Morgunblaðið - 07.08.1981, Qupperneq 32
4 krónur 4 krónur
eintakið eintakið
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1981
Færeyingar
eyðilögðu
færaslóðina
MÖRG undanfarin ár hafa
tveir Akranessbátar aflað vel á
handfa ri út af Reykjanesi og
hafa oft fengið 3—400 tonn af
milliufsa á um tveimur mánuð-
um. í fyrravor brá svo við. að
færeyskir handfærabátar komu
á þessi mið og hreinlega tóku
þau yfir. Urðu islenzku skipin
frá að hverfa og hefur annar
Akranessháturinn. sem stund-
aði þessar veiðar. verið seldur
frá Akranesi, en hinn er í
gagngerri klössun í sumar.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri á Akranesi, sagði
í samtali við Mbl., að þessar
veiðar hefðu verið árvissar átta
sumur og drjúg búbót fyrir
útgerðarfyrirtækin. Miðin hefðu
ekki þolað mikið, en karlarnir á
Reyni og Haraldi frá Akranesi
hefðu verið orðnir sérfræðingar
í þessum veiðum. Bátar frá
Suðurnesjum hefðu einnig verið
byrjaðir á færum þarna. Þegar
svo 12 færeysk skip komu á
þessa slóð í fyrravor dró mjög
úr afla og fór svo, að íslenzku
skipin hættu, enda þoldu miðin
ekki þennan flota. Sagði Har-
aldur, að þessi veiðiskapur yrði
varla stundaður frá Akranesi
yfir sumartímann í nánustu
framtíð.
Nýr vegur
í Mánár-
skriðum
í SUMAR hefur vinnuflokk-
ur unnið að því að leggja
nýjan veg í Mánárskriðum
um hundrað metrum neðar
en vegurinn sem nú er í
notkun.
Jón Rögnvaldsson hjá Vega-
gerð ríkisins sagði að nauð-
synlegt hefði verið að leggja
nýjan veg neðar í skriðunum
vegna þess hve núverandi veg-
ur er brattur og hve oft hann
hefur reynst erfiður yfirferðar
á vetrum í snjó og hálku.
Vegurinn var lagður svo
ofarlega í upphafi vegna þess
að ekki voru til nógu stór og
öflug tæki til þess að leggja
veginn neðar, en þar er mikið
um klappir og framkvæmdin
erfiðari.
Síidarverksmiðjur ríkisins:
Viðræður
Arnarflugs
og Iscargo
VIÐRÆÐUR hafa farið fram
milli Arnarflugs og Iscargo um
sameininKU eða kaup þess fyrr-
nefnda á þvi síöarnefnda.
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri Iscargo, staðfesti í
samtali við Mbl. í gær að slíkar
viðræður hefðu átt sér stað, en
hins vegar neitaði hann því að
slíkar viðræður hefðu einnig far-
ið fram milli Iscargo og Flug-
leiða. Kristinn sagði viðræðurnar
hafa farið fram að ósk Arnar-
flugsmanna, en „Iscargomenn
eru ekkert að selja Iscargo",
sagði Kristinn.
Greiða 4,5% uppbætur
á hráefni síðasta árs
STJÓRN Sildarverksmiðja ríkis-
ins hefur ákveðið að greiða upp-
ha-tur á allt hráefni, sem verk-
smiðjurnar keyptu á síðasta ári og
nema þa-r 4,5%. Uppbæturnar
koma ofan á skiptaverð og koma
því til skipta. Heiidarupphæðin,
scm greidd verður I upphætur,
nemur um 3 milljónum nýkróna.
að því er Jón Reynir Magnússon,
framkvæmdastjóri SR. sagði í
samtaii við Mbl. i gær.
Hann sagði, að síðasta ár hefði
rekstur sildarverksmiðjanna í
heild gengið vel, síðustu mánuði
ársins hefði orðið veruleg verð-
hækkun á mjöli og auk þess hefði
þá mánuði verið mikið gengissig.
Vegna þessa hefði verið ákveðið að
greiða uppbæturnar, en slíkt hefði
ekki verið gert áður.
