Morgunblaðið - 31.05.1981, Page 31
leg vinnutæki. Þeir Þorsteinn
yngri og Guðmundur urðu smiðir
góðir og gæddir tæknilegum skiln-
ingi, og þurfti fátt að sækja í þvi
efni út fyrir heimilið.
Þessi þrjú börn fóru öll að
heiman til framhaldsnáms, en
Guðmundur einn stundaði lang-
skólanám, varð stúdent frá Laug-
arvatni vorið 1959, og rúmu ári
síðar varð hann nemandi í þýzkum
háskóla. En ekki man ég föður
hans glaðari en þegar hann tjáði
mér, að Guðmundur ætlaði að
hætta námi og mundi í fyllingu
tímans fús til að búa félagsbúi
með Þorsteini, bróður sínum, á
Skálpastöðum.
Þorsteini bónda hafði ekki síður
en öðrum tekizt að sigrast á þeim
erfiðleikum, sem mæðiveikin ill-
ræmda hafði í för með sér og hafði
komið upp allstórum og mjög
vænlegum hópi sauðfjár af vest-
firzkum stofni, en svo var það, að
annar sauðfjársjúkdómur, sem
kallaður hefur verið garnaveiki,
kom upp í fé hans. Var síðan
ákveðið að basla ekki við sein-
dræga og vafasama lækningu á
fénu, heldur var það allt fellt á
næsta hausti. Og með óiikindum
fljótt var svo byggt nýtízkulegt
fjós handa mjög stórum kúahóp.
Þegar Guðmundur kvæntist, var
innréttuð handa hans fjölskyldu
íbúð upp á lofti í hinu stóra gamla
húsi, og þá er Þorsteinn yngri
þurfti á fjölskylduíbúð að halda,
reisti hann snoturt timburhús
skammt frá því gamla, en gömlu
hjónin bjuggu og búa ein sem áður
í íbúðinni frá 1949. En fleira hefur
verið byggt og bætt á Skálpa-
stöðum, og get ég ekki látið hjá
líða að minnast á það, að í
hittiðfyrra byggðu bræðurnir
stórt og gott áhalda- og smíðahús.
Er þar svo unnið við flest sem
bilar af hinum mörgu tækjum og
annað, sem gera þarf við eða
smíða að nýju og er það ærið fátt,
sem þeir Skálpastaðamenn þurfa
að leita með til annarra. Verður
slíkt ekki metið til fjár í fljótum
hasti.
Gömlu hjónin eru enn vel hress
eftir aldri og erfiði áratuganna, og
auðvitað sýsla þau ávallt sitthvað
sér til skemmtunar. Þorsteinn er
slyngur veiðimaður og hefur yndi
af að bregða sér með stöng niður
að hinni fögru elfu við túnfótinn.
Þá á hann enn góða hesta og
bregður sér á bak við og við, en
mikið iðkar hann lestur bóka og
þá einkum ljóða, og vissulega
hefur hann unnið nýja sigra á
vettvangi ferskeytlunnar, síðan
létt hefur verið af honum áratuga
erfiðum skyldum. Kona hans neyt-
ir og nokkuð listfengi sinnar í ljóði
og litum, en flíkar því lítt. Nú eru
þau og frjáls að því að bregða sér
drjúgar stundir að heiman, og
hafa þau heimsótt dóttur, barna-
börn og tengdafólk á hinu sænska
Eylandi. Báðum þykir þeim sem
áður gott að fagna gestum, og í
dag verða þeir margir, sem aka í
hlað á Skálpastöðum.
I því framansagða hygg ég, að
fram komi beint og ekki síður
óbeint nokkuð skýr lýsing á Þor-
steini Guðmundssyni, hrepps-
stjóra og bónda á Skálpastöðum,
en þó kýs ég nú að bæta þar
nokkru við.
