Morgunblaðið - 20.09.1981, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981
53
Umhverfismálaráð
átelur málsmeðferð
ViU kynna skipulagið í Sogamýri
Á FUNDI Umhverfismálaráðs Reykjavikurborgar 9. september,
kynnti Yngvi Loftsson tillögu að skipulagi á svæðinu milli
Skeiðarvogs, Gnoðarvogs og Miklubrautar. Meirihluti borgarstjórnar
hafði, áður en umhverfismálaráð fékk málið, feilt það að kynna þessa
tillögu ibúunum i kring, eins og sjálfstæðismenn lögðu til. í
umhverfismálaráði var aftur á móti samþykkt með 7 atkvæðum allra
fulltrúa:
„Umhverfismálaráð átelur
harðlega að tillaga um deiliskipu-
lag í Sogamýri, á grundvelli verð-
launatillögu Ormars Þórs og örn-
ólfs Hall, skuli ekki hafa verið
send til umsagnar ráðsins, áður en
borgarstjórn fjallaði um hana.
Bendir ráðið á ákvæði í samþykkt-
um um umhverfismálaráð, þar
sem segir, að ráðið eigi rétt á að fá
til umsagnar tillögur að skipulagi,
áður en gengið er frá þeim. Leggur
umhverfismálaráð áherzlu á að
skipulagstillagan og ákvörðun
borgarstjórnar verði kynnt íbúum
í Langholtshverfi, næst svæðinu,
þannig að mögulegt verði að taka
tillit til athugasemda þeirra."
Að svo búnu var skipulagið
sjálft borið undir atkvæði, og
svohljóðandi tillaga frá Álfheiði
Ingadóttur samþykkt með 40 at-
kvæðum gegn 3: „Umhverfismála-
ráð fellst á að unnið verði deili-
skipulag í Sogamýri á grundvelli
verðlaunatillögunnar með þeim
breytingum, sem borgarstjórn
samþykkti 3. þ.m.“
Elín Pálmadóttir, Magnús L.
Sveinsson og Sverrir Sch. Thor-
steinsson óskuðu að yrði bókað:
„Við vísum til fyrri afstöðu sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn og
ítrekum, að við erum alfarið
mótfallin því að frátekin útivist-
arsvæði milli Miklubrautar, Gnoð-
arvogs og Skeiðarvogs, sem í
samþyktri áætlun um umhverfi og
útivist átti m.a. að vera tengiliður
útivistarsvæðanna milli Laugar-
dals og Elliðaárdals, verði lagt
undir íbúðabyggð. Við greiðum því
atkvæði móti framlagðri tillögu."
Norrænu félögin:
Héraðsskrifstofum komið
upp á öllum Norðurlöndum
Kynningarfundir í haust
ALLT FRÁ því að Norrænu félögin tóku að sér að kynna
Norðurlandaráð og starfsemi þess, í tilefni 25 ára afmælis þess
1977, hafa viðræður átt sér stað milli Norrænu ráðherranefndar-
innar og Sambands norrænu félaganna um hugsanlega aðild
Norrænu félaganna að þvi, að
allra þeirra norrænu stofnana
landaráð, svo og starfsemi
norrænu.
Nú hefur verið ákveðið að
veita í tilraunaskyni nokkru fé
frá Norrænu ráðherranefndinni
til þessarar starfsemi gegn jafn-
háu framlagi annars staðar frá.
Komið verður á fót héraðs-
skrifstofum Norrænu félaganna
á öllum Norðurlöndum.
Hérlendis verður þessi starf-
semi fyrst um sinn a.m.k. á
Egilsstöðum og hefur Elísabet
Svavarsdóttir, kennari, tekið að
sér fyrirgreiðslu þar.
Haldnir verða kynningar-
fundir á austur- og væntanlega
norðausturlandi nú í haust. Höf-
uðáhersla verður lögð á heim-
sóknir í skóla, svo og heimsóknir
á fundi þeirra félaga sem hafa
fasta fundartíma.
veita upplýsingar um starfsemi
sem eru í tengslum við Norður-
þess og ráðherranefndarinnar
Hefst þessi kynning á Egils-
stöðum dagana 24. og 25. sept.
nk.
