Morgunblaðið - 08.05.1981, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981
'i
Margir nú
atvinnu-
lausir
ÝMSAR sviptinKar haía átt
sér stað i málum fram-
kvæmdastjóra ensku knatt-
spyrnunnar að undanfornu.
Aður hefur verið Kreint frá
brottrekstri Dave Sextons frá
Manchester Utd. En síðan
hafa fleiri bæst í hóp atvinnu-
lausra. John Neal var rekinn
frá Middlesbrough i vikunni
ok daginn áður hafði Gordon
Lee fengið sömu meðferð hjá
Everton. Uá var Stan Ander-
son rekinn frá Bolton. I>ar
með hefur sjö framkvæmda-
stjórum verið sagt upp störf-
um sínum i deildunum fjórum
i Englandi siðustu dagana.
öll félögin eiga það sameigin-
legt, að hafa ekki náð þeim
árangri sem forráðamenn
þeirra höfðu gert sér vonir
um.
En fréttir af framkvæmda-
stjórum hafa ekki allar verið á
einn veg, fyrir skömmu undir-
ritaði Alan Mullery nýjan 3
ára samning við Brighton og
þó hefur félagið barist í bökk-
um í 1. deild síðustu tvö
keppnistímabilin.
Stjörnu-
hlaup FH
FJÓRÐA Stjörnuhlaup FH
verður haldið mánudaginn
11. mai á Kaplakrikavelli.
Keppt verður i 2 milum i
karlaflokki og 1000 m hlaupi
í kvennaílokki. Hefjast hiaup-
in kl. 19.30.
Hlaupið er liður í keðju
víðavangshlaupa þar sem Eyr-
arbakkahlaupið féll niður
vegna framkvæmdaleysis.
Þetta er síðasta hlaupið og
ræður úrslitum í karlaflokki.
Fyrir hlaupið er Mikko Háme
efstur, einu stigi á undan
Ágústi Ásgeirssyni, en ef
Ágúst sigrar í hlaupinu fer
hann upp fyrir Mikko.
Ennfremur er þetta keppni
um bikara í Stjörnuhlaupinu
en þar eru Mikko Háme og
Gunnar Páll Jóakimsson jafn-
ir, með 12 stig. En í kvenna-
flokki er Guðrún Karlsdóttir
efst.
Reykjavíkurmeistarar Fylkis
„Hvað er í bikarnum?" gætu
piltarnir verið að hugsa eða segja
á þessari mynd Emiliu. En mynd-
in var tekin á Melavellinum i
gærkvöldi, er Fylkismenn tóku
við Reykjavíkurmeistaratitlinum
i knattspyrnu, sem félagið vann í
fyrsta skiptið i sögu sinni. Liðið
tryggði sér endanlega sigur á
mótinu með 3—1 sigri gegn
Ármanni i fyrrakvöld. Aukastig-
ið nægði til að skjótast fram úr
Víkingi, sem hafnaði i öðru sæti.
SINDRA
STALHF
Fyrirliggjandi í birgðastöð
STANGAAL
(ALMgSiO,5) Seltuþoliö
Fjölbreyttar stæröir og þykktir
VINKILAL
L
lLL
SIVALT AL
FLATAL
ÁLPRÓFÍLAR
□izzjna
Þessi vörpulegi hópur er ekkert
annað en islenska landsliðið i
kraftlyftingum, sem tekur þátt i
EM i Parma á ltalíu um helgina.
Margir þessara kappa komu við
sögu í metaslættinum á meistara-
móti íslands um síðustu helgi. Þó
var mál manna. að þeir hefðu
sparað kraftana til að eiga meira
inni i Parma. Ljfam. Kmiiía.
Valsmenn
endurréðu
Akbachev
Handknattleiksdeild Vals
hefur endurráðið Sovétmann-
inn Boris Akbachev fyrir
na'sta keppnistímabil. Ak-
hachev sá um þjálfun karla-
flokkanna á nýloknu keppnis-
timabili og hann mun ýmist
þjálfa þá flokka á ný, eða
hafa yfirumsjón með þeim.
