Morgunblaðið - 07.06.1981, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 07.06.1981, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ1981 Birgir ísl. Gunnarsson: Reikningar borgar- sjóðs ekki glæsilegir Reikningar Reykjavíkurborg- ar fyrir árið 1980 voru lagðir fram til fyrri umræðu í borgar- stjórn Reykjavíkur sl. fimmtu- dag. Fróðlegt er að skoða reikn- ingana, en þeir bera vott um fjármálastjórn vinstri meiri- hlutans í borgarstjórn annað heila árið eftir að þeir tóku við völdum. í öllum opinberum um- ræðum státar meirihluti borgar- stjórnar af því, að vel hafi tekist til með alla fjármálastjórn og reyndar hafi allmikil orka farið í það að „hreinsa til“ og greiða upp skuldir, sem stofnað hafi verið til í tíð meirihluta sjálf- stæðismanna. Þessir reikningar, sem nú hafa verið lagðir fram í borgarstjórn bera þó vott um nokkuð annað. Hér skal getið nokkurra einkenna þeirra. Tekjur vanáætlaðar Reikningarnir sýna að tekjur ársins 1980 hafa verið stórlega vanáætlaðar í fjárhagsáætlun. Tekjur reyndust 2,6 milljarðar umfram áætlun. Mest fóru út- svörin fram úr eða um 1,1 milljarð, aðstöðugjöldin fóru 397 millj. fram úr áætlun og framlag úr jöfnunarsjóði 701 millj. fram- yfir. Þegar fjárhagsáætlun var samþykkt í apríl 1980 bentu borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins á það, að tekjur væru vanáætlaðar. Við fluttum því breytingartillögur til að gera tekjuáætlunina raunhæfari, jafnframt því sem við bentum á, að óþarfi væri að hækka, út- svarsstigann og þar með útsvör- in á hverjum skattgreiðanda í Reykjavík. Vinstri meirihlutinn vildi ekki á þetta hlusta, en nú er komið í ljós, að hér var um vísvitandi ranga áætlun að ræða. Vinstri meirihlutinn kaus að geta valsað með þetta fjármagn utan áætlana og kaus að íþyngja borgarbúum með auknum skött- um umfram þarfir. Skuldir aukast stórlega Nú mætti ætla að skuldir borgarsjóðs hefðu minnkað, þeg- ar haft er í huga þær miklu umframtekjur, sem borgarsjóð- ur fékk í sinn hlut. Ennfremur Ársreikningur Borgar.yó/h Reykjavík ur °g stofnana hans fyrirárið 1980 „Reikningar borgarsjóðs 1980 voru lagðir fram í borgarstjórn sl. fimmtudag. Þeir bera m.a. vott um mikla skuldasöfnun hjá borginni á síðasta ári þrátt fyrir miklar skattahækkan- ir.“ má minna á þann áróður vinstri manna á fyrri hluta kjörtíma- bilsins, að þeir hafi verið önnum kafnir við að greiða niður gaml- ar skuldir fyrri meirihlutans. Við skoðum reikninganna, kem- ur allt annað í ljós. Þegar vinstri meirihlutinn tók við, var gerð rækileg úttekt á fjárhagsstöðu borgarinnar. Þávoru skuldir samtals 2,9 milljarðar, þar af langtímaskuldir 597 millj. og skammtímaskuldir 2,3 milljarð- ar. Nú eru langtímaskuldir komnar í 1,2 milljarða oag skammtímaskuldir komnar í 5,8 milljarða. A síðasta kjörtímabili hétu skuldir til skamms tíma alltaf óreiðuskuldir í munni vinstri manna. Sérstaklega er athyglisvert, hvað skuldaaukn- ing varð mikil á síðasta ári. „Óreiðuskuldirnar" hækkuðu um 65,6%, en langtímaskuldirnar hækkuðu um 98%. Samtals hafa skuldir á kjörtímabilinu hækkað um 4,1 milljarð. Greiðslustaðan Þegar vinstri meirihlutinn tók við, urðu allmiklar umræður um greiðslustöðu borgarsjóðs. Veltufjárstaða borgarinnar reyndist þá góð miðað við þær bókhaldsaðferðir, sem helzt eru notaðar, þegar greiðslustaða er metin. Vinstri meirihlutinn vildi ekki sætta sig við þá niðurstöðu og taldi aðra aðferð mun sam- hæfari til mats á greiðslustöðu borgarinnar. Vildu þeir bera saman handbært fé