Morgunblaðið - 20.08.1981, Blaðsíða 1
44 SIÐUR
182. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
F-14 þota á flusvélamóðurskipinu Nimitz
Sovézk SU-22-orrustuþota eins og þær sem voru skotnar niður fyrir
Libýumönnum.
Bregðumst af tur eins við
segir Bandaríkjastjórn
Wa.shinKton. 19. áKÚst. AP.
BANDARÍSKU flugmennirnir
áttu ekki annars úrkosti en að
granda libýsku herþotunum, sem
réðust á þá i dag, og munu
bregðast eins við framvegis, sagði
Caspar Weinberger, landvarna-
ráðherra Bandaríkjanna. i dag.
_Ég held að þeir hafi staðið sig
frábærlcga vel,“ sagði hann.
Weinberger sagði að ef flug-
mennirnir hefðu ekkert gert hefðu
þeir e.t.v. verið skotnir niður, þótt
þeir væru í alþjóðlegri lofthelgi, og
kvað Bandaríkjamenn aldrei
mundu hopa í svona tilfellum.
Einnig er varað við því í orðsend-
ingu, sem var send Líbýustjórn
eftir diplómatískum leiðum, að
frekari árásum á bandarískt herlið
í alþjóða landhelgi- og lofthelgi
verði svarað með valdi ef nauðsyn-
legt reynist.
Bandalagsþjóðunum í NATO var
tilkynnt fljótt um málið, m.a. til að
komast hjá gagnrýni, eins og sagt
var í Brússel. Bandarískar flugvél-
ar hafa ekki skotið á flugvélar
annarra þjóða síðan í Vietnam-
striðinu. Viðureignin tók eina mín-
útu, 60 sjómílur frá Líbýu.
Ronald Reagan forseti var vak-
inn sex tímum síðar og látinn vita,
tveimur tímum eftir blaðamanna-
fund í Pentagon. Aðrir ráðamenn
fengu vitneskju um málið sex
mínútum eftir atburðinn. Edward
Meese III, aðalaðstoðarmaður
Reagans, og Richard V, Allen,
ráðunautur forsetans í þjóðar-
öryggismálum eru með honum í Los
Angeles. Alexander Haig utanrík-
isráðherra er í Santa Barbara, en
Weinberger í Washington. Hins
vegar höfðu þeir allir samráð og
ekki lá á að tilkynna Reagan um
málið.
Bandaríska landvarnaráðuneytið
bar til baka þá frétt Líbýumanna
að þeir hefðu grandað einni
F-14-þotu. Einn líbýsku flugmann-
anna sást varpa sér út í fallhlíf.
Ráðuneytið neitaði líka þeirri frétt
Newsweek að Reagan-stjórnin vildi
reyna þolrifin í Líbýumönnum
vegna kröfu þeirra til Sidra-flóa.
Moskvu-útvarpið hafði eftir Lí-
býumönnum að flugvélar þeirra
hefðu verið í venjubundu eftirlits-
flugi þegar þær hefðu orðið fyrir
bandarískri árás, en minntist á
bandarisku fréttina um árás á
bandaríska flugvél og undirbúning
árásar á aðra. Sendiherra Rússa
hjá SÞ sagði að fordæma bæri
framferði Bandaríkjamanna.
John Lehman flotamáiaráðherra
sagði að fyrir árásina hefðu Líbýu-
menn flogið nokkrum sinnum yfir
æfingaflotanum. Önnur líbýska
flugvélin skaut eldflaug og banda-
rísku flugvélarnar svöruðu með því
að skjóta tveimur Sidewinder-
eldflaugum. Lehman sagði að það
hefðu orðið vonbrigði ef Líbýu-
mönnum hefði tekizt að granda
bandarisku flugvélunum.
George Bush varaforseti for-
dæmdi Líbýumenn og sagði að þeir
ættu að vara sig á að koma nálægt
bandaríska flotanum á alþjóðlegri
siglingaleið. Bandaríkjastjórn hef-
ur skorað á bandarísk fyrirtæki að
flytja heim rúmlega 2.000 Banda-
ríkjamenn sem starfa í Líbýu.
Bandalagsþjóðir Líbýu hvöttu til
olíubanns á Bandaríkin og annarra
hefndaraögerða. NATO-ríki þökk-
uðu fyrir að vera fljótt látin vita
um málið.
OPEC-
fundur
í sjálf-
heldu
(lení. 19. áKÚst. AP.
SJÁLFHELDA ríkti eftir
íundi olíurádherra OPEC í
das vegna ágreinintts um
verðlagningu. Forseti OPEC,
Subroto, sagði að enn bæri
mikið í milli og nauðsynlegt
væri að halda áfram ítar-
legum umræðum.
„Við munum ekki örvænta,"
sagði Subroto, og talaði um að
vandinn sem þyrfti að yfir-
stíga hefði reynzt óvenjumik-
.11.
Ahmed Zaki Yamani var
spurður hvort hann mundi
samþykkja að verð Saudi-
Araba yrði hækkað um fjóra
dollara olíufatið í 36 dollara
og sagði hann að það mundi
koma í ljós.
