Morgunblaðið - 20.09.1981, Síða 18
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981
CARGOLUX 2.-3. STÆRSTA VÖRUFLUTNINGAFLUGFÉLAG HEIMS
Báöar Boeing 747 Jumbóþotur Cargolux í hlaöi í Luxemborg.
Reikna með
um 28% aukningu
á þessu ári
„Auðvitað hafa tvö síðustu ár verið okkur erfið
eins og öllum flugfélögum, hvar sem er í
heiminum. Við höfum hins vegar verið réttu megin
við rauða strikið, þ.e. hagnaður hefur verið af
rekstri félagsins bæði 1979 og 1980, þó sýnu minni
í fyrra,“ sagði Einar ólafsson, forstjóri Cargolux í
Luxemborg, í samtali við Mbl. þegar undirritaður
var á ferð í Luxemborg fyrir nokkru.
„Það eiga öll flugfélög í vand-
ræðum um þessar mundir, þó svo
hægt hafi á eldsneytishækkunum í
bili. Hvað það verður veit énginn.
Annars er það annar stór póstur í
rekstrinum, sem veldur okkur
töluverðum vandræðum, en það
eru hinir gífurlega háu vextir, sem
við verðum að greiða af lánum
vegna annarrar Boeing 747-þot-
unnar okkar, en meginhluti lán-
anna er í dollurum. Lánin af
seinni vélinni eru hins vegar mest
bundin við þýzk mörk og sterl-
ingspund og eru okkur því léttari í
skauti.
Það eru gífurlegir blóðpeningar
að borga yfir 20% vexti af þessum
lánum á sama tíma og verðbólga í
landinu er ekki helmingur af því,“
sagði Einar Ólafsson, forstjóri
Cargolux, ennfremur.
Áður en lengra er haldið er
eflaust rétt að geta þess, að
Cargolux er í eigu fjögurra aðila,
sem eiga 25% hver. Þeir eru
Flugleiðir, Luxair, Salen-sam-
steypan sænska og svo alþjóðlegt
verktakafyrirtæki, sem kom inn í
fyrirtækið í sumar. Eftir hluta-
fjáraukninguna, sem varð í sumar,
er hlutafé fyrirtækisins 300 millj-
ónir Luxemborgarfranka, en
heimild er fyrir því að auka
hlutaféð í 500 milljónir franka.
Einar Ólafsson, forstjóri Cargo-
lux, var fyrsti starfsmaður félags-
ins, en áður var hann stöðvarstjóri
Loftleiða í Luxemborg. „Þetta
byrjaði með því, að ég var fenginn
til að sjá um rekstur hins svokall-
stóð Biafrastríðið yfir."
Þó einkennilegt megi virðast,
hafa Íslendingar jafnan litið á
Cargolux sem íslenzkt fyrirbrigði
og áhugi manna hér á landi hefur
jafnan vaknað, þegar Cargolux
hefur komið inn í umræðuna,
hvort heldur í fjölmiðlum eða
annars staðar. Þetta er kannski
ekki svo skrýtið þegar litið er á þá
staðreynd, að margir forsvars-
menn fyrirtækisins eru einmitt
íslenzkir. Einar Ólafsson er eins
og áður gat forstjóri fyrirtækis-
ins. Þá má nefna framkvæmda-
stjórana Gunnar M. Björgvinsson,
Jóhannes Einarsson og Sigurð
Jónsson. Gunnar lét að vísu fyrir
skömmu af starfi sem fram-
kvæmdastjóri hjá fyrirtækinu og
kom inn í stjórn þess. Þá er
Ragnar Kvaran yfirflugstjóri
Cargolux.
Auk yfirmanna fyrirtækisins
eru fjölmargir aðrir íslendingar
starfandi hjá Cargolux, sérstak-
lega meðal flugliða félagsins. Þó
má geta þess, að Halldór Guð-
mundsson veitir starfsemi Cargo-
lux í Norður-Ameríku forstöðu,
Sigmar Sigurðsson er fram-
kvæmdastjóri skrifstofunnar í
Hong Kong og Steindór Ólafsson
hefur nýlega verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri fyrir brezka og
írska markaðssvæðið.
Formleg starfsemi Cargolux
hófst í maímánuði 1970 og var
flogið á CL-44-skrúfuþotu frá
Canadair. í september sama ár
flaug Cargolux svo sitt fyrsta flug
til Hong Kong, en í dag er flugið
til og frá Hong Kong stærsti
þátturinn í starfsemi félagsins.
Á árinu 1971 jókst starfsemi
Cargolux verulega, þegar félagið
tók inn í reksturinn þrjár
CL-44-vélar til viðbótar. Mest var
flogið til staða í Afríku, en segja
má, að flogið hafi verið vítt og
breytt um heiminn þá þegar á
öðru ári félagsins.
