Morgunblaðið - 20.09.1981, Side 30

Morgunblaðið - 20.09.1981, Side 30
70 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1981 Umajön: Séra J6n Dalbú Hróbjartnson Séra Karl Siyvrbjörnsson Siyuröur Pdlsson AUDROTTINSDEGI „Horfdu ekki á vínið... “ Ég man þaö er ég sem strákur sá í barna- blaöinu Æskunni áhrif- amikla mynd. Hún sýndi vínglas, og í glas- inu hringaöi sig and- styggileg eiturnaöra. Og ekki var mynda- textinn síöur áhrifa- mikill, oröin úr Orö- skviöum Salómons: „Horfðu ekki á vínið hve rautt það er, hver- su það glóir í bikarn- um og rennur Ijúflega niður, að síðustu bítur það sem höggormur, og spýtir eitri sem naðral“ Þaö þykir víst ekki góö latína nú á dögum aö bera svona lagaö á borö fyrir börnin. Ef- laust hefur þaö veriö sannaö vísindalega hve gamaldags, ómögulegur og for- kastanlegur svona áróöur er. Nú á aö fræða um þessa hluti fremur en aðvara, upplýsa fremur en ala upp. Þess vegna meö- al annars eru þeir svo margir unglingarnir, sem veröa aö kynnast af eigin sáru raun, aö þessi tilvitnun í hinn djúpvitra Salómon er ekki bara oröskviöur úr forneskju, heldur ægilegur raunveruleiki, ægilegri en nokkur getur gert sér í hugar- lund. Áfengismálin hafa mjög veriö í brenni- depli undanfariö og er þaö vel. Þaö hafa vissulega unnist stórir sigrar hvaö varöar hjálp viö áfengissjúkl- inga og aöstandendur þeirra, og hundruö ef ekki þúsundir manna hljóta virka hjálp og ganga í endurnýjun hugarfarsins til lausnar úr viöjum vímufíkninn- ar. Viö eigum nú þróað og öflugt hjálparkerfi til hjálpar drykkjusjúkum og AA samtökin og Al-Anon vinna stór- kostlegt starf. En viö megum ekki láta þaö villa okkur sýn. Það er enn mikill vandi á höndum og stórkostleg vá fyrir dyrum. Þeir eru enn furöu margir, sem blindir eru á raunverulega orsök áfengisvandamálsins, og tala af hrifningu um „vínmenningu" annarra þjóöa. Og enn er vitn- aö til oröanna aö „rón- arnir hafa komiö óoröi á blessaö brennivíniö". Þaö vakti þó mikla athygli er Alþjóöa heil- brigðismálastofnunin lýsti því yfir, að áfeng- issýkin væri alþjóölegt vandamál, og ein al- varlegasta ógnunin viö heilbrigöi mannkyns. Þessi athyglisveröa ályktun benti tíka á, aö frumforsenda áfengis- vandamálsins sé ekki félagslegs eðlis, eins og haldiö hefur veriö fram, sem aukin menntun og upplýsing geti bætt um, heldur einmitt „blessaö brennivíniö" áfengiö sjálft. Þessu hafa reyndar bindindisfélög haldið fram alla tíð, og áfeng- isvarnarnefndir og áfengisvarnarráö, en veriö sorglega van- megna og hlotiö lítinn hljómgrunn. Og nú er Ijóst, að áfengið er orðinn miklu ríkari þáttur í almennum lífs- háttum manna og á ótrúlega mörgum heimilum, þar sem óhugsandi heföi veriö fyrir nokkrum árum aö áfengi væri haft um hönd, — er nánast orðiö jafn sjálfsagt aö gestum sé boöiö vín- glas eins og molakaffi. Þessari hugarfars- breytingu eiga fjölmiöl- arnir mikla sök á meö markvissum áróðri í nafni betra lífs, en naöran liggur undir, naöran sem spýtir eitri lánleysis, upplausnar, sorgar og dauöa. Þaö þarf meira en lítið átak til aö sporna gegn þessari öfug- þróun og vekja nýtt, virkt almenningsálit gegn vímugjöfum! Þaö þarf samstillt átak bindindisfélaga, æsku- lýösfélaga, íþróttafé- laga, kirkju og skóla og annarra uppalenda meö virkum stuöningi fjölmiðla til aö vekja nýtt, öflugt almenn- ingsálit gegn eitrinu til betra lífs, heilbrigöara siögæöismats og lífs- hátta. 