Morgunblaðið - 31.05.1981, Side 28

Morgunblaðið - 31.05.1981, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1981 t Móöir okkar, SIGRÍÐUR HELGA JÓNSDÓTTIR fré Villingaholti, verður jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1. júní kl. 15. Kristrún Ágústsdóttir, Sigríóur Brunés. t Útför móöur okkar og tengdamóöur, GUDBJARGAR GISSURARDOTTUR, Rauðarárstíg 5, fer fram frá Hallgrímskirkju, mánudaginn 1. júní kl. 15.00. Jarösett veröur í Hafnarfjaröarkirkjugaröi. Þeim, sem vildu minnast hlnnar látnu er bent á Hallgrímskirkju. Guójón Vilinbergsson, Rannveig Ásgeirsdóttir, Guófinnur Pétursson, Ása Ragnarsdóttir, Kristrún Skúladóttir, Þórir Geírmundsson. Sonur okkar og bróöir, STEINAR ÓSKARSSON, vélstjóri, Langholtsvegi 172, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þrlöjudaginn 2. júní kl. 15.00. Ólöf Daníelsdóttir, Óskar Halldórsson, Dagfríöur Óskarsdóttir, Hrafnhildur Óskarsdóttir. t Bálför fööur míns og fósturfööur, STEFÁNS JÓNSSONAR fré Brennistöóum, Sólvallagötu 66, Rvk., fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. júní kl. 16.30. Guðfríöur Stefénsdóttir, Pélmi Eyþórsson. t Útför mannsins míns og fööur okkar, ÁRNA E. BLANDONS, sem lést 22. maí, fer fram frá Kópavogskirkju þriöjudaginn 2. júní kl. 13.30. Þorbjörg Blandon og dætur. Maðurinn minn, JULIUS EVERT, fyrrv. kaupmaöur, Kaplaskjólsvegi 11, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 3. júní kl. 13.30. Blóm vinsamlega afbeöin. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra. Þorbjörg Vigfúsdóttir. t Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdasonur, ÁRNI PÉTURSSON, (fæddur Ernst Michalik), Sæviðarsundi 30, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunnl í Reykjavík, mánudaginn 1. júní kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. Lilja Huld Sævars, ína Karlotta Árnadóttir, Svava Kristín Árnadóttir, Svava Sigurbjörnsdóttir. t Hjartkær faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, ÁRNI JONATANSSON, trésmiöur fré Akureyri, Kötlufelli 3. Reykjavík, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. júní kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeir sem vildu minnast hans láti líknarstofnanir njóta þess. Guörún Árnadóttir, Snorri Jónsson, Guöný Emilía Árnadóttir, Nína Walters, Hulda Yodice, John Yodice, Óli Fossberg, Béra Guðmundsdóttir, Reynír B. Skaftason, Jóhanna Cronin og barnabarnabörn. Minning: Sigríður Helga Jóns- dóttir frd Villingaholti Mánudaginn 1. júní verður bál- för hennar gerð frá Fossvogs- kirkju. Sigríður var faedd 10. apríl 1897, að Villingaholti í Flóa, og voru foreldrar hennar Kristrún, dóttir Helga Eiríkssonar hreppstjóra í Villingaholti, og Jón, sonur Gests Guðmundssonar, í Vorsabæ í Flóa. Kristrún og Jón voru bæði af Bolholtsætt, fjórmenningar að skyldleika. Kornung missti Sigríð- ur móður sína. Faðir hennar kvæntist nokkru síðar Kristrúnu Gíslasdóttur, og gekk hún Sigríði í móðurstað. Tveir urðu hálfbræður hennar, Kristján og Gestur, sem báðir urðu síðar bændur í Vill- ingaholti, og er Gestur enn á lífi og ennfremur Jón Gunnarsson, uppeldisbróðir hennar. Jón, faðir Sigríðar, var mikill hugvitsmaður og völundur í hönd- um. Einna þekktastur var hann fyrir spunavélar sínar, en hann smíðaði 100 slíkar, sem dreifðust um allt land og ennfremur til útlanda. Sigríður hleypti heimdraganum haustið 1918, en þá fór hún til Reykjavíkur og settist í 1. bekk Kvennaskólans. Þar var þá sem í öðrum skólum höfuðstaðarins, stopul kennsla sökum spönsku veikinnar og skorts á eldsneyti. Frekar varð ekki úr námi hjá Sigríði, enda settist hún brátt í festar og giftist 4. desember 1919 Agústi Guðjónssyni, sjómanni, í Reykjavik. Þau eignuðust tvær dætur Kristrúnu, konu Magnúsar Kjartanssonar fyrrv. ráðherra, og Sigríði, sem búsett er í Kaup- mannahöfn og gift Jean Brunés verkfræðingi. Ágúst og Sigríður slitu samvistum vorið 1937 og fluttist hún þá til Kaupmanna- hafnar og dæturnar til hennar ári síðar og bjuggu með móður sinni þar til þær giftust. Lengi átti Sigríður heima á Álandsgötu 24, en heim fluttist hún 1979 og þá farin að heilsu. Fyrsta kastið var hún á heimili Kristrúnar og Magnúsar, en síðast löngum í Hátúni lOb, þar sem hún naut frábærrar umönnunar þar til hún lést 22. maí síðastliðinn. Af þess- ari nöktu atvikaröð, sem nánast er í annálsstíl, verður lítt ráðið, hver Sigríður Jónsdóttir frá Vilíinga- holti var. í einni svipan leita á hugann minningar frá heimsóknum á Þórsgötu, Álandsgötu og þá ekki síður frá samfylgd um sólbjarta