Pólsku blöðin
koma ekki út
Varsjá. 19. áKÚKt. AP.
PÓLSKIR prentarar héldu áfram
verkfalli sinu i dag. en stjórninni
tókst að koma út nokkrum ein-
tökum af málgögnum sinum.
Sumum blaðsölustöðum var lokað
til að lýsa yfir stuðningi við
prentarana. en starfsfólk tók sér
frí.
Því var haldið fram að 136.000
eintök hefðu verið prentuð af
flokksmálgagninu Trybuna Ludu,
sem venjulega kemur út í 1, 1
milljónum eintaka, en leiðtogar
Samstöðu sögðu að aðeins 5—6.000
eintök hefðu komið út. Starfs-
menn blaðsins Zycie Warszawy
sögðu að 5.000 eintök hefðu verið
prentuð í prentsmiðju hersins, en
Samstaða komið í veg fyrir dreif-
ingu. Starfsmenn málgagns hers-
ins sögðu að það hefði verið
prentað í 80.000 eintökum.
í kvöldfréttum voru höfð viðtöl
við tugi óánægðra lesenda, sem
gagnrýndu verkfallið. „Nú er nóg
komið, við höfum fengið nóg af
verkföllum," sagði einn viðmæl-
enda. Annar ýtti blaðamanni til
hliðar, sagði að hann væri prent-
ari og vildi ekkert segja.
Pólska fréttastofan gagnrýnir
Samstöðu fyrir verkfallið, sem er
gert til að krefjast aukins aðgangs
hreyfingarinnar að fjölmiðlum,
þar sem þetta sé „aðgerð pólitísks
eðlis", en vestrænir fulltrúar í
Varsjá sögðu viðbrögð stjórnar-
innar við þessu fyrsta blaðaverk-
falli austantjalds virðast vægari
en gagnrýnin í garð Samstöðu að
undanförnu.
„Stjórnin sýnir enga móður-
sýki,“ sagði einn þeirra, „hún veit
að þetta mun ekki valda efnahags-
legu öngþveiti. Þing Samstöðu
hefst senn. Þetta er gamalt mál og
kannski þurfa þeir að lýsa afstöðu
sinni.“
Samstaða staðfesti að blöð
hefðu komið út í styttu formi í
Bydgoszcz, Szcecin og Katowice
þrátt fyrir verkfallið, en sagði að
þar hefðu setuverkföll verið gerð í
verksmiðjum. Varsjár-útvarpið
sagði að blöð hefðu komið út í
fleiri borgum.
FAGRANESIÐ frá ísafirði lenti fyrir skömmu í erfiðleikum í is við Grænlandsstrendur og fundu
skipverjar ekki færa leið úr isnum. Þegar svo var komið stöðvaði skipið, en þá bar að flugvél frá
flugskóla Sverris Þóroddssonar og leiðbeindi flugmaðurinn Fagranesinu út úr isnum. Myndin er tekin
úr flugvélinni.
Bátur útlaganna gafst
upp fyrir flota Frakka
París. 19. áKÚst. AP.
ANDSTÆÐINGAR Khomeini-
stjórnarinnar i íran gáfust upp i
dag og létu fallbyssubátinn Tab-
arzin af hendi við franska sjóher-
inn. Frakkar ætla að skila ir-
önsku stjórninni bátnum fljótlega
samkvæmt tilkynningu frá
Elysée-höll, en hafa hafnað kröfu
um að framselja mennina, sem eru
20 talsins og úr útlagafélaginu
Azadcgan.
Iranirnir, sem eru úr sérþjálfuð-
um víkingasveitum, höfðu sagt að
báturinn væri aðsetur írönsku út-
lagastjórnarinnar eftir töku hans
undan strönd Spánar á fimmtudag-
inn og hann bar fána íranskeisara.
Tveir íranskir sjóliðsforingjar
eru komnir til flotahafnarinnar
Toulon við Miðjarðarhaf til að
undirbúa sendingu Tabarzin til
íran. Málið leystist friðsamlega
eftir tæplega sólarhrings samn-
ingaviðræður. Viðræðurnar hófust
skömmu eftir að Tabarzin kom inn
í franska landhelgi í gær og
varpaði akkerum fyrir utan höfn-
ina í Marseille.
Meðan viðræðurnar fóru fram
hótuðu Iranirnir að sprengja upp
fallbyssubátinn nálægt Marseille
ef Frakkar gengju ekki að kröfum
þeirra um matvæli og eldsneyti.
Aldrei var gengið að kröfunum og
snemma í morgun samþykktu íran-
irnir að báturinn væri dreginn um
50 km í austur frá Marseille að
höfninni í Toulon. Báturinn sigldi
inn í höfnina í Toulon með franskri
áhöfn skömmu eftir að samkomu-
lag náðist.
íranir munu biðja Spánverja að
miðla málum til þess að Frakkar
skili íröpunum að því er sérlegur
fulltrúi Tehran-stjórnarinnar,
Abbas Sorush, sagði í Madrid í dag.