Morgunblaðið - 08.05.1981, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1981
13
Rússneski drenKurinn
Seyðisfirði á sínum tíma og asnað-
ist einu sinni til að segja Olafi, að
sala Moggans hefði dregist nokkuð
saman í plássinu, og hann símaði
það strax suður bölvaður.
Eitthvert sinn hitti ég í strætis-
vagni aldraðan mann, sem ég
þekkti nokkuð, og spurði hann
náttúrulega strax um Ólaf Frið-
riksson. — Hvort ég viti eitthvað
um hann, ansaði sá gamli. Ég var
nú sektaður fyrir það helvíti um
100 krónur austur á Seyðisfirði.
Svo sagði hann mér söguna.
Hann var viðstaddur í Suðurgöt-
unni, og sagði að „helvítis kelling-
in„ hefði bitið og slegið og látið
öllum illum látum. Nokkrum dög-
um seinna fer hann austur á
Eskifjörð, að heimsækja foreldra
sína, og verður þá reikað inn í búð.
Þar byrja menn að spyrja hann
tíðinda að sunnan, og maðurinn fer
í grandaleysi sínu að lýsa Suður-
götubardaganum og er ekki að
skafa utan af hlutunum. Svo sér
hann að það fer að síga brúnin á
innanbúðarmanninum, en hann
klárar sína frásögn og hugsar ekki
meira um það. Um kvöldið er setið
fyrir honum og hann barinn eins
og harðfiskur. Maðurinn kærði
auðvitað árásina, en þá var sýslu-
maður, Magnús Gíslason, mikill
sæmdarmaður, og hann gerði sér
lítið fyrir og dæmdi manninn í 100
króna sekt fyrir að smána Ólaf
Friðriksson.
Þetta er svo furðuleg saga, að ég
fór að athuga málið, en þá voru nú
bækurnar sem ég þurfti einhvers-
staðar í herbergi austur á Eiðum,
svo ég fæ ekki úr þessu skorið
strax. En ég rengi ekki manninn,
því hann er þekktur að öðru en
fleipri.
Þannig hef ég verið að safna að
mér miklum fróðleik um Suður-
götuslaginn og rússneska drenginn
og um leið upplýsingar um Ölaf
Friðriksson og hans ævi. Og nú hef
ég hert róðurinn, því það fer hver
að verða síðastur. Þetta er samt
orðið nokkuð kaldranalegt, því
maður stendur sig að því að hugsa:
Ja, þessi má nú fara, ég er búinn að
tala við hann og: Mikið djöfull var
að missa hann þennan.
Allir sem geta veitt Pétri Pét-
urssyni einhverjar upplýsingar um
atburðina í Suðurgötu, Ólaf Frið-
riksson, og piltinn Nathan, eru því
hér með beðnir að snúa sér til
mannsins.
J.F.Á.
Elín Guðmundsdóttir og Þóra K. Johansen.
Aukatónleikar Tónleikanefnd-
ar Háskólans á morgun
AUKATÓNLEIKAR á vegum
Tónleikanefndar Iláskólans verða
haldnir í forsal Þjóðminjasafnsins
við Ilringhraut á morgun, laugar-
dag. kl. 17.00. Flytjendur verða
Þóra K. Johansen og Elln Guð-
mundsdóttir semballeikarar og
flytja þær tónverk fyrir tvo semb-
ala og einnig einleiksverk fyrir
sembal.
tónverki. Flutt verða verk fyrir tvo
sembala eftir Johann Christian
Bach, Wilhelm Friedemann Bach,
Francois Couperin og Þorkel Sigur-
björnsson. Sónata Couperins er
útsetning á hljómsveitarverki en
hin tónverkin eru samin fyrir
sembala. Einnig verða flutt ein-
leiksverk fyrir sembal eftir An-
toine Forqueray og Domenico Scar-
Skógræktarfélag Reykjavikur:
Seldi 323 þúsund plöntur í fyrra
AÐALFUNDUR Skógræktarfélags
Reykjavíkur var haldinn 29. april
sl. I skýrslu framkvæmdastjóra
kom fram. að umsvif félagsins
vaxa hröðum skrefum og eru
fra'ðsla og upplýsingar þar ofar-
lega á blaði. Seldar voru alls 323
þús. plöntur en það er veruleg
aukning. Félagið stóð að því að
undirhúa dag trésins í Reykjavik.
Þá voru gróðursettar 34 þús. plönt-
ur.
Skógræktarfélagið gaf öllum níu
ára börnum eina birkiplöntu sl. vor.
Þetta vakti ánægju og athygli.
Skógræktarstöðin í Fossvogi hefur
fengið viðbótarland, 5,7 ha. við
Fossvogsveg. Félagið sá um gróður-
setningu og umhirðu í Óskjuhlíð,
Rauðavatnsstöð, Breiðholtshverfi,
Elliðaárhólma, en aðalstarfið á
þessu sviði er þó á Heiðmörk. Þar
voru gróðursettar 78 þús. plöntur og
unnið að girðingum, vegagerð,
kortagerð, veðurathugunum o.fl.
Fram kom að hagur félagsins
stendur með miklum blóma. Að
skýrslum loknum flutti Reynir Vil-
hjálmsson fróðlegt erindi með
myndum um gróður í þéttbýli og
notagildi garða.
I aðalstjórn Skógræktarfélagsins
eru nú: Jón Birgir Jónsson, form.,
Lárus Blöndal Guðmundsson,
Bjarni K. Bjarnason, Björn Ófeigs-
son, Þorvaldur Þorvaldsson. Fram-
kvæmdastjóri er Vilhjálmur Sig-
tryggsson.
Ákveðið er að laugardaginn-9. maí
verði haldinn fræðslufundur í
Skógræktarstöðinni í Fossvogi. Þar
verður sýnd gróðursetning, grisjun,
klipping o.fl. Verður plöntusalan
opin þennan dag.
Peysuföt í ljósum sumarlitum frá Van Gils.
Köflóttir eða yrjóttir jakkar,
munstruð vesti og einlitar buxur.
Bankastræti 7 og Aðalstræti 4
vörukynning
SS
á áleggi í SS búóinni
Glæsibæ í dag kl 2-7
Komið og bragðið á