Morgunblaðið - 09.08.1981, Page 17

Morgunblaðið - 09.08.1981, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981 49 það nú var. í „endurhæfingabúð- unum“ hafði enginn þrótt til eins né neins. Það gerðist ekkert. Ekki vitundaragnarögn. Hver lá í sínu fleti, en það fer ekki á milli mála, að allir vorum við að hugsa heim. Og þrátt fyrir ákvarðanir byrjaði einhver að raula jólasálm. Ósköp hljóðlega, en barst frá einum til annars og allir tóku undir, mátt- vana röddum. og hjáróma. Og afleiðingin varð vitanlega sú, að við fylltumst af tilfinningasemi og margir brustu í grát og söngurinn hljóðnaði ... Á jóladag átti að vera gúllas og kartöflur í matinn. Þegar að okkur kom var allt búið, við fengum einhverjar sósuskófir, annað var nú ekki jólamaturinn okkar. Þetta var um miðjan dag og ekki borið fram meira þann daginn. Þetta var miklu verra en á venjulegum degi. Eftir jól kom nýárið. Við óskuð- um hver öðrum gleðilegs árs og ræddum um, hvort þetta myndi verða sigurárið og lokaár styrjald- arinnar. Við fengum litlar og lélegar fréttir og það fór um búðirnar mikil svartsýni í fyrstu vegna þeirra frétta. Um þær mundir gaf maginn í mér sig fyrir alvöru. Ég gat ekki lengur neytt ofan í mig mat. Meltingin var öll í þvælu. Ég hafði ekki þrótt til eins né neins. Og heilsufarinu hjá Norðmönnunum fór nú fyrir alvöru að hraka. Dagarnir voru endalausir — að ég nú ekki tali um endalaus kvöldin. Til að reyna að herða okkur upp, komum við okkur saman um að halda fyrirlestra um ólík efni. Að sumu leyti var þetta kjörin sam- kunda til slíks. Jottit talaði um siglingar, sem hann hafði unun af, Olaf Abrahamsen, sem var ungur maður, talaði um stúdentalíf og stúdentafélög, Age Skogen, sem var útivistarunnandi, talaði um fjallaferðir, Magnus Schei um sjómennsku. Ég talaði um Sovét- samfélagið, sem ég vissi meira um en flestir, enda hafði ég lesið mér mikið til um það. Það var merki- lega mikill áhugi á þessu „fyrir- lestrahaldi". Samt voru alltaf ein- hverjir sem sofnuðu út frá fyrir- lestrunum, stundum meira að segja fyrirlesarinn sjálfur. Þegar kom fram á veturinn var ástandið engu að síður alveg óbærilegt. Fæstir gátu staðið á fótunum lengur. Næstum allir urðu að gera þarfir sínar í kopp- ana inni í herbergjunum. Allir voru sársjúkir í maga. En um þetta leyti bárust okkur pakkar með mat og þá urðum við að standa andspænis þeirri sam- vizkuspurningu hvað við ættum að gefa mikið af því sem var í bögglunum meðföngum okkar. Raunin varð sú, að við gáfum sem allra minnst. Ástandið var þannig, að hver varð að hugsa um sig og að klóra sig út úr þessu á eigin spýtur. Norðmennirnir í Vaihingen sýndu engu að síður ótrúlegan viljastyrk. Þrátt fyrir að við værum beinahrúgur og gætum varla legið og þaðan af síður sezt, reyndum við samt að halda okkur við. Eftir að fréttir tóku að berast um að framsókn bandamanna væri farin að harðna, hleypti það okkur kapp í kinn. Ef okkur tókst að skjögra fram á klósettið, hvað þá heldur ef okkur heppnaðist að komast fram á þvottaherbergið og þvo okkur reglulega fannst okkur sem við hefðum fengið miklu áorkað." Þegar fór að vora heyrðu þeir sögusagnir um flutninga á föngum til Svíþjóðar fyrir meðalgöngu Rauða krossins. Vonir þeirra Norðmannanna glæddust og kraftaverkið gerðist. Það