Morgunblaðið - 07.08.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981
Sólarlandaferðir:
15% hækkun frá
febrúar vegna
gengisbreytinga
„I>AÐ ER einsdæmi á Vesturlönd-
um aö svo miklir átthajfafjötrar
Fanginn í Marokkó:
Reynt að fá
fangelsisvist-
ina stytta
.VII) hófum fenxið skýrslu frá
danska sendiráðinu i Marokkó ok
þar kemur fram að móguleiki er að
áfrýja dóminum oi{ einnÍK hefur
sendiráðið kannað hvort hæift sé að
stytta fangavistina ok að sektin
verði eitthvað lækkuð. Þeir möKU-
leikar virðast vera fyrir hendi ok
það er verið að kanna þá," saKði
Gunnar Snorri Gunnarsson í utan-
ríkisráðuneytinu i samtali við
MorKunblaðið í Kær.
Piltur þessi hefur hlotið 5 mánaða
fangelsisdóm hérlendis fyrir fíkni-
efnamisferli og einnig er í rannsókn
hjá Fíkniefnadómstólnum annað
mál á hendur honum.
séu lagðir á þá sem vilja ferðast
til útlanda eins og gert er á
Íslandi með álagningu á gjald-
eyri og flugvallaskatti," sagði
Steinn Lárusson, formaður Fé-
lags íslenskra ferðaskrifstofa i
samtali við Mbl. „Flugvallaskatt-
ur mun hækka úr 112 krónum i
160 krónur fyrsta september og
verð á sólarlandaferðum hefur
hækkað i kringum 14% frá þvi
verðlistinn var gefinn út í febrú-
Steinn sagði að ferðaskrifstofur
hefðu rétt til þess að fara fram á
að fólk borgaði hækkun á farmiða
sínum ef þeir hækkuðu um meira
en fimm prósent vegna gengisfell-
ingar. Hann sagði einnig að
hækka mætti verðið ef olíuverð
hækkaði mikið en hann sagði að
ekki hefði þurft að grípa til
þessháttar ráðstafana í sumar svo
heitið geti. Hann sagði hinsvegar
að vegna hækkunar dollars um
síðustu helgi myndu sólarlanda-
ferðir nú hækka um rúmlega eitt
prósent.
Strandferðaskipið Vela á strandstað í gærmorgun.
Ljósm. Mbl. SteinKrímur
Siglufjörður:
Vela strandaði við „miimisvarða“
SÍKlufirAi. 6. áxúst.
Strandferðaskipið Vela frá
Ríkisskip strandaði í svarta-
þoku laust fyrir klukkan 07.00
í morgun.
Líklegt er talið að skipstjórn-
armenn hafi ruglast á hafnar-
görðum sem sáust í ratsjánni,
en hafnargarðurinn sem Vela
sigldi að og strandaði við er
„minnisvarði um hafnarfram-
kvæmdir", en áratugir eru síðan
vinna við hafnargarðinn hófst,
en er ekki lokið enn. Enda hefur
garðurinn aldrei verið notaður,
auk þess sem dýpi við hann er
aðeins 1—2 metrar.
Vela losnaði af strandstað af
eigin rammleik eftir 2ja-*-3ja
tíma „skak“. Litlar líkur eru til
að skipið hafi skemmst, því
þarna er sandbotn.
Steingrímur
Milljóna króna krafizt af
myndsegulbandaleigum
Jón Ragnarsson í Regnboganum kærir þær fyrir ólöglega
dreifingu mynda, sem hann hefur þegar keypt sýningarrétt á
Gullregn á Akureyri
UM ÞESSAR mundir er gullregn víða í blóma og til mikils skrauts í
görðum. Á Akureyri eru fögur gullregns-tré sunnan undir mörgum
húsum, og er hið mesta augnayndi að blómum þeirra, þótt eitruð séu.
Meðal fegurstu trjáa af þessari tegund er gullregnið við Oddeyrargötu
10, þar sem Júdit Jónbjörnsdóttir, kennari, á heima, og birtist hér mynd
af þvi. — Sv.P.
