Morgunblaðið - 08.05.1981, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1981
31
hann hefði verið í liðinu á sunnu-
daKÍnn ef meiðsli þessi hefðu
ekki komið til,“ sat?ði þjálfari
Vaalerenjíen, Leif Eriksen, í sam-
tali við Morjíunblaðið.
Islendingurinn var í æfingarleik
með unglingaliði Vaalerengen er
óhappið átti sér stað, Kristinn,
sem lék mjög vel, komst einn að
marki andstæðingana, en mark-
vörðurinn kom glannalega út á
móti honum með þeim afleiðing-
um sem að framan greinir. Leif
Eriksen sagði ennfremur; „Við
Kristinn brotnaði
- er sæti í aðalliðinu blasti við
Frá Jan Eric Laurc. fróttamanni Mbl. í
Osló.
EKKERT var til fyrirstöðu að
Kristinn Björnsson. hinn mark-
sækni islenski framherji, myndi
leika sinn fyrsta leik með aðalliði
Vaalcrengen og þar mcð sinn
fyrsta leik í norsku 1. deildar-
keppninni í knattspyrnu á
sunnudaginn. En þvi miður fyrir
Kristin, verður Vaalerengen að
standa sig án hans. Kristinn varð
nefnilega fyrir því óhappi i leik
með unglingaliði félagsins fyrir
skömmu að brotna á fæti og
verður hann af þeim sokum frá í
minnst mánuð. „Þetta er virki-
lega leiðinlegt fyrir Kristin,
leikum með þremur framlínu-
mönnum og þeir sem leikið hafa
til þessa hafa staðið sig svo vel, að
Kristinn hefur þurft að bíða eftir
tækifæri sínu. En einn þeirra var
rekinn af leikvelli í síðasta leik
okkar og tekur út leikbann á
sunnudaginn. Það var því ekkert
til fyrirstöðu að Kristinn fengi
tækifæri og ef hann hefði leikið
eins vel og hann getur best, hefði
ekki verið auðvelt fyrir Norð-
manninn að vinna aftur sæti sitt í
liðinu."
Vaalerengen hefur forystuna í
norsku deildinni eftir tvær um-
ferðir, hefur unnið fyrstu leiki
sína mjög sannfærandi.
Pressuleikur í knatt-
spyrnu á mánudaginn
PRESSULEIKUR í knattspyrnu
fer fram á Kaplakrikavelli í
Ilafnarfirði á mánudagskvöldið
og hefst hann klukkan 20.00.
Guðni Kjartansson landsliðs-
þjálfari hefur valið landsliðshóp
sinn og skipa hann eftirtaldir
leikmenn:
Þorsteinn Bjarnason ÍBK,
Bjarni Sigurðsson IA, Marteinn
Geirsson, Trausti Haraldsson,
Pétur Ormslev, allir úr Fram,
Þorgrímur Þráinsson Val, Valþór
Sigþórsson, Ómar Jóhannsson,
Sigurlás Þorleifsson, allir frá ÍBV,
Lárus Guðmundsson, Ómar Torfa-
son, báðir Víkingi, Sæbjörn Guð-
mundsson KR og þeir Sigurður
Halldórsson, Kristján Olgeirsson
og Árni Sveinsson frá Akranesi.
Iþróttafréttamenn velja lið sitt
úr hópi eftirtalinna leikmanna;
Guðmundur Baldursson Fram,
Guðmundur Ásgeirsson UBK,
Ottó Guðmundsson, Börkur Ingv-
arsson, báðir KR, Ólafur Björns-
son, Helgi Bentsson, Jón Einars-
son, allir frá UBK, Sigurður Lár-
usson, Jón Alfreðsson, Gunnar
Jónsson, allir IA, Magnús Þor-
valdsson, Heimir Karlsson, báðir
Víkingi, Viðar Halldórsson FH,
Sævar Jónsson og Dýri Guð-
mundsson Val. Nánar verður
greint frá leiknum í blaðinu á
morgun.
Grikkir og Vestur-Þjóð-
verjar hafa forystuna
GRIKKLAND og Vestur-Þýska-
land höfðu forystuna hvort I
sinum riðli siðast er fréttist til
B-kcppninnar í körfuknattleik
sem fram hefur farið siðustu
dagana í Tyrklandi. Eftir fjórar
umferðir hafa Grikkirnir enn
fullt hús stiga i Istanbul-riðlin-
um. Þjoðverjarnir hafa 6 stig að
fjórum leikjum loknum i Izmir-
riðlinum.
