Morgunblaðið - 26.06.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ1981
15
Fjöldamorð
í Sýrlandi
WashinKton. 25. júní. AP.
MIKIÐ blóðhað varð í borginni
llama i Sýrlandi 24. april sl.
þosar sýrlenskir hermenn lóru
um hana. brutust inn i ibúðir ok
höfðu á brott með sér unglinga
og fuliorðna menn. samkvæmt
frétt Washington Post i dag.
Vitni segja að hermennirnir hafi
myrt allt frá 150 uppi „nokkur
hundruð“ menn.
Mikil áróðursstarfsemi gegn
Hafez Assad Sýrlandsforseta hef-
Kommún-
istar valda
vandræðum
Lundon. 25. jiini. AP.
TALSMAÐUR brezka utanríkis-
ráðuneytisins sagði 1 dag að erfið-
ara yrði að skiptast á leynilegum
upplýsingum við Frakka í framtið-
inni nú þegar kommúnistar eru
sestir þar i rikisstjórn. Hann sagði
að þetta væri þó vandamál sem ætti
að verða auðvelt að leysa.
Kommúnistar hafa setið í ríkis-
stjórnum Portúgals og íslands, sem
bæði eru aðilar að Atlantshafs-
bandalaginu, en leyniskjölum
bandalagsins hefur verið haldið frá
þeim.
George Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna, kom í dag til London.
Hann sagði við komuna að Banda-
ríkin og Bretland ættu sér sama
markmið en ekki yrði auðhlaupið að
ná því. Bush var að koma frá París
þar sem hann sagðist ekki vera alls
kostar ánægður með setu kommún-
ista i ríkisstjórn.
Styrkir til
stáliðnaðar
lagðir niður
Luxomburg. 25. júní. AP.
Efnahagshandalagslöndin náðu
samkomulagi i dag um að hætta að
styrkja stáliðnað í löndunum úr
ríkissjóðum í lok ársins 1985.
Vestur-Þjóðverjar hafa lengi lagt
þetta til svo að samkeppni stál-
framleiðcnda landanna yrði rétt-
látari og þeir sætu allir við sama
borð. Stáliðnaður i Vestur-Þýzka-
landi hefur ekki notið ríkis-
styrkja.
Það tók iðnaðarráðherra land-
anna langan tíma að ná samkomu-
lagi um þetta. Að lokum samþykktu
þeir að stofna sjóð til styrktar
starfsmönnum stáliðnaðar sem
kunna að missa vinnuna þegar
iðnaðurinn þarf að standa á eigin
fótum. Þeir samþykktu einnig
framleiðslukvóta fyrir næsta ár til
að reyna að draga úr stálfram-
leiðslu en offramleiðsla hefur verið
á stáli undanfarið og verðið þess
vegna sveiflast nokkuð til.
Ríkisstjórnir aðildarlanda Efna-
hagsbandalagsins verða að sam-
þykkja samkomulagið fyrir 1. júlí
næst komandi.
ur verið rekin í Hama. Þar er
miðstöð bókstafstrúarmanna úr
Sunni Múhameðstrúflokknum sem
hefur gagnrýnt Assad harðlega
fyrir að veita einstaklingum úr
Alawite-trúflokknum góðar stöður
í ríkisstjórninni og hernum. Um
70% Sýrlendinga eru Sunni Mú-
hameðstrúar en 14% Alawite.
Vitni að blóðsúthellingunum
sagðist hafa heyrt skothvelli frá
því snemma morguns fram undir
hádegi. „Ég hafði aðeins gengið
örfá skref þegar ég kom að hrúgu
af líkum, síðan sá ég hverja
hrúguna á fætur annarri. Þær
voru ábyggilega milli 10 og 15. I
hverri hrúgu voru um 25, 30 lík.“
Washington Post sagði að upp-
lýsingum vitnisins og sendiráðs-
starfsmanna bæri ekki alveg sam-
an. Þeim kæmi ekki saman um
dagsetningu en fjöldamorðin
hefðu verið framin milli 22. og 28.
apríl. Sendiráðsstarfsmenn sögðu
blóðbaðið hefnd fyrir árás and-
stæðinga Assads á landvarnar-
menn úr sósíalistaflokki hans og á
nágrannaþorp Hama þar sem að
Alawite-trúflokkurinn er sterkur.
