls-
dóttir úr Grundarfirði og „Sam-
vinnustyttuna" hlaut Geirfinna
Óladóttir, Norðurárdal.
Auk skólanefndar heimsóttu á
þriðja hundrað gestir skólann og
þáðu kaffiveitingar að skólaslitum
loknum.
Auk hins venjubundna skóla-
halds stendur Samvinnuskólinn
fyrir öflugu námskeiðahaldi. A
skólaárinu hafa nú þegar verið
haldin 52 námskeið með 784 þátt-
takendum, en í heild hafa um 4
þúsund manns sótt á einn eða
annan hátt námskeið skólans,
segir í frétt frá skólanum.
Mokafli í apríl hjá bátum
og togurum frá Eskifirði
Eskifirði. fi. maí.
MOKAFLI hefur verið hér sem
víða annars staðar undanfarnar
vikur og hafa bæði togarar og
netabátar ausið fiskinum á land.
Hólmanesið er að landa 210
tonnum í dag eftir stutta veiði-
ferð. Af netabátum landaði t.d.
Votabergið tvisvar síðustu viku, 54
lestum í annað skiptið og 110
lestum í hitt skiptið. Netabátar
héðan draga tvisvar —■ þrisvar
sinnum í túr. Eitthvað hefur nú
dregið úr afla þeirra, Sæljón og
Vöttur landa hvor um 40 lestum í
dag. Jón Kjartansson hafði fengið
900 tonn af kolmunna við Færeyj-
ar í gær og er búist við að hann
komi inn á morgun til að landa.
— Ævar
BANKASTRÆTI 7 AÐALSTRÆTI4
EFNI:
Bómull og
acrylblanda
LITIR:
Ljósblátt,
dökkblátt,
rautt,
vínrautt,
Ijósgrátt
STAKIR BOLIR:
verð kr. 151,-
STAKAR BUXUR:
verð kr. 114,-
•HDMIl
LAUGAVEGI 47,