Úrslit síðustu leikja urðu á þá
leið, að Grikkland sigraði Belgíu
90—78, Tyrkland vann Ungverja-
land naumlega, 78—77, England
lagði Finnland að velli 91—80,
Portúgal sigraði Búlgaríu 78—73,
Vestur-Þýskaland sigraði Svíþjóð
75—49 og loks sigraði Holland
Rúmeníu 84—80. Þrjú efstu liðin
úr hvorum riðli leika síðan nokk-
urs konar lokakeppni til að skera
úr um hvaða fjögur lið taka þátt í
A-keppninni í Tékkóslóvakíu í
næsta mánuði. Lokakeppnin fer
fram í Istanbul.
Góö ferð hjá
fimleikastúlkunum
EINS OG fram hefur komið í
fréttum fóru 6 stúlkur til keppni
á Norðurlandameistaramót
kvenna i fimleikum, sem haldið
var i Rovaniemi, Finnlandi, dag-
ana 2.-‘-3. maí sl.
Þetta er í fyrsta skipti sem
íslenskar stúlkur taka þátt í slíku
móti og var það því mikil og góð
reynsla fyrir þær að vera með.
Keppnin var skemmtileg báða
dagana og nokkuð hörð þótt and-
rúmsloftið væri mjög rólegt og
þægilegt. Mesta keppnin var tví-
mælalaust milli norsku og sænsku
stúlknanna, en þær fyrrnefndu
sigruðu, bæði í flokkakeppni og
einstaklingskeppni.
Fyrri dag keppninnar var einnig
talsverð keppni milli dönsku og
íslensku stúlknanna í einstökum
greinum.
Islensku stúlkurnar voru frá
tveimur félögum, íþróttafélaginu
Gerplu, Kópavogi, og Fimleikafé-
laginu Björk, Hafnarfirði. Þjálfar-
ar beggja félaganna, Margrét
Bjarnadóttir og Karólína Valtýs-
dóttir, voru með stúlkunum svo og
fararstjóri FSÍ, Birna Björnsdótt-
ir.
Lokastaðan á mótinu varð þessi:
Samtals hestur tvíslá jafnvæKÍKNláKÚlfæfinK
1. Noreuur 101.55 24.75 25.50 25.60 25.70
2. SvíþjóA 101.20 25.05 25.95 24.30 25.90
3. Finnland 98.50 24.05 24.70 25.00 24.75
4. Danmórk 90.05 23.10 21.80 21.35 23.80
5. Island 84.25 21.95 19.95 21.45 20.90
Hættir Aston Villa
við íslandsferð?
SVO GÆTI farið, að ekkert
verði úr fyrirhugaðri keppnis-
ferð ensku knattspyrnumeistar-
anna Aston Villa hingað til
lands siðar i þcssum mánuði.
Fram kom fyrir nokkru. að
liðið va*ri væntanlegt hingað til
lands milli 21. — 23. maí og var
ætlunin að tefla islenska lands-
liðinu fram gegn því á Laugar-
dalsvellinum.
„Það er rétt, það hefur komið
afturkippur í málið," sagði Helgi
Daníelsson hjá KSÍ í samtali við
Morgunblaðið í gær. Helgi sagði
ennfremur: „Villa ætlaði í
keppnisferð um þetta leyti og
var ætlunin að leika einn leik í
Noregi og annan á Islandi. Síðan
gerðist það fyrir stuttu, að
leiknum í Noregi var aflýst. Þar
sem forráðamenn Villa vilja ekki
leika minna en tvo leiki í slíkri
ferð, er ljóst, að af henni getur
ekki orðið nema annar leikur
bjóðist. Sá leikur yrði að vera
erlendis, því hér heima er ekki
grundvöllur fyrir tveimur leikj-
um. Þetta er því í deiglunni og
getur brugðið til beggja vona.“
— KK-
Það væri fengur fyrir islensKa
knattspyrnuaðdáendur að fá að
sjá Gordon Cowans og félaga
hans hjá Villa á Laugardalsvell-
inum.
Austurstræti 22 Sími frá skiptiborði 85055 C
Herrar,
þið sem viljið fylgjast með —
sumctirið
eir komið
og viö höfum búiö okkur undir þaö meö
fullri búö af sumarfötum