og skamm- tímaskuldir. í lok júní 1978 nam handbært fé 4,8% af skamm- tímaskuldum. Þetta töldu þeir vinstri menn bera vott um slæma greiðslustöðu. En hvernig er staðan nú, ef þeirra eigin aðferð er beitt? Handbært fé í árslok nam 8,7 millj. króna, en skammtíma- skuldir voru 5.853, þ.e. handbært fé er aðeins 1,48% af skamm- tímaskuldum. Hér hefur því orð- ið mikil afturför samkvæmt þeirri reglu, sem vinstri menn töldu þá einu réttu, þegar þeir tóku við. Dýrt ævintýri Hér hefur verið gerð grein fyrir þremur atriðum, sem vert er að benda á í sambandi við reikninga borgarsjóðs. Þau sýna, að því fer fjarri að myndin sé eins glæsileg og vinstri menn vilja vera láta. Það er því alvarlegra, þegar haft ei- í huga, að skattar hafa verið hækkaðir gífurlega á borgarbúum á þessu kjörtímabili. Sú hækkun hefur verið langt umfram verðbólgu, enda álagningarreglum breytt, þar sem hægt hefur verið að koma hækkununum við. Vinstra ævintýrið í Reykjavík er því að verða borgarbúum æði dýrt. Ljóxm. Mbl. ÓI.K.M. Bóksöluleyfi hafa verið ýmsum skilyrðum háð og ákveðin íhalds- semi rikt í veitingu þeirra eins og fram kom í deilu bókaútgefenda og Hagkaups fyrir jólin. Það mál leystist að lokum með samkomu- lagi. Taldi framkvæmdastjórinn ekki ólíklegt, að á grundvelli nýrra reglna myndi bókaverslunum fjölga mjög og til dæmis yrðu þær í öllum stærri vörumörkuðum. Má því vænta enn harðnandi sam- keppni á þessum markaði. Frjálst útvarp Oft sést því haldið fram, að hið prentaða mál hljóti að víkja fyrir öðrum aðferðum til að koma upplýsingum á framfæri við stór- an hóp manna. í þessu sambandi yfirsést mönnum oft, að alls ekki er um neina stöðnun í prentiðnaði að ræða. Þvert á móti hafa tækniframfarir á þeim vettvangi verið mjög örar. Með nútímatækni er miklu auðveldara að gefa út bækur og blöð heldur en áður var. Þetta hefur ekki síst gildi fyrir þjóð, sem myndar lítið, sjálfstætt málsamfélag eins og við íslend- ingar. Og í því sambandi er gleðilegt til þess að vita, að með samkomulagi við prentara hefur tekist að nýta nýja tækni til að setja efni íslenskra blaða og bóka. íslenskar prentsmiðjur eru jafn- vel samkeppnisfærar á alþjóða- markaði, eins og til dæmis prent- smiðjan Oddi, sem nýlega hefur flutt starfsemi sína í nýtt og stórglæsilegt húsnæði. Á milli þeirra, sem keppa um athygli almennings, þróast ákveð- 'n verkaskipting. Hún hlýtur óhjákvæmilega að taka mið af tækniframförum. Umræðurnar um svokallað frjálst útvarp hér á landi eiga meðal annars rætur að rekja til þess, að miklu auðveldara er en áður að koma á fót út- varpsstöðvum. Hvers vegna skyldi það vera óumbreytanleg regla, að ríkið hafi einkarétt á útvarps- rekstri? I sömu andrá og stjórn- endur og starfsmenn ríkisútvarps- ins kvarta sáran undan því, að þeir fái ekki að hækka afnota- gjöldin til að rekstur fyrirtækisins standi undir sér, tala ýmsir um það í vandlætingartón, að hinar frjálsu útvarpsstöðvar yrðu rekn- ar með það fyrir augum, að þær bæru sig. Menn ættu heldur að hafa áhyggjur af því, ef þær bæru sig ekki, því að eins og andinn er hér á landi, eru stjórnmálamenn oft alltof fljótir að hlaupa til og ráðstafa sköttum borgaranna í gjörsamlega óarðbær fyrirtæki. Meginþorri íslendinga hefur al- ist upp við það, að hér sé rekið ríkisútvarp, sem veiti ákveðna þjónustu. Enginn leggur til, að þessari þjónustu verði hætt og flestir eru vafalaust reiðubúnir til að greiða dálítið meira fyrir hana, ef um aðra kosti er ekki að ræða. Jafnframt hlýtur sú krafa