Vonast er tll að þessi vél
sem er aðeins knúin sól-
arorku komist bráðiega
klakklaust yfir Ermar-
sund. Hún flaug stuttan
spöl i Frakklandi fyrir
skömmu og aðdáendur
fylgdust hugfangnir
með.
Frekari
aftökur
í Iran
Beirút. 25. júní. AP.
ENN einn stuðningsmaður
Abolhassan Bani-Sadr
fyrrverandi forseta Iran
var leiddur fyrir skotsveit í
dag samkvæmt fréttum út-
varpsins í Teheran. Þá hafa
írönsk stjórnvöld tekið 44
af lífi síðan Bani-Sadr var
hrakinn frá völdum fyrir
fimm dögum síðan.
Meðal þeirra sem hafa
verið líflátnir eru 7 Bahai-
trúar sem voru ákærðir um
njósnir og fjáröflun fyrir
■ ísrael.
írönsk stjórnvöld héldu
leitinni að Bani-Sadr áfram
í dag en ekki er vitað hvar
hann er niðurkominn. Mikil
upplausn ríkir í landinu og
meðal annars réðust upp-
reisnarmenn frá Kúrdan-
héraði á jarðarför í borginni
Mahabad í dag og myrtu sex
manns.
Samkomulag
i sjonmali:
VONIR manna kviknuðu i dag um
að brátt tækist að binda enda á
mótmælasvelti IRA-manna i Maze-
fangelsinu á Norður-lrlandi eftir
að fulltrúar bresku rikisstjórnar-
innar og fanganna höfðu gefið frá
sér yfirlýsingar um að þeir væru ef
til vill reiðubúnir til samnings-
gerðar.
Báðir aðilar bentu á nauðsyn þess
að binda enda á deilur fanganna og
stjórnvalda sem hafa leitt til mik-
illa óeirða í Ulster-héraðinu.
Ekkert virtist þó benda til þess að
þokast hefði í samkomulagsátt með
deiluaðilum. Yfirmenn á Norður-
Irlandi kváðu litla ástæðu til bjart-
sýni þrátt fyrir yfirlýsingarnar.
SUMARGLEÐIN ’81
SUMARGLEÐIN
Nú á að taka því létt
hefst í Stapa í kvöld kl. 10, á
morgun Hótel Akranesi kl. 9
(Miöasala frá kl. 8).
Tveggja tíma stanzlaus skemmtiatriði og dans á eftir fram á rauða
nótt.
Danspar kvöldsins verðlaunað sérstaklega. Skonrokkarinn Þorgeir
Ástvaldsson, reitir af sér rokkið með tilheyrandi takti.
w wu mumum
Nýja platan SUMAR-
GLEÐIN SYNGUR fer
sigurför um landið — kynnt
og árituð, hvar sem Sumar-
gleðin kemur fram.
BINGO meö sérlega
glæsilegum vinningum.
Sumargleði-verðlaunin
hafa aldrei verið glæsi-
legri en í sumar.
Þ.á m. Suzuki-bifreið.
Myndsegulband Video-2000.
Akai hljómtækjasamstæöa.
Stereo útvörp og kassettu-
tæki allt frá Nesco.
Reiöhjól frá Fálkanum o.fl.
o.fl.
PRINS POLO
í syngjandi stuði, hressasti
sjóarinn á svæðinu í hrika-
legu ástandi og dreyfir að
sjálfsögöu uppáhaldskexinu
með „stæl“.
FINNI FRIK
tekur það alltaf lótt. Hinn
alíslenzki pönkari frá Hrak-
hólum í Oldudal veröur í
meiriháttar stuöi.
TAKIÐ ÞÁTT í GLÆSI-
LEGUSTU SKEMMTUNUM
SUMARSINS
LETT OG FJORUGT LIÐ SEM SER UM
AÐ KOMA ÖLLUM í SUMARGLEÐISKAP
Ragnar Bjarnason, Ómar Ragnarsson, Bessi Bjarnason,
Magnús Ólafsson, Þorgeir Ástvaldsson, ásamt hljóm-
sveit Ragnars Bjarnasonar.