Morgunblaðið - 09.08.1981, Blaðsíða 3
hafi kvartað yfir lánafyrirgreiðslu, þá er
hitt staðreynd, að ullariðnaðurinn hefði
aldrei komist þangað, sem hann er í dag, ef
fjárhagsfyrigreiðslan hefði verið mjög tak-
mörkuð, en betur má ef duga skal.“
Fleiri þættir spila inn í velgengni ullar-
iðnaðarins eins og viðhorfsbreytingar, sem
hófust um og eftir 1970. Fólk vildi hverfa
aftur til náttúrunnar, leitaði að vörum úr
náttúrulegum efnum. Á svipuðum tíma
komu olíuverðhækkanir, sem gerðu ullina
samkeppnishæfari gagnvart gerviefnum."
Tímabundnir
erfíðleikar
Núverandi útflutningsskeið ullarvara
hófst árið 1962, þegar Samband íslenskra
samvinnufélaga hóf útflutning á vélprjón-
uðum peysum til Sovétríkjanna og Álafoss
og Hilda hf. hófu að þreifa fyrir sér með
útflutning handprjónavara til Bandaríkj-
anna. Þessi þrjú fyrirtæki eru nú stærstu
framleiðsluaðilarnir á ullarvörum með yfir
90% af útflutningsverðmætum þeirra.
Á ýmsu hefur gengið í ullarfatafram-
leiðslunni þau ár, sem hún hefur verið
starfandi, enda þótt ekki hafi verið lát á
söluaukningunni undanfarin ár.
Á þessu ári hefur sveifla á erlendri mynt
skapað nokkra örðugleika og í því samhandi
spurðum við Þráin Þorvaldsson, hvernig
hækkun dollarans kæmi við ullarfataút-
flutninginn?
„Ef farið er eitt ár til baka, þá fékkst
svipað verð fyrir vörurnar, reiknað í íslensk-
um krónum, á öllum mörkuðum. Síðan
skeður það að dollari hækkar mjög gagnvart
Evrópumynt, sem gerir það að verkum að til
dæmis vara, sem seld er til Þýskalands
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981
Eins og allur
fatnaður frá
Alafoss, þá er
þessi kjóll úr
100% ull og
er hann úr
kvenfatalín-
unni Álafoss
Breeze fyrir
árió 1982.
Ljósm. María (íuó-
mundsdóttir.
35
kostar 74 krónur, en á Norður-Ameríku-
markaði kostar sama vara 100 krónur. Þetta
þýðir að þau fyrirtæki, sem flytja út til
Norður-Ameríku hagnast á sínum viðskipt-
um, en þeir, sem selja til Evrópu verða fyrir
tjóni.“
„Þessi sveifla á myntinni ætti þó ekki að
þurfa að hafa áhrif á sölu í Evrópu, ef aðrar
efnahagslegar aðstæður eru í lagi. Hins
vegar má gera ráð fyrir að innkaupafólk í
Norður-Ameríku fari í vaxandi mæli að gera
innkaup sín í Evrópu og má þá búast við að
fólk spyrji okkur ullarútflytjendur, af
hverju getum við ekki fengið vöruna eins
ódýra í okkar landi?
Þráinn sagði ennfremur, „ég býst þó ekki
við að þetta ástand á gjaldeyrismörkuðum
verði varanlegt, því væri óhyggilegt að
hætta sölu á Evrópumarkaði þrátt fyrir
tímabundna erfiðleika. Því búið er að leggja
í gífurlegan kostnað við markaðsöflun og
kynningu á ullarvörum og hafa ullarfata-
útflytjendur náð góðri fótfestu á þessum
mörkuðum. Það mundi þýða gífurlegt átak
og kostnað að koma markaðnum í sama horf
og hann er í nú, ef hætt yrði sölu til
Evrópulanda.“
Hver er framtíðin?
Hve lengi verður íslenskur ullarfatnaður í
tísku? Um það getur enginn sagt, en engin
merki eru á lofti enn um að áhugi á vörunni
sé að minnka. Það er líka athyglisvert, að í
því slæma efnahagsástandi, sem ríkt hefur
víða erlendis, hefur salan aldrei verið meiri.
í slíku ástandi hugsar fólk meira um, hvað
það fær fyrir peningana sína. Þá er kostur
að hafa þekkta vöru, sem þykir bæði falleg
og vönduð að allri gerð.
Víð bjóðum þér
26" PHILIPS IHasjói
fyrirtl.597
með fjarstýringu
á boiðið!
Það er ótrúlegt en alveg satt. Nýju litasjónvörpin hafa
sjaldan verið á betra verði. Tökum til dæmis
v vinsælustu sjónvarpstækin frá Philips, falleg litasjón-
varpstæki með 26“ skermi og og fjarstýringu. Þau
kosta 11.597,- krónur, heimsend og stillt. Þettaverð
er miðað við staðgreiðslu, en auðvitað koma ýmsir
greiðslumátar til greina, þá með mismunandi verði
eftir greiðslugetu þinni. Þá er einnig rétt að geta þess,
að þú getur fengið 26“ litasjónvarp án fjarstýringar
fyrir kr. 9.980.- miðað við staðgreiðslu.
Philips litasjónvörpin eru til í mörgum stærðum og
gerðum. Annað dæmi um góð kaup eru til dæmis
Philipstækin með 20“ skermi, sem kosta
aðeins 7.705.- krónur, sé miðaðvið staðgreiðslu.
Þetta eru frábær litasjónvörp í einu orði sagt. Philips
hefur getið sér mjög gott orð fyrir vöruvöndun og
framleiðslugæði. Þetta kemur ekki síst fram í
myndgæðum og góðu verði. Sölumenn okkar veita þér
fúslega frekari upplýsingar um litasjónvarp, sem hæfir
heimili þínu.
Nú er tfrninn til að litvæðast fyrir veturinn!
PHIUPS
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655