að vera gerð til þessarar stofnunar, að hún fari vel með fjármuni al- mennings. Ýmislegt í rekstri hennar mætti endurskoða, til dæmis væri auðvelt að draga úr kostnaði við lestur útdrátta úr forystugreinum dagblaðanna. Sá lestur er útvarpinu dýr, ekki þó vegna þess að það greiði blöðunum fyrir afnot af efni þeirra, heldur hins, að útdrættirnir eru allir samdir á yfirvinnukaupi af starfs- mönnum útvarpsins. Mun greitt sem svarar 120 yfirvinnutímum á mánuði fyrir þetta efni. Fjármála- yfirvöld útvarpsins telja kostnað við útdrættina nema 15 milljónum 'kr. á síðasta ári. Misjafnt vinnuálag Á nýloknu Alþingi spurði Jó- hanna Sigurðardóttir fjármála- ráðherra, Ragnar Arnalds, um ýmsa rekstrarþætti ríkisstofnana á síðasta ári. Meðal annars, hvert væri hlutfall yfirvinnu í heildar- launagreiðslum. I því yfirliti kem- ur ýmislegt athyglisvert fram. Sé litið á ráðuneytin kemur til dæmis í ljós, að hlutfall yfirvinnu í heildarlaunagreiðslum er hæst í forsætisráðuneytinu eða 31,20% en lægst í heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytinu, 2,99%. Er hér óneitanlega um misjafnt vinnu- álag að ræða, ef marka má yfirvinnutímana. Hefðu þó flestir haldið við fyrstu sýn að minnsta kosti, að umsvifin ættu að vera meiri í heilbrigðisráðuneytinu, sem fer með yfirstjórn sjúkrahús- anna, svo að dæmi sé tekið, en i forsætisráðuneytinu, sem hefur enga svo viðamikla málaflokka á sinni könnu. Yfirvinnan í ráðu- neytunum er mjög mismikil. Næst á eftir forsætisráðuneytinu að ofan kemur launadeild fjármála- ráðuneytisins með 28,22% en næst minnsta yfirvinnu vinna starfs- menn Hagstofu íslands, 4,82%. Sé litið á ráðuneyti og ríkis- stofnanir sameiginlega er hlutfall yfirvinnu í heildarlaunagreiðslum hæst hjá flugmálastjórn vegna ICAO eða 54,25% og síðan kemur Landsvirkjun með 48,63% og er þar sérstök sundurliðun á yfir- vinnukostnaði við Hrauneyjafoss- virkjun. Heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytið og Hagstofa Is- lands eru lang lægst, þegar á heildina er litið og þriðja að neðan er félagsmálaráðuneytið með 8,74%, síðan kemur Matvælaeft- irlit ríkisins með 8,76% og svo Seðlabanki íslands með 8,89%. Hlutfall yfirvinnu í heildarlauna- greiðslum er nálægt efri mörkum hjá ríkisútvarpinu eða 26,73%. Athyglisvert er, að það er miklu algengara í ríkisstofnunum en ráðuneytum, að opinberir starfs- menn hafi fasta yfirvinnu. Má segja, að það heyri til undantekn- inga í ráðuneytum en sé föst venja hjá ríkisstofnunum. Fróðlegt væri að fá skýringu á þessum mun. Eru ráðuneytisstarfsmenn almennt með lægri föst laun en starfsmenn ríkisstofnana? Eða ná ráðuneytis- starfsmenn að brúa bilið með setu í launuðum nefndum, sem eru fjölmargar á vegum ýmissa ráðu- neyta? Hvaða tillit er tekið til yfirvinnugreiðslna og nefnda- launa við kjarasamninga opin- berra starfsmanna? í hve mörgum tilvikum er greidd föst eftirvinna til að ná í hæfa starfsmenn af hinum svokallaða almenna vinnu- markaði? Væri ekki skynsamlegra að skera niður föstu eftirvinnuna og hækka samningsbundin laun? Bréfritara skortir þekkingu til að svara þessum spurningum. Kannske veit enginn svarið við þeim. Líklega er ríkiskerfið orðið að svo miklum launafrumskógi, að þar gilda lög frumskógarins. Að minnsta kosti er lítið að marka samningsbundna taxta BSRB og BHM við fjármálaráðuneytið, ef einstakar ríkisstofnanir geta síð- an gert einkasamninga við starfs- menn sína um fasta yfirvinnu. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.