Morgunblaðið - 31.05.1981, Síða 15

Morgunblaðið - 31.05.1981, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ „Ég hef alltaf haft mest gaman af að spila rómantíska músík," sagði Selma Guðmundsdóttir, pí- anóleikari á heimili sínu í Stokk- hólmi um miðjan mánuðinn. „Schumann hefur alltaf verið í alveg sérstöku uppáhaldi hjá mér.“ Selma, sem lauk einleikaraprófi úr Tónlistarskólanum í Reykjavík 1972 og hefur verið með krökkum og karli í Svíþjóð um fjögurra ára skeið, er nú komin heim gagngert til að halda tónleika á Kjarvals- stöðum 1. júní. A efnisskránni eru verk frá árunum 1821—1838, róm- antísk verk eftir Chopin og Schumann og ein af síðustu sónöt- um Beethovens. „Ég er með hálfgert samvizku- bit af að hafa aðeins 19. aldar tónverk á efnisskránni," sagði Selma. „Það hefur myndazt mikið bil milli áheyrenda og tónskálda nú á dögum, og maður ætti að gera sitt til að gera nútímatónlistina aðgengilegri áheyrendum með því að spila hana. Það er veruleg synd, að fáir skuli hlusta á þessi nýju verk nema tónskáldin sjálf og þeirra nánustu samstarfsmenn og kunningjar. — En ég geri átak í þeim efnum seinna." þegar skólinn hélt meiri háttar tónleika þrisvar á ári, en ég tók þetta ekki af neinni óskaplegri alvöru. Andrúmsloftið í bænum vegna framtaks Ragnars var bara þannig, að maður var alltaf að spila. Enda koma mjög margir af íslenzkum pianistum einmitt frá ísafirði. Ég hefði líklega getað orðið hvað sem var annað en píanóleik- ari,“ sagði Selma. „Og það hefði kannski reynst mér miklu auð- veldara," bætir hún við og hlær. Hún var 17 ára, þegar hún hóf nám hjá Árna Kristjánssyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Áður hafði Ásgeir Beinteinsson kennt henni þar í nokkur ár. „Árni var alveg ofsalega „inspírerandi". Maður kom dansandi út úr kennslustundunum hjá honum, og smám saman tók píanóleikurinn yfir allt annað, sem ég var að gera.“ Að einleikaraprófinu loknu sótti Selma framhaldsnám hjá Árna í eitt ár. „Hann er svo elskulegur, að hann gefur sér tíma til að hlusta á gamla nemendur, svo ég fer alltaf og spila fyrir hann, þegar ég er heima." Eftir píanó- námskeið, sem prófessor Hans Leygraf hélt i Reykjavík 1973, Er komin „Islenzk tónlistar- menntun er frá upp- hafi góð. Skólarnir hafa samræmda námsskrá, og börn °g unglingar fá strax góðan tíma og hæfa kennara." Selma við flygilinn á heimili sinu i Stokkhólmi. 15 £ -S' J* heim til að halda tónleika Selma, sem er óvenju geðsleg kona, lætur fullyrðingar þess efn- is, að klassísk tónlist sé einhvers konar yfirstéttartónlist, fara í taugarnar á sér. „íslendingar eru farnir að nota orðið alþýðutónlist yfir alla aðra tónlist en klassíska. En það er mikill misskilningur, að sígild tónlist geti ekki höfðað til allra. Afi minn var til dæmis verkamaður og organisti í Grinda- víkurkirkju. Hann átti 14 börn, sem komust á legg, og hann kenndi þeim öllum á hljóðfæri. Það þótti sjálfsagður hlutur, að þau nytu tónlistar og lærðu að meta hana.“ Sjálf var Selma send í spilatíma í Tónlistarskólanum á Isafirði ung að árum. „Ég tel mig ákaflega lánsama að hafa byrjað þar. Seinna meir hef ég gert mér grein fyrir, hversu merkilegt og mikil- vægt starf Ragnar H. Ragnar hefur unnið á Isafirði. Hann og kona hans gerðu heimili sitt að miðpunkti tónlistar í bænum, og nánaaí á hverjum sunnudegi voru haldnir tónleikar neii7!2 ^ þe™- Ég man eftir að hafa verio klifrandi uppá einhverjar senur, varð Selma nemandi hans. Hún var í Salzburg í Austurríki, þar sem Leygraf býr, í hálft ár og flutti síðan með börn (tvo stráka) og bú í eitt ár til Hannover, en Leygraf kennir einnig þar. „Leygraf kenndi manni að vinna mjög sjálfstætt. Hann kenndi í eina viku, en síðan vann maður einn i þrjár og undirbjó sífellt hálfgerða tónleika, sem maður hélt fyrir hann. Hann kenndi manni að hugsa um það, sem maður var að gera, og spurði, hvers vegna maður spilaði tónverk á einn hátt en ekki annan. Hans kennsluaðferð byggir upp sjálfstraust hjá nemendum og hentaði mér mjög vel.