Morgunblaðið - 09.08.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.08.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981 51 Fjarstæða Camus og lífsháski Steins Kirkjuritið, 2 hefti 47. árgangs, er að mestu helgað efninu mynd- list og kirkja. en um það þinguðu guðfræðingar og myndlistarmenn í Skálholti 1.—3. maí sl. Sjónarhorn eru að vonum mörg í þessari umræðu og má nokkuð á þeim græða þótt fátt nýtt komi fram. Athyglisverðasta ræða þingsins er þó ekki eftir guðfræð- Steinn Steinarr ing eða myndlistarmann heldur heimspeking, Dr. Pál Skúlason prófessor. Hugleiðing um listina, trúna og lífsháskann, nefnist erindi Páls. Það er sá lifsháski sem Steinn Steinarr talaði um þegar hann ræddi um Ljóð ungra skálda (1955) og sagði að í bókina vantaði lífsháskann: „Menn verða ekki mikil skáld, nema því aðeins, að þeir komist í mikinn lífsháska ...“ „Lífsháskinn er annað orð yfir það sem Camus kallar fjarstæðu," segir Páll Skúlason og bætir við: „Þessa sömu meginhugsun finnum við hvarvetna þar sem trú og list eru á ferðinni: trúin og listin séu tveir mikilvægustu hættir manna á þvi að risa upp gegn fjarstæð- unni og takast á við lífshásk- Páli Skúlasyni verður tíðrætt um Albert Camus, ekki síst Sísýf- usargoðsögn hans, en þar er fjar- stæðuhugtakið skýrt. Páll orðar þetta svo: „Fjarstæða lífs okkar rennur upp fyrir okkur, þegar við gerum okkur ljóst að tilvera okkar er algerlega röklaus, að veruleik- inn, lífið sem máli skiptir, er hið hverfula andartak hér og nú, eða með öðrum orðum: Það er hvergi neitt skjól, hvergi nein trygging fyrir því að lífið hafi neinn tilgang, það er enginn veruleiki handan þess veruleika sem við, ég og þú, lifum á hverju andartaki, það eru ekki til nein eilíf, endan- leg, óhagganleg verðmæti, það er enginn guð sem vakir yfir öllu og sér um að allt fari vel að lokum." Það er rétt hjá Páli Skúlasyni að Albert Camus tekst á við þennan hörkulega nihilisma í Sí- 3ýfusargoðsögninni og fleiri bók- um sínum og vill sigrast á honum. Al (tl.YSlM. \- SÍMINN KH: Búkmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON Það er heldur ekki nein tilviljun að trúin varð Camus sífellt áleitn- ara viðfangsefni. En að setja jafnaðarmerki milli trúar og list- ar getur aftur á móti orkað tvímælis þótt um óvefengjanlegan skyldleika sé að ræöa. Camus hélt því fram að sjálfs- morðið væri eina alvarlega heim- spekilega vandamálið (Sísýfusar- goðsögnin). Nú hefur trúin oft verið mönnum til hjálpar í förgun- arþönkum og öðru volæði. Sama er að segja um listina sem er tíðum hólmganga við dauðann og ekki síst afstæði tímans. Mörg ljóð Steins Steinarrs, til dæmis, ráðast gegn tómhyggju með hennar eigin vopnum. Þau sýna að án hennar verður naumast lifað. En það er unnt að komast af með því að horfast í augu við svartnættið og jafnvel sætta sig við það þótt uppreisnin sé manninum hollari, þ.e.a.s. viðurkenna fjarstæðuna og berjast gegn henni um leið eins og Camus og fleiri gerðu. En lífsháski Steins er ekki endilega sama og fjarstæða Cam- us þótt Páll Skúlason tengi þetta tvennt með skemmtilegum og frjóum hætti. Steinn var fyrst og fremst að gefa í skyn að ung skáld væru of reynslulítil til að geta lýst heiminum á sannfærandi hátt. Varla skorti þau tómhyggjuna, en til að klæða hana í orð þurftu þau að hafa lent í þeim háska sem gerir hana meira en holan róm. Annað sem Páll minnist á og verður varla hrakið er þáð hvort trúin og listin, þessi vopn gegn firringunni, séu ekki í raun horn- reka í þjóðfélaginu. Hann er að vísu bjartsýnn i lok erindisins um að svo sé ekki. Eftirminnilega kemst hann aö orði þegar hann segir að trúin og listin komi til okkar eða við til þeirra — „ef og þegar við vogum að vera and- spænis lífsháskanum, fjarstæð- unni, dauðanum." VIÐíír''"" If AVC fVrVio Beint frá stærstu og traustustu póstþjónustu Bretlands. Hjá KAYS færðu, föt, gjafavöru, leikföng o.m.fl. í ótrúlegu úrvali á mjög góðu verði. Klipptu út og sendu okkur pöntunarmiðann í horni auglýsingarinnar. PDLONEZ Hvar gerir þú hagstæðari kaup PDLONEZ GOOIR GREIDSLUSKILMÁLAR Sýningarbíll á staðnum — komið skoðiö og gerið góö kaup — Verö 81.500.- FlAT EINKAUMBOÐÁ ISLANOI DAVÍÐ SIGURÐSSON hf SMIDJUVEGI 4, KÓPAVOGI. SlMI 77200. • 5 dyra • 4 gíra alsam- hæfur • Fallega tau- bólstruö sæti • Teppa- lagöur • Rafmagnsrúöu- sprautur og þurrkur framan og aftan • Klukka • Olíuþrýsti- bensín- og vatnshita- mælar®Aövörunarljós fyrir handbremsur og innsog o.fl. • Diska- bremsurá öllum hjóium Tvöfalt bremsukerfi • Bremsujafnari • 1500 cc vél 83 ha sa • Raf- magnskælivifta • Yfir- fallskútur • Tveggja hraöa miöstöö og gott loftræstikerfi • Halog- en-þokuljós — bakljós • Höfuöpúöar • Rúllu- öryggisbelti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.