Morgunblaðið - 01.07.1981, Síða 20
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ1981
Eftir Arna Helgason
Mér barst í dag góður gestur,
blaðið Norðurljósið á Akureyri.
Að vísu hefi ég fengið heimsókn
þess ár eftir ár, og eftir að það
kom út einu sinni á ári í bók, hefir
óþreyjan eftir blaðinu orðið meiri.
Þessi bók sem er í stóru broti og
80 blaðsíður auk kápu, er verðlögð
af ritstjóra á 40 krónur bókin, sem
er sáralítið verð þegar miðað er
við innihaldið sem allt er mannin-
um til uppbyggingar, og sama
hvar niður er borið í blaðinu.
Dæmisögur úr hinu daglega lífi
með kristilegu ívafi sem ritstjór-
inn er svo fundvís á að ná í blaðið,
og ekki má gleyma konu hans, sem
á þarna mjög góð og litrík viðtöl
við konur, sem hafa merkilega
lífsreynslu að baki, hafa fundið
veginn til lífsins, ef svo mætti að
orði kveða, en það er sá mesti
fjársjóður sem nokkur getur eign-
ast. Að eiga áttavitann sem Krist-
ur réttir hverjum manni, er sú
lífsgæfa sem ekkert fær grandað
né staðið á móti.
Norðurljósið er á tímamótum á
þessu ári. Það eru 70 ár síðan það
hóf göngu sína. Merkilegast við
það spor, sem þá var stigið, er, að
það er ekki íslenskur ríkisborgari
sem hefur útgáfu þess, heldur
erlendur maður, enskur að mál-
fari, áhugasamur íslandsvinur
sem kemur hingað til að láta gott
af sér leiða, segja íslendingum frá
reynslu sinni og hvernig allt hafi
snúist sér til gæfu eftir að hann
tók við Jesú Kristi sem persónu-
legum frelsara sínum. Tók hann
alvarlega og vildi fylgja honum
eftir hans fyrirmælum og fyrir-
mynd. Hann vissi eins og þeir, sem
með honum störfuðu, hvers virði
hann gæti verið fyrir hvern þann
sem honum veitti viðtöku. Þessi
maður var Arthur Gook. Hann hóf
trúboð á Akureyri og söfnuðurinn
á Sjónarhæð setti verulegan svip á
Akureyri og land allt með tilkomu
Norðurljóssins. Og Gook gerði
meira. Hann kom sér upp stóru
safni allskonar lyfja við öllum þá
þekktum sjúkdómum, sendi þau
fólki til hjálpar um allt land,
þannig að hann hugsaði bæði um
líkama og sál mannsins.
Mér er þetta minnisstætt sér-
staklega sem barni. Amma mín,
Guðný Sigurðardóttir, keypti
Norðurljósið. Hún las það dyggi-
lega og leiðbeiningarnar um hjálp
í viðlögum og margar pantanir
lyfja sendi hún til Akureyrar og
hafði tröllatrú á þeim og ekki
minnist ég þess að hún hafi orðið
fyrir vonbrigðum. Þá má og ekki
gleyma því hversu ötullega Mr.
Gook, eins og hann var venjulega
nefndur, barðist fyrir að útvarp
kæmist á hér á landi og dreymdi
um að þannig væri hægt að Öytja
boðskapinn inn á hvert heimili í
landinu. Og hann lét ekki þar við
standa, ég held hann hafi verið
langt kominn með að reisa litla
sendistöð á Akureyri þegar Ríkis-
útvarpið komst á dagskrá.
Ég get ekki látið hjá líða að geta
þess að Norðurljósið og boðskapur
þess hafði í æsku minni mikil
áhrif víða um land og hefur enn
þótt bóka- og blaðaflóðið á landi
voru hafi tekið stökkbreytingum
með hverju ári. Norðurljósið eign-
aðist fljótt vini um allt land og ég
get sagt að það hafi gengið í ættir
í þriðja og fjórða lið. Eg las það
sem barn og enn er það kærkom-
inn gestur á mínu heimili. Enn er
boðskapur þess ferskur og lifandi.
Svo augljós og sannfærandi eins
og ætíð áður.
