Morgunblaðið - 08.05.1981, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981
Iðjuhús við
Kópavogshæli
Suðvestur-hlið hins nýja iðjuhúss.
IleilbrÍKðisráðherra. Svavar
Gestsson. tók á lauKardag siðast-
liðinn skóflustunKU að svo-
nefndu iðjuhúsi við KópavoKs-
hælið, en byKKÍnK iðjuhúss hefur
lenKÍ verið á döfinni. Húsið
verður reist með útveKKjaeininK-
um frá BerKÍðjunni. vinnustofu
Kleppsspitalans. ok þar með er
að minnsta kosti G vistmönnum
útveKuð vinna í allt að fjóra
mánuði. Stefnt er að því, að Kera
húsið fokhelt á þessu ári.
í kjallara hins nýja iðjuhúss
verður eldhús, matsalur og
geymslur, en á hæðinni vinnustof-
ur til iðjuþjálfunar, og mun öll
aðstaða vistmanna Kópavogshæl-
is til þjálfunar gerbreytast með
tilkomu þessa húss. Samkvæmt
kostnaðaráætlunum nemur kostn-
aður við húsið 3.950 þúsundum
króna, en fjárveitingar frá
Styrktarsjóði öryrkja og þroska-
heftra til hússins á þessu ári, og
síðasta, nema um 1.900 þúsundum
króna.
Starfsemi Kópavogshælis hófst
í desember 1952 og hefur síðan
aukist jafnt og þétt, og fjármagn-
aði Styrktarsjóður vangefinna
byggingar stofnunarinnar. I frétt
frá Ríkisspítölum segir, að við-
horf til vangefinna hafi breyst
mjög á seinni árum og að nú sé
stefnt að því að veita sem flestum
vangefnum þjónustu utan stofn-
ana, og þess vegna er fyrirhuguð
fækkun vistmanna á Kópavogs-
hælinu, en jafnframt sé að því
stefnt að auka þjálfun og meðferð
vistmanna og bæta aðstöðu til
hjúkrunar.
í því skyni er byggt iðjuhús við
Kópavogshælið, en iðjuþjálfun við
hælið sækja að jafnaði 90 vist-
menn, og sú starfsemi er nú til
húsa í starfsmannahúsi og
skrifstofubyggingu.
Forstöðumaður Kópavogshælis-
ins er Björn Gestsson. Þeir sem
„hannað“ hafa hið nýja hús eru
eftirtaldir: Arkitektar: Teikni-
stofan hf., burðarþol: Verkfræði-
stofa Braga og Eyvindar, lagnir:
Verkfræðistofa Rafns Jenssonar
og rafmagn: Verkfræðistofa Jó-
hanns Indriðasonar.
Svavar Gestsson tekur skóflu
stunguna að fyrirhuguðu iðju-
húsi við Kópavogshælið.
Ljósm. Mbl. Kristján.
V
M
Enn fréttist ekkprt af
skýrslunni um Alverið
og „hækkun í hafi“
Stjórn Landssambands kartöflubænda. Á myndinni eru frá vinstri:
Eiríkur Sigfússon. Magnús Sigurðsson, formaður, og Yngvi Markús-
son.
Stofna Landssam-
band kartöflubænda
LANDSSAMBAND kartöflu-
bænda var stofnað þann 1. mai
siðastliðinn og að stofnuninni
standa félög kartöflubænda á
Suðurlandi og í Eyjafirði, sam-
kvæmt upplýsingum sem Morg-
unblaðið fékk hjá Yngva Mark-
ússyni á Oddsparti i Þykkvabæ,
en hann á sæti i stjórninni.
Yngvi sagði að hann ætti von á
að Hornfirðingar mynduðu með
sér félag og gengju í Landssam-
bandið og einnig kvaðst hann telja
að stofnuð yrði einhverskonar
deild á Vesturlandi.
í stjórninni eiga sæti þrír menn.
Formaður er Magnús Sigurðsson,
en aðrir í stjórn eru Eiríkur
Sigfús8on og Yngvi Markússon.
Yngvi sagði að stjórnin hefði ekki
enn komið saman til að forma
aðgerðir, en væntanlega yrði fund-
ur haldinn á næstunni. Markmiðið
með stofnun sambandsins sagði
Yngvi vera að ná betri stjórnun á
kartöflumálum, en bændur væru
óhressir með þau. Sagði hann að
kartöflubændur vildu sjálfir fá
þar stjórnunaraðild.
ENN FRÉTTIST ekkert af könn-
un þeirri sem endurskoðunarfyr-
irtækið Cooper og Lybrandt í
London er að vinna fyrir iðnaðar-
ráðuneytið, um meinta „hækkun i
hafi“ á súrálsförmum sem fluttir
hafa verið frá Ástraliu til ís-
lands. Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra sagði i samtali
við Morgunblaðið i gær, að hann
vissi ekki hvenær skýrsla fyrir-
tækisins bærist, málið væri flókið
og yfirgripsmikið, ok nauðsyn-
legt hefði verið að hafa samband
við marga aðila. Meðal annars
hefði verið haft samband við
Aiusuisse oftar en einu sinni.
Hjörleifur Guttormsson óskaði
hins vegar eftir að fá að gera
athugasemdir við ummæli sem
höfð eru eftir Emanuel R. Meyer,
stjórnarformanni Svissneska ál-
félagsins, í Morgunblaðinu í gær.
