Morgunblaðið - 31.05.1981, Side 33

Morgunblaðið - 31.05.1981, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ1981 33 konar smiði í báðum mínum ættum. Afabróðir minn á Norð- firði var skósmiður og afi minn á Seyðisfirði var bátasmiður. Hann var leikinn með skaröxina, hjó oft fundament undir vélar í skipum, enda alltaf nefndur Sveinn báta- smiður. Það má því segja að hluti af lífsstefnunni hafi verið að rækta upp smíðahæfileikana og víst beygðist krókurinn snemma. Ung- ur drengur var ég í sveit hjá bónda sem vildi að ég tæki við búinu hans. Mér fannst það koma til greina, en sagðist hins vegar ætla að vera smiður, því þá yrði ég aldrei atvinnulaus. Þá var það munaður að hafa atvinnu og maður ólst upp við það sjónarmið á atvinnuleysisárunum á Seyðis- firði. Ég hugleiddi þó að taka við búinu og næst því að láta slag standa komst ég þegar ég sá að með því móti gæti ég slegið þrjár flugur í einu höggi, eignast býli, konu og smíðatól. Þannig var að á næsta bæ var bóndadóttir sem mér leist vel á og pabbi hennar átti smíðatól og þau langaði mig mest í af þessu þrennu. Það leiddi margt af sjálfu sér að ég fór í smíðar, mér fannst það strax viss líftrygging að smíða. Pabbi hafði oft á orði um afa bátasmið að honum hefði aldrei Að loknu dagsverki unir athafna- maöurinn sér í sínu horni við skékborðiö og ekki er langt í einhver af þeim tugum málverka sem hann hefur safnað á heimili sitt. fallið verk úr hendi. Maður reyndi því að stíla upp á það að tryggja sig gegn þeim mikla vágesti sem atvinnuleysið var og þau ár sem maður átti í fátæktinni hafa markað djúp spor í þann lífsstíl sem maður hefur reynt að feta.“ Vörn gegn oki fátæktarinnar „Það var mjög þroskandi og gott fyrir mig að starfa hjá Jóhanni Ellerup á Seyðisfirði í tvö ár á sínum tíma. Hann kenndi manni að hafa hvern hlut á sínum stað og stað fyrir hvern hlut. Reglusemi og hirðusemi á hlutunum eru ágætar dyggðir sem vantar ef til vill of mikið í okkur íslendinga. Nískan er andstygg en sparsemi dyggð sagði Sigurður Skúlason við okkur strákana í íslenskukennsl- unni. Mér hefur löngum verið hugstætt þar sem segir í Jóni Trausta á þá leið eftir skoska stálkóngium Andrew Carnegie sem hetjusjóður Carnegie er kenndur við: Auðæfi eru ekki réttmæt nema þeim sé varið til að skapa heill og hamingju sem flestra manna og sá maður sem deyr frá milljónum sínum óráð- stöfuðum deyr í smán því hann hefur brugðist hlutverki sínu. Það ber að hjálpa þeim til frama sem hafa áhuga á að hjálpa sér sjálfir. Það hefur alltaf verið ásetning- ur minn að verjast oki fátæktar- innar. Það var ekki eftirsóknar- verðasti skólinn að ganga í gegn um en það var harður og góður skóli að horfa upp á vandræði íólks á Seyðisfirði á unglingsárun- um, áhrifaríkt að alast upp við ástand sem ungt fólk á íslandi í dag trúir ekki og skilur ekki, en ég held að slíkt herði mann til dáða.