Morgunblaðið - 20.09.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981
69
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
Menntun nútímans
Við, sem komin eru yfir miðj-
an aldur, höfðum þá hugsjón að
koma börnum okkar til manns
og mennta, minnug fárra tæki-
færa, fátæktar og þrotlausrar
vinnu til að draga fram lífið, um
annað var ekki að ræða.
Nú er öldin önnur, tækifæri
mörg og flestar leiðir opnar ef
þær eru notaðar. Eftirfarandi
gerðist við einn af framhalds-
skólum borgarinnar þegar verið
var að taka á móti nýnemum,
„busum". Þeir eldri og mennt-
aðri, sem margir voru undir
áhrifum áfengis framkvæmdu
athöfnina. Nokkur atriði úr
þessum ljóta leik fara hér á
eftir:
„Busum" var smalað saman í
sal skólans í hálfrökkri. Síðan
slógu „böðlar" hring um „bus-
ana“ svo þeim varð ekki undan-
komu auðið, þá hófst sýning
klámmynda, sem voru aðallega
samfarir, og var myndavél beint
að kynfærum leikara. A meðan
öskruðu „böðlar“: „Þetta gerið
þið og þetta eigið þið að gera,“
o.s.frv.
Annað atriði var sett var á
svið krossfesting með tilheyr-
andi ópum og ókvæðisorðum í
líkingu við krossfestingu Krists
og var einn „businn" þolandinn.
Margt fleira fór þarna fram í
þjónustu við það dýrslegasta í
manneðlinu, en verður ekki rak-
ið hér.
Hvað finnst ykkur uppalendur
góðir? En þetta menntun barna
okkar, sem við borgum fyrir?
Eiga skólastjórar og kennarar
frí á þessum tyllidögum? Hvar
er eftirlitið og hver ber ábyrgð-
ina?
Þrír hneykslaðir uppalendur.
í SÍÐASTA tölublaði Nýs lands
Vilmundar er plötudómur um
plötur Árna Johnsen. Plötudóm-
ur Nýs lands er reyndar seinn á
ferð því plötur Árna komu út
fyrir 5 til 10 árum eða svo. En
það skiptir ekki öllu máli, heldur
hitt hvað Vilmundur segir um
plöturnar. Hann er hrifinn af
þeim og er það auðvitað ágætt.
En hann þrástagast á því bæði í
fyrirsögn í sjálfri greininni, að
kommarnir haldi því fram að
Árni sé laglaus. Gaman væri að
vita hvað Vilmundur er að reyna
að gera með því að segja þessa
fjarstæðu. Er hann að reyna að
koma því inn hjá kommunum að
þeim eigi að finnast Árni lag-
laus?
Eða hvað er maðurinn eigin-
lega að fara? Ég hef verið einn
heitasti aðdáandi Árna Johnsens
frá því ég man fyrst eftir mér.
Mér til ánægju komst ég að því
strax að Árni er mjög vinsæll
músíkant hjá kommum eins og
öðrum. Það má jafnvel segja að
það sé einkenni Árna hvað póli-
tískir andstæðingar hans virða
hann mikils.
Auðvitað dettur engum í hug
að halda fram að Árni sé einhver
John Lennon eða Bubbi Morth-
ens. Árni er framar öllu söngvari
augnabliksins, stemmningarinn-
ar. Og talandi um Bubba þá var
hann, herstöðvarandstæðingur-
inn og anarkistinn, einmitt ný-
verið að lofa Árna í Helgar-
póstsviðtali. Þetta er bara eitt
talandi dæmi af mörgum. Hafi
Vilmundur einhversstaðar heyrt
komma rægja Árna sem músík-
Vilmundur Gylfason
Vísa vikunnar
Slagö vó lúftan 217 kiló
Áðra eins spröku
hafa Isfirðingar
ekki séð í áratugi
MOTOKIiÁTI RINN hnKÍIritð kuni ur lyrsli tnKvriði'
Mirnum af irKWéftlnni undan Itilnum í morgun
\flinn »ar l.'» leMir iflir l'. vilarhringo fur
lli lmingur aflan> \»r kuli ug hilmingur þurskur
\nk þi ss \eiddu þi ir sta rstu sproku. sem her hefur
si-sf um aralugaskeiö. hun \o sla gö 217 kíló. \ar 208
im long. I2ft i m hn-IA og !1ft i m þ>kk um miöjuna.
