Morgunblaðið - 20.08.1981, Blaðsíða 44
4 krónur 4 krónur
eintakið llfflllfliÍPlP eintakið
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1981
Sigurpáll ÞH 280 strandar:
ÞAÐ ÓHAPP varð fyrir utan Hafn-
arfiörð um kl. 15.30 í gær að
SÍKurpáll ÞH 280. 10 tonna trilla
frá Hafnarfirði. strandaði á Helgu-
skeri sem er u.þ.b. einn kílómetra
útaf Hafnarfjarðarhöfn. Ökumaður
sem var á leið inn i Hafnarfjörð sá
til strandsins og uerði mönnum
viðvart um að eitthvað væri athuga-
vert við ferðir hátsins. Fóru menn
þá að vcita honum athvnli oj{ sáu þá
að skotið var upp neyðarblysi. Var
þá haft samhand við hafnsöKubát-
inn. er staddur var í Straumsvík. ok
fór hann þncar á staðinn. Aðeins
einn maður var um borð, Karl
Pálsson, 74 ára Hafnfirðinifur. og
var hann tekinn um borð í aðra
trillu um það leyti sem Siffurpáll
sokk.
Kona á slysa-
deildina - en
hundur á Dýra-
spítalann eft-
ir árekstur
IIARÐUR árekstur varð á
tfatnamótum Bæjarháls og
llraunha jar í gær. en þar rák-
ust saman lítill fólksbíll af
Renault-gerð ok stór malar-
flutninKahíll. Kona sem ók
fólksbifreiðinni var flutt á
slysadeild. en meiðsli hennar
reyndust ekki alvarlegs eðlis.
Barn sem var í bilnum sakaði
?kki, en hundur sem þar var
meiddist eitthvað ojí var hann
‘afarlaust fluttur á Dýraspítal-
tnn, þar sem gert var að sárum
lans.
Skyndikönnun Félags islenzkra iðnrekenda:
Iðnfyrirtækin eru rekin með
8,7% tapi sem af er árinu 1981
„Þetta bar ákaflega brátt að,“
sagði Karl Pálsson í samtali við
Morgunblaðið. „Ég varaði mig ekki á
þessari skerhnúfu og það skipti
engum togum að báturinn rennur
uppá það og fer alveg á kaf að aftan.
Það vildi svo vel til að ég var á hægri
ferð þannig að trúlega er hann alveg
óbrotinn. Það gekk hins vegar illa
fyrir mér að vekja athygli í landi. Ég
var búinn að skjóta upp fjórum
blysum og það leið áreiðanlega
rúmlega hálftími þar til hafnsögu-
báturinn kom. Allan tímann var
báturinn að síga, þannig að þetta
varð fremur óþægileg bið.
Hafnsögubáturinn þurfti reyndar
lítið að skipta sér af þessu þarna —
þeir voru tímabundnir, þurftu að
taka á móti skipi sem var að koma
til Straumsvíkur og fóru fljótlega til
þess. Ég fór hinsvegar í land með
trillu sem þarna átti leið framhjá.
Ég fór svo fljótlega fram aftur og
var Sigurpáll þá alveg sokkinn —
það rétt bólaði á stefninu. Okkur
tókst þó að festa í hann dráttartaug
og dró hafnsögubáturinn hann mar-
andi í kafi til lands, en trilla hélt
honum uppi að aftan á meðan. Um
kl. 7 var hann svo kominn upp í fjöru
á góðum stað í slippnum hérna, heilu
og höldnu."
Ilafnsögubáturinn dregur Sigurpál ÞH 280 til lands frá strandstað.
Ljósm. Mbl. Raitnar Axelsaon.
8% hækkun
flugfarmiða
Á FUNDI Verðlagsráðs í gær var
samþykkt að heimila Flugleiðum
8% hækkun á farmiðum í innan-
landsflugi.
Ennfremur var Landleiðum
heimilað að hækka farmiða milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar um
19% og Landvara var heimilað að
hækka taxta vöruflutningabíla um
8%. Loks var samþykkt 8% hækk-
un á saltfiski. Ríkisstjórnin á eftir
að staðfesta þessar hækkanir.
Þorskstofninn:
Útlit
f yrir að
hrygning
hafi
tekist vel
„ÉG ER ekki búinn að fá
niðurstöður seiðarannsókn-
anna og vil þvi sem minnst
um málið segja, en mér hefur
verið sagt að allt útlit sé á að
hrygning þorskstofnsins hafi
tekist veí og ef það er rétt, þá
er útlitið gott,“ sagði Stein-
grímur Ilermannsson sjávar-
útvegsráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær, en hann
var spurður um niðurstöður
rannsókna á klaki þorsk-
stofnsins.
Steingrímur vildi ekki tjá sig
um málið að öðru leyti, en
sagði að ef þetta reyndist rétt,
þá væri þorskstofninn á upp-
leið og því bjartara framund-
an. Steingrímur sagðist búast
við sð skýrsla um þetta mál
yrði lögð fram á næstunni, en
vísaði á fiskifræðinga til nán-
ari útskýringa á henni.