Loðnuveiðar íslendinga mega
hefjast 10. ágúst, þ.e. á mánudag og
Búist við að ákvörðun loðnu-
verðs geti dregist á langinn
hafa 52 skip leyfi til loðnuveiðanna.
Fyrstu skipin halda af stað á Jan
Mayen-svæðið í dag. Loðnuverðs-
ákvörðun var vísað til Yfirnefndar
Verðlagsráðs á þriðjudag, og í
Morgunblaðinu í gær er haft eftir
Óskari Vigfússyni, formanni Sjó-
mannasambands Islands, að um
greiðslur fyrir hráefni hafi verið að
ræða undir borðið og það „þurfi að
fara fyrir dóm“. Því hafi seljendur
vísað loðnuverðsákvörðun til Yfir-
nefndar. Jón Reynir Magnússon
var spurður um þetta mál og sagði
hann það almennt hafa verið vitað,
að um tíma síðastliðinn vetur,
greiddu nokkrar verksmiðjur
hærra verð en lágmarksverð Verð-
lagsráðs gerði ráð fyrir.
Líklegt að síldarkvótinn
verði 15% minni en í fyrra
Hann sagði, að þannig hefði SR
greitt 10% fram yfir lágmarks-
verðið um tíma og hefðu 3 skip nýtt
sér þetta boð. Jón sagðist gizka á,
að 10% hefðu þýtt 35 krónur
aukalega fyrir hvert tonn að með-
altali. Morgunblaðinu er kunnugt
um, að verksmiðjan á Eskifirði og
verksmiðja Isbjarnarins á Seyðis-
firði buðu 30 krónur ofan á hvert
tonn af loönu, sem landað var hjá
þeim fyrirtækjum.
Jón Reynir Magnússon sagðist
hafa litið svo á, að þetta verð fyrir
loðnuna hefði átt að koma tii
skipta. Ef svo hefði ekki verið gert
þá væri við aðra að sakast en SR.
Einn fundur hefur verið haldinn
í Yfirnefnd Verðlagsráðs um loðnu-
verðið, sem á að gilda frá byrjun
haustvertíðar. Þar er oddamaður
Bolli Rollason, Ingólfur Ingólfsson
og Páll Guðmundsson eru fulltrúar
seljenda, en þeir Jónas Jónsson og
Guðmundur Kr. Jónsson fulltrúar
kaupenda. Á fyrsta fundinum var
rætt um stöðu mála og beðið er
útreikninga Þjóðhagsstofnunar.
Jón Reynir sagðist allt eins búast
við, að verðákvörðunin drægist á
langinn. „Það kæmi mér ekki á
óvart þó þetta yrði mikið þref og
erfið fæðing," sagði Jón Reynir.
Er hann var spurður hvers
vegna, sagði hann helztu ástæðurn-
ar vera þær, að nú væri ekkert fé
til í Verðjöfnunarsjóði til að
styrkja þessa vinnslu og verð á
mjöli og lýsi væri nú talsvert lægra
í dollurum en var í byrjun ársins.
Hann sagði, að ekkert væri búið að
selja fyrirfram af lýsi, en e.t.v. um
10 þúsund tonn af mjöli. Fyrir
próteineiningu af mjöli fengjust nú
um 7,20—7,30 dollarar, en verðið
var í kringum 9 dollara um síðustu
áramót. Fyrir tonn af lýsi fást nú
um 370—380 dollarar, en í fyrra-
vetur fengust um 430 dollarar fyrir
lýsistonnið.
„LOÐNUFLOTINN er nú óum
deilanlega mjög illa settur og
stoðugt hefur sigið á ógæfuhlið-
ina og þvf finnst okkur ótækt
annað. en þessi skip hafi mögu-
lcika á síldveiðum í haust." sagði
Kristján Ragnarsson f samtali
við Morgunbiaðið. Sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur hins vegar lagt
til. að loðnuskipin svokölluðu fái
ekki ieyfi til síldveiða i haust, en
þessu hefur stjórn LÍÍI mótmælt.