„ÉG ER hér með myndir, sem
ég er búinn að greiða stórfé
fyrir sýningarrétt á hér á
landi, bæði fyrir kvikmynda-
hús og myndsegulbönd og ég
sætti mig alls ekki við að
síðan komi til einhverjir aðil-
ar og leigi sömu myndirnar
út til almennings, báeði fyrir
og eftir að þær eru teknar til
sýninga, hvernig svo sem þeir
hafa komizt yfir þær. Það
gefur auga leið að það er
höfundarréttur, sem ég er hér
að greiða fyrir og því hef ég
Útkoma Alþýðublaðs enn í óvissu
„VIÐ Kjartan Jóhannsson og nokkrir fleiri sátum á löngum fundi i
ga'rkveldi sem var bæði kurteis- og heiðarlegur og freistuðum þess að
leysa dciluna um þessa næturheimsókn í Blaðprent og eftirleik
hennar." sagði Vilmundur Gylfason ritstjóri Alþýðublaðsins í samtali
við Morgunhlaðið i gærkvöldi. „Það var rætt um að við hittumst aftur
í kvöld. cn síðan var hringt til mín og mér tilkynnt að ekkert yrði af
fundinum. Ég spurði þá hvort Kjartan hafnaði fundi með ritstjóra
Alþýðublaðsins og var svarið já.
Síðan heyrði ég fréttatilkynn-
ingu frá framkvæmdastjórninni
lesna í útvarpið í kvöld og var þar
traustsyfirlýsingu hafnað. Þá var
það gefið í skyn að við á ritstjórn-
inni hefðum brotið samkomulag,
en það er ósatt, við stóðum við allt
okkar. Hins vegar voru þeir
Kjartan Jóhannsson og Björn
Friðfinnsson alla helgina að
brjóta þetta samkomulag, með því
að reyna að fá aðra til að taka við
Alþýðublaðinu,“ sagði Vilmundur.
„Bæði Kjartan Jóhannsson og
Sighvatur Björgvinsson eru með í
þessum leik ásamt Birni Frið-
finnssvni, en Björn er búinn að
leika hvern afleikinn á fætur
öðrum og búinn að draga heila
flokksforystu á eftir sér til að
bjarga næturheimsókninni í horn.
Ef þessir menn eiga eftir að
stjórna íslandi í framtíðinni, þá
hjálpi okkur Guð,“ sagði Vil-
mundur.
„Dæmi um það hversu óheiðar-
legur málflutningur Kjartans Jó-
hannssonar og félaga hans er, er
að þeir halda því stöðugt fram að
ég og mín ritstjórn höfum brotið
eitthvert samkomulag, með því að
neita að skrifa Alþýðublaðið eftir
helgi, nema því aðeins að við
fengjum traustsyfirlýsingu. Á
sama tíma halda þeir því fram að
Jón Baldvin hafi átt að koma inn
á blaðið eftir umrædda helgi. Nú
spyr ég: HVernig má það vera, að
þeir þykjast hafa gert samkomu-
lag við mig, um blað sem þeir
héldu að Jón Baldvin væri að fara
að ritstýra? Allir sjá að þetta eru
raktir ósannindamenn," sagði
Vilmundur Gylfason.
Vilmundur sagði, að með þessu
teldi hann útilokað, að Alþýðu-
blaðið kæmi út á laugardaginn,
eins og hann hefði vonað.
Mbl. reyndi í gærkvöldi að ná
tali af Kjartani Jóhannssyni,
formanni Alþýðuflokksins, en án
árangurs. Kjartan sagði hins veg-
ar í samtali við Mbl. fyrr um
daginn, að hann teldi traustsyfir-
lýsingu á ritstjórn Alþýðublaðs-
ins óþarfa. Þá hafði Mbl. í gær-
kvöldi samband við Bjarna P.
Magnússon, formann fram-
kvæmdastjórnar Alþýðuflokksins
og blaðstjórnar Alþýðublaðsins,
en hann vildi ekkert um málið
segja.
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
flokksins sendi í gær út tilkynn-
ingu um einróma samþykkt sína
um málefni Alþýðublaðsins. í
samþykktinni segir m.a. að með
samkomulagi, sem framkvæmda-
stjórn og ritstjórn gerðu á föstu-
daginn hafi málinu verið lokið af
hálfu framkvæmdastjórnarinnar
og fylgt hafi heit ritstjórnar, aö
málinu væri þar með einnig lokið
af hennar hálfu.
