Morgunblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981
31
r
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum
Oddný setti nýtt
ísl.-met í 100 m
ODDNÝ Árnadóttir úr ÍR setti
nýtt íslandsmet í 100 metra
hlaupi á meistaramóti íslands i
Kaerkvöldi. Tími hennar var 12.22
sek. í úrslitahlaupinu sigraði
Oddný og hljóp þá á 12.18 sek. en
meðvindur var of mikill. Met
Oddnýjar miðast við rafmagns-
timatöku. Ingunn Einarsdóttir á
best 11,8 sek. á handtimatöku.
Ágætis árangur náðist á mótinu í
gærkvöldi. Hjörtur Gislason náði
sinum besta tíma í 110 m grinda-
hlaupi. 14.56. Timi hans er betri
en Islandsmetið í greininni en
fæst ekki staðfest þar sem með-
vindur var of mikill. Sigurður
Sigurðsson var mjög nálægt því
að fara yfir 5,25 metra i stang-
arstökki og setja nýtt met. Sér i
lagi var þriðja tilraun hans góð.
t>á felldi hann naumlega.
Mikil keppni var í 100 metra
hlaupi karla. Vilmundur Vil-
hjálmsson KR hafði forystuna í
hiaupinu þar til á síðasta metran-
ÚRSLIT á meistaramóti íslands í
frjálsum íþróttum í gærkvöldi
urðu þessi:
Kringlukast karla: m
Erlendur Valdimarsson ÍR 54,98
Þráinn Hafsteinsson ÍR 46,94
Helgi Þ. Helgason USAH 46,24
1500 m hlaup kvenna:
Guðrún Karlsdóttir UBK 4,50,17
um. Þá skaust Sigurður Sigurðs-
son framúr honum á marklínunni.
Oddur Sigurðsson treysti sér ekki
til að hlaupa vegna meiðsla.
Gunnar Páll sigraði í 1500 metra
hlaupinu, hljóp létt og vel. Lengi
vel leit út fyrir að Sigurður P.
Sigmundsson FH ætlaði að sigra,
hann tók mikinn sprett þegar einn
hringur var eftir og náði 20 metra
forystu. En hann ætlaði sér um of
og hafnaði í fjórða sæti. Annar í
hlaupinu varð Magnús Haraldsson
FH á sínum besta tíma, 4:05,44.
Magnús er í mikilli framför og
hefur bætt sig mjög í sumar. Það
er greinilegt á árangri frjáls-
íþróttafólksins á mótinu að mikil
breidd og gróska er nú í frjálsum
íþróttum um þessar mundir.
Næsta stórmót verða Reykjavík-
urleikarnir og þar verður væntan-
lega um skemmtilega keppni að
ræða. Meistaramótinu lýkur í
kvöld. — ÞR.
Laufey Kristjánsd. HSK 5,08,94
Sigurbjörg Karlsd. UMSE 5,13,96
400 m hlaup kvenna: sek.
Sigríður Kjartansdóttir KA 56,12
Unnur Stefánsdóttir HSK 57,44
Hrönn Guðmundsdóttir UBK 58,43
400 m hlaup karla:
Egill Eiðsson UÍA 49,67
Ólafur Óskarsson HSK 51,94
íslandsmótið í útihand-
knattleik hefst í kvöld
íslandsmeistaramót í hand-
knattleik utanhúss 1981, fer
fram á grasvöllum á milli sund-
laugarinnar í Laugardal og
Laugardalsvallar. Verða þar 2 til
3 vellir sem hægt er að nota í
einu. Vegna þess hve erfitt er að
fá tíma fyrir mótið, verður það
nú að þessu sinni iátið fara fram
um eina helgi og því verður
keppt á fieiri en einum velli í
einu og þátttökuliðunum skipt i
riðla.
Mótið hefst föstudaginn 7. ág-
úst nk. kl. 18.00. Þá leika i mfl.
Hópferð til
Akureyrar
Valsferð á Akureyri
Stuðmenn Vals fara frá Arnar-
flugi (bak við Loftleiðahótel) í dag
kl. 17.00 á leik Vals og KA.
Sætapantanir í síma 29577.
Stuðmenn
kvenna FH og Fram og síðan í
mfl. karla Þróttur gegn ÍR og
FH gegn Val.
í meistarafl. karla eru þátt-
töku liðin 7 og er þeim skipt í 2
riðla.
A-riðill B-riðill
No. 1 Þróttur No. 1 Fylkir
no. 2 FH. no. 2 HK
no. 3 Valur no. 3 KR
no. 4 ÍR.