Punktar úr
ensku knatt-
spyrnunni
Ken Hibhitt, góðkunnur
knattspyrnumaður hjá New-
castle. og bróðir Ken Ilibbitt
hjá Wolverhampton, heíur
neyðst til að leggja skóna á
hilluna. Hann meiddist i hné á
keppnistimabiiinu og náði sér
ekki á strik þrátt íyrir upp-
skurð.
Frank Grey, skoskur iands-
liðsmaður hjá Nottingham
Forest, hefur gengið til liðs við
Leeds Utd. Leeds greiddi
300.000 sterlingspund fyrir
Grey, sem var áður leikmaður
með liðinu. Hann hefur verið
hjá Forest tvö síðustu keppn-
istímabilin.
Ron Greenwood, landsliðs-
einvaldur Englands, hefur gert
ýmsar breytingar á landsliðs-
hóp sínum fyrir komandi
landsleiki gegn Skotum,
Norður-írum og Wales-búum.
Breytingarnar hefur hann
einkum gert vegna þess að
hann getur ekki valið leikmenn
fpswich og Liverpool í hópinn
vegna þátttöku þeirra í Evr-
ópukeppnum. Þeir sem taka
stöður fyrrgreindra leikmanna
eru Garry Bailey og Garry
Birtles (Manchester Utd.),
Trevor Cherry (Leeds), Derek
Statham (WBA), Alvin Martin
(West Ham) og þeir Peter
Withe og Denis Mortimer
(Aston Villa). Aðrir í hópnum
eru kunn nöfn, Shilton, Corrig-
an, Anderson, Watson, San-
som, Hoddle, Robson, Wilkins,
Rix, Brooking, Coppell, Keeg-
an, Francis, Woodcock og
Barnes.
Skoski einvaldurinn Jock
Stein hefur einnig valið hóp
sinn fyrir umrædda landsleiki.
Hópinn skipa eftirtaldir leik-
menn: Rough (Partick),
Thomson (St. Mirren), Mc-
Grain (Celtic), Stewart (West
Ham), Grey (læeds), Dawson
(Rangers), McQueen (Manch.
Utd.), Narey (Dundee Utd),
McLeish (Aberdeen), Miller
(Aberdeen), Burns (Forest),
Hartford (Everton), Burns
(Celtic), Provan (Celtic),
Archibald (Tottenham), Jor-
dan (Manch. Utd.), Sturrock
(Dundee Utd.), Robertson
(Forest) og Graham (Leeds).
I
Asta nældi
þrenn verðlaun
Borgartúni31 sími27222
Reykjavíkurmótið í borðtennis
var haldið mánudaginn 4. og
þriðjudaginn 5. mai. Sigurvegar-
ar i einstokum flokkum urðu sem
hér segir:
Einliðaleikur unglinga yngri en
13 ára: Hörður Pálmason, Víkingi.
Einliðaleikur unglinga 13—15
ára: Bergur Konráðsson, Víkingi.
Einliðaleikur unglinga 15—17
ára: Einar Einarsson, Víkingi.
Stúlknaflokkur: Gróa Sigurðar-
dóttir, KR. Einliðaleikur Öld-
unga: Jóhann Örn Sigurjónsson,
Erninum. Tvíliðaleikur öldunga:
Jóhann Örn Sigurjónsson, Ernin-
um, Þórður Þorvarðarson, Ernin-
um. Tvíliðaleikur karla: Hjálm-
týr Hafsteinsson, KR, Tómas Guð-
jónsson, KR. Einliðaleikur karla:
Tómas Guðjónsson, KR. Einliða-
leikur kvenna: Ásta Urbancic,
Erninum. Tvíliðaleikur kvenna:
Ásta Urbancic, Erninum, Guð-
björg Stefánsdóttir, Fram.
Tvenndarleikur: Ásta Urbancic,
Erninum, Tómas Guðjónsson, KR.
Tvíliðalcikur unglinga 15—17
ára: Elías Magnússon, Erninum,
Haukur Stefánsson, Víkingi. Tví-
liðaleikur unglinga yngri cn 15
ára: Bergur Konráðsson, Víkingi,
Andri Marteinsson, Víkingi.
r,
i