Morgunblaðið - 08.05.1981, Side 32
Síminná OOflQQ
afgretóslunni er OOUOO
fltargitst&Iafeft
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981
Korchnoi um fjölskyldumál sin:
„Þakklátur fyrir
orð Friðriks44
ÞAÐ ER ekkert nýtt að frétta af
mínum málum ok fjolskyldu minn-
ar, en éu er þakklátur Friðriki
Ólafssyni, forseta FIDE, fyrir orð
hans í Reykjavik fyrir skommu, þar
sem hann seuir að FIDE verði að
Krípa til sinna ráða ef mái fjöl-
skyldu minnar verði ekki leyst fyrir
heimsmeistaraeinvíuið." saxði Vict-
or Korchnoi i samtali við Mbl. i Kser,
en hann var þá staddur i Sviss.
Korchnoi taldi það málstað sínum
mjöK til framdráttar að FIDE hygRSt
beita áhrifum sínum til þess að
jafnræði verði meðal keppendanna í
heimsmeistaraeinvíginu, en Friðrik
Ólafsson ræddi þau mál mjög ítar-
lega við sovézka ráðamenn á ferða-
lagi í Moskvu fyrir skömmu.
Bensín hækkar um 90 aura:
62 aurar renna
beint í ríkissjóð
Á FUNDI Verðlagsráðs í fyrradag
var samþykkt 90 aura hækkun á
bensíni, úr 5,95 í 6,85 krónur
lítrinn. eða 15,7%. 45 aura hækkun
er til komin vegna beiðni oliufélag-
anna og 45 aurar vegna ákvörðunar
fjármálaráðherra að hækka vega-
Kjald, sem innheimt er i bensin-
verði. Alls renna um 62 aurar af
þessari 90 aura hækkun beint i
rikissjóð, eða 65%.
Samkvæmt heimildum Mbl. var
afgreiðsla Verðlagsráðs á einstökum
verðhækkanabeiðnum eftirfarandi:
Brauðverð, meðalhækkun 6%, sigti-
brauð 15,7%. Kvikmyndahúsin fengu
8,57% hækkun, Flugleiðir 12%,
niðursuðuvörur 8%, steypa 18%,
farmgjöld skipafélaga og vöruaf-
greiðslna 12%, olíufarmgjöld innan-
lands 14%, sérleyfisbifreiðir 20%,
farmgjöld vöruflutningabifreiða
14%, vinnuvélar 19% og saltfiskur
18%.
Enn ósamið
við fóstrur
SAMNINGAR tókust ekki í
gærkvöldi milli fóstra hjá
ríkisstofnunum og fulltrúa
fjármálaráðuneytisins.
Lauk fundi um klukkan 22 í
gærkvöldi án þess að sam-
komulag tækist, en samninga-
fundurinn hófst klukkan níu
árdegis í gær. Að sögn Mörtu
Sigurðardóttur, talsmanns
fóstranna, miðaði nokkuð í
samkomulagsátt á fundinum,
þó ekki sé útséð um hvenær
deilan leysist.
Nýr samningafundur hefur
ekki verið boðaður.
Ríkisstjórnin fjallaði ekki um afgreiðslu Verðlagsráðs i gær:
Forsætisráðherrahjónin dr. Gunnar Thoroddsen og írú Vala,
komu 1 gærmorgun í opinbera heimsókn til Svíþjóðar. Myndin var
tekin við komuna á Arlanda-flugvoll við Stokkhólm. Thorbjörn
Fálldin forsætisráðherra Sviþjóðar og Solveig kona hans, tóku á
móti islenzku forsætisráðherrahjónunum. Sjá nánar um heimsókn-
Ína a miðopnu blaðsins. Símamynd: Loftur Ásgeirsson.
Koma verðhækkan-
ir inn í vísitöluna?
Einn af forystu-
mönnum Greenpeace
dvaldist hérlendis
EINN AF forystumönnum Green-
peace-samtakanna. David McTag-
arth. hélt frá ísiandi til Lundúna
siðdegis í gær eftir að hafa dvalið
hérlendis i nokkra daga. Hann bjó á
Hótel Loftleiðum meðan hann var
hérlendis, en þar stendur yfir þessa
dagana ráðstefna Alþjóða hvalveiði-
ráðsins um stofnsáttmála ráðsins.
MorKunblaðið náði tali af McTag-
arth skömmu áður en hann hélt af
landi brott í gær, en hann varðist þá
allra frétta ok vildi ekki ræða erindi
sitt hingað til lands.
Eins og fram hefur komið i frétt-
um óttast menn, að Greenpeace-
samtökin beini aðgerðum sínum að
íslandi og hvalveiðum hér við land í
sumar. I fyrrasumar heyrðist lítið
frá þessum samtökum, en sumarið
1978 voru samtökin hér með skip sitt,
Rainbow Warrior, og failið hefur
dómur, sem bannar tilteknar aðgerð-
ir skipverja gegn hvalveiðum íslend-
inga á miðunum vestan við landið.
Á rikisstjórnarfundi i gær-
morgun var ekki tekin afstaða til
hinna tuttugu verðhækkana á
ýmsum liðum vöru og þjónustu er
afgreiddar voru samhljóða i
Verðlagsráði i fyrradag. Tómas
Árnason viöskiptaráöherra sagði
i samtali við Morgunblaöið i gær,
að hann vildi ekkert um það
segja, hvort rikisstjórnin myndi
staðfesta verðhækkanirnar áður
en til vfsitölurútreiknings kem-
ur.