Þá varð það mikið happ Norður-
ljósinu og vinum þess að þegar
Gook hafði stýrt blaðinu um langt
skeið tók við því Sæmundur Jó-
hannesson kennari, sem að vísu
hafði í félagi við Gook borið hag
blaðsins fyrir brjósti og átt í því
margar góðar greinar. Hann varð
svo ritstjóri þess og nú á hann
einnig afmæli sem ritstjóri þess í
25 ár, svo þetta má kallast veglegt
afmælisár. Sæmundur er fram-
úrskarandi vandvirkur ritstjóri og
efnið vinnur hann af þeirri alúð
sem þeim einum er gefið, sem
aldrei hafa efast um gildi krist-
indómsins, skilið þá sem á undan
fóru og fórnuðu öllu fyrir lífið í
Kristi eins og það svo oft hefir
verið orðað. Maður getur treyst
því að í blaðinu er ekkert annað en
bendandi efni á gömlu göturnar, á
það allt sem gefur lífinu gildi, og
eykur lifsánægju hvers þess sem
tekur það alvarlega, og fylgir. Og
það geta allir verið sammála um
að ef rödd Krists hljómaði virki-
lega með öllum mönnum, þá væru
ekki allar þessar hörmulegu frétt-
/
ir í blöðum og fjölmiðlum dag
eftir dag. Þótt Sæmundur sé
kominn á níræðisaldur eru engin
ellimerki að sjá á blaðinu né því
sem hann lætur frá sér fara, og ég
veit að margir hafa verið hrifnir
af að hlusta á þegar hann keppti
við unga manninn í útvarpinu um
þætti biblíunnar. Hann fullyrðir
aldrei neitt nema hafa kynnt sér
það rækilega. Þá hafa erindi þau
sem hann hefir flutt í útvarpinu
undanfarin ár vakið athygli.
Sæmundur skilur að það má
aldrei láta deigan síga meðan guð
gefur manni líf og heilsu. Ef
maður getur látið gott af sér leiða
þá er það heillavænlegt og gott að
geta bent á og sagt: Hann var trúr.
Hitt vitum við líka að margt er í
veikleika gert, en Kristur hefir
boðið að gefast ekki upp og
þessvegna er kristniboðið, þess
vegna eru menn sem hafa heyrt og
fundið þá miklu blessun sem guð
gefur þeim sem tekur hann trúan-
legan, ötulir við að fara út og
segja öðrum frá sinni gæfu og þar
má segja að eigi við málsháttur-
inn: Aldrei er góð vísa of oft
kveðin. Það er engin goðgá að tala
um Norðurljósið sem blað hins
sanna lífs.
Ég vildi með þessum orðum
minna á Norðurljósið. Það er
enginn svikinn af því og á þessum
upplausnartímum í andlegum
skilningi, þar sem menn vísvitandi
og óafvitandi láta eiturefni villa
sér sýn, þá er mikil þörf á
kristilegum blöðum með boðskap
eins og Norðurljósið flytur þegn-
um þjóðfélagsins. Megi rödd þess
hljóma hátt og snjallt í landinu og
„Þótt Sæmundur sé kom-
inn á níræðisaldur eru
engin ellimerki að sjá á
blaðinu né því sem hann
lætur frá sér fara, og ég
veit að margir hafa verið
hrifnir af að hlusta á
hann þegar hann keppti
við unga manninn í út-
varpinu um þætti biblí-
unnar. Hann fullyrðir
aldrei neitt nema hafa
kynnt sér það rækilega.“
fleiri og fleiri eignast það sér til
andlegrar uppbyggingar.
Það er ekki lítil vinna að halda
úti slíku riti og ég veit að það sem
gefur kraftinn er að ritstjórinn
hlýtur að finna að það hefir orðið
mörgum til blessunar. Það er
örvun að halda áfram og verða
sannkallað ljós í því andlega
myrkri sem nú því miður, grúfir í
of miklum mæli yfir jörðinni.
Mig langar til í lokin að taka
hér örstuttan kafla úr forystu-
grein ritstjórans:
„Norðurljósið fæddist í raun og
veru í okt. 1911. Árgangurinn var
dagsettur í jan. 1912. Af þeim
árgangi voru prentuð 2500 eintök
og seldust öll.
Árið 1912 átti að ferma mig þótt
naumast væri ég á fullum lögaldri.