í meistarafl. kvenna eru þátt-
tökuliðin 5 og keppa i einum
riðli.
Mfl. kvenna
No. 1 Þróttur
no. 2 Víkingur
no. 3 FH
no. 4 Fram
no. 5 ÍR
í 2. fl. kvenna eru þátttökuliðin
5 og keppa í einum riðli.
2. fl. kvenna
No. 1 Reynir Sandgerði
no. 2 Víkingur
no. 3 FH
no. 4 Fram
no. 5 ÍR
Handknattleiksskóli
Hauka er hafinn
Handknattleiksskóli Hauka i
Hafnarfirði tekur nú til starfa á
ný. Það var í tilefni af barnaár-
inu 1979, að Haukar efndu til
handknattleiksskóla fyrir börn á
aldrinum 6 til 11 ára.
Leikið var á mini-völlum með
mini-boltum og mörkin sem not-
uð voru við hæfi barna á þessum
aldri.
Mæltist þetta framtak Hauk-
anna vel fyrir hjá þeim 100
krökkum sem þátt tóku í skólan-
um.
Af sérstökum ástæðum varð
þvi ekki við komið að halda
skólanum áfram siðastliðið
sumar. en nú er þráðurinn tekinn
upp aftur þar sem frá var horfið.
Kennt verður í og við
Haukahúsið á sömu völlum og
síðast. Lokadaginn eru foreldrar
og aðrir venslamenn boðnir vel-
komnir á svæðið til að fylgjast
með skólaslitum, en þá fer fram
keppni og afhending verðlauna.
Ollum þátttakendum sem ljúka
skólanum verða afhent viður-
kenningarskjöl i lokahófi sem
fram fer i Haukahúsinu, og
verður þar ýmislegt góðgæti á
boðstólum.
Allir krakkar á aldrinum 6 til
11 ára eru velkomnir i hand-
knattleiksskóla Ilauka og for-
eldrum er bent á að veittur er
sérstakur systkinaafsláttur frá
þátttökugjaldi sem er aðeins 80
kr. á barn.
Ómar Jóhannsson skoraði sigur-
mark ÍBV beint úr hornspyrnu.
Langstökk kvenna:
Bryndís Hólm ÍR 5,80
Svava Grönfeldt UMSB 5,40
Ragna Erlingsdóttir HSÞ 5,34
Þristökk karla: m
Friðrik Þór Óskarsson ÍR 14,36
Kári Jónsson HSK 13,50
Jason ívarsson HSK 13,13
110 m grindahlaup: sek.
Hjörtur Gísiason KR 14,56
Gísli Sigurðsson UMSS 15,11
Stefán Hallgrímsson KR 15,47
Sleggjukast: m
Erlendur Valdimarsson ÍR 49,38
Jón Ö. Þormóðsson 40,42
Stefán Jóhannsson Á 35,64
Stangarstökk: m
Sigurður T. Sigurðsson KR 4,80
Kristján Gissurarson KR 4,60
Gísli Sigurðsson UMSS 4,05
100 m hlaup karla: sek.
Sigurður Sigurðsson Á 10,93
Vilmundur Vilhjálmsson 10,96
Aðalsteinn Bernharðss. UMSE 11,12
1500 m hlaup karla: min.
Gunnar Páll Jóakimsson ÍR 4,04,40
Magnús Haraldsson FH 4,05,44
Guðmundur Sigurðss. UMSE 4,07,08
100 m hlaup kvenna: sek.
Oddný Árnadóttir ÍR 12,18
Geirlaug Geirlaugsdóttir Á 12,27
Valdís Hallgrímsdóttir KA 12,36
Fflfilsar (brúttir
IBV slapp
fyrir liorn
- sigraði Þrótt 1—0 í gærkvöldi
ÞAð VERðA lið ÍBV og Fram
sem mætast í úrslitaleik bikar-
keppni KSÍ í ár. ÍBV sigraði lið
Þróttar 1—0 á Laugardalsvellin-
um í gærkvöldi í 4 liða úrslitun-
um.
Það var Ómar Jóhannsson sem
skoraði sigurmark leiksins. Á 12.
mínútu fyrri hálfleiks fengu Eyja-
menn hornspyrnu. Ómar fram-
kvæmdi spyrnuna og spyrnti fast
og vel fyrir markið. Mikiil snún-
ingur var á boltanum og skrúfaði
hann sig í markhornið nær, án
þess að nokkur leikmaður kæmi
við hann. Rétt mínútu síðar átti
Sigurlás Þorleifsson mjög gott
marktækifæri, en gott skot hans
var vel varið. Besta marktækifæri
Þróttar í síðari hálfleik kom á 33.
mínútu. Baldur Hannesson braust
í gegn og náði að skjóta í dauða-
færi. Páll Pálmason var ekki á
þeim buxunum að láta skora hjá
sér. Hann gerði sér lítið fyrir og
varði meistaralega. Jafnræði var
með liðunum lengst af í fyrri
hálfleik og mikil barátta var í
leikmönnum beggja liða.