Meyer lét umrædd ummæli falla á
aðalfundi félagsins nýlega. Hjör-
leifur sagði það ekki koma sér á
óvart að Meyer sendi sér tóninn á
þennan hátt, og talaði um pólitísk-
an lit á málinu. — Okkar eina
pólitík er íslenskir hagsmunir,
sagði iðnaðarráðherra. Hitt sagði
Hjörleifur hins vegar lakara, að
Meyer hefði í hótunum við íslend-
inga, og talaði um að veðjað hefði
verið á skakkan hest varðandi
fjárfestingu á íslandi. Sagði
Hjörleifur hann ekki þurfa að
hafa í hótunum við íslendinga,
væri það ósk Meyers gætu íslend-
ingar sjálfir tekið að sér rekstur
Álversins, einir eða í samvinnu við
erlenda aðila aðra. Ekki vildi
Hjörleifur segja hvort þetta væri
skoðun ríkisstjórnarinnar, þótt
hann teldi það líklegt. Þá sagði
ráðherra það „broslegt gort“ hjá
Meyer, er hann segði íslendinga
ekki hafa átt kost á lánafyrir-
greiðslum til byggingar raforku-
vera án fulltingis Svisslendinga.
„Hafi þetta nokkurn tíma verið
svo, þá er það það ekki lengur,"
sagði Hjörleifur.
Margt fleira sagði Hjörleifur að
ástæða væri til að gera athuga-
semdir við í ræðu Meyers. Hann
léti þó að sinni nægja að upplýsa,
að rangt væri, sem Meyer segði, að
Alusuisse hefði alltaf fylgt reglum
um „transfer pricing" og „arms
length standard". í þessu sam-
bandi sagðist Hjörleifur vilja
vitna til niðurstöðu skýrslu er
unnin hafi verið sumarið 1975 af
Cooper og Lybrandt, um Álverið
árið 1974. í niðurstöðunum sagði
Hjörleifur að segði svo, í íslenskri
þýðingu:
„Eins og bent er á í 72. grein, er
það álit okkar að verðið sem Isal
greiddi árið 1974 fyrir súrál sé
hærra en það verð sem hægt hefði
verið að búast við í viðskiptum
óskyldra aðila. I samræmi við það
er það skoðun okkar að útreikn-
ingur á nettóhagnaði ísals það ár,
sem lauk 31. desember 1974, sé
ekki í samræmi við þær kröfur
sem gerðar eru í 27.04 grein
aðalsamningsins. Þar af leiðandi
teljum við að skattinneignarkraf-
an, eins og hún hefur verið lögð
fram af Alusuisse, hafi ekki verið
réttlætt. Okkar skoðun er sú að
kröfuna eigi að endurskoða á
grundvelli þess hagnaðar, sem
orðið hefði, ef verðið sem ísal
greiddi hefði verið eins og tíðkað-
ist í viðskiptum óskyldra aðila."
Þessi niðurstaða sagði Hjörleif-
ur að talaði sínu máli, hvað sem
fullyrðingum Meyers JJði. Hjör-
leifur neitaði hins vegar að láta
blaðamanni Morgunblaðsins upp
aðra þætti þessarar skýrslu og
vildi ekki að Morgunblaðið fengi
hana í heild. Sagði hann að það
mál mætti athuga síðar, er spurt
var hvort óeðlilegt væri að biðja
um skýrsluna, í stað þess að fá
„matreidda" úr henni valda kafla
af iðnaðarráðherra.
ÞESSA mynd tók ljósmyndari Mbl. Emilia á litilli sýningu
Námsflokka Kópavogs á verkum nemenda sinna i trésmiði si. vetur,
sem var haldin siðastliðinn laugardag i Kársnesskóla.
Smiðakennari Námsflokkanna. Þórarinn Þórarinsson, hafði veg og
vanda af sýningunni, en mikil ásókn var i smiðanámskeið hans, sem
og önnur þau námskeið sem Námsflokkar Kópavogs buðu uppá i
vetur. Rúmlega 700 nemendur stunduðu nám i Námsflokkunum i
vetur og komust færri að en viidu. Námsflokkar Kópavogs bjóða upp á
mjög fjölbreytt nám, eins og t.d. skrúðgarðyrkju, skrautskrift,
bilaviðgerðir, nýsilfursmiði, saumaskap og margt fleira.
Hvöt ef nir til vorferðar
um hverfi Reykjavíkur
Davíð Oddsson
flytur ávarp
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins verða leiðsögumenn i
ferð Hvatar, félags sjálfstæðis-
kvenna i Reykjavik. um Rcykja-
vík á sunnudaginn. Ilvöt hefur
um langt skeiö haft vorferð af
þessu tagi á starfsskrá sinni, og
að þessu sinni varð ferð um
Reykjavík fyrir valinu.
Lagt verður af stað frá Sjálf-
stæðishúsinu Valhöll við Háaleit-
isbraut klukkan 13, í langferðabíl-
um. Ekið verður inn með Sundum,
um Elliðavog, hring um Breiðholt-
ið, á Öskjuhlíð, um Miðbæinn og
út í Örfirisey. Þar verður áð í
frystihúsinu Isbirninum og vinnu-
salirnir skoðaðir og veitingar
þegnar. Þar mun Davíð Oddsson
borgarfulltrúi og formaður borg-
arstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna ávarpa ferðafólkið.
Til baka verður síðan ekið um
Ægisíðu, Háskólahverfið og Hlíð-
arnar, og endað við Valhöll. Áætl-
aður komutími þangað er um
klukkan 17. Þátttaka er öllum
Davíð Oddsson formaður borgar-
stjórnarflokks sjálfsta ðismanna.
heimil, og tilkynnist fyrir klukkan
12 á hádegi á morgun, laugardag-
inn 9. maí, í síma 82900 eða 82779.
Fargjald er krónur 50, en ókeypis
fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd
fullorðinna. Fararstjóri er Ragn-
hildur Pálsdóttur.
(FróttatilkynnlnK)