Morgunblaðið - 31.05.1981, Side 36

Morgunblaðið - 31.05.1981, Side 36
Síminn á afgreiðslunni er 83033 2ttot£itnfoIaí>ií> JMtavgttnlritafrUk SUNNUDAGUR 31. MAÍ1981 Tungulax og Mowi: Samvinna um út- flutning laxaseiða FYRIRTÆKIN Tungulax ok Mowi í Norcifi hafa stofnaA með sér nýtt hlutafclag. ISNO hf„ en hlutvcrk þcss cr að standa að útflutninid laxasciða otf laxcldi í sjó. Um þcssar mundir cr nú verið að senda um 60 þúsund seiði utan. Um 30 þúsund seiði hafa verið send frá Laxamýri til Noregs og á næstunni munu 20 þúsund seiði verða send frá Öxnalæk. Eru það 1 til 2 ára seiði, sem eru nú allt að 5 til 6 pund að þyngd. Að sögn Eyjólfs Konráðs Jónssonar stjórnarfor- manns Tungulax er ráðgert að taka stór skref í þessum laxeldismálum og sagði hann tilraunir síðustu mánuða lofa góðu. Um 50 þúsund seiði hefðu verið alin í 6 fiotkvíum og 20 seiðum væri sieppt til hafs með sjóeldi í huga. Sérfræðingar frá Noregi eru staddir hérlendis um þessar mundir og er unnið að frágangi á fjármálahiiðum. Fóstrur á Selfossi segja upp störfum FÓSTRUR á Sclfos.si hafa fyrir nokkru sagt upp storfum og munu uppsagnir þeirra taka gildi hinn 1. ágúst nk. Að sögn bæjarritarans cr hér um að ræða 9 fóstrur cr Ráðherranefnd fundar hérlendis RÁÐIIERRANEFND Norður- landaráðs fundar i Reykjavík dagana 1. og 2. júni nk. Málcfni Norðurlanda. þau scm efst eru á haugi. vcrða rædd á fundin- um. f ráðhcrrancfndinni ciga sæti einn ráðhcrra frá hverju Norðurlandanna. Auk þess sitja fundinn staðgcnglar ráð- hcrranna og cmbættismcnn. Dagskrá fundarins iá ekki fyrir í gær, að sögn Guðmundar Benediktssonar ráðuneytis- stjóra í forsætisráðuneytinu, en þau málefni sem efst eru á baugi eru rædd hverju sinni á fundum nefndarinnar. Formaður nefndarinnar er nú frú Tirkko Työlaajaarvi, fjár- málaráðherra Finnlands, en löndin skiptast á að sjá um formennsku. Aðrir í nefndinni eru: Lisa Östergaard, menning- armálaráðherra Dana, Rolf Hansen, umhverfismálaráð- herra Norðmanna, Kareen Söd- er, félagsmálaráðherra Svía, og Friðjón Þórðarson dómsmála- ráðherra. starfa á tveimur lcikskólum. en hluti annars er rekinn scm dag- heimili. Bæjarritarinn tjáði Mbi., að búið væri að fela samninganefnd bæjar- ins að ræða við Starfsmannafélag Selfossbæjar, en fóstrur munu ekki hafa iagt fram kröfur ennþá. í apríl rituðu þær bæjaryfirvöldum og fóru fram á viðræður með hliðsjón af breytingum á kjörum fóstra annars staðar, en þeim viðræðum höfnuðu bæjaryfirvöld. í kjölfar neitunarinnar koma nú þessar upp- sagnir og kvað bæjarritarinn samn- ingafundi sennilega verða haldna bráðlega. Philippe Richard hefur afrekað ýmislegt þann skamma tíma, sem hann hefur dvalið á íslandi. M.a. hefur hann aflað sér réttinda til að stjórna 120 tonna báti, en hefur þó aldrei komið um borð í slíkt skip. (Ljósm. Úlfar Ágústsson.) Stýrimaður, stúdent, listmálari og vefari HANN heitir Philippe Richard, 18 ára gamall Frakki, sem kom hingað til lands fyrir röskum 9 mánuðum sem einn af skiptinemunum á vegum AFS. Það væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi ef þessi ungi Fransmaður hefði ekki á þessum skamma tima afrekað fleira heldur en jafnaldrar hans yfirleitt. Philippe settist á skólabekk í Menntaskólanum á Isafirði síðastliðið haust og lauk þaðan stúdents- prófi í vor. Árangurinn var góður og t.d. dúxaði hann í tveimur fögum, stærðfræði og eðlisfræði. Hann