Morgunblaðið - 20.09.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981
63
+ Farkosturinn sem flutti félagana til Skotlands fyrir 36 árum, Kataiina-flugbáturinn sem oft var
kallaður „Pétur gamli“. Myndin er tekin i Skerjafirði.
+ Frá vinstri: Jón Jóhannesson, Jóhannes Snorrason og Robert Jack.
+ bessa mynd tók Sigurður Ingólfsson af farþegunum i fyrsta
fluginu með íslendinga tii útlanda árið 1945, en hann var vélstjóri
í þeirri ferð. Ferðalangarnir voru auk Jóns og Róberts, þeir Hans
Þórðarson og Jón Einarsson sem nú eru látnir.
Til minningar
um fyrsta flugið
+ Þessi mynd var tekin á dögunum. þegar þeir Jón
Jóhannesson stórkaupmaður og séra Robert Jack
afhentu Jóhannesi Snorrasyni yfirflugstjóra áletraðan
silfurbakka til minningar um tvær flugferðir sem þeir
höfðu farið saman og Jóhannes verið við stjórnvölinn í
bæði skiptin.
Önnur ferðin var fyrsta flugferð íslendinga til
útlanda árið 1945 í Katalína-flugbáti Flugfélagsins og
var þá flogið til Largs í Skotlandi. Hin ferðin var
siðasta farþegaflug Jóhannesar, en þá flaug hann
einmitt til Skotlands og bauð þá þeim Jóni og Robert
með.
félk i'
fréttum
Hljómsveit Gissurar
Geirssonar hættir
+ í blaðinu Dagskráin sem gefið
er út á Selfossi er smáfrétt frá
Gissuri Geirssyni hljómlistar-
manni þar sem hann tilkynnir að
hljómsveit hans, eða Hljómsveit
Gissurar Geirssonar, hefji ekki
störf að nýju eftir sumarleyfi.
Hljómsveitin hafi starfað saman í
10 ár og segir Gissur í blaðinu að
það sé að sínum dómi mátulegur
aldur á hljómsveit. Allir hlutir
þurfa endurnýjunar við og ekki
síst fyrirtæki sem þessi, segir
Gissur Geirsson.
Svona var hljómsveit Gissurar Geirssonar skipuð um árabil, frá
vinstri: Sigfús ólafsson, Skúli Einarsson og Gissur Geirsson.
Þ«s»i mynd er af
islenskum úrtmiöum
sem nýverið eðttu
nsmskeið Ebauch-
ee-fyrirtakieini eem
tramleiðir m.a.
Microma-úr. Frane
Micheisen, umboðe-
maður tyrirtnkieine
á íslandi, sá um und-
irbúning að nám-
ekeiðinu, eem
heppnaðist i alla
etaði vel. Á myndinni
eru úremiðir ásamt
fulltrúa Ebauches og
Frane og syni hane
og er ein stúlka i
hðpnum, Birta Ein-
arsdðttir frá Akur-
eyri.
Forstjórinn leit hér við
+ World Carpets mun vera eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum og þrátt fyrir smwð
markaðarins hér sá forstjórinn ástæðu til að líta hér við og kynnast aðstæðum. Myndin var tekin á
flugvellinum: Frá vinstri Omar Kristjánsson, Shaheen Shaheen, frú Shaheen, flugstjóri. John Shaheen m.
son, frú John Shaheen.
Ellert Shcram ritstjóri Visis,
Bjarni Einarsson hjá Fram-
kvæmdastofnuninni og Guðfinnur
Einarsson framkvæmdastjóri i
Bolungavik, standa hér fyrir utan
Morgunblaðshúsið, brosmildir á
svip. Um hvað þeir eru að tala veit
enginn nema þeir, en varla eru
það efnahagsmálin þvi þá væru
þeir varla svona hýrir á svip.
+ Nýlega höfðu viðkomu
hér á landi hr. Shaheen
Shaheen, forstjóri World
Carpets í Dalton, Georgía.
Hr. Shaheen kom hér í
einkaþotu sinni, ásamt syni
sínum John Shaheen og
eiginkonum, til skrafs og
ráðagerða við umboðsaðila
sinn hér á landi, Ómar
Kristjánsson, forstjóra
Þýzk-íslenzka verzlunarfé-
lagsins hf. Hr. Shaheen
hefur, þrátt fyrir smæð
okkar þjóðar, séð ástæðu til
að heimsækja okkur, þrátt
fyrir að fyrirtæki hans,
World Carpets, sé eitt hið
stærsta sinnar tegundar í
heiminum.