komu bílar Rauða krossins að sækja þá. 16 af 29 sem komu til Vaihingen 22. nóvember voru lifandi. En margir svo veikburða að þeir voru bornir í sjúkrakörfum í bílana. Tryggve Bratteli komst heim til Osló 15. maí 1945 eftir þriggja ára fangavist í búðum nazista. (Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi og cndursagði.) Tryggve Bratteli: Fange i Natt og Taake Tiden Norsk Forlag. i Dachau. Fangi hljóp á rafmagnsgiróinguna utan um búóirnar og dó samstundis. Soltnir menn og þróttlausir, sem reyndu þó í lengstu lög aó halda sér á lífi. Loksins fundu Rauða kross-bílarnir leiðina til Vaihingen og feröin heim var hafin. komu þær úr dýnunum. Og eftir því sem sjúklingarnir urðu slæpt- ari og veikari, misstu þeir krafta til að halda sér hreinum. Það var engu líkara en lýsnar væru að éta okkur upp. Stundum létu lækn- arnir sjá sig. Alf og ég þóttumst þá sofa. Við gáfum okkur aðeins fram þegar skyldutalning var. Við urðum að gæta okkar; við urðum að teljast nógu veikir til að vera ekki útskrifaðir, en við máttum ekki verða svo veikir, að við gæfum upp öndina. Gyðingalækn- irinn sem ég hef minnst á reyndist okkur vel, gaf okkur heilræði um hvað við ættum að segja. Eina tilbreytingin þessa gráu daga var þegar maturinn var borinn fram. Verðirnir roguðust með pottana inn í gangana. í þessu hungraða samfélagi hröð- uðu þeir sem soltnastir voru sér að kötlunum til að reyna að finna á lyktinni, hvað væri á boðstólum. Það var bæði spaugilegt og grát- legt! Því það var alltaf það sama. Súpa, sem átti að heita kálsúpa en sjaldnast var neitt kál í. Einstaka fengu grjónasúpu. Alltaf var eitt- hvað um, að fangar hefðu mat- arskipti. Ef einhver gat ekki borðað einn daginn eftirlét hann öðrum sinn skammt gegn dreng- skaparloforði um að fá hans skammt síðar. Við réttum fram tindiskana okkar, veikum burðum teygðum við þá fram til þeirra sem deildu út matnum. Þeir sem höfðu þrek til fylgdust mjög gaumgæfilega með því hvernig matarskömmtun- in fór fram. Voru nokkrir kjötbit- ar í súpunni, sem hinn fékk? Var nokkur hætta á að þessi fengi kartöflu en annar ekki? Það voru einnig stöðugar rökræður um mál- ið, hinn svokallaði miðdegisverður var skárri en sjúkrakosturinn, þótt sjúkrakosturinn færi skár í maga. Og þegar miðdegisverðinum var lokið — sem var eins konar hápunktur dagsins — breiddust ólýsanleg vonbrigði yfir okkur. Allir voru jafn svangir og áður. Þá var ekkert annað til að taka sér fyrir hendur en hefjast handa í baráttunni við lýsnar í teppunum og í flíkunum. Koppana urðum við sjálfir að bera fram og tæma þegar þeir voru orðnir fullir. Og þurfti iðulega mikið átak til. í þessum „endurhæfingarbúð- um“ komst enginn, sem sjúkur var, til heilsu á ný. Enginn. Flestum fór svo, að maginn þoldi ekki þetta mataræði — ef mat skyldi kalla. Hilmar Hansen dó skyndilega. Hann lá í rúminu og var að láta sig dreyma um að hann væri úti á vatni að veiða og svo fengi hann fisk og kaffi og flat- brauð. Og gaf allt í einu upp öndina. Piltur frá Þrándheimi, sem var mjög kvalinn í maga, spurði okkur, hvað hann ætti að gera. Við sögðum honum að drekka ekki vatn. Og fasta í tvo daga. Og byrja síðan varlega að narta aftur í brauðbita, en láta sem allra minnst af kaffi eða súpu í sig. Fáránlegt! Að þurfa að gefa sveltandi