Morgunblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981
9
Kristín HeÍKadóttir og Gunnar Þorsteinsson i hlutverkum sínum i
leiknum „I>e)?iðu karl“.
Sumarrevían í
Rvík um helgina
UM NÆSTU helgi xefst Reykvik-
ingum færi á að sjá sumarreviu
sem sýnd hefur verið i Sjálfstæð-
ishúsinu á Akureyri undanfarin
föstudaKskvöld. Verður revían
sýnd á Ilótel Sögu á laugardags-
og sunnudagskvöld og það eru
siðustu sýningarnar í sumar.
að sögn forráðamanna revíunn-
ar hafa undirtektir verið mjög
góðar, enda hefur verkið ýmislegt
nýstárlegt upp á að bjóða og víða
komið við í glensinu. Að sögn er þó
mest „baunað" á ferðaskrifstof-
urnar og rekstur þeirra og þá líka
sólarlandaferðir íslendinga. „Er
það mál manna að persónur þær
sem koma fram í revíunni séu ekki
með öllu ókunnar og margur hefur
séð sjálfan sig á sviðinu," sagði
einn forráðamanna.
Aðeins verður um þessar tvær
sýningar að ræða í Reykjavík.
Gigtarsjúkdóm-
ar algengasta
orsök fötlunar
Á FIMMTÁNDA alþjóðaþingi
gigtarfélaga. sem haldið var i
Paris dagana 21.—27. júni sl.
kom m.a. fram að gigtsjúkdómar
eru algengasta orsök fötlunar,
valda flestum fjarvistum frá
vinnu og meiri þjáningu en
nokkrir aðrir sjúkdómar, að þvi
er segir í fréttatilkynningu frá
Gigtarfélagi íslands.
Á þinginu voru saman komnir
nær 4500 fulltrúar frá flestum
löndum heima. Meiri hluti þing-
fulltrúa voru læknar og vísinda-
menn, en þeir hafa flestir með sér
Sumarferð
Nessóknar
Á VEGUM sóknarnefndar
Nessóknar verður farin hóp-
ferð austur undir Eyjafjöll á
sunnudag.
Sr. Halldór Gunnarsson í
Holti mun taka á móti hópn-
um í Ásólfsstaðakirkju og
fylgja honum að Skógum, og
segja frá ýmsu fróðlegu á
leiðinni, örnefnum og sögu.
í Skógum mun Þórður Tóm-
asson safnvörður sýna og
segja frá byggðasafninu. Að
lokinni sameiginlegri kaffi-
drykkju í boði sóknarnefndar
Neskirkju verður ekið um
Fljótshlíð til baka til Reykja-
víkur.
Sóknarbörn Nessóknar hafa
nokkur undanfarin ár farið í
hópferðir sem þessa víða um
landið.
félög í sínum heimalöndum. Félög
gigtsjúkra eru aftur á móti
einkum starfandi í hinum þróaðri
lýðræðislöndum í Evrópu og
Norður-Ameríku og hafa þar víða
náð mjög góðum árangri.
Til dæmis um umfang ráðstefn-
unnar má nefna, að um það bil
1900 skýrslur um rannsóknir voru
lagðar fyrir þingið á hinum ýmsu
sviðum gigtrannsókna, gigtlækn-
inga og félagsmála gigtsjúkra.
Þingið sóttu sex íslenskir læknar,
lyfjafræðingur og fulltrúi Gigtar-
félags íslands.
Fjórir íslendingar, Ingvar
Teitsson, Alfreð Árnason, Helgi
Valdimarsson og Jón Þorsteinsson
lögðu fyrir þingið skýrslu um
rannsóknir á 147 íslendingum
sömu ættar með háa tíðni gigtar.
Rannsóknirnar fóru fram á Lyf-
lækningadeild Landspitalans,
Blóðbankanum og Dept. of
Immunology, St. Mary’s Hosp.
Medical School, London.
Frummælandi var Ingvar
Teitsson og kom fram í máli hans
að rannsóknum þessum væri ekki
lokið, vegna skorts á rannsóknar-
aðstöðu á íslandi. Mál hans fékk
góðar undirtektir og rannsóknir
þessar taldar marka áður ókunna
stefnu á sviði gigtrannsókna.
Menn voru einnig sammála um
að gigtsjúkdómar væru ákaflega
vanræktir í hinum opinberu heil-
brigðiskerfum.
