Morgunblaðið - 08.05.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981
23
Sigurður Vilhjálms-
son - Minningarorð
Fæddur 1. apríl 1914.
Dáinn 28. apríl 1981.
Eftir langan og dimman vetur
milli austfirzkra fjalla á fólk sér
þann draum heitastan að fá að lifa
hlýtt sumar, gjöfult til lands og
sjávar. En þegar voraði þá barði
dauðinn að dyrum. Sigurður
Björgvin Vilhjálmsson á Neskaup-
stað er látinn. Hann verður jarð-
sunginn frá Norðfjarðarkirkju í
dag. Ekki er þessi grein skrifuð af
því að ég þekkti Sigga föðurbróður
minn betur en aðrir. Siggi var
hlédrægur og fáskiptinn og efast
ég um að nokkur hafi vitað hvað í
huga hans bjó. En ég á minningar
um samverustundir með Sigga,
stundir, sem lífguðu uppá tilveru
mína og svo hefur einnig verið um
þá er hann umgékkst meira.
Siggi fæddist þann 1. apríl 1914
og var hann fjórði í röð ellefu
systkina, en til viðbótar átti hann
fjögur eldri hálfsystkin. Hann var
sonur hjónanna Kristínar Árna-
dóttur og Vilhjálms Stefánssonar,
en þau bjuggu allan sinn búskap
að Hátúni í Nesi í Norðfirði, nú
Neskaupstað. Vilhjálmur afi minn
var útvegsbóndi. í þessum aust-
firzka bæ ólst Siggi upp og átti
allan sinn starfsaldur, að undan-
skyldum tveim árum er hann var
við nám í Héraðsskólanum á
Laugarvatni.
I bæjum sem þessum hafa íbúar
alltaf átt allt sitt undir því sem
sjórinn gaf í aðra hönd, og á sjó og
við sjó starfaði Siggi alla tíð.
Fyrst reri hann á bátum og
togurum, um tíma við eigin út-
gerð, en í 25 ár starfaði hann á
netaverkstæði bróður síns, Frið-
riks Vilhjálmssonar. Munu öll
íslenzk síldarskip og seinna loðnu-
skip hafa notið þjónustu þeirra.
Þegar ég var barn þótti mér oft
spennandi þegar frændfólk mitt
kom í bæinn. Siggi var meðal
þeirra. En fyrst held ég hafi
kynnst Sigga á liðnum áratug
þegar hann kom nokkur jól og
dvaldi hjá foreldrum mínum. Tók
ég snemma eftir því, að þar fór
talnaþenkjandi maður. Var hann
óþreytandi við lausnir á ýmis
konar rökþrautum eins og mynda-
gátum og krossgátum. En mesta
ánægju fannst mér hann hafa af
að spila bridge og ekki síður það
spil er fáir kunna, l’hombre. Vor
og sumur söðlaði hann um, fór í
lax norður í Vopnafjörð, silung í
Norðfjarðará eða reri á skektunni
sinni og lagði fyrir rauðmaga í
Norðfirði. í spilum fór Siggi ekki
alltaf troðnar slóðir, virtist mér.
Naudungaruppboð
annað og síðasta
sem auglýst var í 51., 54. og 57. tölublaði
Lögbirtingablaösins 1979, á Auðbrekku 50 —
hluta —, þinglýstri eign Jöfurs hf., fer fram á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 13. maí 1981 kl.
10.00.
Bœjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 107. og 111. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1979 og 5. tölublaöi 1978, á
Fannborg 3 — hluta — þinglýstri eign Karls
Davíðssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðviku-
daginn 13. maí 1981 kl. 10.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
og svo var víst einnig í veiðiskapn-
um. Ekki var árangur hans þó
lakari en annarra. Frávik hans frá
því sem almennt var talið rétt
stafaði af því að hann taldi sína
lausn skynsamiega miðað við að-
stæður hverju sinni.
Siggi kvæntist aldrei. Átti hann
heimili hjá Þorbjörgu systur sinni
og manni hennar Jóiii Einarssyni.
Og enga afkomendur átti hann.
En samt var hann „yngdur upp“.
Á páskadagsmorgni var skírður
í Norðfjarðarkirkju lítill drengur,
nafnið var Sigurður Friðrik. Hann
er dóttursonur Jóns og Þorbjarg-
ar. Siggi kunni vel að meta þetta.