Lið Þróttar kom mjög ákveðið
til leiks í síðari hálfleik og barðist
þá af miklum dugnaði og lék oft
Sex á
Frjálsíþróttasamhand íslands
hefur valið sex unglinga til þátt-
töku í Evrópumeistaramóti ungl-
inga í frjálsiþróttum. sem fram
fer í Ilollandi eftir rúmar tvær
vikur. Sexmenningarnir eru Eg-
ill Eiðsson ÚÍA, sem keppir í 400
metra hlaupi, Kristján Harðar-
son ÚBK. sem keppir í lang-
stökki. Sigurður Einarsson A.
sem keppir í spjótkasti. Ragn-
heiður Olafsdóttir FH. sem kepp-
ir i 1500 metra hlaupi. Helga
Ilalldórsdóttir KR. sem keppir í
100 metra grindahlaupi og 200
metra hlaupi. og íris Grönfeldt
UMSB. sem keppir í spjótkasti.
Sigurður Einarsson er valinn
með þeim fyrirvara að hann verði
vel. En þrátt fyrir að vera sterkari
aðilinn allan síðari hálfleikinn
tókst liðinu ekki að jafna metin.
Má segja að heilladísirnar hafi
verið með liði IBV. Marktækifæri
Þróttara voru slík að með ólíkind-
um var hvernigjjau fóru forgörð-
um. Tækifæri IBV voru sárafá.
Besta tækifærið í síðari hálfleik
kom á 65. mínútu. Þá lék Kári
Þorleifsson laglega í gegn og náði
að skjóta góðu skoti af stuttu færi
en það var varið. Ingólfur Sveins-
son IBV fékk að sjá rauða spjaldið
á 74. mínútu og var vikið af
leikvelli. Eftir það léku Eyjamenn
einum færri. Pressa Þróttar var
mjög mikil í lok leiksins, en allt
kom fyrir ekki. Á 43. mínútu
leiksins fékk Bjarni Harðarson
Þrótti boltann óvaldaður svo til á
marklínunni fyrir opnu marki. En
eins og áður fór tækifærið for-
görðum. Bjarni hitti ekki boltann.
Lið Þróttar lék nokkuð vel í
leiknum. Besti maður liðsins var
Ásgeir Elíasson sem lék sérlega
vel, var mjög virkur í leiknum og
mataði samherja sína stöðugt með
góðum sendingum og byggði vel
upp. Hjá ÍBV átti Páll Pálmason
góðan leik í markinu, þá var Ómar
Jóhannsson góður. —ÞR.
orðinn g<>ður af meiðslum sem
hann hefur átt við að stríða.
Fararstjórar verða Sveinn Sig-
mundsson gjaldkeri FRÍ og Ölaf-
ur Unnsteinsson.
Firmakeppni
Hauka í
knattspyrnu
HIN árlega firmakeppni Ilauka
verður haldin á Hvaleyrarholts-
velli dagana 7.. 8. og 9. ágúst
1981. Þátttökugjald er kr. 600.-.
Þátttökutilk. og upplýsingar á
Ilvaleyrarholtsvelli.
íþróttasamband fatlaðra sendir 7 börn til þátttöku í alþjóðlegu íþróttamóti fatlaðra harna. sem haldið
verður í Gateshead (Newcastle) i Bretlandi 3. —10. ágúst nk. Þar keppa þau í sundi og frjálsum íþróttum en
börnin eru úr röðum hreyfihamlaðra og þroskaheftra.
úm 30 þjóðir senda fötluð börn til þessa móts og eru þau hvaðanæva að úr heiminum.
Börnin sem fara héðan eru í fremri röð á myndinni. talið f.v.: Margrét Sna'björnsdóttir. Ásdis
Gísladóttir, Jóhann Magnússon. Guðný Ólafsdóttir. Sigurður Pétursson. Sigurður Axelsson og Gestur
Guðjónsson.
í aftari röð eru þjálfarar og fararstjórn, talið f.v.: Hlynur Guðmundsson, Ágústa Olesen og Bjarki
Bjarnason.
*****