“ Selma fór til Hannover á DAAD-styrk, sem er styrkur, sem þýzka ríkið veitir, og hlaut hann annað ár til. Það kom hins vegar manni hennar Árna Tómasi Ragn- arssyni, sem þá var í læknisfræði við Háskóla íslands, ekki mjög vel að vra í Hannover. Selma ákvað því að búa í Reykjavík, en fljúga í tíma Leygrafs einu sinni í mánuði. t>að var eina leiðin fyrir mig til áð vera m^ fjölskyldunniog stunda námið,“ sagði Selma. „En þetta var alveg ferlegt. Ég er svo flughrædd og var sífellt að kveðja mína nánustu í síðasta sinn eða nýsloppinn úr bráðum lífsháska." Næsta ár var hún heima, kenndi hálfa kennslu og undirbjó tón- leika, sem hún hélt hjá Tónlistar- félagi Reykjavíkur 1977. „Það var enginn stórskandall — og gekk bara vei.“ En skömmu seinna var öllu pakkað niður og farið fyrst til Stykkishólms og svo til Stokk- hólms, þar sem Árni hóf fram- haldsnám í læknisfræði. „Ég hefði aldrei valið að fara til Svíþjóðar til að stunda þar fram- haldsnám sjálf. Mér finnst ísland standa mjög vel í samanburði vjð hinar Norðurlandaþjóðirnar hvað músíkkennslu snertir, jafnvel þótt skólarnir þar kalli sig háskóla. íslenzk tónlistarmenntun er frá upphafi góð. Skólarnir hafa sam- ræmda námsskrá, og börn og unglingar fá strax góðan tíma og hæfa kennara. í Stokkhólmi fá börnin ekki nema 10 mínútur á viku fyrsta árið og 15 mínútur annað árið með músíkkennara. Ég var næstum búin að ráða mig fyrsta árið, sem við vorum hér, til að kenna 5 tíma á viku. Á þessum tíma átti ég að rúlla 15 nemendum í gegn hjá mér og mátti kenna þeim hvað, sem ég vildi. Mér finnast einhver lág- marksgæði verða að vera sett á kennslu, þótt fleiri nemendur komist ef til vill að á þennan hátt. En það hiýtur að skaða músiklífið á hærri stigum, þegar grunnurinn er svona." Selma hélt einleikstónleika í Gávle fyrsta árið, sem hún var í Svíþjóð. Hún vann við undirleik hjá Tónlistarskóla sænska út- varpsins, en þar komast bara góðir nemendur á píanó, fiðlu og selló að. Hún sótti nokkra tíma hjá Jose Ribera, sem er gamall nemandi Hans Leygrafs og kennir við skólann, auk þess hefur hún lesið tónlistarfræði við Stokk- hólmsháskóla. „En annars lagðist ég í barn- eignir og vesældóm, eins og ein- hver sagði, skömmu eftir að við komum hingað. Ég vildi hafa einhvern tíma með stráknum og lagði tónleikahald á hilluna um sinn. Ég æfði mig auðvitað alltaf — píanóleikur er að sumu leyti hálfgerð íþrótt, og fingrunum verður alltaf að halda í formi. En svo átti ég við meiðsli á hönd að stríða, svo að þetta hlé varð lengra en ég hafði hugsað mér. Það er alltaf erfitt, þegar verður of langt hlé milli þess, sem maður kemur fram,“ sagði Selma. „Ein- leikarar þurfa ekki að þjást af neinum „stórstjörnukomplexum“, þótt þeir vilji koma fram og miðla músíkinni til þeirra, sem vilja hlusta. Það er jú það, sem þeir stefna að með sínu námi, þótt langflestir vinni fyrir sér með kennslu og undirlei’k. Sumir spyrja stundum, hvort ég geti ekki fengið vinnu hjá sinfóníunni. Þeir halda líklega, að sinfóníuhljóm- sveitir séu settar saman af 10 fiðlum, 5 píanóum og nokkrum lúðrum. Það hefði verið gaman — og verður gaman eftir eitt ár — að vera heima og taka þátt í íslenzku tónlistarlífi. Islenzkir tónlistar- menn hafa skapað sér sjálfir mjög gott andrúmsloft. Og það sem meira er: fólk kemur og hlustar." ab. Hafnarfjörður Til tölu m.a. Arnarhraun 3ja til 4ra herb. íbúö á jaröhæö í þríbýlishúsi. Verö kr. 450 þús. Kaldakinn 3ja herb. íbúö á neöri hæö í tvíbýlishúsi. Verö kr. 400 til 420 þús. Alfaskeið 2ja herb. ibúö á jaröhæö í fjölbýlishúsi. Verð 340 þús. Ölduslóð 2ja til 3ja herb. íbúð í neöri hæö í tvíbýlishúsi á fallegri hornlóð. Verð kr. 340 til 350 þús. Smyrlahraun 3ja herb. íbúö á jaröhæö í fjórbýlishúsi. Bílskúr. Allt sér. Verö k.'. 45? ?!! 500 þús. Hringbraut 6 herb. íbúö á hæð og í risi á hornlóð ofan viö Hamarinn. Verð kr. 550 þús. Sléttahraun 4ra herb. íbúð á 1. hæö í fjölbýlishúsi. Bílskúrsréttindi. Verð kr. 460 til 480 þús. Árnl Gunnlaugsson. hrl. Austurgötu 10, HafnarfirÖi, sími 50764 Leyssr sfteí^C Y?ndann í mínnsfa baðhérberginu Flest baöherbergi og salerni eru í minna lagi fyrir steypiböð, og þrengsli koma tíðum í veg fyrir uppsetningu sturtuklefa. En nýju Huppe-sturtuklefarnir leysa þennan þrengslavanda. I Feir opnast á horni meö tveimur stórum rennihurðum, sem hafa I vatnsþétta segullokun, niður og upp úr. | Þess vegna kemst hann fyrir á ótrúlega litlum gólffleti. Einnig ! eru til einstakar rennihurðir. Hringið — skrifið — komið og við f veitum allar nánari upplýsingar um stærð, gerð og verð fljótt og I örugglega. Ávölefrihom Vatnsþétt segullokun Kúlulegur $ Kaupfélag Árnesinga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.