Morgunblaðið - 20.09.1981, Side 14
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981
BALLETTSKÓLI
EDDU ^
SCHEVING
SKÚLAGÖTU 34
Kennsla hefst í byrjun október. Innritun og upplýs-
ingar í síma 76350 kl. 2—5 eftir hádegi.
Framhaldsnemendur hafið samband viö skólann sem
fyrst
DANSKENNARASAMBAND ISLANDS
Gongu
skíöa-
menn
Verð með
bindingum
kr. 1620.
Nu er rétti tíminn
að byrja að æfa
fyrir veturinn.
Hjolaskiöin eru
frábært æfinga-
tæki.
UTILIP
Glæsibæ, sími 82922.
Höganii5
Á GÓLF OG VEGGI ÚTI OG INNI
Höganás gólf- og veggflísar henta hvort sem 0
er á heimilinu eða vinnustaðnum.
Skoðið úrvalið í sýningarsal verslunar okkar.
Höfum einnig Höganás flísalím, fugusement
og áhöld.
VILJIR ÞÚ VANDAÐ ÞÁ VELUR ÞÚ HÖGANÁS
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2, SÍMI 24260
HEIMILISHORNIÐ
Umsjón: Bergljót Ingólfsdóttir
Clark Gable og Vivien Leigh
til vinstri, Morgan
Brittany og Ed Winter til hægri.
Steinselja
og
graslaukur
Þeir sem eru með steinselju
og graslauk í garðinum og nota
mikið þurfa ekki aö hlaupa út og
skera sér til einnar máltíðar.
Steinselja geymist ágætlega í
glasi með vatni í við venjulegan
hita í eldhúsi eöa búri, það er því
fljótlegt að grípa til þess þegar
þarf.
Graslaukinn er hægt aö
hreinsa og klippa niður þurran
og setja í glerkrús og geyma í
kæliskáp. Það er þá handhægt
að setja krúsina á boröíð og
setja innihaldið út á ofanálegg
eða annaö þaö sem á borðum er.
Ef steinselja er orðin eitthvað
lítilfjörleg útlits er ráðlagt að láta
hana liggja í volgu vatni í 'h klst.
og þerra svo. Því er meira að
segja haldið fram, að bragöið
verði greinilega sterkara við það.
Hresst upp á steinseljuna.
Á hverfanda hveli
Þeir sem á unglingsórum sáu kvikmyndina Á hverfanda hveli og
grétu fögrum tárum yfir örlögum aöalsögupersónanna hafa ef til
vill gaman af aö sjá mynd af leikurunum, sem tóku aö sér hlutverk
Scarlett O’Hara og Rhett Butler í sjónvarpsþáttum, sem geröir voru
á síðasta ári í Bandaríkjunum.
Gerðir hafa verið nokkrir þættir eftir frægum kvikmyndum frá
þeim árum þegar Hollywood var í reynd stórveldi í kvikmyndagerð.
Þessi þáttagerð gengur undir nafninu „Moviola“ og hefur orðið
mjög vinsæl meðal bandarískra áhortenda.
Myndin, sem fylgir, sýnir Vivien Leigh og Clark Gable í
hlutverkum sínum í myndinni Á hverfanda hveli. Hin myndin er af
þeim nýju Scarlett og Rhett úr þáttunum og heita þau Morgan
Brittany og Ed Winter.
Enn er til blómkál
Blómkálið er ekki horfið af
markaónum svo tækifæri er
enn til að fá sér til frystingar.
Veróió veröur varla hag-
stæðara, hjá Sölufél.
garðyrkjumanna selja þeir
nú kíió af 1. flokki á kr. 14.00
sé keyptur kassi meó 7
kílóum í. Það má því segja
að hægt sé að gera góö
matarkaup og ekki úr vegi
aó nota sér blómkáliö með-
an þetta ástand varir (sem
að öllum líkindum veröur
aóeins í skamman tíma). Því
er um að gera aó notfæra
sér þetta Ijúfmeti til matar
og reyna þá eitthvað nýtt,
sem viö höfum ekki á borð-
um daglega. Blómkál er gott
í hrásalat, soðiö í súpu og
meira að segja hægt aö hafa
þaó steikt. Það getur verið
hvort heldur vill aðalréttur
eöa meðlæti.
Blómkálsgratin
500 gr. blómkál,
50 gr. smjörliki,
4 matsk. hveiti,
3 dl. mjólk,
200 gr. rifinn ostur, helst bragó-
sterkur,
3 egg,
salt.
Blómkálið soöið í léttsöltuöu
vatni þar til það er næstum meyrt.
Búinn er til þykkur uppbakaöur
jafningur úr smjöriíki, hveiti og
mjólk. Ostinum bætt út í og
potturinn tekinn af hellunni. Síöan
er eggjarauöunum bætt í og hrært
vel á milli, saltaö aö smekk og aö
síöustu er stífþeyttum hvítunum
bætt út í. Blómkáliö sett í smurt
eldfast mót og jafningnum hellt yfir,
bakaö í ofni ca. 15 mín.
Blómkál meó rækjum
1 meöalstórt blómkálshöfuö,
smjörlíki,
2 harðsoöin egg,
1 matsk. af graslauk,
1 matsk. steinselja,
rækjur, 100—200 gr.
Blómkálið soöiö í léttsöltuöu
vatnl, vatniö látió síga vel af, kálinu
haldiö heitu.
Rækjurnar (magnið fer eftir ósk
og efnum) látnar brúnast örlítið í
smjörlíkinu og raöaó í kringum
kálhöfuöió. Smátt skoriö eggiö og
grænmetið sett út í feitina og síöan
hellt yfir káliö. Gróft brauó boriö
með.
Blómkálsbakstur í ofni
1 blómkálshöfuö soöiö þar til
þaö er næstum meyrt, lagt í eldfast
mót, krydd og smjörbitar settir yfir.
Síöan er bakaöur venjulegur jafn-
ingur úr soöinu og mjólk aö
þörfum, bragöbætt aö smekk.
Jafningnum er hellt yfir káliö og
ostur í sneiöum, eöa rifinn, settur
yfir, bakaó í ofni smástund.
Ath. með blómkálinu má setja
annaö grænmeti, kaldar soðnar
kartöflur, rækjur, kalda skinkubita
eóa annaö soöiö kjöt.
Ljómandi gott meö nióursneidd-
um steiktum pylsum eöa kjötbúö-
ingi.