10 líkþráir Lúk. 17:11-19 Fátt er eins dapurlegt aö lesa um í Nýja testamentinu eins og líkþráa menn. Þeir voru sá hópur manna sem samfélagið hafnaöi gjörsamlega. Þeir höföu tapaö öllu og tífiö varö ömurlegt svo og svo lengi, uns þeir dóu fjarri ástvinum sínum. Sjúkdómurinn var vægast sagt hræöilegur og smitandi var hann, þannig aö samfélagiö kunni ekki annaö ráö en útiloka sjúklingana frá öllu samneyti viö annaö fólk. Jesús Kristur mætti þessu fólki alveg á sama hátt og öörum. Hann spuröi ekki um heföbundnar reglur og fordóma í sambandi viö umgengni viö líkþráa frekar en aöra. Hann gekk rakleiöis inn í neyö þeirra og hreinsaði þá, sbr. guöspjall dagsins. Eitt af því sem rís hæst í þessari frásögu er sú staöreynd aö aöeins einn þakkaöi Jesú, hinir gengur allir burt þegjandi. Þá spuröi Jesús: Hvar eru þeir 9? — Frá því aö þetta geröist, hefur í rauninni þessi spurning lifað og menn spyrja hennar í ýmsum aöstæöum lífsins. Spurningin er gott sjálfsprófunarefni fyrir alla menn. Öll höfum viö hlotiö svo og svo miklar gjafir úr hendi Guös, aö viö höfum ríka ástæöu til aö sýna þakklæti okkar í verki. Stundum finnst okkur allt dapurt og vonlaust í þessu lífi. Ekki síst líður okkur þannig þegar viö höfum mætt sorg eöa þjáningu. En þá er gott aö hitta einhvern sem leiðir manni fyrir sjónir, hvaö þaö er í rauninni margt sem viö getum glaöst yfir, þrátt fyrir allt. — Ef til vill finnst okkur viö ekki hafa oröiö fyrir kraftaverki, en hvaö er kraftaverk? Hugsaöu þér lífiö sjálft sem hrærist umhverfis þig. Hugsaöu um fæöingu lítils barns, hvaö þaö er stórkostlegt kraftaverk aö þaö skuli lifa og vera fullskapaö. — Þannig mætti lengi telja, allt eru þetta teikn um mátt Guös og miskunn, sem . ástæöa er til aö viðurkenna meö því aö sýna þaö í verki. Þaö var aöeins einn sem sneri viö. Er þaö ef til vill þannig í lífinu almennt, aö aöeins tíundi hver maöur kunni aö þakka Guði? Ef svo er, þá er þaö allt of lítiö. Guöspjalliö minnir okkur á aö viö erum í þakkarskuld viö skapara okkar og getum sýnt þaö með ýmsu móti. Besta þakklætiö er í því fólgiö aö koma til Jesú, eins og líkþrái maöurinn geröi og færa honum þakklætiö. Hann gefur okkur þá kraft og gleöi til aö halda áfram og fullna skeiöiö. Þaö aö koma til Jesú er aö fylgja honum til oröa og athafna, hlusta á oröiö hans og þrá aö gera þaö sem hann kallar okkur til hverju sinni. BIBLÍULESTUR vikuna 20. til 26. sept. Sunnudagur 20. sept. — Lúk. 17, 11 — 19. Mánudagur 21. sept. — 2. Kor. 1, 1 — 11. Þriðjudagur 22. sept. — 2 Kor. 3, 1 — 18. Miðvikudagur 23. sept. — 2. Kor. 4, 16—5, 10. Fimmtudagur 24. sept. — 2. Kor. 5, 14—6, 2. Föstudagur 25. sept. — 2. Kor. 9, 1 — 15. Laugardagur 26. sept. — Matt. 6, 19—23. Við söfnumst saman í stofunni, eða við rúm barnanna, kveikjum á kerti, spenn- um greipar og biðjum saman: Hvað getum við þakkað Guði fyrir í dag? — Börnin koma sjálf með tillögur. Síðan biðjum við og þökkum: Góði Guð, við þökkum þér fyrir þennan dag. í kvöld viljum viö sérstak- lega þakka þér. Síðan getum við lesið saman eöa sungið: Nú gjaldi Guði þökk hans gjörvöll barnahjörðin, um dýrð og hátign hans ber himinn vott og jörðin. Frá æsku vorri var oss vernd og skjól hans náð, og allt vort bætti böl hans blessað líknar ráð. Viö lesum úr Biblíunni textann skv. Biblíulestraskránni, eöa: „Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Veriö glaöir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friöur Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.“ (Fil. 4, 4—7.) Síðan biðjum við Faðir vor og förum með blessunarorðin. Framleiðendur - Innflytjendur Ungur sölumaður getur tekiö að sér sölu og ef til vill dreifingu í Reykjavík og úti á landi, á seljanlegum vöruflokki. Tilboð sendist Morgunblaöinu fyrir föstudag merkt: „D — 7623“. Kaupum grös og blóm Óskum eftir aö kaupa pressuö íslensk blóm og falleg strá í kippum. Verður notaö til aö brenna í steinleir. Æskilegt aö fá úr sem flestum landshlutum. Aðeins íslenskar tegundir. Uppl. í Glit næstu daga kl. 1—2 e.h. í síma 85411. Glít hf., Höfðabakka 9.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.