Tómas sagði einnig, að nýsam-
þykkt lög um aðhald í efnahags-
málum, heimiluðu viðskiptaráð-
herra að staðfesta verðhækkanir
undir þeim mörkum er ríkisstjórn-
in setti til viðmiðunar fyrir næstu
þrjá mánuði. Nú sagðist Tómas
hins vegar ekki hafa heimild til að
staðfesta eitt né neitt, enda hefði
ríkisstjórnin enn ekki sett þessi
mörk. Líklega yrði það þó gert á
næstunni.
Þá sagði Tómas einnig að ekki
hefði legið fyrir á ríkisstjórnar-
fundinum í gær hver vísitöluáhrif
þessar hækkanir hefðu. Að því
leyti hefði því einnig skort á að
ríkisstjórnin gæti afgreitt málið.
Næsta ríkisstjórnarfund sagöi
Tómas verða þriðjudaginn 12. maí,
en hann vildi ekki segja til um
hvort þá væri orðið of seint að
koma hækkunum, ef samþykktar
yrðu, inn í vísitöluna 1. júní.
Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að allar
hækkanir þær er Verðlagsráð af-
greiddi í fyrradag, væru innan
þeirra marka, að 40%-verðbólgu-
markið á þessu ári náist. Sumar
ákvarðanirnar sagði hann beinlín-
is teknar nú, til að þær verði minni
síðar á árinu, og væru þær skref i
þá átt að draga verðhækkanir ekki
eins og oft hefði brunnið við.
Þorsteinn sagðist telja Verðlags-
ráð hafa fjallað um málið af
mikilli skynsemi á þessum fyrsta
fundi eftir að ný lög um efna-
hagsmál voru sett, og með tilliti til
þess að þarna væri um hófsamar
hækkanir að ræða sagðist hann
reikna með að ríkisstjórnin stað-
festi þær.
Morgunblaðið reyndi í gær,
ítrekað en árangurslaust, að fá álit
forvígismanna launþega á frestun
ríkisstjórnarinnar á málinu.
Sjá viðtöl á bls. 3.
Einstæð aðgerð með ágræðslu afhöggvinnar handar:
„Stórkostlegt að geta hreyft
fínguma og finna titringinn44
„ÞAÐ VAR stórkostlegt að geta hreyft fingurna og finna titringinn í
þeim. en ég varð mjög undrandi þegar ég vaknaði eftir svæfinguna og
sá puttana á mér, því mér hafði verið sagt þegar ég kom á
Borgarspítalann að þar yrði aðeins stúfur," sagði Ragnhildur
Guðmundsdóttir, 16 ára stúlka úr Keflavík. 1 samtali við MorKunblað-
ið á BorKarspitalanum í gærkvöldi, en hæKri hönd hennar hafði
kubhast af í hausinKarvéi í fiskvinnsluhúsi í SandKerði þar sem hún
hefur unnið í vetur. og hékk höndin aöeins á hluta af þumaifinKri.
„Það má teljast kraftaverk ef
þetta heppnast," sagði Ragnhild-
ur, „liturinn á fingrunum og
hitinn bendir til þess að þetta sé í
lagi og maður býður bara og
vonar. Eg er svo þakklát Rögn-
valdi lækni og öllu starfsfólkinu
hér og samstarfsmönnum mínum
hjá Miðnesi í Sandgerði sem
brugðu svo skjótt við.
Jú, ég hef reynt að hreyfa alla
fingurna og get það, þetta er engin
vitleysa, Rögnvaldur læknir og
pabbi og mamma sáu það.“
Ragnhildur kvaðst hafa verið í
aðgerðinni í Sandgerði í vetur, en
þetta var annar dagurinn hennar
á stóru hausingarvélinni og þurfti
hún að standa uppi á fiskkassa til
þess að ná eðlilega að hnífnum.
Skyndilega rann hún til á kassan-
unr og festist í járninu sem dregur
fiskinn að hnífnum og öryggis-
hemillinn, sem notaður er til að
stöðva vélina á augabragði, var
fyrir neðan fiskkassann, þannig að
hún náði honum ekki. „Eg er svo
stutt í annan endann," sagði hún,
„en ég kippti hendinni þegar að
mér og sá hvernig hún var þegar
ég stökk niður af togarakassanum,
hún hékk við þumalputtann. Allt
starfsfólkið hjálpaði ti! við að
koma mér sem fyrst og best á
sjúkrahús, Bergur og Rósa verk-
stjórar, hringdu á sjúkrabíl og
ungur strákur, Einar Benedikts-
son, stöðvaði blóðrennslið og batt
um höndina til bráðabirgða og
hann fylgdi mér síðan til Reykja-
víkur í sjúkrabílnum. Ég bið fyrir
kveðjur til allra hér og suður með
sjó sem hafa hugsað hlýtt til mín.
Ef þetta tekst og unnt verður að
þjálfa höndina upp, á löngum tíma
ugglaust, þá mun ég fara aftur í
fiskinn í Sandgerði, mér líkar svo
vel þar og er með fólkinu í
huganum."
Blaðamaðurinn þakkaði Ragn-
hildi spjallið um þessa einstæðu
aðgerð og kvaðst vonast til þess að
geta heilsað henni næst þegar þau
hittust. „Ég get nú heilsað með
vinstri, skátakveðjunni," svaraði
hún um hæl og rétti fram vinstri
höndina og blaðamaðurinn snar-
aði þeirri vinstri fram og heilsaði
með krók á litla fingri að skáta
sið. „Ég ætla að reyna að komast á
landsmótið fyrir norðan í sumar,"
sagði Ragnhildur og hló við, „mað-
ur er nú ekki skáti fyrir ekki
neitt,“ en hún er skátaforingi.
Ragnhildur á Borgarspítalanum í
gærkvöldi með hægri höndina bundna
upp, en hún reiknaði með að þar yrði
aðeins stúfur.