sumardaga upp hávaðana að efsta tingi Hengils og annarra fjalla t Eiginmaöur minn, faölr, stjúpfaöir og tengdafaölr okkar, HALFDAN EIRIKSSON, fyrrverandi kaupmaður, Vesturgötu 54 a, lést 28. maí. Margrét G. Björnsdóttir Hildur Hélfdanardóttir, Hadda Hélfdanardóttir, Jakob Hálfdanarson Jón Hálfdanarson, Guómundur Karl Sveinsson, Karl Karlsson, GunnarJóhannesson, Margrét Sveinsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Ólöf Ragnarsdóttir. t Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför AÐALBJARGAR JONSDÓTTUR, f.v. símritara, Kaplaskjólsvegi 55. Guórún Alfonsdóttir, Jenný Stefénsdóttir, Jón Alfonsson, Eyrún Eyjólfsdóttir og börnin. t Þökkum af alhug alla þá samúö og vináttu, er okkur var auösýnd viö andlát og útför bróöur okkar, ÁRNA SIGURDSSONAR. Sérstakar þakkir til Oddfellowbræöra og Knattspyrnufélags Akureyrar. Svava Síguróardóttir, Jóna Guöbjörg Siguröardóttir, Marfríóur Siguröardóttir. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför sonar míns, BIRGIS KRISTJÁNS HAUKSSONAR. Guö blessi ykkur öll. Mélfríöur Þóróardóttir. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúö viö andlát og jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, PÁLS JÓHANNESAR ÞORSTEINSSONAR, Brekkugötu 13, Ólafsfirói. Guö blessi ykkur. Júliana Jóhannsdóttir, Jóhann Skúli Pélsson, Birgitta Pélsdóttir, Sígursteinn Pélsson, Hreinn Pélsson, Kristín Pélsdóttir, og barnabörn. Guörún Lúövíksdóttir, Pélmi Sighvatsson, Jóhanna Tómasdóttir, Arna Antonsdóttir, Kristinn Ásmundsson nærlendis. En einu gildir, hvort ég nefni fleiri eða færri staði, þar sem við Sigríður hittumst eða áttum samleið, ávallt var létt yfir henni, svipurinn mildur og hlýr, og hafði hún þó stundum í fangið. Vitaskuld mundi hún taka sem gamanmál, ef hún vissi mig gefa sér einkunnir. Ekki er þó hægt að láta þess ógetið, að hún var kona fögur, aldin sem ung, og svo dæmalaust hagvirk, að allt lék í höndum hennar, kunni að gera mikið og fallegt úr litlu, að henni brást aldrei háttvísi, hvernig sem viðraði, og komst blessunarlega hjá að láta andstreymi smækka sig. Ef til vill mundi hún, þegar hér væri komið, segja eins og ein kynsystir hennar á fyrri tíð: „Ekki nú meira, Svartur minn“. Jafnskjótt og Sigríður var sest að í Kaupmannahöfn, fékk hún atvinnu við sauma, enda kom hún í þeirri grein þrautæfð að að heiman. Framan af vann hún hjá öðrum, en lengst af var hún sjálfra sín við það starf og hafði jafnan yfrið nóg að gera, enda í senn fljótvirk, velvirk og mjög listfeng. Var hennar fag fyrst og fremst kjóiasaumur. Oftar en í eitt sinn, er ég var hjá henni staddur, barst mér til eyran lof- legur vitnisburður viðskiptavina hennar, það léki ekki allar eftir handbragðið hennar Sigríðar. Steffen heitir dóttursonur Sig- ríðar, nú fulltíða maður, en ungur var hann mikið með ömmu sinni, sem skemmti honum með sögum, svo að snáðinn vissi jafnvel deili á fleiru úr heimi íslenskra ævintýra og þjóðsagna en jafnaldrar hans hér á landi. Þannig flutti hún Sigríður frá Villingaholti ísland að heiman. Það gerði hún reyndar einnig með daglegri framkomu sinni og af henni mátti heima- þjóðin vera vel sæmd. Mér er ekki grunlaust að landar, sumir lítt vanir veraldarvolki, hafi stundum knúið dyra á Álandsgötu og ekki farið erindis- leysu. Ef haft var á orði við Sigríði, að hún hefði mikið fyrir að ráða fram úr vandræðum, ansaði hún því einu, að sími væri á heimilinu. En svo sjálfsagt sem henni þótti að liggja ekki á liði sínu, þegar til hennar var leitað, var hún ætíð laus yfir tilætlunar- semi. Hún lét ávallt lítið fara fyrir sér, sagðist vera númerslaus í tilverunni, en það þýddi ekki sama og að hún væri skoðana- og afskiptalaus. Tamt var henni að milda misbresti samferðarmanna, færði alltaf lakara á betri veg. Sigríður og dætur hennar þurftu mjög á því að halda að vera einhuga og samstiga í hinu nýja landnámi sínu til þess að sjá sér vel farborða til frambúðar. Sam- band þeirra mæðgna var alla tíð kærleiksríkt og svo var einnig farið um sambúð Sigríðar við tengdasynina og barnabörnin, Ólöfðu og Steffen. En vafalaust reyndu fleiri en venslafólk hennar, hve hún var brjóstgóð. Við, sem þrásinnis sóttum Sig- ríði heim á Álandsgötu, minnumst með hlýrri þökk, hversu henni tókst að gera þær stundir svo eftirminnilegar, að þær gleymast ekki. Þótt eigi væri vítt til veggja í híbýlum hennar í Danmörku, rúmaðist þar þó ávallt í anda allt Island, slík var rækt Sigríðar frá Villingaholti við arfinn að heiman. Lúðvik Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.