mönnum þá ráðleggingu að fasta! Og þorstinn var ærandi. Þegar verstu magakveisurnar helltust yfir mann bragðaðist allt sem upp í munninn kom eins og skítur, svo ég taki mér bara það orð í munn, sem ég skrifaði hjá mér á sínum tíma. Fangarnir fylgdu ekki þess- um reglum um föstu — og dóu, en nokkrir lifðu af. Læknarnir gátu ekkert að gert, hvorki höfðu þeir af mat né lyfjum að miðla til hinna sjúku. I þessum búðum varð það brátt svo að 12—14 dóu á hverjum degi. Ég man eftir Norðmanni, bíl- stjóra sem hafði barizt eins og hetja gegn magaveikinni. Hann drakk allt sem hann náði í, þó svo að hann vissi að það yrði til þess að auka á þjáningar hans. Hann var sá eini, sem hikaði ekki við að tjá hræðslu sína við að deyja. Það var eins og hann missti vitið af skelfingu, þegar hann skynjaði hvernig fyrir honum var komið. Svo færðist allt í einu yfir hann annarleg ró. Og hann andaðist — rétt si svona. Mitt í allri þessari eymd reynd- um við að tala um, hvað stríðið gæti staðið lengi enn. Við settum tímamörkin við 23. marz. Við vissum, að innrásin var hafin og trúðum ekki að þetta gæti dregizt jafn lengi og raun varð á. En við vorum auðvitað ekki vel heima í því hvernig þetta gekk fyrir sig. Ég man líka eftir ungum manni, Reidar Norum hét hann. Yngstur okkar. Maginn í honum gaf sig gersamlega. Hann tærðist upp, lá og talaði endalaust um mat. Hann fékk lungnabótgu og dó. Það var þungbært að sjá svona ungan mann deyja. Að við skyldum í rauninni þrauka skil ég ekki. Kannski vegna þess óraunveruleika sem við sveipuðum okkur. Að sumu leyti var þetta líkt og að horfa á hryllingsmynd. Við urðum stöðugt sljórri og æ meira veikburða, en samt höfðum við vit á því að við urðum að finna eitthvað til að tala um. Og hér á ég við Norðmennina í sjúkrabragganum. Við lágum og rausuðum endalaust um mat. Áð- ur en okkur var borið kalt kaffið á morgnana, lágum við og röfluðum um, hvað við myndum nú fá í morgunverð í dag. I aðra röndina gerðum við okkur grein fyrir þeirri geggjun, sem fólst í tali okkar, en það aftraði okkur ekki frá því að koma með girnilegar tillögur, áður en komið var með kalt kaffið. Því næst beindum við talinu fjálglega að því, hvað við myndum fá í hádegisverð og þar skorti heldur ekkert á hugarflug- ið, þótt við lægjum þarna soltnir og sjúkir. Og hvað skyldi síðan vera borið fram með síðdegiskaff- inu — sem við fengum að visu aldrei. Einhver stakk upp á að við fengjum líklega hveitikökur með smjöri og geitaosti og annar vildi fá brauð með lifrarkæfu eða vínarbrauð og sírópsköku. Stundum þóttumst við fara út að borða og við fengum okkur kúgfulla diska af hrísgrjónagraut með rúsínum og kanel eða rauð- graut með sykri ... það hljómar geðveikislega að fullorðnir menn hafi legið og ruglað svona, en það verður að líta á þetta í því ljósi sem það var — þetta var eina leiðin sem við höfðum okkur til hughreystingar. Og svo kom röðin að kvöldmatnum ... skyldi vera pylsuréttur, síldarréttir, eða hvað? Svo komu jólin, sem við höfðum ákveðið að leiða hjá okkur. Að- fangadagskvöld var ekkert sér- stakt. í fyrri búðum sem ég hafði verið í, höfðu fangarnir sjálfir haft frumkvæði um að gera eitt- hvað til að minnast hátíðarinnar. Hversu fábrotið og frumstætt sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.