I.iiftan fi'kkst i trollið a .’»!) faðma d\pi i kolaholfinu.
s« m opnaö \ar I. scptemhi'r ut af Kitnum. noröan \ið
Djupalinn
fjorir Imtur u
Isitfirði og Súðuvik b> rjuðir
vi iðiir þi.rn;i ullir ru-kjubut
ti.|>v. íð.iin jiur Iil ru-kjuvi-r
nð h. fst iiii. iniðjufl okloln r
i. •» \likiðv.,r
Ki-kiðjov.n
•t liiðun
Giiðmofl.liir Solvuiuin i Kink
biiðinin sugði. uð lúðun v uti
mj.« f»'il ..g ufbrugð- matur
Ih'iknuð. hunn nieð, uð hún
tflun.li m-Iju-I ..II i Ki-khuð
N..n\iiiiunguns I Ifar
Þeir sem sprundum sprikla með
fá sprökuafla heztan.
Þeir eru goðir þannig séð
þarna fyrir vestan.
Hákur
Árni Johnsen
ant þá hefur þar annað hvort
verið um algjöra undantekningu
eða hreinlega misheyrn að ræða.
Að lokum vil ég skora á fólk að
kynna sér plötur Árna, ef það
þekkir þær ekki þegar. Því þó
Plágan með Bubba sé kannski
bezta íslenzka poppplatan þá eru
plöturnar hans Árna a.m.k. næst
beztar.
J.I.
Þessir hringdu
Jarðskjálftarnir 1896
og þrjú börn
Þórunn Kristinsdóttir hringdi:
„Ég las þessa grein í Morgun-
blaðinu um jarðskjálftana hér á
Suðurlandi, í Ölfusi og víðar. Það
rifjaðist ýmislegt upp fyrir mér
við lestur greinarinnar því ég er
einmitt fædd jarðskjálftaárið
1896. í jarðskjálftanum féll bær-
inn á Brjánsstöðum á Skeiðum en
móðir mín, Ólavía Sigríður, var
þar til heimilis. Hún ól svo barnið
sitt í brekánstjaldi úti á túninu og
Athugasemd við dóm Vilmund-
ar um plötur Árna Johnsen
sagði sér hefði orðið það til lífs að
tíðin var alveg sérstaklega góð.
Þetta var ég, gamla konan, sem nú
er orðin 85 ára, sem fæddist þarna
í tjaldinu. Svo var ég skírð úti á
túni — það var sr. Brynjólfur á
Ólafsvöllum sem skírði mig viku
eftir að ég fæddist, ég var skírð úti
á túni undir berum himni því öH
hús voru fallin. Nú, en þetta
blessaðist allt ágætlega.
En það voru tvö önnur börn sem
fæddust þarna í jarðskjálftunum,
drengir hvor tveggja. Annar
fæddist einhversstaðar í hlöðu á
Skeiðunum og var hann látinn
heita Hlöðver. Ég vissi aldrei hvað
af honum varð. Hinn drengurinn
sem fæddist fór fljótlega í fóstur
til Magnúsar Benjamínssonar,
sem mig minnir að hafi verið
gullsmiður og úrsmiður í miðbæ
Reykjavíkur. Magnús ól hann upp
því þau hjónin voru barnlaus, og
gaf honum síðar stórt hús sem
stóð á móti Farsóttarhúsinu við
Þingholtsstræti. Þessi uppeldis-
sonur Magnúsar, kona hans og
tvær dætur, en nú er nokkuð um
liðið síðan hann dó. Mig langaði
bara tii að biðja Velvakanda að
koma því á framfæri hvernig
þetta gekk til með okkur, þessi
þrjú börn sem fæddust í jarð-
skjálftunum 1896.“
SlGeA V/öGÁ £ \tLVtmi
Alla baddarí fransí biskví?
Ef þú ætlar aö læra frönsku þá láttu veröa af því! í
Alliance Francaise. færöu fyrsta flokks kennslu.
Innritun hefst mánudaginn 21. september í Franska
bókasafninu Laufásvegi 12, 2. hæö, kl. 17—19. 40
klst. kosta 600—800 kr. eftir námsstigum. Afsláttur
fyrir yngri en 20 ára.
m
1982
^RGERESRmR
áleiðinni
til landsins
Auói
Nýjir bílar
Betri búnaður
Betriveið
IhIheklahf
JLaugavegi 170-172 Sími 21240
PRISMA