Alþjóðasamband gigtarfélaga
hefur nú hafið stóraukið samstarf
við Alþjóða heilbrigðisstofnunina
undir kjörorðinu „Heilsa handa
öllum árið 2000“. Stærstu hindr-
unina á vegi þessa starfs telja
menn vera vanþekkingu stjórn-
valda, heilbrigðisstétta og al-
mennings á gigtsjúkdómum og
mögulegum lækningum.
Hafnarfjörður
Til sölu
Nýkomiö til sölu
góð og vel um gengin 3ja herb.
íbúð í fjölbýlishúsi við Slétta-
hraun.
Eldra einbýlishús
hæö, kjallari og ris við Suöur-
götu.
2ja herb. íbúð
á 6. hæö í fjölbýlishúsi við
Miðvang.
Árni Grétar Finnsson hrl.
Strandgötu 25, Hafnarf
simi 51 500
ea icSiic^) (S) |S»S A A iSnS iSi A A A Aé
* 26933 1
VERSLUNAR- $
T HÚSNÆÐI r j
Vorum að fá í sölu verslun- {
arhúsnæöi í austurbænum. í
Um er aö ræöa 67 fm á 2
S hæöum, lager og verslun í {
nýrri verslunarmiöstöö í j.
íbúðarhverfi. Teikningar og j
allar upplýsingar á skrif- {
stofu okkar. . e
VANTAR {
2ja herbergja íbúö í Breiö- ^
holti og Hraunbæ. {
VANTAR %
3ja herbergja íbúð í Kjarr- A
hólma. £
VANTAR {
4ra herbergja íbúö í lyftu- J
húsi í Heimunum. {
VANTAR i
4ra herbergja íbúö í Breiö- Æ|
holti og Hraunbæ. *
VANTAR |
Sérhæö í austurbæ. A
CTEign3 . . I
BSmarkaÖurinn *
Hafnarstræti 20. (Nýja hús- *
inu viö Lækjartorg) ^
Sími 26933. 5 línur. A
Lögmenn jjj?
Jón Magnússon hdl., &
Siguröur Sigurjónsson hdl. &
&
K16688
Seljahverfi
Fokhelt einbýlishús, sem er
tvær hæöir og kjallari auk
bílskúrs. Teikningar á skrif-
stofu.
Hamraborg
Góð 3ja herb. ca 90 ferm. íbúð
á 1. hæð.
Sogavegur
3ja herb. efri hæð í tvíbýli. Allt
nýstandsett.
Baldursgata
2ja herb. íbúð á 2. hæð.
Mosgerði
3ja herb. 70 ferm. risíbúö.
Sumarbústaðarland
í næsta nágrenni Reykjavíkur.
Stærð um 1 ha.
Eyjabakki —
makaskipti
Góð 4ra herb. íbúö á 1. hæð, í
skiptum fyrir 3ja herb. íbúð
með herb. í kjallara.
Eicrtdv
UITIBODID A
LAUGAVEGI 87, S: 13837 16688
Helgi Árnasson sími 73259.
Heimir Lárusson
Ingólfur Hjartarson hdl.
Asgeir Thoroddsen hdl.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMT ÞÁ ERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
1#
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
26600
ALLIR ÞURFA ÞAK
YFIR HÖFUÐIÐ
DUFNAHOLAR
2ja herb. ca. 63 fm íbúö á 5.
hæð í háhýsi. Bílskúr tylgir. Ný
teppi. Vestur svalir. Verð: 450
þús.
EFSTALAND
2ja herb. íbúð á jarðhæð í
blokk. Tvöf. verksm. gler. Sér
lóð. Verð: 400 þús.
HRAUNBÆR
4ra herb. endaíbúð á jarðhæð
ca. 100 fm. Mjög glæsileg íbúö.
Tvöf. verksm. gler í góðu lagi.
Suöur svalir. Góðar innrétt-
ingar. Verð: 580 þús.
HRAUNBÆR
Elnstaklingsibúö á jaröhæð ca.
32 fm. Tvöf. verksm. gler. Ný
teppi, Lóð frág. Verð: 260 þús.
LANGHOLTSVEGUR
3ja herb. ca. 80 ferm. kjallara-
íbúð í þríbýlishúsi. Sér hiti. Sér
inngangur. Verð kr. 450 þús.