Fimmta CL-44-vélin bættist svc
í flotann árið 1972 og þá var tekið
upp í fyrsta skipti fast vikulegt
fiug til og frá Hong Kong. Starf-
semi félagsins jókst jafnt og þétt
og á árinu 1973 kom fyrsta
DC-8-þotan í flota félagsins, en
átturnar hafa í gegnum tíðina
verið uppistaðan í flota Cargolux,
eða þar til félagið fékk Jumbóþot-
urnar, Boeing 747, á síðustu
tveimur árum.
Á árunum 1974—1976 varð sú
breyting á flota Cargolux, að
félagið seldi tvær af eldri
CL-44-vélum sínum og fékk
DC-8-þotur í staðinn, en árið 1976
samanstóð floti félagsins af þrem-
Einar Olafsson,
forstjóri Cargolux.
Unniö viö
hleöslu.
Önnur Jumbóþota
félagsins tilbúin til
flugtaks í Hong Kong
ur DL-44-skrúfuþotum og þremur
DC-8-þotum.
Stöðug aukning hefur orðið á
flutningum félagsins í gegnum
árin og í ársbyrjun tók félagið við
Boeing 747, Jumbóþotu, nýrri frá
Boeing-verksmiðjunum, en auk
hennar voru í flota félagsins
fjórar DC-8-þotur og tvær Boeing
707-þotur. Ekki var þar látið
staðar numið, því á seinni hluta
næsta árs, 1980, bættist svo önnur
ný Jumbóþota í flotann og ein
DC-8-þota til viðbótar.
í dag er'Cargolux í 2.-3. sæti
yfir stærstu vöruflutningaflugfé-
lög heimsins. „Ástandið hjá okkur
í dag er þannig, að flotinn er
algerlega fullnýttur, er á lofti um
14 klukkustundir á sólarhring.
Það er í raun ógerlegt að nýta
hann betur, og höfum við þó varla
undan í flutningum okkar," sagði
Einar Ólafsson.
Félagið flýgur fimm sinnum í
viku til Austurlanda fjær og tvær
ferðir í viku til Bandaríkjanna og
Mexíkó, auk ýmiss konar óreglu-
bundins flugs vítt og breitt um
heiminn. Að sögn Einars Ólafs-
sonar stendur svo til að bæta við
einu flugi til viðbótar til Austur-
landa fjær. Það má reyndar geta
þess, að tæplega 60% af öllum
tekjum félagsins koma inn vegna
flutninga til Mið-Austurlanda og
Austurlanda fjær, 10% vegna
flutninga til Afríku, 3,5% vegna
flutninga til Bandaríkjanna, en
þess ber þó að geta, að þeir
flutningar fara stöðugt vaxandi og
eru tiltölulega nýir af nálinni.
Aðrar tekjur félagsins koma
vegna ýmiss konar leigustarfsemi
og viðhaldsþjónustu, sem félagið
selur út.
Aðspurður um afkomuna á síð-
asta ári sagði Einar, að heildar-
velta félagsins hefði verið 3.954
milljónir franka, hefði aukizt úr
3.074 milljónum franka, eða um
28,6%. Hagnaður af rekstri Cargo-
lux á síðasta ári var um 6,4
milljónir franka, samanborið við
78,2 milljónir árið á undan. Það er
því eftirtektarvert, að á sama
tíma og langflest flugfélög heims-
ins tilkynna um verulegan rekstr-
arhalla fyrir árið 1980 kemur
Cargolux út réttu megin við strik-
ið. — „Árið í fyrra var erfitt fyrir
okkur, en árið í ár verður ekki
betra, það er alveg ljóst,“ sagði
Einar Ólafsson, „en eins og ég
sagði áður, þá ollu gífurlega háir
vextir af lánum vegna kaupa
okkar á annarri Jumbóvélinni
okkur verulegum vandræðum á
síðasta ári, en ofan á það bætist
svo eldsneytisverð, sem var mjög
hátt á síðasta ári. Hvernig það
verður er ekki gott að gera sér
grein fyrir. Það hefur að vísu
heldur dregið úr hækkunum síð-
ustu mánuði, en það getur verið
tímabundið ástand."
Verður aukið við flotann á þessu
ári, eða hyggið þið á einhverjar
stórbreytingar? — „Það er alveg
Ijóst, að við munum ekki bæta við
flotann á þessu ári. Þeir vextir,
sem í boði eru á peningamörkuð-
EITT FÁRRA FLUGFÉLAGA, SEM SKILAÐI HAGNAÐI Á SÍÐASTA ÁRI
1