Morgunblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 5
íslending- ar á orku- ráðstefnu í Nairobi DAGANA 10.-21. ágúst næstkomandi verður haldin ráðstefna í Nairobi í Kenya um nýjar og endurnýjanlegar orkulindir. Sameinuðu þjóðirnar standa að ráðstefnunni og er tilgang- ur hennar að stuðla að al- þjóðasamstarfi varðandi nýt- ingu nýrra og varanlegra orkulinda til að mæta síauk- inni orkunotkun mannkynsins, einkum í þróunarríkjunum. Ráðstefnunni er ætlað að fjalla um fjórtán tegundir orkugjafa, sólarorku, jarðhita, orku fallvatna, virkjun sjávar- falla, kol, mó o.fl. Af íslands hálfu sækja ráðstefnuna Hjörleifur Gutt- ormsson, iðnaðarráðherra, sem verður formaður sendi- nefndarinnar, Tómas Á. Tóm- asson, fastafulltrúi Islands hjá Sameinuðu þjóðunum, sem verður varaformaður sendi- nefndarinnar, Jakob Björns- son, orkumálastjóri, og dr. Guðmundur Pálmason, for- stöðumaður jarðhitadeildar Orkustofnunar. Auk þess mun Andrés Svan- björnsson, framkvæmdastjóri Virkis hf., sækja ráðstefnuna sem áheyrnarfulltrúi, segir í frétt frá utanríkisráðuneyt- inu. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981 5 Akureyri. 2. ágúst. Munkaþverárkirkju voru afhentir tveir forkunnarfagr- ir altariskertastjakar við messu í dag. Andvirði annars gaf Auður Kristjánsdóttir Hólm fyrir andlát sitt (d. 1976) til minningar um for- eldra sína, Fanneyju Frið- riksdóttur (d. 1955) og Krist- ján Ilelga Benjaminsson (d. 1956). sem bjuggu lengst á Ytri-Tjörnum í Ongulsstaða- hreppi. Hinn stjakann gáfu eiginmaður Auðar, Adolf Leonard Hólm. dýralæknir, og börn þeirra, Sylvia Flor- ence, Oswald Benjamín. Ro- bert Leonard Kristján og Roy Frá ættingjamótinu í Freyvangi. Munkaþverárkirkja fær góðar gjafir Herluf, til minningar um Auði. I»au bjuggu i Gimli. Manitoba. Adolf og hjónin Sylvia Flor- ence og dr. David Frame Simp- son, sem eiga heima í Detroit, voru viðstödd guðsþjónustuna í dag og afhentu gjafirnar, en bróðir Auðar heitinnar, sr. Bjartmar Kristjánsson, veitti þeim viðtöku fyrir hönd kirkju og safnaðar og færði gefendum þakkir. — Þess má geta, að meðhjálparinn, Baldur Krist- jánsson, bóndi á Ytri-Tjörn- um, og organistinn, Hrund Kristjánsdóttir, eru einnig börn Fanneyjar og Kristjáns. Stjakarnir eru einarma, smíðaðir úr koparblöndu af Finnboga Theódórssyni (Kristjánssonar frá Ytri- Tjörnum), en teiknaðir af Hrefnu Magnúsdóttur, eigin- konu sr. Bjartmars. Gísli Loftsson, leturgrafari, gróf áletranir, en þær eru grafnar með höfðaletri. Á öðrum stjak- anum stendur: „Ljós skal skína fram úr myrkri", en á hinum: „Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins."" Að messu lokinni söfnuðust afkomendur og venslafólk Fanneyjar og Kristjáns á Ytri-Tjörnum saman í félags- heimilinu Freyvangi til kaffi- drykkju og annars fagnaðar. Þar flutti Kristján Baldursson, tæknifræðingur, minni afa síns og ömmu og auk þess var mikill almennur söngur undir stjórn og með undirleik þeirra Hrundar og Sylviu. Fanney Friðriksdóttir og Kristján Helgi Benjamínsson eignuðust 12 börn, 6 dætur og 6 syni. Afkomendur þeirra munu nú vera orðnir 155, en ekki gátu þeir nærri allir verið viðstaddir ættingjamótið. Sv. P. Frá afhendingu kertastjak- anna. Frá v.: Adolf Leonard Ilólm. Sylvia Florence. dóttir hans. dr. I)avid Frame Simp- son. maður Sylviu. og sr. Bjart- mar Kristjánsson. Götumynd frá Dublin en þar er öilu friösamlegra en i Belfast. Hljóðvarp kl. 20.05 Irland fyrr og nú „írland fyrr og nú“ heitir söguskýringarþáttur f umsjón Ilerdisar Tryggvadóttur. Að þessu sinni les hún erindi, sem hún hefur þýtt, eftir J. Meldun D'Arcy lektor í enskum bók- menntum við Háskóla íslands. Ilann hefur verið búsettur á ísiandi frá árinu 1976. Herdís sagði að sagan hefðist árið 1171 með íhlutun Englend- inga á írlandi og síðan eru sam- skipti íra og Englendinga rakin fram á þennan dag og að gengið hefði á ýmsu síðan. Þá sagði hún að þessi mál væru sérstaklega til umræðu nú vegna hungurverkfall- anna. „Hatrið á milli mótmælenda og kaþólikka er orðið margra alda gamait og rótgróið í fólkinu og eru deilur nú ekki fyrst og fremst trúarlegar heldur efnahagslegar. Mótmælendur eru um 65% íbúa í Ulster-héraði (Norður-írlandi) og hafa tögl og haldir þar. Kaþólskur maður er sama og efnalítill maður þar,“ sagði Herdís. Baráttan stendur fyrst og fremst um að kaþólikkar vilja sameina Ulster við Irska lýðveldið, en hinir vilja halda óbreyttu sambandi við Bretland. Ég vil endilega taka fram að D’Arcy segir, að það sé á hans ábyrgð, sem hann segir síðast í erindinu um þetta ástand eins og það er nú,“ sagði Herdís Tryggvadóttir að lokum. Hljóðvarp kl. 11.00 Sögur af sterkum manni „Ég man það enn“ hcitir þátt- ur f útvarpinu sem hefst klukkan 11.00 og er í sumjón Skeggja Ásbjarnarsonar. Meðai efnis i þættinum að þessu sinni eru minningarbrot frá hernskudög- um Magnúsar Einarssonar. kenn- ara. Að sögn Skeggja fjallar Magnús einkum um sterkan mann sem ke'' Geira sem Magnús kynntist á unglingsárum sínum og lýsir Magnús aðdáun sinni á honum sem ræður m.a. við þungan seðja sem strákarnir geta ekki bifað. Þá segir frá því er verið var að taka saman hey. í teignum er mikill steinn og strákarnir fara að tala um það hvort Geiri geti nú ekki fært steininn, en hann neitar því. Svo er það í kaffihiéi að einn strákanna hendir sér upp í galta, sem ekki var fuilgerður. Hann rekur upp voðalegan skræk því hann lendir á steininum, sem Geiri hefur verið búinn að kasta í laumi upp í galtann, sem var í axlarhæð. Ymsar fleiri sögur fara af Geira, að sögn Skeggja, og þá verður einnig ýmislegt annað efni í þættinum. Þaö stendur í lögum, það stendur hér. Að þeir eigi að hafa vit fyrir mér. Þeir slefa út ræðum, þeir jarma í kór. Þeir segja að ég verði slæmur af FRÆBBBLARNIR Ný 4-laga plata FÁLKINN* Suðurlandsbraut 8, sími 84670, Laugavegi 24, sími 18670, Austurveri, sími 33360

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.