Morgunblaðið - 01.07.1981, Page 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1981
Loks sjá samtökin um að halda
regluleKa félagsmálanámskeið og
skemmtanir s.s. diskótek fyrir
félagsmenn og aðra þá sem hafa
áhuga. Á námskeiðunum, sem eru
haldin nokkuð reglulega, er rætt
um félagsmál almennt og reynt að
þjálfa félagana til félagsmála-
starfa af ýmsu tagi. Á diskótekun-
um, sem voru haldin einu sinni í
mánuði í Templarahöllinni í vetur,
reyndum við að vekja unglingana
til umhugsunar um bindindismál,
m.a. með því að höfða til forvitni
þeirra með ýmsum upplýsingum
og ábendingum á aðgöngumiðun-
um.“
— Hvert er markmið íslenskra
ungtemplara?
„í stefnuskránni okkar segir að
markmiðið sé að skapa samfélag
og menningu án vímuefnaneyslu. I
þjóðfélaginu sjáum við allt of
mikið af vandamálum, sem stafa
beint af neyslu vímuefna, til þess
að hægt sé að sitja aðgerðarlaus.
Við vitnum oft í það sem kallað er
áfengisvandamálið. í því felst ým-
islegt, t.d. áfengissýki, glæpir eða
það sem félagsfræðin kallar and-
félagslega hegðun.
Við viljum að úr þessu verði
bætt, m.a. með því að safna þeim
saman sem hafa áhuga á að vinna
að bindindismálum og virkja þá til
starfa.
Við viljum líka hvetja fólk til að
staðnæmast og taka nýja afstöðu
til áfengisneyslu. Margir drekka
án þess að gera sér grein fyrir því
að þeir neyta áfengis einungis
vegna þess að það er hefð, en þeir
hafa í raun engan áhuga á því. Við
viljum því þjálfa upp fólk sem
getur fjallað um þessi mál og
virkjað æ fleiri til starfa og
umræðu.
Þótt meginhluti starfseminnar
sé þjónusta við deildirnar taka
samtökin þátt í ýmsum verkefnum
sem eru deildunum óviðkomandi.
Við teljum að það sé fyrir öllu að
sem flestir fáist til umræðna um
áfengisvandann. Til dæmis héld-
um við nýlega ráðstefnu ásamt
Þingstúku Reykjavíkur. Heiti
ráðstefnunnar var „Bindindi er
náttúruvernd". Margir ráku upp
stór augu þegar þeir sáu þessa
yfirskrift en hún á sína skýringu í
því sem rætt var um á ráðstefn-
unni. Fulltrúi frá öryrkjabanda-
lagi íslands ræddi þar t.d. um mál
fatlaðra. Margir fatlaðir geta ein-
mitt kennt áfengisneyslu um fötl-
un sína. Einnig var mættur full-
trúi frá útivistar- og náttúru-
verndarsamtökum og i máli hans
kom beriega í ljós að bindindismál
snerta ekki síður þann félagsskap.
Með þessari ráðstefnu vildum við
sem sagt einfaldlega sýna fram á
það að bindindismál eru ekki
einangrað fyrirbæri. Þau snerta
allt þjóðlífið og alla hópa þess á
einhvern hátt.“
Jákvæð þróun
— Hvað eru íslenskir ung-
templarar margir?
„Þeir eru rúmlega 300 í deildun-
um. Þetta eru unglingar á aldrin-
um 14—17 ára. En nokkrir eldri
bindindismenn eiga beina aðild að
samtökunum en starfa ekki innan
deildanna."
— Hvenær voru samtökin
stofnuð?
„Þau voru stofnuð á sumardag-
inn fyrsta árið 1958. Ástæðan
fyrir stofnuninni var m.a. sú að
margir töldu stúkuformið ekki
geta uppfyllt þarfir allra um
félagsmál. Þeir vildu breyta til og
hafa formið frjálslegra. Eg tel það
sjálfur mjög mikilvægt að ungt
bindindisfólk starfi í eigin sam-
tökum, samtökum sem það stjórn-
ar. Ef starfað er með eldra fólki
vill það oftast fara svo að þeir
eldri stjórni."
— Árni var því næst spurður að
því hvort ungtemplurum hefði
orðið eitthvað ágengt í starfi sínu
þessi 23 ár.
„Það er vandi að svara því,“
sagði hann. „Ef við lítum á
félagafjöldann þá he^ur okkur
síður en svo orðið ágengt. Félagar
hafa flestir verið 1200 en eru nú
aðeins 300.
En það að líta á félagafjöldann
einungis er enginn mælikvarði.
Ungu fólki gefst kostur á miklu
fjölbreyttara félags- og tóm-
stundastarfi nú en fyrr. Það hefur
ekki tíma til að sinna öllu sem
býðst.
En við þurfum líka að glíma við
þá gömlu grýlu að bindindissam-
tök eru svert í augum ungs fólks.
Því er bent á að stúkuformið hafi
á sér vissan helgiblæ, það sé
formfast og gamaldags. Þannig er
það fælt frá þátttöku í þessum
félögum. En þetta er algjör mis-
skilningur. Ungtemplarasamtökin
eru ekki formföst og gamaldags,
þau eru mjög frjálsleg. Það má
segja að ungtemplarafélögin séu
nokkurs konar skemmtiklúbbar.
En ef við lítum aftur á móti á
áfengisneyslu þjóðarinnar er
þróunin heldur jákvæðari. Undan-
farin 2 ár hafa íslendingar ekki
aukið áfengisneyslu sína en heldur
ekki minnkað hana, hún hefur
nokkurn veginn staðið í stað nú
síðustu árin. Ég vona að við eigum
okkar hlut í þeirri jákvæðu þróun,
eins og aðrir sem að þessum
málum hafa starfað.