Þeir Árni Gunnarsson alþm.
og formaður Norrænu menning-
armálanefndarinnar og Hjálm-
ar Ólafsson form. Norræna fé-
lagsins munu heimsækja
Menntaskólann og Grunnskól-
ann á Egilsstöðum svo og hér-
aðsskólann á Eiðum áður-
greinda daga og einnig Rótary-
klúbb Fljótsdalshéraðs á
fimmtudagskvöldið þann 24.
sept. Þeir flytja smá spjall,
svara fyrirspurnum og sýna
litskyggnur frá Austur-Græn-
landi.
Fréttatilkynning.
Vinnuhópur Textílfélagsins. Frá vinstri: Sigurlaug Jóhannesdóttir, Steinunn Bergsteinsdóttir og Eva
Vilhelmsdóttir. (Ljtem. Mbi. ói.k.m.)
Fyrsta alþjóðaráðstefna hönnuða
Fyrsta alþjóðaráðstefna
hönnuða var haldin i Helsinki i
Finnlandi 1.—8. ágúst sl. í
tengslum við þessa ráðstefnu
héldu norrænir fata- og textíl-
hönnuðir sérstaka tveggja daga
ráðstefnu. Textílfélagið var
þátttakandi í báðum þessum
ráðstefnum fyrir íslands hönd.
Það var þriggja manna vinnu-
hópur félagsins sem annaðist
allan undirbúning vegna ráðst-
efnanna og sótti þær. Sá hópur
var skipaður þeim Evu Vil-
hjálmsdóttur, Steinunni Bergst-
einsdóttur og Sigurlaugu Jó-
hannesdóttur.
Textílfélagið fékk styrki frá
Iðnaðarráðuneytinu, Iðnrekstr-
arsjóði og fyrirtækjunum Ála-
fossi og Hildu hf. til að senda
fuiltrúa á ráðstefnurnar. Mikil
undirbúningsvinna fylgdi þessu
ráðstefnuhaldi og var m.a. upp-
haflega áætlað að hvert þátt-
tökuland legði til 192 litskyggn-
ur, voru slíkar litskyggnur frá
öllum Norðurlöndunum settar á
myndsegulband og það sýnt
margsinnis ytra. Var myndband-
ið kallað „Clothes for Nordic
Needs" og hefur Textílfélagið
eintak af því í fórum sínum. Þess
má geta að Textílfélagið er um
þessar mundir að kanna mögu-
leika á aðild að norrænu hönn-
uðasamtökunum NORDFORM
og alþjóðasamtökunum INTER-
DESIGN.
Type 04, Díesel/gas-knúinn — Sjálfskipting — Aflstýri — Tvöföld hjól aö framan — 360
veltibúnaður á gálga — Fullkomin vinnuljós og hreinsíbúnaður á útblæstri.
KRISTJÁN Ó.
SKAGFJÖRÐ HR
Hólmsgata 4 Bo» 906 121 flaykjsvlh
kiís
Ný LP Einars Vilbergs
NOISE
spilist hátt.
Utgefandi Toni Permo.
Dreifing
FÁLKIN N
Sími 84670.
Platan ber heitið Noise! og á henni er
að finna tíu rokkuð lög öll samin af
Einari. Tónlist hans er verulega
miklu þyngri en maður átti að
venjast frá honum og lögin hafa yfir
hrjúfum sjarma að búa. I lögum hans
er ákveðni ef ekki frekja og þau
krefjast hlustunar. Taktur er þéttur
enda aðstoðar hann á plötunni úr-
valsfólk, Ólafur Sigurðsson trommur
(Kamarorghestar), Jón Ólafsson,
bassi (Start) og Þorsteinn Magnússon
gítar (ÞEYR). Þó svo að þagnimar
hafi verið langar inn á milli þá er
framlag.Einars Vilbergs til íslenskr-
ar tónlistar ætíð stílhreint, alltaf
skemmtilegt, ef ekki óvænt. Það
skipir ekki máli þótt hann gefi út
plötur með löngum millibilum svo
lengi sem hann gefur út plötur.
Tíminn. - M.G. 6/9-81.