Dreginn til
lands í kaf i
Samþykkt Verðlagsráðs:
Bensínlítr-
inn í 7,85 kr
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á
fundi sinum i gær að heimila
11.5% hækkun á bensíni og 7,6%
ha’kkun á gasolíu.
Samkvæmt því hækkar bensín-
lítrinn um eina krónu, úr 6,85 í
7,85 krónur og gasolíulítrinn
hækkar úr 2,60 í 2,80 krónur.
Helmingur af bensínhækkuninni,
eða 50 aurar, renna beint í ríkis-
sjóð í formi hækkaðs vegaskatts.
Samþykkt Verðlagsráðs fer nú
til ríkisstjórnarinnar, þar sem
hún þarf að hljóta staðfestingu.
Er því óvíst hvenær hækkanir á
bensíni og gasolíu taka gildi.
Hlutfallslegur kostnaður fyrirtækja eykst allur, nema launakostnaður
Fólksbíllinn skemmdist mikið,
:n lítið sá á malarflutningabíln-
im, samkvæmt upplýsingum lög-
eglunnar.
Bakkar til
Hafnar í dag
IAI.LGRÍMUR Marinósson, sem
etlar að bakka hringinn i kring-
im landið á Skoda, kom i gær-
ivöldi til Kirkjuhæjarklausturs.
Ferðalagið hefur gengið sam-
(væmt áætlun og Hallgrímur við
íóða heilsu, t.d. hefur hann ekki
• ennt neinna eymsla í hálsi. í dag
nun Hallgrímur bakka til Hafnar.
ÍSLENZK iðnfyrirtæki, scm þátt
tóku í skyndikönnun, sem Félag
íslenzkra iðnrekenda hefur látið
gera. voru rekin með tapi fyrri
hluta þessa árs, sem nemur 8,7% af
rekstrartekjum þeirra. Allt árið
1980 reyndist tap þessara íyrir-
tækja 6% af rekstrartekjum. Þetta
kemur fram í fréttabréfi frá FÍI og
þar segir að niðurstöður sýni, að
iðnaðurinn þurfi nú að glima við
afar mikinn vanda. „Verst sett eru
þau fyrirtæki, scm flytja fram-
leiðsluvörur sínar út til Vcstur-
Evrópu, svo og þau iðnfyrirtæki,
sem eiga í samkeppni við innflutn-
ing frá Evrópu.“
í fréttabréfinu segir, að sá vandi,
sem við blasi eigi sér ýmsar ástæður
og eru nefndar til fjórar. í fyrsta
iagi, að þegar lög um aðlögunargjald
runnu út um síðastliðin áramót, án
þess að starfsskilyrði iðnaðarins
yrðu lagfærð, hafi samkeppnisstaða
meginþorra iðnaðarins versnað um
3%.
í öðru lagi er nefnt, að þegar
ríkisstjórnin hafi ábyrgzt sérstaka
5% hækkun viðmiðunarverðs á fiski
í Verðjöfnunarsjóði á tímabilinu
janúar-maí til að tryggja eðlilega
afkomu fiskvinnslunnar án gengis-
fellingar, hafi engar ráðstafanir
verið gerðar til þess að bæta afkomu
iðnaðarins, þótt ríkisstjórnin hafi
heitið því í efnahagsáætlun sinni
frá 31. desember síðastliðnum.
Þá segir: Verðstöðvun ríkisstjórn-
arinnar fyrri hluta ársins bitnaði
einungis á íslenzkri framleiðslu og
þjónustu, og á sinn þátt í versnandi
afkomu iðnfyrirtækja. — Föst geng-
isskráning í 40% innlendri verð-
bólgu getur ekki gengið nema ör-
skamman tíma. Að öðrum kosti
lamast smám saman þau fyrirtæki,
sem eiga í samkeppni innanlands og
erlendis. „Föst gengisskráning" hef-
ur reyndar þýtt það að íslenzka
krónan hefur fallið í verði gagnvart
Bandaríkjadollar, en hún hefur
hækkað í verði gagnvart ýmsum
mikilvægum Evrópumyntum." Síð-
an er birt tafla yfir breytingarnar á
þessu ári og hefur dollar þá hækkað
um 20,3%, og lækkað hafa: sterl-
ingspund um 7%, dönsk króna um
6,7%, franskur franki um 7,3%,
svissneskur franki um 1% og vest-
ur-þýzkt mark um 4,6%. Segir í
fréttatilkynningunni, að þróun und-
anfarinna mánaða hafi valdið iðn-
aðinum svo miklum búsifjum, að
hann rísi ekki undir til lengdar.
Athyglisvert er við niðurstöður
skyndikönnunar FÍI, að á meðan
framleiðslukostnaður hækkar hlut-
fallslega frá 78,5% af rekstrartekj-
um upp í 80,7%, lækkar launakostn-
aður hlutfallslega frá 27% af
rekstrartekjum í 25,9%. Hráefnis-
notkunin eykst lítilsháttar, en ann-
ar framleiðslukostnaður eykst mest,
eða úr 13,6% í 16,5%.