Það er líka jákvæð þróun að öll
umræða um áfengismál er orðin
mun frjálslegri en áður. Hún er
ekki lengur spurning um það að
vera með eða á móti eða karp um
bann. Menn ræða málin fram og
aftur frá öllum hliðum. Árangur
sést líka í því að æ fleiri stofnanir
og samtök láta þessi mál til sín
taka og taka þátt í umræðunni.
Það nýjasta er að 30 stofnanir og
félög og allir stjórnmálaflokkarn-
ir hafa sameinast um verkefni
sem ber heitið „Átak gegn áfengi“.
Bara það að 30 samtök geti
sameinast um að vinna að því að
draga úr áfengisneyslu í þjóðfé-
laginu sínir töluverðan árangur.
Átak sem þetta hefði gengið
tiltölulega hægt fyrir sig fyrir
nokkrum árum.“
Alheimsþing ung-
templara á
íslandi 1984
— Hvað er framundan hjá sam-
tökunum?
„Af því helsta sem framundan
er má nefna áframhaldandi þátt-
töku í „Átak gegn áfengi". Það er
einmitt liður í okkar þætti þess
verkefnis að unglingarnir fóru í
áfengisútsölurnar. Einnig var
gerð könnun á því meðal unglinga
hvernig þeir útvegi sér áfengi. Við
unnum þetta í samvinnu við
Æskulýðsráð Reykjavíkur.
Við vinnum sömuleiðis, ásamt
Þingstúku Reykjavíkur, að 2ja ára
verkefni sem ber heitið „Veröld án
vímu“. Við væntum mikils af því
verkefni. Eitt meginatriði þess er
að við förum með nemendur 7., 8.
og 9. bekkja grunnskóla Reykja-
víkur út úr bænum eina helgi og
ræðum þar um afstöðu ungl-
inganna til vímuefnaneyslu. Nem-
endurnir eru hvattir til að gera
það upp við sig hvað standi að
baki afstöðu þeirra og við ræðum
um hlutverk vímugjafa og af
hverju fólk neyti þeirra. Einnig
reynum við að velta því fyrir
okkur hvernig veröld án vímu liti
út. Þessar helgarferðir hafa tekist
mjög vel hingað til. Að vísu hafa
þær ekki verið margar, aðallega
vegna þess að þær eru kostnaðar-
samar þótt mikið starf sé unnið í
sjálfboðaliðavinnu.
Við munum taka þátt í bindind-
ismótinu í Galtalækjarskógi um
verslunarmannahelgina eins og
undanfarin ár. Mótið í ár verður
með svipuðu sniði og venjulega,
þ.e. bindindismót með það að
markmiði að fólk komi til að
skemmta sér án áfengis. Það er
svo undir þeim komið sem mótið
sækja hvort þeir virða þetta
markmið. Við getum aldrei komið
algerlega í veg fyrir það að áfengi
sé haft um hönd, ef gestir mótsins
ætla sér það á annað borð, það er
íslenskir unKtemplarar vöktu á sér athygli ekki
alls fyrir löngu er sex þeirra, á aldrinum 15—18
ára, fóru í áfengisútsölur þeirra erinda að kaupa
áfengi. Fimm þeirra fengu afgreiðslu og gengu út
með flöskur undir hendinni. En vitanlega var
innihaldinu helt niður því þetta var liður í því
verkefni ungtemplaranna að kanna hvernig ungl-
ingar fara að því að komast yfir áfengi. Blaðamað-
ur Mbl. gekk skömmu síðar á fund Árna
Einarssonar framkvæmdastjóra og formanns ís-
lenskra ungtemplara og ræddi við hann um
starfsemi samtakanna og verkefni þeirra.
„íslenskir ungtemplarar eru
landssamtök og eiga 4 deildir,
svonefnd ungtemplarafélög aðild
að þeim,“ sagði Árni.
„Starfsemi samtakanna er með
svipuðum hætti og annarra lands-
samtaka, þ.e. þjónusta við deild-
irnar. Ef þær hafa eitthvað á sinni
könnu geta þær komið á skrifstofu
samtakanna í Templarahöllinni í
Reykjavík og fengið aðstoð eða
unnið verkefnið þaðan. Við sjáum
líka um ýmiss konar samstarf við
önnur félög og stofnanir. Við
eigum t.d. aðild að Æskulýðssam-
bandi Islands og Æskulýðsráði
ríkisins. Fulltrúar okkar í þeim
samtökum, og öðrum sem við
eigum fulltrúa í, vinna, ef svo má
segja, í gegnum okkur á skrifstof-
unni. Þeir hafa samband við okkur
og gefa okkur skýrslu um störf
sín.
Þá sjáum við um að hafa
samstarf við erlendar bindindis-
hreyfingar, oftast í formi móta,
ráðstefna eða funda sem við annað
hvort höldum eða sækjum. Einnig
að afla upplýsinga um starfsemi
þeirra og láta í té uppiýsingar um
okkar mál. Töluverður hluti
starfsins felst svo í að safna fé
eins og hjá vel flestum öðrum
félagasamtökum.
Rætt við Arna
Einarsson
formann
Islenskra
emplara Árni Einarsson< formaður og framkvæmdastjóri íslenskra ungtemplara.
Ljósm. Emilia.
Bindindi er ekki sama
feimnismálið meðal
unglinga nú og fyrr
t