Morgunblaðið - 01.07.1981, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.07.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1981 63 * 35—50% .ukningti Námskcið Námskeið í stefnumótun fyrir- tækja voru haldin í apríl og maí. 16 fyrirtæki tóku þátt í þeim. Námskeið í framleiðslustjórnun var haldið í júní og ágúst, alls 10 dagar. 16 þátttakendur frá 6 fyrirtækjum, flokksstjóranám- skeið í september, 15 þátttakendur frá 9 fyrirtækjum. 1 september var haldið markaðsnámskeið fyrir húsgagnaframleiðendur, þátttak- endur voru um 14 frá 9 fyrirtækj- um. í byrjun nóvember var haldið námskeið í vöruþróun fyrir 10 fyrirtæki, þátttakendur voru 19. Vöruþróunarnámskeiðið stóð í þrjá daga, þ.e. almenni hlutinn, en síðan var notaður 1 'k dagur fyrir hvert fyrirtæki og skilað tillögum um vöruþróunar- og markaðsað- gerðir til þeirra, sem síðan voru teknar fyrir í heimsókn markaðs- ráðgjafans til fyrirtækjanna í desember. Þessi aðferð, að leggja höfuðáherslu á mál einstakra fyrirtækja, lofar góðu og árangurs er að vænta í flestum fyrirtækj- anna. Gert var ráð fyrir, að með framangreindum námskeiðum yrði lokið námskeiðahaldi á veg- um verkefnisins, en í ljós hefur komið, að þörf er á námskeiði í framleiðslustjórnun, sem fram- hald af þeim námskeiðum, sem áður hafa verið haldin um þetta efni. Verkstjórar í þeim fyrirtækj- um, sem lengst eru komin í framleiðsluhagræðingu, þurfa á viðbótarþjálfun að halda til að geta sinnt raunverulegu hlutverki verkstjóra í þjálfun starfsmanna og framleiðslueftirliti. Námskeið- ið yrði haldið af íslensku sam- starfsaðilunum eftir samkomu- lagi. Námskeið í sölumennsku er einnig fyrirhugað og þá einkum ætlað þeim, sem vinna í verslun- um framleiðenda. Sérstaka áherslu hefur orðið að leggja á þýðingu og túlkun námskeiðisefn- is, og hefur fengist styrkur frá Nordisk Industrifond til þess og túlkun tækniráðgjafa í fyrirtækj- um. Ráðjíjöf ok þjálfun Úttektir hafa verið fram- kvæmdar í 18 fyrirtækjum á vegum verkefnisins og lagðar fram tillögur um framleiðslu- skipulag, bættar framleiðsluað- ferðir og fjárfestingar í vélum og hjálpartækjum. Nokkur fyrirtæki hófu aðgerðir í samræmi við tillögurnar og hefur verið unnið í þeim frá október við skipulag vinnustöðva og þróun aðferða. Erlendu ráðgjafarnir hafa unn- ið 86 dagsverk í fyrirtækjunum og ljóst orðið, að ætla þarf meiri tíma í skipulag vinnustöðva og starf- þjálfun ásamt þjálfun verkstjóra en upphaflega var áætlað, eða alls um 345 daga á árinu 1981. Sam- starfsaðilarnar frá FÍI, Lands- sambandi iðnaðarmanna og starfsmenn trétæknideildar Iðnt- æknistofnunar hafa verið með erlendu ráðgjöfunum í fyrirtækj- unum og unnið í þeim milli heimsókna, einkum hefur mikið af undirbúningi fyrir ráð- gjafaheimsóknirnar hvílt á starfs- mönnum trétæknideildarinnar. Markmiðið með þessu starfi sam- starfsaðilanna er tvíþætt, annars vegar þjálfun þeirra í ráðgjafa- störfum og hins vegar, að tryggja og jafnvel flýta árangri af þessum aðgerðum. Vöruþróunarstarfið hefur verið að mestu unnið í einstökum fyrir- tækjum og hófst með 3ja daga námskeiði í nóvember. 10 fyrir- tæki tóku þátt í því og heimsóknir markaðsráðgjafa og tækniráðgj- afa voru framkvæmdar í 9 fyrir- tækjum, þar eð eitt þátttökufyr- irtækjanna baðst undan þessari heimsókn. Alls hafa verið notaðir 5 ráðgjafadagar á fyrirtæki. Farið var yfir framleiðsluvörur, sölu- skipulag og kynningaraðferðir. í annari heimsókn, að loknum umræðum og hugmyndaleit mark- aðsráðgjafa og tækniráðgjafa, voru tillögur um aðgerðir kynntar, þ.e. breytingar á framleiðsluvör- um, ný hönnun og nýjar kynn- ingar- og söluaðferðir. í desember komu markaðs- og tækniráðgjafar aftur og fóru yfir verkefnisáætl- anir fyrirtækjanna og komu með upplýsingar og tillögur um fram- hald. í 5 fyrirtækjum af 8, sem unnið hafa að markaðs- og vöruþróunar- starfinu af alhug, er þegar farinn að koma árangur í ljós og von um að 3—4 þeirra komi til með að hafa útflutningshæfa vöru á þessu ári. í markaðs- og vöruþróunarað- stoð á árinu 1982 eru áætlaðir 5—6 ráðgjafadagar á fyrirtæki og gert ráð fyrir, að heimsóknir verði á 6—8 vikna fresti. Markaðs- og tækniráðgjafar vinna með for- ráðamönnum fyrirtækjanna að þeim verkefnum, sem ákveðin voru í upphafi. Mikil hreyfing er á vöruþróunar- og markaðsmálum verkefnisins og útlit fyrir, að á árinu 1981 verði þau fyrirtæki, sem hyggja á útflutning, búin að taka fyrstu skrefin í þeirri bar- áttu. Við gerð fjárhagsáætlunar hús- gagnaverkefnis í júní 1980 var miðað við þátttöku 10 fyrirtækja í öllum þáttum verkefnisins. Eins og áður hefur komið fram, fóru úttektir á framleiðsluaðstöðu fram í 18 fyrirtækjum, en mis- jafnlega mörg tóku þátt í nám- skeiðum. Heildarkostnaður nemur nú 145 milljónum, þar af er námskeiðs- kostnaður 3,5 milljónir. Úttektir í fyrirtækjum 26,4 milljónir og tækniráðgjöf í fyrirtækjum 40,6 milljónir, markaðs- og vöruþróun- arráðgjöf 9,5 milljónir, kostnaður vegna samstarfsaðila 12,2 milljón- ir og stjórnunarkostnaður 22,0 milljónir, allt í gkr. Fyrirtækin haf greitt 49,5 milljónir, hlutur Iðnrekstrarsjóðs er um 57 milljón- ir og styrkur Nordisk Industrifond vegna miðlunar tækniþekkingar 10,4 milljónir. Framlag Iðnaðar- ráðuneytis til stjórnunarkostnað- ar nam 17,5 milljónum gkr. Úr verzlun Ingvars og Gylfa sf. við Grensásveg. Ingvar og Gylfí sf.: Sérhæfa sig í svefn- herbergishúsgögnum Ilúsgagnavinnustofa Ingvars og Gylfa sf. hefur um árabil verið þekkt fyrir framleiðslu sína á rúmum og svefnherbergis- húsgögnum, en hún var eitt þeirra fyrirtækja, sem heimsótt var í heimsókn- inni. Fyrirtækið var stofn- að árið 1957 af núvcrandi eigendum þess, þeim Ing- vari Þorsteinssyni, sem tók á móti gestum og Gylfa Einarssyni. Ingvar sagði, að í upphafi hafi fyrirtækið framleitt húsgögn af ýmsu tagi, en starfsmenn voru þá aðeins fjórir. Nú eru starfsmenn 23 og fyrirtækið framleiðir svo til eingöngu svefnher- bergishúsgögn. — Hjá fyrirtækinu starfa nú 23 starfsmenn eins og áður gat um, þar af 14 í framleiðslu. Heildar- velta fyrirtækisins á síð- asta ári var í kringum 800 milljónir gkróna. Fyrirtækið rekur eigin verzlun að Grensásvegi, þar sem framleiðslan fer fram, en auk þess er vara þess seld í verzlunum um allt land. Helztu breytingar á hús- næði fyrirtækisins í gegn- um tíðina eru þær, að 1966 var flutt úr bílskúr við Bogahlíð að Grensásvegi 3 í 500 fermetra nýbyggingu. Var síðan byggt við húsið 1972 og það þá stækkað um 100 fermetra. Á síðasta ári var húsnæðið svo enn stækkað og nú um 200 fermetra. Kristján Siggeirsson hf.: Kynna nýja skrif- stofuhúsgagnalínu KRISTJÁN Siggeirsson hf. var eitt þeirra fyrir- tækja, sem heimsótt voru, en það hefur framleitt húsgögn í yfir 50 ár og verið lengst af með vörur fyrir heimili og skrifstof- ur. Iljalti Geir Kristjáns- son, forstjóri fyrirtækis- ins, bauð gesti velkomna, og sagði við það tækifæri. að með örum breytingum á markaðinum hafi fyrir- tækið aðlagað afurðir sín- ar að breyttum þörfum og aukinni samkeppni. — Á síðasta ári hafa verið þróuð húsgögn fyrir skrifstofur, bókasöfn og stofnanir, sem fyrir- tækið mun einbeita sér að að framleiða og selja á næstu árum. Á sama tíma hefur „Markaðsátak í húsgagnaiðnaði" komið inn í flest stig framleiðslu og sölu og er árangur af því starfi að koma í ljós. Hefur það kostað fyrirtækið milli 100.000 og 150.000 krónur, ef allt er með talið. Fyrirtækið hefur einbeitt kröftum sínum að undan- förnu að þremur mikilvægum þáttum: — Vöruþróun, en forsenda ár- angursríks reksturs er að hafa rétta vöru fyrir þann markað, sem starfað er á. Áætlað er að kostn- aður við vöruþróun á sl. ári hafi verið tæpar 200.000 krónur, eða um 1 mannár í ailt. Þessu starfi er ekki endanlega lokið. Hönnun og þróun nýrra afurða er í höndum starfsmanna fyrirtækisins og Gunnars Magnússonar arkitekts og þróa þeir allar afurðir, sem verksmiðjan framleiðir. — Framleiðslu, en nýjar vörur eru þróaðar með hliðsjón af vélum og tækjum, sem hefur í för með sér hagkvæmni og samkeppnis- hæfari afurðir. Jafnframt hefur vélakosti og vinnubrögðum verið hagrætt til að stytta framleiðslu- tíma og auðvelda starfsmönnum vinnuna. — Sölustarf, en nýir markaðir hafa í för með sér breyttar söluleiðir, sem mikilvægt er að ná tökum á. Auk húsgagna fyrir skrifstofur framleiðir fyrirtækið vegghillur og raðskápa fyrir heim- ili, en sá markaður er í mikilli óvissu um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.