Tillaga sjávarútvegsráðuneytis-
ins er þess efnis, að nótabátum, þó
ekki loðnuskipunum, verði leyft að
veiða 24.500 tonn af síld í haust, en
reknetabátar fái að veiða 18 þús-
und tonn. I fyrra veiddu loðnu-
skipin um 8 þúsund tonn af síld,
en nú er ekki gert ráð fyrir, að þau
fái leyfi til síldveiða. Samtais
mælir sjávarútvegsráðuneytið
með veiðum á 42.500 tonnum af
síld í reknet og hringnót og þýðir
það um 15% samdrátt frá kvóta
Ráðherra leggur
til að loðnubátar
fái ekki síldveiðileyfí
síðasta árs. Að auki verður eitt-
hvað magn veitt í lagnet. 'flllaga
fiskifræðinga var að 40 þúsund
tonn yrðu hámarkið á vertíðinni i
haust.
„Er loðnuvertíðin hefst nú
næstu daga leggja skipin upp með
minni kvóta en í fyrrahaust. Nú er
kvótinn 618 þúsund tonn fram á
næsta vor, en ef litið er aftur í
tímann kemur í ljós, að haust og
vetur 1978-79 veiddu loðnuskipin
rösklega eina milljón tonna. Á
þessum árum voru menn að fjár-
festa í nýjum skipum og dýrum
breytingum og þá töldu fiskifræð-
ingar, að ekki þyrfti að takamarka
veiðarnar eins og nú hefur orðið
raunin á. Því finnst okkur ótækt,
að þessi skip fái ekki að fara á
síldveiðar," sagði Kristján.
Á stjórnarfundi LÍU á þriðju-
dag var fjallað um síldveiðarnar í
haust og í samþykkt fundarins
kemur fram, að stjórn LÍÚ leggur
til, að loðnubátar fái að veiða síld
í haust. Þar sem hins vegai sé
fyrirsjáanlegt, að veiðarnar v> rði
takmarkaðar frá því sem vai í
fyrra, leggur LÍÚ til, að kvóti allra
skipa verði minnkaður um 15%
eða sem nemur samdrætti í há-
marksafla. Hins vegar verði ekki
um það að ræða, að einhverjum
bátategundum verði bannaðar
síldveiðar í haust. Tillaga þessi
var send sjávarútvegsráðuneytinu
og verður fjallað um mál þetta
næstkomandi mánudag.
Á fundi útgerðarmanna fyrir
nokkru var fjallað um tillögu þess
efnis, að kvóti verði settur á hvern
einstakan reknetabát eins og tíðk-
ast á nótabátum. Tillagan var
felld með 30 atkvæðum gegn 11.
Flugleiðir:
Tvær DC-8 í pílagrím-
flug fyrir Alsírmenn
FLUGLEIÐIR hafa gengið frá
samningum við Alsirmenn um
pílagrímaflug fyrir þá I haust,
en það hefst 9. september nk. að
sögn Sigurðar Ilelgasonar. for-
stjóra Flugleiða.
Sigurður Helgason sagði enn-
fremur, að samið hefði verið um
leigu á tveimur DC-8-þotum til
flugsins, sem mun taka um tvo
mánuði, með um tveggja vikna
hléi.
Aðspurður sagði Sigurður, að
strax 9. september myndu Flug-
leiðir geta sett eina DC-8-þotu
sína í flugið, en nauðsynlegt væri
að taka aðra á leigu til að byrja
með þar sem háannatíminn í
áætlunarfluginu væri enn ekki á
enda. Pílagrímaflugið hefst nú
um hálfum mánuöi fyrr en það
gerði á síðasta ári.
Fyrrihluti verkefnisins verður í
september og hefst eins og áður
sagði 9. september, en síðari
hlutinn verður í október. Sigurður
Helgason sagði, að mjög mikið
yrði flogið og yrði mikill fjöldi
flugliða viðriðinn þetta flug. Hins
vegar væri ekki hægt að r.egja til
um það nákvæmlega hversu
margir þeir yrðu, þar sem flug-
áætlanir lægju ekki fyrir ennþá.
Gert er ráð fyrir, að aðallega
verði flogið frá Oram í Alsír til
Jeddah í Saudi-Arabíu, en þaðan
verður fólkinu væntanlega ekið til
Mekka. Reiknað er með, að fluttir
verði a.m.k. 12—13 þúsund far-
þegar í þessum ferðum.