Morgunblaðið - 07.08.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.08.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981 3 Kristján Ragnarsson, formaður LIU: „Flotann á ekki að endurnýja með gömlum skipum44 Neytendasamtökin hafa látið gera skilti, sem þau hafa stillt út i Austurstræti framan við Hressinnarskál ann. Myndin er af skiltinu, en á þvi er fólk hvatt til að ganga í samtökin. Hreindýr um 2000 talsins: 617 dýrum fleira en í fyrra SAMÞYKKT hefur verið að leyfa innflutning á fjórum togveiði- skipum frá Bretlandi og koma þau væntanlega til Akraness, Dalvikur, Garðs og Hafnarfjarð- ar á þessu ári og þvi næsta. Sjávarútvegsráðherra hafði milligöngu um kaupin á skipun- um og fóru menn á hans vegum til að skoða þau I Bretlandi og leizt vel á þau. í samtali við Morgunblaðið sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, hins vegar, að hann hefði ýmislegt að athuga við þessi skipakaup og teldi fráleitt að flytja inn átta ára gömul skip. Að þeim tima liðnum væri flest það bezta búið i skipum og komið væri að endur- nýjun á mörgum hlutum. Kartöflur frá Þykkva- bæ um miðj- an ágúst „VID vonumst til að fara að senda ykkur kartöflur til Reykjavikur svona 10. til 12. ágúst og verða það fyrstu kartöflurnar sem þangað fara i ár.“ Þetta sagði Magnús Sigur- lásson í Þykkvabæ er Morgun- blaðið hafði samband við hann. Sagði hann að þetta væru góðar kartöflur í ár, tíðin hefði verið mjög góð og útlit væri fyrir mjög góðri uppskeru enda hafa þeir ekki orðið fyrir neinu áfalli með ræktunina. í fyrra var farið að senda kartöflur til Reykja- víkur ívið seinna og vonaðist Magnús til þess að kartöflurnar í ár væru ekki síðri en þær sem komu upp í fyrra. Seiðakönn- un tafðist vegna bilana HIN ÁRLEGA seiðakönnun á veg- um Hafrannsóknastofnunarinnar hefur tafist í nokkra daga vegna smávægilegra bilana i leitartækj- um. Var áætlað að tvö skip stofnunarinnar færu út á þriðju- dag en vegna bilunarinnar kemst ekki annað skipið, Hafþór, fyrr en i fyrsta lagi klukkan tvö i dag og hitt. Árni, litlu seinna. Að sögn Hjálmars Vilhjálmsson- ar fiskifræðings er þetta árleg könnun á fjölda og útbreiðslu fiskseiða og eru það aðallega þorsk- ur, ýsa, loðna og karfi sem litið verður á. Sagði Hjálmar verka- skiptinguna vera svipaða og vant væri. Arni væri á íslandssvæðinu og Hafþór þá í Grænlandshafi, við Austur-Grænland og á svæðinu milli Vestfjarða og Grænlands. Þetta er að sögn Hjálmars þriggja til fjögurra vikna verk. Þessum rannsóknum er ætlað að gefa fyrstu vísbendingu um styrkleika árganga þessara tegunda sem nefndar hafa verið hér að framan. Rannsóknir þessar hafa verið gerðar í nokkuð mörg ár og hafa komið nokkuð vel út. Á síðasta ári var lítið af karfaseiðum en þorskur og ýsa í meðallagi. Loðnan var í slöku meðallagi. Niðurstaða úr þessum leiðangri er að vænta, að sögn Hjálmars, í byrjun september. „Auk viðhaldsins, sem orðið er talsvert á þetta gömlum skipum, má nefna, að aðstaða fyrir áhöfn- ina og til vinnu um borð er ekki eins og gengur og gerist í nýrri skipum,“ sagði Kristján Ragnars- son. „Kaupin eru meðal annars réttlætt með úreldingu skipa, en úreldingarsjóðurinn er fjármagn- aður af útgerðarmönnum. Ég tel ekki, að þessi sjóður eigi að vera hvati til kaupa á gömlum skipum. Flotann á ekki að endurnýja með gömlum skipum. Endurnýj- unin á að vera með nýsmíði og menn eiga að geta fengið skip smíðuð þar sem það er hagkvæm- ast hverju sinni, en ekki að vera beittir þvingunum svo þeir láti smíða innanlands á verði, sem útgerðin getur engan veginn stað- ið undir. Við eigum meira en nóg af skipum til að stunda þær veiðar, sem leyfðar eru, eins og sést á því að alltaf aukast veiðitakmarkan- irnar. í sumar hefur það sýnt sig, að framboð af fiski hefur verið svo mikið, að siglt hefur verið með verulegt magn til Færeyja. Þetta tel ég afar óheppilegt því á þennan hátt fer fiskurinn til keppinauta okkar á t.d. freðfisk og saltfisk- mörkuðum," sagði Kristján Ragn- arsson. I HREINDÝRATALNINGU sem gerð var á hálendi Austurlands þann 11. júli siðastliðinn sáust 1941 dýr og er það 617 dýrum fleira en i fyrra. í skýrslu sem gerð hefur verið um talninguna kemur fram að i dýrahópnum voru 533 kálfar, 1342 kýr og vetrungar og 46 tarfar. Dreifing dýranna um hálendið er svipuð og verið hefur og er megin- þorri dýranna á Snæfellssvæðinu. í ár er leyft að veiða allt að 615 Leyft að veiða 615 dýr dýr og er veiði leyfð á tímabilinu 1. ágúst til 20. september, en mennta- málaráðuneytið getur leyft hrein- dýraveiðar á öðrum árstíma, mæli sérstakar ástæður með því. í skýrsl- unni kemur fram að mesta aukning- in á hreindýrum er í Kringilsárrana og er talið að þau dýr séu flest komin af Fljótsdalsheiði. Fjölgun dýra á Vesturöræfum er talin stafa af flutningi dýra og þá einkum af svæðunum austan Kelduár. Auk þeirra dýra sem fram komu í talningunni fréttist af um 30 dýrum á Jökuldalsheiði og 7 á Fljótsdals- heiði og voru flest dýrin tarfar. Því er álitið að lágmarksfjöldi hreindýra norðan og vestan Kelduár og Lagar- fljóts sé um 2000 dýr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.