KAPLASKJÓLSVEGUR
3ja herb. ca. 85 fm íbúð á 2.
hæð í blokk. Ágæt (búð. Dan-
foss hiti. Lagt fyrir þvottavél í
eldhúsi. Verð: 530 þús.
MIÐVANGUR
2ja herb. ca. 65 fm íbúð á 3.
hæð í háhýsi. Ágætar innrétt-
ingar. Stórar suður svalir. Tvöf.
verksm. gler. Verð: 370 þús.
ÞVERBREKKA KÓP.
5—6 herb. ca. 120 fm íbúö á 5.
hæð í háhýsi. Mikið útsýni.
Tvennar svalir. Þvottaherb. og
búr í íbúöinni. Verö: 650 þús.
Fasteignaþ/ónusta.n
Austurstræti 17, s. 2CSOO.
Ragnar Tómasson hdl
Til sölu
3ja herb. íbúö á jarðhæð við
Óðinsgötu. Allar nánari upplýs-
ingar gefur
Sigurður Georgsson, Hdl.,
Lágmúla 7, sími 32110
FASTEIGNAVAL
Garðastræti 45
Símar 22911-19255.
Vesturbær — 4ra herb.
Vorum aö fá í sölu skemmtilega 4ra
herb. íbúö á hæð í góöu steinhúsi viö
Holtsgötu Eitt herb. sér. Vönduö og vel
meö farin eign.
Vesturbær — 3ja herb.
Snotur 3ja herb. íbúö á haBÖ í Vestur-
bænum.
Einstaklingsíbúð
Vorum aó fá í sölu vandaóa einstakl-
ingsíbúó á jaröhæö viö Hraunbæ. Laus
1. sept. nk.
Lítíð einbýlishús
Steinhús 2x45 fm. jaröhæö og efrihæö
á góöum staö í gamla bænum mjög
hentugt sem skrifstofuhúsnæöi. þarfn-
ast standsetningar
2—3ja herb. íbúðir
2 3ja herb. íbúóir í sama húsi (steinhús)
viö Hverfisgötu. Eignunum er vel viö
haldió.
í smíðum
Skemmtilegt einbýli í smíöum á góöum
staö, getur verió sér íbúó á jaröhasö
Fokhelt nú þegar
Okkur vantar tilfinnanlega 3ja—5
herb. ibúðir nú þegar einnig aörar
eignir.
Ath
ávallt er mikió um makaskipti hjá okkur.
Jón Arason lögmaöur.
Málflutnings- og fasteignasala,
heimasími sölustjóra, 45809.
Einbýlishús til sölu
á Hellu
Til sölu er einbýlishús meö bílskúr á Hellu.
Upplýsingar gefnar í síma 33992.
“Atvinnurekstr--
arhúsnæði
Lögfræðingar, arkitektar,
heildsalar o.fl.
Ný standsett gott 156 fm húsnæði á jarðhæð í steinhúsi í
Hafnarfiröi. Hægt að skipta húsnæðinu í tvennt.
Iðnaðarhús og
byggingarréttur
Til sölu húseign við Brautarholt í Reykjavík. Húsið er tvær hæðir og
ris, 210 fm að grunnfl. auk 66 fm viðbyggingar við 1. hæð á baklóð.
Húsiö þarfnast standsetningar. Byggingarleyfi fylgir fyrir hús. sem
má a.m.k. vera tvær hæðir um 300 fm að grfl. Eignin er laus til
afnota nú þegar. Fæst keypt án verulegrar útb. miöaö viö
verðtryggðar eftirstöðvar. Sérlega hentugt fyrir fyrirtæki í vexti eða
fyrir iönaðarmenn sem vilja skapa sér atvinnu við standsetningu og
nýbyggingu til endursölu.
Bústaðavegur
5 herb. ca. 100 fm efri hæð í tvíbýlishúsi (parhúsi). Sérlega
snyrtileg, góð íbúð meö sér inngangi og hita. Övenju falleg lóð.
Verð: 680 þús. íbúðin getur losnaö fljótlega.
Makaskipti
Sérhæð - Einbýli
Vantar gott, nýlegt ca. 160—180 fm einbýlishús eða raðhús í
Hafnarfirði eða Garðabæ í skiptum fyrir glæsilega 150 fm sérhæö
(efri) í tvíbýlishúsi í Noröurbænum í Hafnarfirði.
Fasteignaþjónustan,
Austurstræti 17,
Sími 26600. Ragnar Tomasson, logmaöur.