Morgunblaðið - 09.08.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1981
55
Hver er
maðurinn?
+ Þaö er ekki víst að allir kannist við þennan góðlega, gleraugum
prýdda náunga, sem þarna klórar sér í skegginu, við fyrstu sýn.
Frekar væri að fólk bæri kennsl á konuna við hlið hans.
En hér eru komin þau Egill Ólafsson, yfirþurs m.m., og Herdís
Þorvaldsdóttir, leikkona. í myndinni um tvíburana Jón Odd og Jón
Bjarna, sem kvikmyndafélagið Norðan 8 er nú að ljúka vinnslu á,
leika þau Egill og Herdís mæðginin Hjálmar, föður tvíburanna, og
ömmu Dreka, sem strákarnir kalla svo. Kristján Einarsson,
ljósmyndari Mbl. tók myndina er unnið var að upptökum vestur á
Seltjarnarnesi, einn góðviðrisdag fyrir skömmu. Egill er þarna sem
sagt í hlutverki virðulegs miðaldra fjölskylduföður, einmitt á þeim
aldri sem þursabitin færast í aukana á eða hvað?
fclk f
fréttum
Þau reka Hótel
Búðir á Snæfellsnesi
+ Þau reka Ilótel Búðir á Snæfells-
nesi með miklum myndarbrag »K
hafa gert siðan i fyrrasumar. A
Búðum hefur verið gestkvæmt i
sumar. enda eftir mörKU að siæðast;
einstakri náttúrufeKurð. heilsulind-
um. hraunum. Kullnum sandströnd-
um »k svo auðvitað jöklinum. sem
Knæfir seiðmaKnaður yfir svæðinu
»K laðar til sin dulspekinKa úr öllum
heimshornum. En slikir telja Snas
fellsnesið vera eitt þeirra svæða á
jörðinni. sem húa yfir hvað mestri
„hleðslu“.
Starfsfólkið á Búðum þurfti svo
sannarlrKa á „hleðslu" að halda i
öllum erlinum um verslunarmanna-
heÍKÍna. Það var þvi ekki auðhlaup-
ið að því að smala hópnum saman.
til myndatöku, en hafðist að lokum.
þó að eitthvað kæmi það nú niður á
myndKæðunum. Fremstir eru þeir
Jakob FenKer. t.v.. ok Rúnar Mar-
vinsson. listakokkur. Undir hrein-
dýrshornunum stendur Sigriður
Gisladóttir. aðstoðarkokkur. þá Örn
Karlsson. uppþvottatæknir, ok
myndlistarmaður m.m., Sigriður
Auðunsdóttir. Gunnhildur FenKer
ok SÍKþór ÞorKrimsson. í horninu
t.h.. bak við SÍKþór, kúrir Collie-
-hvolpur. heidur dapur ok það ekki
að ástæðulausu. EÍKandi sem átti
þarna leið um. gerði sér litið fyrir
ok skildi hann eftir. Þar sem frekar
mun vera offramboð á hundum en
hitt á Snæfellsnesinu er velviljuðu
fólki. sem hefði huK á að verða sér
úti um KÓðan heimilishund ok Kerir
sér Krein fyrir að hundar eru iifandi
verur en ekki leikfönK. scm hæKt er
að skilja eftir þeKar Kamanið þrýt-
ur. hér með bent á þennan munað-
arlausa hvutta.
' ——8M—mmm m #*
ílr matsal Hótel Búða. Þar var margt um manninn um verslunar-
mannahelgina enda matseld Búðamanna rómuð. I.jósm. Mhl. II.II.S.
„Sonarson-
ur Hinden-
burgs“ á ferð
um fjallvegi
„Mér var nú ruglað saman við sonarson Hindenburgs um daginn,“ sagði þessi vel búni reiðmaður, sem
var á ferð um þjóðveginn hjá Arnarstapa á Snæfellsnesi um verslunarmannahelgina, með þarfasta
þjóninn og silfurbúna svipu. „Fn svona eiga menn að riða út.“ Og þar með var hann stokkinn á bak og
horfinn í reykjarmekki, án þess að berja fótastokkinn vitund. I Júsm. Mbl. II.II.S.
Vinarkveðja frá Tahamata
+ Knattspyrnumaðurinn
Simon Tahamata átti hug
og hjörtu áhorfcnda er
hann lék með stjörnuliði
Vals á Laugardalsvellin-
um 17. júní síðastliðinn.
Að leik loknum kom virðu-
leg dómnefnd saman og
kaus hann „mann leiks-
ins“.
Tahamata skoraði mark
úr vítaspyrnu í leiknum og
fögnuðu áhorfendur af
yngri kynslóðinni honum
innilega. Nokkrir þeirra
hlupu meira að segja inn á
völlinn og þó svo að það sé
ekki vel liðið, þá tók Simon
þessum ungu aðdáendum
sínum vel, lyfti einum
þeirra upp á öxl sér og
hljóp með strák út á miðj-
an völl. Atburðurinn var
festur á filmu og síðan
áritaði Simon Tahamata
myndina, skrifaði á bak-
hlið hennar: „Beztu kveðj-
ur til hins litla vinar míns,
frá Simon Tahamata."
Baldvin Jónsson, for-
maður meistaraflokksráðs
Vals, hefur mynd þessa,
sem hér birtist, í fórum
sínum. Getur stráksi sótt
myndina til Baldvins á
auglýsingadeild Morgun-
blaðsins, en um leið er
strákur beðinn að hlaupa
ekki framar inn á leik-
vanginn, hvorki í miðjum
leik, né að honum loknum
— nema hann sé sjálfur að
spila.
Þreyttir, en ánægðir...
ÞAÐ VAR ekki laust við að þeir
félagar væru þreytulegir þar
sem þeir sátu yfir föggum sinum
i lok landsmóts skáta i Kjarna-
skógi. en þeir eru: Karl Jörunds-
son, 14 ára, til vinstri, og Axel
Helgason. 11 ára. báðir úr Ár-
búum. Árba'jarhverfi i Reykja-
vik.
Af hverju svona þreytulegir?
„Leikirnir á daginn, safarýið,
íþróttapóstarnir og allt. Við náð-
um 9. sætinu í flokkakeppninni „á
toppinn", og það var alltaf nóg að
gera.“ Það má geta þess að 100
flokkar hófu keppni. Gaman? „Já,
já, ágætt...“
Ætlið þið á næsta landsmót? —
„Það eru nú fjögur ár þangað til,“
eða eitthvað á þá leið svaraði
annar þeirra. — „Við þurfum
fyrst að hvíla okkur eftir þetta
mót,“ sagði hinn. — Mikið rétt,
því hver veit hvar við verðum eða
gerum að ári — hvað þá meira?
gg^
Ljósm. Mbl. F.P.