Blaðstjórn hafi svo á þriðjudag
borizt fregnir um að „ritstjórnin
neitaði að vinna sín störf í
samræmi við almenna vinnu-
skyldu og samkvæmt samkomu-
lagi frá föstudegi". Þarna hafi
verið um einhliða slit blaðamanna
á vinnusamningi að ræða, sem
framkvæmdastjóri Alþýðublaðs-
ins hafi ekki getað svarað með
öðrum hætti, en að senda viðkom-
andi bréf með tilkynningu um
viðtöku á einhliða uppsögnum og
niðurfellingu launagreiðslna.
kært eigendur myndsegul-
handaleiga til Rannsóknar-
lögreglunnar fyrir ólöglega
dreifingu mynda, sem ég hef
keypt höfundarréttinn á,“
sagði Jón Ragnarsson í Regn-
boganum, er Mbl. ræddi þetta
mái við hann.
„Þetta er í mörgum tilvikum
svo að jafnvel þúsundir manna
hafa séð myndirnar áður en ég
tek þær til sýninga og það er
auðvitað augljóst hvert fjár-
hagslegt tap ég hlýt að bera
vegna þessa, það skiptir hundr-
uðum þúsunda fyrir hverja
mynd. Hér er vissulega um
stórfellt svikamál að ræða, bæði
ólöglegur innflutningur og eins
að dreift er og fjölfaldað efni af
spólum, sem ekki er leyfi til, þó
að í mörgum tilfellum sé þó um
það að ræða að dreifingaraðilar
hafi keypt sýningarrétt af ein-
hverjum þeirra mynda, sem hér
eru í gangi.
Þó ég hafi riðið á vaðið í þessu
máli, er ég ekki einn um það, hin
kvikmyndahúsin eru með þessi
mál í athugun og þess verður
ekki langt að bíða að ótvíræður
höfundarréttur okkar verði við-
urkenndur, svo og lög og reglur
um meðferð efnis myndsegul-
bandsspóla," sagði Jón að lokum.
Bók í minningu
Magnúsar
Kjartanssonar
„ÞETTA er alveg á undirbúnings-
stigi, en það hefur verið tekin
ákvörðun um að út verði gefin
sérstök bók í minningu Magnúsar
Kjartanssonar og verður farið i það
á næstu mánuðum að safna efni I
hana," sagði Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins i sam-
tali við Morgunblaðið i gær. „Það
hefur hinsvegar ekki verið ákveðið
nákvæmlega með hvaða hætti efnis-
val verður." sagði Svavar.
Svavar sagði að ákvörðunin um
útkomu bókarinnar væri fyrst og
fremst Alþýðubandalagsins, en einn-
ig hefði samráð verið haft við
Þjóðviljann og Mál og menningu og
gert væri ráð fyrir að útgáfan yrði
sameiginleg. Ekki sagði Svavar að
farið væri að vinna að bókinni og því
ómögulegt að spá um hvenær hún
kæmi á markað, enda hefði ákvörð-
unin ekki verið tekin fyrr en á
miðvikudag.
Útför Magnúsar Kjartans-
sonar var gerð í gær
sól, eftir Jóhannes úr Kötlum við
rússneskt þjóðlag og söng Garðar
Cortes einsöng. Á milli atriða
söng kór Internationalinn og að
lokum söng kórinn nokkur erindi
úr ljóðinu Allt eins og blómstrið
eina. Einnig lék strengjakvartett
og var hann skipaður fjórum
stúlkum. Að lokum lék organist-
inn annan sorgarmars, einnig eft-
ir Beethoven.
Á meðan á athöfninni stóð stóðu
nokkrir einstaklingar fyrir utan
kirkjuna með íslenska og rauða
fána.
ÚTFÖR Magnúsar Kjartansson-
ar fyrrverandi ráðherra og rit-
stjóra var gerð frá Dómkirkjunni
í gær að viðstöddu fjölmenni.
Flutti Þórarinn Guðnason læknir
útfararræðu og Þorsteinn ö.
Stephensen leikari las ljóð eftir
Guðmund Böðvarsson. Sr. Sigur-
jón Einarsson sóknarprestur á
Kirkjubæjarklaustri jarðsöng.
Organisti var Sigurður ísólfsson
og lék hann sorgarmars eftir
Beethoven úr 3ju sinfóníu hans.
Síðan var sungið ljóðið Er hnígur