Sendur var ég til saumakonu á
Hvammstanga sem Ósk hét og var
Sveinsdóttir. Hún gat ekki sinnt
mér þegar í stað og veik sér frá. Sá
ég þá blað á rúmi hennar. Nafn
þess var Norðurljósið. Mynd var
framan á blaðinu. Hún var af
lambi á klettastalli. Yfir myndinni
stóð: Garibaldi og lambið. Blaðið
greip ég samstundis því myndin
vakti athygli mína. Eftir þetta
langaði mig til að sjá Norðurljósið
aftur. Móðir mín þurfti að sitja
yfir konu, sá blaðið og fékk það
lánað. Ég las það og sneri mér til
Krists."
Hvað skyldu margir geta sagt
hið sama, og hvað skyldi Norður-
ljósið hafa orðið mörgum vegvísir
á leiðinni til betra lífs. Það veit
guð einn.
Um leið og ég þakka fyrir blaðið
og efni þess, vil ég færa ritstóran-
um, Sæmundi Jóhannessyni, bestu
afmælisóskir og bæn um að hann
megi enn lengi fá náð guðs til að
stýra þessu blaði landsmönnum til
heilla.
Stykkishólmi 17. júní 1981.
Manndráp
í fangelsi
Manaxua. Nicaraaua. 29. júni. AP.
FANGAR sem hlynntir eru
hinum látna einræðisherra
Somoza og félagar þeirra, tóku í
morgun ótiltekinn fjölda fanga-
varða sem gísla á laugardag en
aðrir fangaverðir brugðu þá við,
hófu skothríð á fangana, og
drápu nítján og særðu 28 að því
er innanríkisráðuneyti Nicara-
gua sagði frá í dag. Flestir
fanganna sem uppreisnina hófu
voru fyrrverandi félagar í þjóð-
varðliði Somoza meðan hann
var og hét.
Timman
enn efstur
Ijis 1‘almas. Kanaricyjum. 29. júni. AP.
TIMMAN frá Hollandi er enn í
efsta sæti á Alþjóðaskákmótinu
á Kanaríeyjum eftir að hafa
sigrað Bent Larsen frá Dan-
mörku í áttundu umferö. Aðrar
skákir enduðu með því að Korc-
hnoi vann Manuel Bellon frá
Spáni, Seriawan sigraði Garcia
Padron frá Spáni, aðrar skákir
fóru í bið eða enduðu með
jafntefli.
Röð efstu manna er að Timm-
an hefur 7 vinninga, Seirawan
fimm og einni skák frestað,
Larsen 3,5 og tveimur skákum
frestað, Korchnoi hefur 3,5 og
einni skák hans var frestað.
Averoff
aðstoðar-
forsætis-
ráðherra
Aþcnu 29. júní. AP.
GEORGES Rallis, forsætisráð-
herra Grikklands, tilkynnti í
dag að Evanghelos Averoff Tos-
itsas, varnarmálaráðherra,
verði einnig aðstoðarforsætis-
ráðherra og þar með næst
æðstur ráðherra. Er talið að
Rallis geri þetta tii að styrkja
sUórn Nýdemókrataflokksins
fyrir þá hörkukosningabaráttu
sem fer senn í hönd. PASOK-
bandalag Andreas Papandreu
er talið mjög sigurstranglegt í
þeim kosningum.
Sæmundur G. Jóhannesson
„Norðurljósið“
nn er í
ið rennilegt
ætlað er að
an akstur um veg
ISUZU
er sterk
Endingargóður, en þægile
kraftmikill. Smlðaður með
nytsemi frá degi til dags. Þi
akstur utan vegar finnst fljótt
borgarakstri og lætur vel að st
útlit dylst sterk grind, fjöðrun og
leysur. Val erum bensín- eða díslivé
ískulegur frágangur úti og inni og ríkulegur sportbúnaður vekur sérstaka athygli.
Isuzu Trooper-jeppinn er ( sérflokki hvortsém liti
frágang eða aksturshæfni.
Væntanlegur til landsins fljotieg
8 6 á y,ri # VÉLADEILD SAMBANDSINS
ns fijótiegæ1” Ármúla 3 Reykjavík Sími38900