Morgunblaðið - 07.06.1981, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.06.1981, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ1981 Söngvarinn og blístrarinn Roger Whittaker í spjalli við Mbl.: „Ég verð endilega að koma og syngja fyrir Lslendinga44 Þegar Morgunblaðsmenn voru að leggja upp í loftleit að flugvélinni, sem saknað hefur verið frá því í fyrri viku, rákust þeir á skrefstóran mann fyrir framan Loftleiðahótelið. Steig hann þungt, sveiflaði handtösku sinni eins og skólastrákur að hausti, glotti við tönn og kinkaði kolli er við mættum honum í góðviðrinu. Eitthvað var maðurinn kunnuglegur, minnti á heims- frægan skemmtikraft, sem frægur er fyrir sérkennilegt blístur. Var því ákveðið að ávarpa manninn og spyrja hann út úr. — Afsakið herra, kallaði blm. og veifaði hendi, gekk til mannsins, sem sneri sér við og stanzaði. Þú líkist mjög Roger Whittaker, ekki vænti ég þess, að sá sé maðurinn. — Jú einmitt, hér stendur hann, fyrir framan þig, í allri sinni mynd, eins og Guð skapaði hann, sagði hann djúpri og skærri röddu og hló dulítið og vatt sér síðan í umræður um veðurblíðuna, eða þar til næsta spurning dundi. — Á hvaða ferð ertu hér, að koma eða fara í sambandi við hljómleikahald? — Já, ég er á heimleið til Bretlands. Kem hingað frá Boston, dvaldi hér í nótt til að hvíla mig. Ég hef undanfarnar vikur farið vítt og breytt um Bandaríkin, hélt þar 40 tón- leika, sem var dágóður skammt- ur og ég er hvíldar þurfi í bili. Bandaríkjaferðin var ánægju- leg og tókst vel í alla staði. — Þú flýgur sjálfur? — Það er rétt, en ég er með þaulvanan atvinnuflugmann með mér, og skiptumst við á að Roger Whittaker fyrir framan flugvél sína, G-SONG, á Reykjavikur- flugvelli. Ljósm. Mbl. RAX. Bókaþjónusta barna á spítölum ÞRIÐJUDAGINN 9. júní n.k. verður haldinn fyrirlestur í Norræna Ilúsinu og hefst hann kl. 20.30. Fyrirlesari er Lis By- berg, barnabókasafnsfræðingur frá Stokkhólmi og ætlar hún að segja frá reynslu sinni af bóka- þjónustu við börn á sjúkrahús- um. Lis Byberg veitir forstöðu barnabókasafni í Tensta í Svíþjóð en það er útibú frá borgarbóka- safni Stokkhólms. Frá því 1970 hefur hún unnið við ýmis barna- bókasöfn í Noregi og Svíþjoð og haldið fyrirlestra víða í þessum löndum auk þess sem hún hefur skrifað greinar um barnabókasöfn á sjúkrahúsum. Fyrirlesturinn í Norræna Hús- inu er öllum opinn. Félag heyrnar- lausra er að Skólavörðustig 21 í GREIN Jennu Jónsdóttur í Mbl. í gær um starfsemi Félags heyrn- arlausra misritaðist heimilisfang félagsins, en það er með starfsemi sína að Skólavörðustíg 21. Mótmælir hegðun iðnaðarráðherra RÁÐSTEFNA kjördæmissam- taka ungra sjálfstæðismanna á Austurlandi um sveitastjórnar- mál, haldin á Egilsstöðum 24. mai 1981, ályktar eftirfarandi: Ráðstefnan mótmælir harðlega þeirri hegðun ráðherra iðnaðar- og orkumála að víkja í grundvall- aratriðum frá samþykktum Sam- bands sveitarfélaga á Austurlan ái í iðnaðar- og orkumálum fjórð- ungsins. AÐEINS ÞAÐ BESTA - IBÚÐAGISTING Á SJÁLFRI MAGALUF-STRÖNDINNI ÞAÐ ER STAÐURINN! K omdu mað III

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.