Á liðnum árum hafði Siggi
kennt sér hjartameins. Eftir veik-
indi stóð hánn jafnan upp aftur og
hóf störf að nýju. Honum leiddist
aðgerðarleysi. Og kallið kom þar
sem hann var við vinnu sína á
netaverkstæðinu. Var hann flutt-
ur á sjúkrahús, en þar andaðist
hann innan stundar. Þann dag
voru liðin 104 ár frá fæðingardegi
föður hans, Vilhjálms í Hátúni.
Eg vil þakka forsjóninni fyrir
að hafa átt Sigurð Vilhjálmsson
að föðurbróður og fengið að kynn-
ast honum.
Við sem kynntumst honum
munum sakna hans, megi hann
hvíla í guðs friði.
Vilhjálmur Bjarnason
Til viðskiptamanna sparisjóða
UM SKULDBREYTINGU LAUSASKULDA
HÚSBYGGJENDA OG IBÚÐAKAUPENDA f
FÖST LÁN.
I framhaldi af fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar hefur stjórn Sambands ísl. sparisjóða mælt
með því við sparisjóðina, að þeir gefi viðskiptavinum sínum sem fengiö hafa lán hjá
sparisjóði vegna húsbyggingar eða íbúðarkaupa á undanförnum þremur árum, kost á að
sameina þau í eitt lán, sem yrði til allt að 8 ára. Þau heildarlán sem sparisjóðirnir breyta á
þennan hátt, nema þó aldrei meira en 10% af heildarútlánum hvers sparisjóös, miðað við
31.12.1980.
SKILYRÐI FYRIR SKULDBREYTINGU
A. að umsækjandi hafi fengið lán hjá Húsnæðisstofnun rlkisins á árunum 1978, 1979og
1980 eða verið lánshæfur á þessum árum, samkvæmt núgildandi reglum
stofnunarinnar.
B. að umsækjandi eigi aðeins eina íbúð eöa íbúðarhús, byggt eða keypt á þessum árum til
eigin afnota.
C. að umsækjandi hafi fengið lán hjá sparisjóði til íbúðakaupa eða byggingar og skuldi
31.12.1980 vegna slíkra lána 20.000 nýkrónur eða meira, enda hafi lánin upphaflega
verið veitt til skemmri tíma en fjögurra ára og eigi að greiðast upp á næstu þremur árum
eða skemmri tíma.
Undanskilin skulu skammtímalán veitt vegna væntanlegra húsnæðislána,
lífeyrissjóðslána eða annarra tímasettra greiðslna.
LÁIMSKJÖR
Lánstími 8 ár, eða skemmri tími samkvæmt ósk lántakanda. Lánin bundin lánskjaravísitölu
með 21/2% vöxtum og veitt gegn fasteignaveði. Veðsetning eignar skal ekki nema hærra
hlutfalli en 65% af brunabótamati. Lánsfjárhæð skal ekki nema hærri upphæöen 100.000
krónum og endurgreiðast með ársfjórðungslegum afborgunum lánstímabilið.
UMSÓKNIR
Umsókn um skuldbreytingarlán skal umsækjandi skila á sérstökum eyöublöðum í þann
sparisjóð, þar sem hann hefur aðalviðskipti sín. Skal þar skrá öll þau skammtímalán, sem
óskað er að breytt sé, ( hvaða sparisjóði sem þau lán eru. Auk umsóknar skal umsækjandi
skila veðbókar- og brunabótamatsvottorði eignar sinnar, sem veðsetja á til tryggingar láninu.
Sá sparisjóður, þar sem hæsta skuld umsækjanda er, veitir lániö og gerir upp lán við aðra
sparisjóði.
Sé umsækjandi í vanskilum með önnur lán, skal hann gera þau upp áður en skuldbreyting fer
fram.
UMSÓKNARFRESTUR
Frestur til að skila umsóknum er til 31. mal n.k.
Lánveitingar munu fara fram jafnóðum og unniö hefur verið úr umsóknum og ekki síðar en
31. júlí n.k.
SAMBAND (SLENSKRA SPARISJÖÐA
verðlækkun
áöliog
gosdrykkjum
HF.ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON