Morgunblaðið - 07.08.1981, Page 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
171. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
40 sovézk
herskip á
Eystrasalti
Kaupmannahofn. 0. ágúst. AP.
RÚSSAR sondu i dag tundur-
spilli (>k tvær freinátur KOKnum
dönsku sundin til styrktar
stærsta flotanum sem þeir hafa
dreKÍð saman á Eystrasalti i
a.m.k. 15 ár að sögn dönsku
leyniþjónustunnar.
Sænsk yfirvöld tilkynntu að nú
væru 40 eða fleiri sovézk herskip
suður af eynni Gautlandi og
mestu landgönguæfingar Rússa
fram til þessa væru um það bil að
hefjast, m.a. með þátttöku kjarn-
orkukafbáta og flugvéla-
móðurskipsins „Kiev“, stærsta
skips sovézka flotans.
Danir telja að æfingarnar
hefjist á mánudag og þriðjudag. í
Washington er sagt að æfingarn-
ar standi ekki í sambandi við
ástandið í Póllandi.
I dag lauk „friðargöngu" sem
var farin til Parísar, m.a. til
eflingar hugmyndum um „kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd". Olof
Palme, leiðtogi sænskra sósíal-
demókrata, ræddi við norræna
friðargöngumenn í París i dag og
lýsti yfir stuðningi við baráttu
þeirra í sjónvarpsviðtali.
Ola Ullsten, utanríkisráðherra
Svía, kom aftur til Stokkhólms í
dag frá Mexíkó þar sem hann
ræddi við Alexander Haig, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna.
Ullsten bar til baka blaðafréttir
um að aðstoðarmaður hans, Leif
Leifland, mundi semja um kjarn-
orkuvopnalaus Norðurlönd þegar
hann færi til Moskvu snemma í
næsta mánuði.
Síðustu skipin á Eystrasalti
komu frá Murmansk. Fjórir sov-
ézkir tundurspillar búnir eld-
flaugum hafa verið sendir til
Eystrasalts þar sem Rússar hafa
sex kjarnorkukafbáta. „Rússar
kalla Eystrasalt friðarhaf ...
Það sem nú er að gerast bendir
ekki til þess að svo sé,“ sagði
danskur talsmaður í dag.
Lech Walesa sagði við blaðamenn þegar hann kom til fundar með ráðherrum i gær: „Ef ég teldi ekki að
viðræður okkar við ráðherranefndina yrðu árangursríkar mundi ég ekki koma. heldur fara i veiðiferð á
þessum sólríka degi.“
Aukinn þrýstingiir
á pólsku stjórnina
Varsjá. 6. áKÚst. AP.
VERKAMENN og námumenn á
kolasvæðunum i Slésiuhéruðum
Póliands hófu verkfallsviðbúnað
i dag og hótuðu að leggja niður
vinnu til að auka þrýstinginn á
ríkisstjórnina i viðræðum hennar
við leiðtoga Samstöðu um mat-
vælakreppuna, en þær virðast
ekki ganga vel.
Verkamenn á Kielce-svæðinu í
Mið-Póllandi efndu til tveggja
tíma viðvörunarverkfalls og lýst
var yfir verkfallsviðbúnaði á öðr-
um stöðum.
í Katowice, miðstöð iðnaðarhér-
aðanna í Slésíu, var sagt að
800.000 til 900.000 verkamenn af
1,V4 milljón verkamanna á þessu
svæði væru reiðubúnir til verk-
falla.
Leiðtogi Samstöðu, Lech Wal-
esa, sem lét í ljós bjartsýni þegar
hann settist að samningaborði
með Mieczyslaw Rakowski aðstoð-
arforsætisráðherra, sagði í fund-
arhléi: „Hér er ekkert spennandi
að gerast."
„Samstaða talar um brauð og
kjöt og ríkisstjórnin talar um
íranir lofa að láta
Frakka fara heim
París, 6. ájcúst. AP.
TV/ER TILRAUNIR Frakka tll að
flytja franska borgara heim frá
Iran fóru út um þúfur I dag. en
íranir sögðu að þeim yrði leyft að
fara úr landi i næstu viku.
Talsmaður franska
utanríkisráðuneytisins sagði: „Við
erum ekki áhyggjufullir, við höfum
ekki ástæðu til þess,“ en Francois
Mitterrand forseti hélt fimm tíma
fund um málið óg hætti við að fara
frá París um helgina.
Mitterrand ráðlagði um 140
Frökkum í íran að fara úr landi
eftir mótmæli við franska sendiráð-
ið. Rúmlega 60 Frakkar urðu sér úti
um vegabréfsáritanir, en þeim var
meinað að fara með Air France í
morgun þar sem íranir sögðust
þurfa að kanna fjárhagslega og
lagalega stöðu þeirra. Önnur flug-
vél beið í Istanbul, en fékk ekki
lendingarleyfi.
En Iranir gáfu í skyn að Frakk-
arnir fengju að fara með áætlunar-
flugvélum iranska flugfélagsins á
mánudaginn og miðvikudaginn. ír-
anskur talsmaður sagði að Frakk-
arnir hefðu ekki verið beðnir að
fara, þeir væru gestir og myndu
njóta fyllsta öryggis í íran.
Mitterrand sagði í gær að mót-
mælin við sendiráðið gætu orðið
stjórnlaus og franskir embættis-
menn minnast oft á gíslana í
bandaríska sendiráðinu.
Mitterrand kallaði einnig Guy
Georgy sendiherra heim, en íranir
lýstu hann „óæskilegan", þar sem
Frakkar hefðu ekki svarað kröfunni
um framsal Abolhassan Bani-Sadr
fv. forseta. Talsmaður Mitterrands
sagði að Bani-Sadr yrði ekki fram-
seldur, en kröfunni yrði svarað er
nauðsynleg skjöl hefðu borizt.
íranir skipuðu Georgy að fara úr
landi innan þriggja daga, en fréttir
herma að hann hafi heldur ekki
fengið að fara með Air France og
haldi áfram samningaviðræðum um
örugga heimferð frönsku borgar-
anna.
Forseti íranska þingsins hótaði í
dag að skera niður framlög til
lögreglu vegna slælegrar verndar
sem þingmenn hafa fengið. Nú hafa
27 þingmenn af 220 verið myrtir.
Kaupmenn lokuðu búðum sínum í
dag til að mótmæla öldu banatil-
ræða.
hugmyndafræði," sagði Jan Rul-
ewski, róttækur fulltrúi í samn-
inganefnd Samstöðu.
Jafnframt var miðstjórnarfundi
kommúnistaflokksins frestað frá
sunnudegi til þriðjudags, en engin
skýring var gefin. Frestunin er
talin vísbending um alvarlegar
áhyggjur flokksins af matvæla-
kreppunni.
Mótmælin valda stjórninni vax-
andi ugg og hún sagði í skýrslu í
dag: „Pólland tapar fleiri og fleiri
milljörðum, land okkar verður
fátækara og fátækara eftir því
sem lausn kreppunnar dregst á
langinn."
(I Brussel var sagt í dag að
Efnahagsbandalagið hefði til at-
hugunar að senda nýjar afurðir og
grænmeti til Póllands, en magn
var ekki tilgreint).
í Moskvu vitnaði Tass í málgagn
pólska hersins sem varaði við því
að „öllum mætti og öllum ráðurn"
yrði beitt til að verja sósíalistarík-
ið Pólland og þeir sem „héldu að
engin barátta yrði háð fyrir sósí-
alisma gerðu reginskyssu". Grein-
in var lesin í heild í fréttaþætti
ríkissjónvarpsins.
Togstreita
eykst
í Bólivíu
I.a Paz. fi. ágúst. AP.
Yaldaharátta uppreisn-
armanna og stuðnings-
inanna Luis Garcia \lcza.
fráfarandi forseta í Bóli-
viu. harðnaði í dag og
uppreisnarmenn héldu því
fram að herforingjastjórn
landsins mundi fvrirskipa
árás á virki þeirra i Santa
Cruz.
V erkalýðshreyf ingi n
COB, sem er bönnuð, hefur
lýst yfir verkfalli um allt
landið og það er í gildi þótt
ekki sé vitað hve þátttaka í
því er almenn, þar sem í dag
er þjóðhátíðardagur Bólivíu
og vinnustaðir eru lokaðir.
Símasamband hefur rofn-
að i sumum hlutum höfuð-
borgarinnar og til Santa
Cruz. Fréttir herma að rit-
stjórar og stuðningsmenn
uppreisnarmanna hafi verið
handteknir, og samkvæmt
góðum heimildum er fjöi-
skylda fráfarandi forseta
flúin til Argentínu.
Verðstöðvun
til áramóta
í Noregi
Frá frúttaritara Mbl. í Osló í gær.
NORSKA stjórnin kom í dag á
almennri verðstöðvun. sem
gildir frá 3. ágúst til áramóta.
og lagði til að tekjuskattur
yrði lækkaður um 750 milljón-
ir norskra króna.
Skattalækkunin kemur þeim
Norðmönnum til góða, er hafa
allt að 150.000 n.kr. í tekjur, að
sögn Ulf Sand fjármálaráðherra.
Hann sagði að stjórnin mundi
einnig leggja til að nýrri skipan
yrði komið á eftirlaun.
Sand sagði að með skattalækk-
uninni mundi samkeppnishæfni
aukast um einn af hundraði og
komið yrði í veg fyrir að verð-
bólga færi yfir 14% á þessu ári.
Verdens Gang hafði sagt að
tekjuskattur yrði lækkaður, þar
sem búizt væri við að visitalan,
sem verður kunngerð á mánudag,
færi yfir 126,5 stig. Alþýðusam-
bandið sagði í vor að ef það
gerðist yrði farið fram á kaup-
hækkanir. _ Lauré.
Reagan ætlar að
sitja við sinn keip
WashinKton. 6. ágúst. AP.
REAGAN-STJÓRNIN hafði að
engu vaxandi reiði verkalýðsleið-
toga í dag og hélt áfram að segja
upp flugumferðarstjórum, þar
sem þeir eru i ólöglegu verkfalli.
og félag þeirra lýsti því yfir að
þótt Bandaríkjastjórn „hneppti
þá í fjotra og stngi þeim i
fangelsi mundu þeir ekki hefja
aftur vinnu“.
Þrír fjórðu áætlunarflugs voru
með eðlilegum hætti í dag til og
frá öllum flugvöllum nema hinum
, 22 stærstu. Umferð á stærstu
flugvöllum var helmingi minni en
venjulega.
Talsmaður Hvíta hússins, David
Gergen, sagði að uppsagnarbréf
væru send í pósti eins fljótt og
frekast væri unnt. Frá sjónarhóli
Ronald Reagans forseta ætti að
nota daginn til að endurskipu-
leggja kerfið án verkfallsmanna,
en það gæti tekið tvö ár.
Verkalýðssambandið AFL-CIO
og fjöldi annarra verkalýðsfélaga
hafa lýst yfir stuðningi við verk-
fallsmenn og hlaðmenn íhuga
verkfall.
Brezkir flugumferðarstjórar
brugðust harkalega við uppsögn-
um starfsbræðra sinna og sögðu
afstöðu Bandaríkjastjórnar „vikt-
oríanska“. Stuðningsyfirlýsingar
bárust einnig frá Frakklandi og
Danmörku og hollenzkir flugum-
ferðarstjórar báðu Reagan form-
lega að ógilda uppsagnirnar.