Þróttmikill áhugi og sívökul
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ1981 3 1
umhyggja fyrir því, sem til heilla
horfir og Þorsteinn hefur taiið sig
bera ábyrgð á, sem bónd, fjöl-
skyldufaðir og þjóðfélagsborgari
hefur verið honum harðsækinn
hvati til sífellds framtaks og
margvíslegra framkvæmda, enda
metur hann mikils alla þá, sem
trútt og ósleitilega hafa unnið, í
hvaða stétt og stöðu, sem þeir eru.
En dusilmennska, ábyrgðarleysi
og skortur á þori til skyldustarfa
hafa verið og eru eitur í hans
beinum. Hann er viðkvæmur til-
finningamaður, sem kann vel að
meta margvíslega fegurð, þó að
hann beri ekki tilfinningavæmni
yzta klæða síns innra manns. Þótt
hann sé alvörumaður, kann hann
vel að meta skop og glettni, og þá
ekki sízt, þegar það birtist í hinni
hugljúfu ferskeytlu. Fleira mætti
hér enn víkja að, svo sem hinni
sjálfsögðu gestrisni, sem er þeim
Skálpastaðahjónum sameiginleg.
En ég læt þessu máli mínu lokið
með því að geta þess, að Þorsteinn
er vinum sínum trölltryggur, og
megum við gömlu hjónin á Mýr-
um, vissulega þakka Þorsteini og
Þórunni húsfreyju af heilum hug
aldarfjórðungs vináttu og óska
þeim og þeirra skylduliði varan-
legra heilla í framtíðinni.
Mýrum i Reykholtsdal,
Guðmundur Gíslason Ilagalín.
Sumarsýning
Asgríms-
saf ns opnuð
ÁRLEG sumarsýning Ásgrims-
safns opnar i dag. sunnuda.;inn
31. maí. Verða sýnd verk frá
ýmsum timabilum á listferli
Ásgrims Jónssonar.
Á neðri hæð Ásgrímssafns þar
sem heimili hans var, eru nær
eingöngu sýndar vatnslitamynd-
ir og á vinnustofunni á efri
hæðinni eru til sýnis olíu- og
vatnslitamyndir, flestar lands-
lagsmyndir frá ýmsum stöðum á
landinu, en einnig uppstillingar.
Þá eru einnig sýndar nokkrar
þjóðsagnamyndir. Lítið upplýs-
ingarit með æviágripi Ásgríms á
ensku, dönsku, þýsku og íslensku
er látið gestum safnsins í té
endurgjaldslaust. Ásgrímssafn
að Bergstaðastræti 74 verður
opið alla daga nema laugardaga í
júní, júlí og ágúst kl. 13:30 til 16
og er aðgangur ókeypis.
Seltjarnarnes
Höfum í einkasölu mjög glæsilega sérhæö á
Seltjarnarnesi. Hæöin er 170 ferm. og skiptist í
stofur, 3 svefnherb., húsbóndaherb., eldhús, baö-
herb., gestasnyrtingu og búr. 28 ferm. flísalagöar
sólsvalir. Einnig fylgir botnplata undir bílskúr. Falleg
frágengin lóö.
Fasteignasalan Hátún, Nóatúni 17.
Símar 21870 og 20998.
Heimasími 53803.
Ibúð
Vesturbær
Til leigu 2ja—3ja herbergja íbúö á besta staö í
vesturbæ. Leigist meö öllum húsbúnaöi. Leigutími
júní-sept.
Nöfn og heimilisföng ásamt upplýsingum ieggist inn á
augld. Mbl. merkt: „Sumaríbúð — 9598“.
RIFANDI ROKK
Hljómsveitin Gillan er nú í fylkingarbrjósti breska
þungarokksins. ★ Gagnrýnendur bresku pressunn-
ar hafa útnefnt „Future Shock“ eina bestu rokkplötu
þessa árs. ★ Þú munt komast aö sömu niöurstööu
þegar þú skrúfar „Future Shock“ í botn, því
bárujárniö mun bókstaflega rifna af þakinu.
Heildsala — Dreifing. Símar 85742 og 85055.
itsÍAorhf