“ j Metnaðarmál að hlutirnir gangi upp „Stundum liggur í loftinu spurning um metnað. Ég hef aldrei verið metnaðargjarn mað- ur, en hef þó metnað fyrir mitt fag og mína framleiðslu. Metorð freista mín ekki. Kosturinn er að vera Islendingur og vilja gera góða hluti, slíkt er engin hindrun eins og sumir halda. Það hefur hins vegar verið mér metnaðarmál á löngum ferli í viðskiptum að hjálpa þeim sem hefur þurft á því að halda, því það rætist alltaf úr fyrir húsbyggjand- anum um síðir. Ég hef haft ánægju af því að létta undir um stundarsakir og aldrei, hvorki fyrr né síðar, hef ég þurft að standa í útistöðum til þess að fá minn hlut. Minn metnaður hefur verið að láta hlutina ganga upp. Á því byggist þróunin í að skapa atvinnufyrir- tæki. Það er stefnt að sigri í skák, sigri í lífinu. Menn harðna í eldi uppbyggingarinnar, en heppnin þarf oft að fylgja harðfylgninni eftir. Átökin eru oft mikil í uppbyggingarstarfinu og enginn fer áfallalaust í gegn og maður getur verið þakklátur fyrir að takast kannski það sem tveimur smiðum af hverjum hundrað tekst. En það þarf heppni til, eins og áhöfninni á fiskibátnum þótt valinn maður sé í hverju rúmi. Þetta byggist á því að vera samtaka og starfa vel saman og þá býður maður heppninni heim. Áð sumu leyti er maður í stöðu þjálfarans hjá handboltaliði, því eftir höfðinu dansa limirnir. Með samstilltu átaki gengur þetta upp þegar hver maður er á réttum stað og kann sitt hlutverk. En það er ekki síður mikilvægt að mannin- um semji vel við hlutverkið og það er mikilvægt að halda uppi góðum anda á vinnustað, vera jafn þeim sem leysa verkefnin af hendi, einn af hópnum. Þá fæst skemmtilegur andi á vinnustaðnum." Sóð yfir hluta af húaakynnum Smíöastofunnar. Frá Flensborgarskóla Flensborgarskóli er framhaldsskóli sem starfar eftir Námsvísi fjölbrautaskóla. í skólanum geta nemendur stundaö nám á eftirtöldum námsbrautum: 1. Eölisfræöibraut (EÐ) 2. Félagsfræöibraut (FÉ) 3. Fiskvinnslubraut (F1+F2) 4. Fjölmiðlabraut (FJ) 5. Heilsugæslubraut (H2+H4) 6. íþróttabraut (I2+I4) 7. Matvælatæknibraut (MT) 8. Málabraut (MÁ) 9. Náttúrufræðabraut (NÁ) 10. Tónlistarbraut (TÓ) 11. Tæknabraut (TB) 12. Tæknibraut (Tl) 13. Tæknifræöibraut (TÆ) 14. Uppeldisbraut (U2+U4) 15. Viöskiptabraut (V2+V4) Umsóknarfrestur um skólavist á haustönn 1981 rennur út 5. júní nk. Skólameistari. Sundlaugar úr áli eöa stáli, meö plastpoka er auövelt aö koma fyrir og ódýr framkvæmd. Sundlaug er samkomustaður fjölskyldunnar og vinanna. Sund er heilsurækt. Útvegum allt til sundlauga. Hreinsitæki, ryksugur, forhitara, yfirbreiöslur, stiga, klór duft eöa töflur, plastpoka í gömlu eöa nýju steinsteyptu laugina. Leitiö upplýsinga. / S^geiiööon h.f. Suðurlandsbraut 16 105 Reykjavík. Trésmióir — Húsbyggjendur Spónaplöturnar og krossviöinn, sem þiö kaupiö hjá okkur getiö þiö sagað niöur í plötusöginni okkar og þaö er ókeypis þjónusta. Spónaplötur í 10 mismunandi þykkt- um og 8 mismun- andi stæröum. U '~B\igejtnáicivöruv&rzl BJÖRNINN? Skúlatúni 4. Sími 25150. Reykjavík Nýtið hitaveituna Sundlaug í bakgarðinn, í kjallarann, fyrir félags heimiliö eða bæjarfélagið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.