lauk stýrimannaprófi frá Iðnskólanum á Isafirði og hefur pappíra upp á að mega stjórna 120 tonna bát, en hefur þó aldrei komið um borð í slíkt skip. Þar með er sagan ekki öll. Hann sótti vefnaðar- námskeið í Húsmæðraskólanum Ósk síðastliðinn vetur og í tómstundum málaði hann og hélt málverkasýningu í bókasafninu á ísafirði. Til að kóróna Islandsdvölina dundaði hann við að myndskreyta ljóðabók. Frá þessu segir nánar I viðtali við Philippe Richard á blaðsiðu 35. Kíló af smjöri kostar 63,60 eftir hækkunina Kartöflur og smjör hækka um tæplega 30% á morgun NÝTT verð á landbúnaðaraf- minnsta hækkunin nemur nvtt áburðarverð. hækkun á NÝTT verð á landbúnaðaraf- urðum hefur verið ákveðið og kemur verðhækkunin til íram- kvæmda í fyrramálið, 1. júní. Smjör og kartöflur hækka mest, eða um tæplega 30%, en minnsta hækkunin nemur rösklega 15%. Fullt samkomu- lag varð í Sexmannanefndinni um verðið, en verðgrundvöllur til bænda hækkar um 14,08% og vega launaliður bóndans, nýtt áburðarverð, hækkun á rafmagni og olíu þyngst í þeim útreikningi. Niður- greiðslum var litillega breytt á milli tegunda, en um auk- ningu þeirra er ekki að ræða. Leitin að TF-ROM: Erfið leit á hálendinu Hundruð leitarmanna gangandi, á bílum, snjósleðum, hestum og flugvélum FIMM hundruð leitarmenn leituðu í gær flugvélarinnar Tl'-ItOM og var aðaláherzla lögð á leit á hálendinu milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, en þar hefur þoka hamlað leit frá því á miðvikudag. í gær- morgun var þoka á þessu svæði og víða alldimm, en veður fór batnandi þegar leið á daginn. Leitarmenn eru ýmist gangandi, á bílum, snjósleðum eða hestum og einnig hafa flugvélar leitað stöðugt eins og unnt hefur verið vegna veðurs. Leitarmenn víða að af landinu hópuðust norður í fyrrinótt og tóku þeir við leit af mönnum sem Lítri af mjólk í pökkum hækkar úr 4,45 krónum í 5,60, eða um 23,7%. Kíló af smjöri hækkar úr 49 krónum í 63,60 kr. eða um 29,8%. Peli af rjóma hækkar úr 7,95 kr. í 9,75 kr. eða um 22,6%. Kíló af skyri hækkar úr krónum 7,25 í 9,15 kr. eða um 26,2%. Ostur, 45%, í heilum stykkjum hækkar úr 46,25 krónum í 57,60 eða um 24,5%, ostur, 30% ,í heilum stykkj- um hækkar úr 38,95 krónum í 48,05 eða um 23,2%. Verð á kindakjöti í heilum skrokkum, 1. verðflokki, hækkar úr 30,30 í 35,35 hvert kíló, eða um 16,7%. Kíló af kótelettum hækkar úr 42 krónum í 48,40 eða um 15,2%. Nautakjöt í heilum og hálfum skrokkum, 1. verðflokkur, hækkar úr 39,45 kr. í 45,95 eða um 16,5%. Kíló af miðlæri hækkar úr 66,90 krónum í 77,80 kr. eða um 16,3%. Kíló af kartöflum í 2,5 kílóa pokum hækkar úr krónum 3,38 í 4,38 krónur eða um sem nemur 29,6%. MaKnÚK Indriðason Hjörleiíur Einarsson Rafn Haraldsson Jóhann Kr. Briem höfðu verið á ferðinni síðustu daga og nætur við erfiðar aðstæð- ur, en alls voru um 500 menn á leitarsvæðinu í gær. Fjöldi flug- manna á einkaflugvélum var í viðbragðsstöðu í gærdag, til taks í leit þegar þokunni létti, en þegar Morgunblaðið fór í prentun í gær hafði leit engan árangur borið. Aðstæður til leitar á hálendinu eru mjög erfiðar, leysingar og hláka. Launahækkunin 8,10 og 7,40% Á MORGUN. mánudag, hækk- ar allt almcnnt kaupgjald i landinu um 8,10%. Þessi kaup- hækkun á við launatöiur lægri en 7.681 króna á mán- uði. Laun. sem eru hærri en þetta fá hækkunina 7,40%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.